Tíminn - 08.12.1989, Síða 5

Tíminn - 08.12.1989, Síða 5
Föstudagur 8. desember 1989 Tíminn 5 Um 75 milljarða hækkun þjóðartekna 1986-88 fór öll í launa- og vaxtahækkanir: Launahækkanir meiri en allir raunvextir Hlutur atvinnurekstrarins í vergum þjóðartekjum minnk- aði um meira en þriðjung á tveim árum - úr 32,1% árið 1986 niður í 20,6 árið 1988- samkvæmt úttreikningum hagdeildar Seðlabankans skiptingu þjóðartekna og greiddum raunvöxt- um undanfarin ár. Öfugt við það sem ýmsir hafa haldið á lofti hafa útgjöld atvinnuvegnanna aukist miklu meira vegna launahækkana heldur en vegna innlendra vaxtahækkana. Launahlutinn í vergum þjóðartekjum stækkaði á tveim árum úr 64% upp í 72,3%, eða um meira en 8% - sem er hærra hlutfall en fór til greiðslu allra raunvaxta af innlendu fjármagni árið 1988. Hlutdeild raunvaxta jókst sömu ár úr 3,9% upp í 7,2% af þjóðartekjum. TAFLA VI1-5 SJSIPTING þJóPARTEKNA fjÍUjajrftar Kr. 1986 1987 1988 1989 Laun og tengd gjöld 82,3 117,5 147,0 165,2 Rekstrar- og eignatekjur 26,5 25,0 28,5 37,0 Raunvaxtatekj ur 5,0 7,4 14,6 Rekstrarafgangur 21,5 17,6 13,9 Hreinar þjóðartekjur 108.8 —142.5 175.5 202,2 Afskriftir 19,7 23,6 27,9 32,9 Vergar þjóftartekjur 128,5 166,1 203,4 235,1 Hlutföll %l Af hreinum bióftartekium: Laun og tengd gjöld 75,6 82,5 83,8 81,7 Rekstrar-og eignatekjur 24,4 17,5 16,2 18,3 Raunvaxtatekj ur 4,6 5,2 8,3 Rekstrarafgangur 19,8 12,3 7,9 Hreinar þjóðartekjur 100,0 100,0 100,0 100,0 Afskriftir 18,1 16,6 15,9 16,3 Af verqum bió»artek-ium; Laun og tengd gjöld 64,0 70,7 72,3 70,3 Raunvaxtatekjur 3,9 4,5 7,2 Afskriftir og rekstrarafg. 32,1 24,8 20,6 Þannig rciknast Seðlabankanum til að „þjóðarkakan“ hafi skipst - í hlutföllum og milljörðum króna - síðustu fjögur árin. Ef hlutur atvinnuveg- anna í „kökunni“ hefur minnkað meira en helming á tveim árum þarf líklega engann að undra þá erfiðleika og gjaldþrotahrinu í atvinnulífinu sem yfir hefur dunið á þessu ári. „Launahegðunin er þannig megin- orsök þrenginga atvinnurekstrarins. Árið 1989 hefur launahlutdeildin aðeins að sáralitlu leyti gengið til baka. Búast má við talsverðri lækk- un raunvaxta, metinna á verðlags- kvarða (framfærsluvísitölu) svo sem rétt er talið bæði í þjóðhagsreikning- um og alþjóðlegum samanburði", segir m.a. í skýrslu Seðlabankans. I ljósi títtræddrar tekjurýrnunar launþega á yfirstandandi ári vekur athygli, að Seðlabankinn áætlar launin á árinu í heild álíka hátt hlutfall vergra þjóðartekna eins og árið 1987, um 70,3%. Kaupmáttar- rýrnun hefur því að meðaltali fylgt rýrnun þjóðartekna frá árinu 1987. Hæst fór hlutfall launanna þó árið 1988. En þá hækkuðu laun (og launatengd gjöld) í þjóðfélaginu í kringum 2 milljarða kr. að raungildi frá árinu áður, á sama tíma og vergar þjóðartekjur hins vegar minnkuðu um 2 milljarða kr. að raungildi (miðað við lánskjaravísi- tölu). Þegar þar við bættist veruleg hækkun raunvaxta sama ár þarf líklega engan að undra að eitthvað færi undan að láta í atvinnulífinu. Þegar borin eru saman árin 1986 til 1988 kemur fram að í beinum krónum talið hækkuðu vergar þjóð- artekjur í kringum 75 milljarða króna (úr 128 í rúma 203 milljarða). Þessir 75 milljarðar fóru allir upp í launahækkanir (65 milljarðar) og hækkun raunvaxta (10 milljarðar). Hlutur atvinnuveganna upp í allan annan kostnað var nánast upp á krónu sá sami og næstu tvö ár á undan, um 42 milljarðar ár hvert. Ef atvinnuvegirnir hefðu hins vegar haldið sama hlutfalli þjóðartekna í rekstrarafgang og afskriftir og 1986 átti þeirra hlutur að hafa hækkað í um 65 milljarða árið 1988 - þ.e. orðið um 23 milljörðum kr. hærri heldur en raun varð á. Þetta 23ja milljarða „tap“ atvinnuveganna svaraði t.d. til meira en þriðjungs af fjárlögum íslenska ríkisins það sama ár. Enn aumari verður útkoman þeg- ar litið er á rekstrarafganginn einan, þ.e. að frádregnum launakostnaði, raunvöxtum og afskriftum. Eigin tekjur atvinnuveganna voru komnar niður í aðeins tæplega 7% þjóðar- teknanna árið 1988, í stað nær 11% árið áður og tæplega 17% árið 1986. f krónum talið minnkaði hreinn rekstrarafgangur þannig úr nær 22 milljörðum kr. í tæpa 14 milljarða kr. þessi tvö ár á sama tíma og verðlag hækkaði um 45%. í raun- krónum svarar þetta til um 17 millj- arða kr. rýrnunar á hreinum rekstr- arafgangi atvinnuveganna á tveggja ára tímabili. Vergar þjóðartekjur eru áætlaðar um 235 milljarðar kr. á þessu ári, sem er 15,6% hækkun síðan í fyrra, og þýðir því í raun töluverðan samdrátt. Þar af hlutur launa og launatengdra gjalda áætlaður rúm- lega 165 milljarðar kr., eða rúmlega 70%, álíka og árið 1987, sem áður segir. Hvert hlutfall raunvaxta verð- ur af þjóðartekjum þessa árs hefur Seðlabankinn ennþá ekki lagt mat á, og þar með heldur ekki hve stórum hluta atvinnureksturinn heldur eftir af þeim 29,7% þjóðarteknanna sem er umfram launakostnaðinn einann. Sem áður segir miðar Seðlabank- inn hér við skiptingu vergra þjóðar- tekna en ekki landsframleiðslu. Munurinn á þessu tvennu fellst að meginhluta í vaxtagreiðslum af er- lendum skuldum. Á landsgrundvelli (landsfram- leiðsla) eru því bæði heildartekjur og fjármagnsgjöld hærri sem því svarar. -HEI Sverrir Hermannsson segir skýrt og skorinort frá ýmsu sem ekki hefur fengist staðfest til þessa: Moggaritstjórar mynduðu stjórn „Þess ber að geta, að það var ekki Þorsteinn Pálsson fyrst og fremst, sem myndaði ríkisstjóm Sjálfstæðis- flokks, Framsóknarflokks og Al- þýðuflokks í júlíbyrjun 1987. Aðal- driffjaðrir þeirrar stjómarmyndunar vom ritstjórar Morgunblaðsins, Matthías og Styrmir; Matthías með kunningsskap sínum við Steingrím Hermannsson og Styrmir með vin- skap sínum og venslum við Jón Baldvin Hannibalsson." Þessi orð standa í bókinni um Sverri Hermannsson, Skýrt og skor- inort eftir Indriða G. Þorsteinsson sem komin er út og er tilvitnunin hér að ofan ekki einsdæmi um atvik í stjómmálum síðustu ára sem leynt hafa farið til þessa. „í fyrri hluta bókarinnar segir frá uppvaxtarámm Sverris vestur við Djúp, menntaskólaámm á Akur- eyri, háskólaárum í Reykjavík. Síð- ari hluti fjaliar um stjórnmálastarfið, stj ómmáíamennina, kosningaferða- lögin og framboðsfundina í Austur- landskjördæmi, og síðast en ekki síst innri málin í flokki Sverris sjálfs, Sjálfstæðisflokknum. Frásögninni lýkur þegar Sverrir verður banka- stjóri 1988,“ segir á bókarkápu. Bókin um Sverri Hermannsson er 230 bls. auk nafnaskrár í bókarlok. Fjöldi mynda er í bókinni bæði úr stjórnmálum og einkalífi Sverris. Útgefandi er Almenna bókafélagið. -sá Samráðsfundur ríkisstjórnarinnar og vinnuveitenda: Samið verði fyrst á almennum markaði Fulltrúar atvinnurekenda komu til samráðsfundar við ríkisstjórnina í gærmorgun. Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra sagði í samtali við Tímann að á þessum fundi hafi komandi kjarasamningar verið til umræðu og staðan og horfur á næsta ári í atvinnu- og efnahags- málum. Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ segir að þeir hafi staðfest það að þeir væru full- komlega sammála ríkisstjóminni að samið yrði fyrst á hinum almenna vinnumarkaði, áður en ríkið tæki til við sína samningagerð. Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra tjáði vinnuveitendum að nú væri ríkisstjórnin að ljúka þeim björgunaraðgerðum sem ráðist var í fyrir rúmu ári. Hann sagði að við núverandi aðstæður gætu atvinnu- fyrirtækin frekar starfað en áður var, þó honum væri ljóst að erfiðleik- ar væru víða miklir. Þórarinn sagði að þeir væru sammála þessu að því leytinu til að tími skuldbreytinga af þessum toga er liðinn. „Það verður engu bjargað með frekari skuld- breytingum,“ sagði Þórarinn, hins vegar sæju þeir þess víða dæmi að skuldbreytingatilefni kynnu að vera að byggjast upp aftur. Það sem fyrirtækin verða að fá núna, að sögn Þórarins, er stöðugleiki í verðlags- og launamálum. „Nú verður því að linna að mestu að komið sé til ríkisstjórnar og sagt, nú verður hitt og þetta að gera til að unnt sé að reka heilbrigt atvinnulíf í þessu landi," sagði Steingrímur. Ríkisstjómin á að skapa grundvöll- inn og tryggj a að hann sé fy rir hendi, en ekki vera að með puttana í hvers manns koppi, eins og stundum er sagt. Eru aðilar á því að ríkisstjórnin sé búin að skapa grundvöllinn? „Menn vilja lengi meira, en þó koma fram hjá þeim að búið væri að lækka raungengið í það sem þeir ættu að geta búið við á næsta ári. Breytingar á raungenginu til hins verra, t.d. með óhagstæðum samningum telja þeir ekki koma til greina, en þeir töldu það viðunnandi eins og það er,“ sagði Steingrímur. Þórarinn V. Þórarinsson sagði að- spurður að auðvitað hefði ríkis- stjórnin náð árangri á þessu ári við að skapa fyrirtækjunum rekstrarskil- yrði. „Það sem gerst hefur er að raungengi hefur lækkað mjög mikið. Menn í sjávarútvegi og atvinnulífinu töldu og telja enn að það hefði verið skynsamlegar að þessi raungengis- lækkun hefði átt sér stað miklu fyrr, þannig að tapið hefði ekki hrannast upp og eigið fé þessara fyrirtækja brunnið upp. Það breytir því ekki að raungengið hefur þokast stórkost- lega mikið til réttrar áttar og allt önnur rekstrarskilyrði eru í útflutn- ingsgreinunum. Það sem eftir stend- ur eftir undangengin ár, allt frá 1986, þá hefur gengið mjög harka- lega á eigið fé fyrirtækjanna og þau eru ekkert farin að byggja það upp í dag,“ sagði Þórarinn. Hann sagði að fiskvinnslan virtist vera hætt að tapa í sínum rekstri, en hins vegar ekki farin að byggja upp eigið fé á nýjan leik, þannig að rekstrarerfiðleikar í þeirri grein væru út af fyrir sig ekki að baki. Hins vegar væru aðrar greinar s.s. verslun, þjónusta og byggingastarf- semi í mjög mikilli kreppu og yrðu það á næsta ári. „Samdrátturinn kemur til með að bíta þar mjög harkalega og allar eiga þessar at- vinnugreinar það sammerkt að þær koma ekki til með að þola nýja verðbólguholskeflu, það gildir það sama fyrir fyrirtækin og fólkið,“ sagði Þórarinn. Forsætisráðherra sagði að hjá vinnuveitendum hefði það komið mjög sterklega fram að þeir teldu að þeim yrði að treysta til að gera samninga, þó vissulega vildu þeir hafa breiðara borð fyrir báru. „Hins vegar segja þeir að slíkir samningar kunni að verða all erfiðir, en þeirra viðræður við ASÍ séu útaf fyrir sig ennþá mjög jákvæðar en eigi tölu- vert í land, sem von er,“ sagði Steingrímur. „Það er almenni vinnumarkaður- inn sem á að marka launaþróunina. Það getur ekki verið hlutverk ríkis- ins og starfsmanna þess að ákvarða það hver launaþróunin eigi að verða á íslandi á næsta ári,“ sagði Þórar- inn. -ABÓ ÖKUMENN Athugiö aö til þess aö við komumst feröa okkar þurlum við aö losna viö bifreiöar af gangstóttum Kærar þakkir ______________ Blmdir og sjónskertir yr™ © Blindrafélagið

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.