Tíminn - 08.12.1989, Page 6

Tíminn - 08.12.1989, Page 6
6 Tíminn Föstudagur 8. desember 1989 Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og _____Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Aðstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. ágúst hækkar: Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð í lausasölu í 90,- kr. og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Framhaldssagan langa Viðræður iðnaðarráðherra hvers á fætur öðrum, svo að árum skiptir, og fjölskipaðra nefnda á þeirra vegum við erlenda málmbræðslumenn, er að verða einhver hin lengsta framhaldssaga íslenskra atvinnu- mála sem um getur. Viðræðurnar hafa það að markmiði að semja við erlend málmbræðslufyrirtæki um að þau setjist að á íslandi til þess að stunda þar starfsemi sína, enda í boði af íslendinga hálfu næg raforka, ef málm- bræðslurnar geta greitt rétt verð fyrir orkuna. Fljótt á litið sýnist þetta fremur einfalt mál. ísland er auðugt að orkulindum, sem augljós hagur er að, að séu virkjaðar, málmbræðslufyrirtæki þurfa um- fram allt á mikilli og ódýrri orku að halda til þess að framfleyta sér og eru því best komnar sem næst orkustöðvunum. Þrátt fyrir það virðist það vera seiglu- og þolinmæðisverk að tengja þessa hagsmuni orkuseljenda og orkukaupenda saman, sem bendir til þess að ekki sé auðhlaupið að því fyrir íslendinga að útvega sér álver eftir pöntun, hvað þá að raða þeim niður á landshlutana eftir því hvernig óskir berast þar um. Núverandi iðnaðarráðherra hefur ekki síður en fleiri í hans stöðu verið ötull og ósérhlífinn í leitinni að málmbræðslufyrirtækjum sem vildu nýta sér íslenska orku. Áhugi hans hefur vissulega vakið vonir margra um að framundan væru miklar fram- kvæmdir í virkjunarmálum og á stóriðjusviðinu. Það hefur reyndar komið í ljós að almennur áhugi á stóriðju hefur vaxið upp á síðkastið og andstaðan gegn þessari atvinnugrein minnkað. Ástæða þess er vafalaust sú að mengunarvarnir eru fullkomnari en var og menn þykjast sjá að hægt sé að treysta íslenskt forræði fyrir erlendum iðnaðarrekstri í landinu betur en gert var þegar samið var við Alusuisse fyrir aldarfjórðungi. Þeir samningar voru afar umdeildir, enda í meira lagi frumstæðir eftir því sem gerist í þróuðum ríkjum með fulla sjálfsvirðingu. Þess háttar samningar verða auðvitað ekki endurteknir. Nú hefur það gerst hina síðustu daga að þríefldur hópur álbræðslufyrirtækja, svokallaður Atlantalhóp- ur, sem iðnaðarráðherra og stóriðjunefnd hans hafa kunngert þjóðinni að hafi verið mjög álitlegur viðsemjandi, er að leysast upp að því leyti að Alusuisse hefur sagt sig úr hópnum og eftir standa tvær álbræðslur, önnur sænsk, hin hollensk, og verður haldið áfram að fá þær til að setjast að á íslandi. Iðnaðarráðherra sagði í viðtali við Tímann í gær að áhugi Hollendinganna og Svíanna væri mikill á að koma upp álveri á íslandi. Ekki er ástæða til að draga orð ráðherrans í efa. Hins vegar liggur á bak við þau orð öll samanlögð reynsla íslenskra iðnaðarráðherra árum og áratugum saman, að áhugi útlendra málm- bræðslumanna á viðskiptum við íslendinga er teygj- anlegt og óskýrgreint hugtak. Reyndar er áhuginn svo teygjanlegur að þanþolið í honum ætlar að endast iðnaðarráðherrum og stóriðjunefndum í langa framhaldssögu áður en henni lýkur. GARRI Ljón á Melrakkasléttu „En margs hafa gerst dæmi í forneskju“, sagði Jón gamli lærði, þegar hann var að velta fyrir sér hvort hann ætti að leggja trúnað á þá sögu að Ijónaflokkur hefði geng- ið á land á Melrakkasléttunni með liafís. Þótt ekki væri sagan senni- leg, þá fannst þeim gamla samt rétt að hafa áðumefndan fyrirvara á - „margs hafa gerst dæmi í fom- eskju“. Litlu sennilegri en sagan af Ijónunum, hefðu nýleg tíðindi frá A-Þýskalandi þótt fyrir svo sem hálfu ári. Svo er að heyra sem að á því gamla forstands og skikkelsis þjóðarheimili séu allir slagbrandar af lömunum gengnir og skólastrák- ar og hispursmeyjar grúski nú óhindrað í koppum og keröldum öryggislögreglunnar. Þessir aðilar eiga meira að segja að hafa gert sig heimakomna í sjálfum herbúðum alþýðuhersins, en þar á bæ höfðu menn sannarlega ekki orð á sér fyrir að þýðast neinskonar leika eða lausung. í Ijósi alls þessa er dæmi Jóns lærða, sem ekki þorði með öllu að hafna hinum lygileg- ustu historíum, íhygli- og kannske eftirbreytnivert. Það má enda til sanns vegar færa að forneskjan geymir mörg áþekk dæmi og nú finnast í A-Þýskalandi - og raunar nýrri tímar einnig. í furðulegum eyríkjum í Karabíska hafinu og fyrír ekki löngu á Filipps- eyjum hafa virðulegir stjórnarherr- ar mátt lúta að áþekku. Hafi þeim gefist ráðrúm til, hafa þeir einn daginn ekki átt annars úrkosta en halda í hvellinum brennu á skjölun- um um viðburðaríkan feríl á stjórn- arstóli og hraða sér að því búnu úr landi á vit innistæða á svissneskum bönkum, sem þeir af hyggindum hafa ætlað sér til ellinnar. En líkt og Jón lærði átti bágt með að trúa sögum um Ijón á Melrakkasléttu, hefur mönnum reynst erfitt að setja sér fyrir sjónir „suður-amrískan“ hasar í ríki Hon- eckers. Menn áttu ekki von á að þar hefðu leikið lausum hala svo rómantískir persónuleikar og raun er á orðin og vanalega hafa boríð nöfn á borð við Signor Maggio, Rubirosa, Tittorelli eða önnur nöfn með létt-sikileyskum blæ. Nú hafa ýmsir af þeim einmitt veríð grípnir, þar sem þeir stóðu við pappírstætingamaskínuna eða voru að hlessa flugvélar undarleg- um dokúmentum, gulli og gim- steinum eða öðrum ámóta spennu- söguvamingi, ef menn eiga að þora að trúa, fremur en Jón lærði. Allt mundi þetta sanna að í alþýðulýð- veldinu voru karlar ekki slík dauð- yfli og margur ætlaði. Kemur enda í Ijós að vandi ætlar að verða að finna sæmilega trúverðuga persónu til þess að taka við nýrri stjóm i landinu. Nær hver maður er gmn- aður um að hafa óhreint í poka- hominu og ráðherrum skákað út og inn í mesta fáti. Almenningur veit enda ekki hvort við úlf eða lamb er að eiga, eftir því sem fleira spyrst út af sjónhverfingalist ráða- stéttarínnar á löngum ferli. Hið háaldraða prúðmenni, Erích Honecker, hefur nú veríð settur í svonefnt stofufangelsi og má hann líklega einu gilda, þar sem hann er hrörlegur orðinn og hefði hvort sem er ekki hugsað sér til mikils hreyfings. Karl reyndist þó sjálfum sér trúr til hinstu stundar og lét það verða sitt hinsta verk að láta deila út patrónum í rífila pilta sinna í Leipzig, ef vera mætti að enn værí ráðrúm til að verja „heiður fjöl- skyldunnar“ í gömlum og ósvikn- um Chicago-anda. Ekki var það honum að kenna að menn urðu of svifaseinir eða bragðust. Söm var hans gjörðin og má honum þykja flestu aftur farið. Garri VÍTTOG BREITT Söguskoðuná haus Söguritun og túlkun sögunnar er sérgrein kommúnista. Hugmynda- fræði þeirra byggist á að móta atburðarás eftir hentugleikum og illvirkin eru afsökuð með því að þau séu „söguleg nauðsyn". Þessi marx-lenínski draugagangur geng- ur aftur í kommaflokkum um allan heim og víða um lönd veit fólk lítið um hvað snýr upp og hvað niður í veraldarsögunni vegna sögu- skoðunar marxista og handbenda þeirra. Á hinum síðustu og bestu tímum þykir víst lítil kurteisi að bendla menn við marxisma á íslandi af næsta óskiljanlegum ástæðum, því að það er rétt eins og að norður undir Dumbshaf berist engar fréttir af skipbroti valdastétta þeirra ríkja sem byggt hafa tilveru sína á marx- lenínskri hugmyndafræði og því valdi sem fylgir þvt að ráða yfir vopnum. Þar sem Mörlandinn er eins seinn að taka við sér og raun ber vitni þykir sjálfsagt enn góð fyndni sem draup úr rauðum penna hér um árið, að að tækniundur sem fundið var upp af Kaldeum fyrir einhverjum þúsundum ára hafi fyrst borist til íslands um aldamótin síðustu og þótt merk nýjung. Það voru hjólbörurnar. Hvenær vitneskjan um marxíska söguskoðun berst til landsins ræðst af því hvenær það verður söguleg nauðsyn, að hafa skuli það sem sannara reynist. Undirskriftir reglugerða í öllu írafárinu um brennivíns- kaup ráðamanna á kostnaðarverði kom upp sú skrýtla, að fjármála- ráðherra hafi veitt vel í boði sem stofnað var til vegna þess að Lúð- vík Jósepsson hafi fært út fiskveiði- Lúðvík. Ólafur. lögsögu. Ekki munu aðrir hafa verið boðnir en tryggir meðlimir allaballasafnaðarins, sem þuldu sína söguskoðun hver yfir öðrum og fer vel á því. Hins vegar er söguskoðun Lúð- víks um landhelgisútfærslur og þorskastríð orðin nokkurt fjöl- miðlaefni vegna bókarkorns sem sett hefur verið saman um hans hlið málanna. Lúðvík Jósepsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, á sannarlega sinn ágæta þátt í útfærslum auð- lindalögsögu og var ódeigur að skrifa undir reglugerðir þar um. En að flokkur hans og hann sjálfur hafi verið þar einn að verki er söguskoðun sem aðeins hæfir marxistum. Allt væri nú þetta í sæmilegu lagi ef reglugerðaráðherrann bæri gæfu til að hrósa sjálfum sér og ofmeta hlutverk sitt án þess að væna aðra um svik og allt að því landráð. En marxísk söguskoðun er söm við sig og þýðir kannski ekki þar um að fást. Svikabrigsl í viðtölum við fjölmiðla hjakkar sjávarútvegsráðherrann fyrrver- andi í gömlum sporum og rembist við að koma svikaorði á samráð- herra sína í einhverjum mikilvæg- ustu úrlausnarefnum sem þjóðin hefur staðið frammi fyrir. Að halda því fram að Ólafur Jóhannesson hafi gefist upp í strangasta þorskastríði sem íslend- ingar hafa háð og að láta að því liggja að hann hafi jafnvel gengið erinda andstæðinganna, er sögu- túlkun sem jafnvel marxisar ættu að varast. í fréttum ríkisútvarps lék Lúðvík lausum hala með svikabrigsl sín og hélt þar blákalt fram að íslendingar hafi gefist upp fyrir andstæðingun- um í þorskastríði og gert við þá smánarsamninga. Þarna var verið að auglýsa nýja bók um marxista- kappann Lúðvík, sem stóð einn gegn öllum og vann aleinn sín þorskastríð. Auðvitað gildir einu hvað marx- ísk söguskoðun vill hafa satt um landhelgisbaráttu íslendinga fyrr og síðar. Það er óhrekjandi stað- reynd að Ólafur Jóhannesson, þá- verandi forsætis- og dómsmálaráð- herra, leiddi 50 mílna baráttuna til sigurs og að á honum mæddi stríðs- reksturinn öðrum mönnum fremur og farsæl samningagerð að lokum. Hann átti einnig sinn stóra þátt í að ná viðurkenningu á 200 mílna auðlindalögsögu. Hér er ekki verið að halda fram þeirri fásinnu að Ólafur Jóhannes- son hafi verið einn að verki, því að baki honum stóð flokkur hans einhuga og reyndar öll þjóðin. En að vera að halda því fram að allaballar hafi einir staðið í land- helgisbaráttu og að allir aðrir hafi verið að svíkja og að Ólafur Jó- hannesson hafi verið handbendi andstæðinga, er svo fráleitt að það sæmir ekki einu sinni marxískri söguskoðun að láta slíkt í ljósi. Annars þarf ekki annarra vitna við en leiksloka. En af þeim sýnist Lúðvík ekki hafa frétt. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.