Tíminn - 08.12.1989, Qupperneq 7

Tíminn - 08.12.1989, Qupperneq 7
Föstudagur 8. desember 1989 Tíminn 7 VETTVANGUR Einar Freyr: Munu Svíar geta fundið morðingja Olofs Palme? í sumar sem leið var Christer Pettersson dæmdur af Borgarrétti Stokkhólms til lífstíðar fangelsis fyrir að hafa myrt Olof Palme forsætisráðherra Svía þann 28. febrúar 1986. Dómurinn var ekki einhuga. Sex af dómurunum, sem voru leikmenn, sakfelldu Petterson, en lögmennimir tveir í dómnum vildu sýkna hinn ákærða. Málinu var áfrýjað til Svía hofréttar. Þann 12. október sl. gaf Birgitta Blom, forseti Svía hofréttar, út opinbera tilkynningu þess efnis, að ákærði Christer Pettersson hafi verið sýknaður af ákærunni og væri því frjáls ferða sinna. Skyldi hann tafarlaust látinn laus. Jafnframt var tilkynnt að dómurinn í heild sinni yrði birtur 2. nóvember. Dómur Svía hofréttar var einhuga eða 7 á móti 0. Samkvæmt skoðanakönnun er meirihluti sænsku þjóðarinnar sannfærður um það, að Christer Pettersson hafi ekkí myrt Olof Palme. Það er einnig ljóst að sænska intelligensían er á sama máli, og greindasti fangavörðurinn sem gætti Pettersson er sannfærður um sakleysi hans í þessu máli. Loks má nefna bróður Olofs Palme, Claás Palme, sem er lögmaður í Jönköping, hann segir að það sé af og frá að manngerð eins og Petters- son hafi myrt Olof Palme, slíkt komi bókstaflega ekki til greina. Verjandi í málinu var Ame Lilj- eros. Hann stóð sig mjög vel og er nú mjög öfundaður af kollegum sínum. Aðstoðarmaður hans var Lars Ekman. Rétt er einnig að minnast á Astrid Holgersson, en hún er sálfræðingur sem sýndi mikla þekkingu og hæfni í starfi sínu í þessu máli. Fram hafa komið nokkur hótun- arbréf vegna þessa máls, kannski frá hinum raunverulegu morðingj- um, en um þá hlið málsins er ekki tímabært að ræða eins og sakir standa. II. Morðið á Olof Palme varð m.a. til þess að koma upp um marga embættismenn Svía og sýna, að þeir voru ekki starfí sínu vaxnir. Þeir féllu hver af öðrum úr embætt- um sínum eins og úr slöngvistól (katapult). Fyrstur varð Hans Holmér, lögreglustjóri Stokk- hólmsléns. Hann var neyddur til að segja af sér. - Morðið á Olof Palme er án efa pólitískt morð. Kringumstæður og upplýsingar benda á slíkt. Reynt hefur verið að draga athyglina frá þessari stað- reynd með ýmsu móti, einnig í réttarhöldunum. Að vissu marki minnti þetta mjög á aðstæðumar kringum morðið á demókratanum John F. Kennedy Bandaríkjafor- seta 1963. Margir vissu þá, og vita enn, að Warren-nefndin var sett á laggimar í miklum flýti og var skipuð hörðum pólitískum and- stæðingum hins myrta forseta. Margir sem vom í nánum tengslum við þessa nefnd litu á Kennedy sem kommúnista. Og Warren-skýrslan fullyrti að Lee Harvey Oswald væri morðingi Kennedys, þótt nákvæm- ar rannsóknir sýni að hann sé saklaus. Eins og góðar heimildir sýna m.a. heimildakvikmyndir, þá hefur morðið á Kennedy forseta verið upplýst að nokkm leyti, kom- ið hefur m.a. í ljós, að bæði lögregla og leyniþjónusta ásamt vissum glæpamanni hafa átt stóran þátt í morðinu á á Kennedy for- seta. Utanríkisstefna bandarískra republikana seinustu fjömtíu árin, hefur m.a. vakið upp hryðjuverka- starfsemi í Mið-Austurlöndum, Suður-Ameríku og víðar. Eitur- lyfja-mafíur víða um lönd eins og t.d. kókaínmafían í Columbíu, er fyrst og fremst afleiðing af slíkri stefnu. Olof Palme var andvígur slíkri stefnu Bandaríkjanna, - en eins og Kennedy hafði hannn ekki upp- götvað þá staðreynd, að bandarísk- ur kapitalismi er ekkert annað en gamall anarkismi. Það er bæði, pólitísk, sagnfræðileg og sálfræði- leg staðreynd. Hinar miklu hættur . á alþjóðavettvangi em fólgnar í þessari staðreynd. Lifandi dæmi um slíkan fmmstæðan vemleika er viðtal við yfirmann CIA, William Webster, í The New York Times þannT7.10 sl., þar sem hann lýsir yfir því, að CIA þurfi að fá betri aðstöðu til að myrða þá stjóm- málaforingja sem CIA og Banda- ríkjastjórn er óánægð með. Svo við snúum okkur aftur að morðinu á Olof Palme er frá því: að segja, að fyrst átti að kenna Kúrdum um þetta morð, síðan manni sem kallaður var „33-áring- en“, svo aftur Kúrdum undir nafn- inu PKK-sporið. Þetta leit út eins og barátta milli lyginnar og sann- leikans. í byrjun ársins 1987 tekur rann- sóknarlögreglumaðurinn Hans Ölvebro við af Hans Holmér sem leiðtogi í leitinni að morðingja Olofs Palme. En á bakvið tjöldin byrjar Ebbe Carlsson, gamall vinur Hans Holmérs, að koma ár sinni fyrir borð. Þeir höfðu áður unnið saman við að njósna um „kommúnista" sem áttu að starfa við sjúkrahús í Gautaborg. Holmér var þá yfir- maður leyniþjónustu Svía, Sápo, en Carlsson var fulltrúi í dóms- málaráðuneytinu. Með erlendri hjálp uppgötvaði Ebbe Carlsson það sem nú er kallað PKK/Iran- sporið, þar sem því er haldið fram, að morðið á Olof Palme sé tengt Kúrdum og íran. Það er ekki ætlun mín að rekja það mál hér, en það var Ebbe Carlsson málið sem m.a. leiddi til þess, að Anna-Greta Leijon, dómsmálaráðherra, Nils Erik Áhmansson, rfkislögregljustjóri og yfirmaður Sápo Sune Sandström, voru neydd til að segja af sér. Það leit eklri vel út með leitina að morðingja Olofs Palme árið 1988. Það sumar stóðu yfir yfirheyrslur stjómarskrámefndarinnar vegna mistaka og óheiðarleika. Yfir- heyrslum þessum var sjónvarpað. ra. Á meðan þessu fór fram vom í undirbúningi réttarhöld vegna meiðyrðamála. - Svo er mál með vexti, að í desember 1987, kom út bókin „Mordet pá Olof Palme - Ett verkligt drama“ eftir Lars Krantz, sjónvarpsframleiðanda og rithöfund. í bókinni segir hann frá tveim óeinkennisklæddum mönn- um sem hann sá við strætisvagna- stöð skammt frá morðstaðnum og nokkmm mínutum eftir morðið á Olof Palme. Olof Palme. Vegna þess, að mennimir höguðu sér mjög undar- lega, veitti hann þeim sérstaka athygli. Nokkm seinna komst Krantz að því, að þetta vom lög- regluþjónar sem þekktir vom fyrir ofbeldi í starfi og ofstæki í stjóm- málum. Krantz gefur rannsóknar- lögreglunni skýrslu um það sem hann sá, en máli hans er lítið sinnt og ekki tekið alvarlega. Af þeim ástæðum samdi hann þessa bók og fékk hana útgefna. Hann gefur upp nöfn þessara Iögreglumanna sem hann gmnar að eigi einhverja hlutdeild í morðinu á Olof Palme. Þar var komið upp nýtt mál og sem í Svfþóð fékk nafnið „lögreglu- sporið“. Ýmsir rithöfundar skrifuðu um þetta mál m.a. blaðamaðurinn og rithföfundurinn Sven Anér, sem gaf út bókina „Polisspáret“. Þá hefur sænska Ríkisútvarpið rás 1 rætt mikið um „lögreglusporið" og talað við mörg vitni í þættinum „Kanalen“. Allar þessar miklu upplýsingar urðu til þess að nokkrir söfnuðir sænskra kommúnista tóku sér einnig fyrir hendur að rannsaka þetta mál. Þeir hafa samband við ýmis vitni sem vom stödd á ýmsum stöðum og í ólíkri fjarlægð frá morðstaðnum. Þeir fá að sjá lög- regluskýrslur og tala við lögreglu- menn sem þeir þekkja. Síðan setja þeir saman kort af þeim hluta Stokkhólmsborgar þar sem morðið var framið og sýna á kortinu hvar hin ýmsu vitni hafa staðið og hvað þau hafi séð á tímabilinu milli kl. 23.10 og 23.30, en morðið var framið kl. 23.21. Kortið sýnir marga menn með talstöðvar (walk- ie-talkie) í ólíkri fjarlægð frá morð- staðnum. Svo að segja öllum vitnunum ber saman um, að þannig hafi þetta verið kvöldið sem Olof Palme var myrtur. Lýsingin gefur til kynna að morðið á Olof Palme hafi verið skipulagt af einhverjum hóp manna. Þannig minnir þetta mjög á morðið á Kennedy forseta 1963. Þetta mál hefur vakið mikla athygli og ég sá og heyrði í sjón- varpinu fyrrverandi dómsmálaráð- herra Önnu-Greu Leijon segja það, að rannsaka ætti öll spor, einnig lögreglusporið. Bæði Lars Krantz og blaðamenn kommúnista voru dregnir fyrir dómstóla fyrir að hafa birt opinber- lega nöfn ákveðinna lögregluþjóna Stokkhólmsborgar og grunað þá um hlutdeild í morðinu á Olof Palme. IV. Einmitt þegar athygli sænsku þjóðarinnar beinist sem mest að lögreglusporinu og blöð, sjónvarp og útvarp, sérstaklega „Kanalen" ræða mikið um lögreglusporið, þá allt í einu er Christer Pettersson tíndur upp af götunni. Lögreglu- menn og saksóknarar reyna að sannfæra Pettersson um það, að best sé fyrir hann að mál hans sé rannsakað svo hægt sé að sanna sakleysi hans. Bæði Pettersson og verjandi hans gera sér Ijóst að eins og sakir stóðu var ekki um annað að ræða en að mál hans yrði rannsakað. En þessi afstaða lögreglumanna og saksóknara reyndist vera gildra. Þeir ætluðu sér að setja máUð þannig upp, að Christer Pettersson yrði áreiðanlega dæmdur fyrir morðið á Olof Palme. Hans Ölvebro fullyrti í sjónvarp- inu að ekkert vantaði nema að fá Pettersson til að játa. Saksóknar- inn, Jörgen Almblad, sagði við fréttamenn, að Pettersson yrði áreið- anlega sakfelldur. Þessi spádómur Almblads minnti á orð nornanna í Macbeth sem spáðu því að hann yrði bæði konungur og ekki kon- ungur. Jörgen Almblad varð bæði sigurvegari og ekki sigurvegari. Hann vann málið í Borgarrétti en tapaði því í Svía hofrétti. V. Kvöldið sem Olof Palme var skotinn var hann fluttur blóðugur og meðvitundarlaus til Sabbats- bergs sjúkrahússins, - en þar átti sér stað fyrsta yfirheyrslan með Lisbet Palme, konu Olofs. Hún segir lögreglumönnunum frá því, að maðurinn sem skaut hafi verið klæddur bláum jakka og gæti vel verið einn af þeim mönnum sem hún sá fyrir utan bústað sinn, og það væri hugsanlegt að hann til- heyrði hinni króatlsku Ustasja- hreyfingu. Lisbet minntist ekki einu orði á andlit í þessari fyrstu yfirheyrslu, og margt bendir til þess að hún hafi ekki séð andlit morðingjans. Fáeinum dögum seinna birtist hin svokallaða fant- om-mynd, eða teiknuð mynd, gerð af vegifaranda, sagt var að myndin gæti kannski verið lík morðingjan- um. Þessa teiknuðu mynd drakk Lisbet í sig. Löngu seinna eða haustið 1988 talar saksóknarinn Jörgen Alm- blad við Lisbet Palme, samkvæmt vitninu Márten Palme syni Lisbet og Olofs. Almblad segir henni frá þremur grunuðum mönnum, við getum kallað þá „J“, „0“ og „P“. Hún fær að vita, að einn af þessum grunuðu mönnum er afbrotamaður og drykkjusjúklingur. Það er aug- ljóst að Almblad hefur reynt að stjóma hugmyndum Lisbetar eða hafa áhrif á sjónarmið hennar. Þegar svo Lisbet Palme mætir í sakbendingu segir hún: „Þama sér maöur hver er drykkjusjúkling- ur“ og bendir á Christer Petters- son. Þar með var morðinginn fundinn. Jörgen Almblad var mjög ánægður. Hér mætti bæta því við, að heima hjá hinum grunaða „Ö“ hefur fundist mikið af vopnum og einnig sama tegund af byssukúlum og notuð var til að myrða Olof Palme. „0“ hafði einnig aðgang að íbúð við Regeringsgatan 85, en þar í nánd hvarf morðinginn skyndi- lega að sögn vitnisins „Lars“ en hann hljóp á eftir morðingjanum til að reyna að vita hver hann væri. Auk þess er „Ö“ tengdur lögregl- unni. Flest dagblöð Svía sögðu eðli- lega frá réttarhöldunum t.d. birti íhaldsblað Svía, Svenska Dagbla- det, alla lokaræðu verjandans. Það voru aðallega blöð sem tilheyrðu sósíaldemókrötum sem voru áber- andi hlutdræg og óheiðarleg, sér- staklega Aftonbladet. Þegar t.d. einn af blaðamönnum Aftonbladet spurði, forseta Svía hofréttar, Birgitte Blom, hvort hún væri viss um það, að Christer Pettersson hafi ekki myrt Olof Palme, þá svaraði hún m.a.: „Sem lögmaður þá á ég að líta á staðreyndir“. f fréttaviðauka sænska sjón- varpsins Aktuellt sagði kvenþulur- inn að lokum: „Morðingja Olofs Palme hefúr verið sleppt lausum“. En verður Palme-morðið nokk- urntíma leyst? Ef Svíar eiga nokkurn tíma að geta fundið hinn rétta morðingja Olofs Palme lifandi eða dauðan, þá verður leyniþjónusta Svía, Sápo, að losa sig viö öll hin miklu' áhrif frá ákveðinni erlendri leyni- þjónustu, og ekki aðeins Sápo, heldur öll lögregla Svía og sérstak- lega rannsóknarlögreglan. Svfar verða að gera sér ljóst, að þegar um pólitísk morð er að ræða, þá er það stóribróðir sem týgur að litla- bróður, slíkt er regla en ekki undantekning. Ennfremur þurfa Svíar að sjá um það, að þeir sem stjóma leitinni að morðingja Olofs Palme, séu eins heiðarlegir, eins gáfaðir, eins klárir í kollinum, og eins vel með- vitaðir um gildi starfs sfns og forseti Svía hofréttar Birgitta Blom. Morðið á Olof Palme varðar ekki aðeins Svfa, heldur öll Norðurlönd, jafnvel allan heiminn. Pólitfsk morð eru því miður tals- vert algeng og enginn veit með vissu, hvenær röðin kemur aftur að Norðurlöndum, og kannski ein- hverju öðru landi en Svíþjóð. En nú hafa Svíar eignast nýjan og mjög gáfaðan ríkislögreglu- stjóra, Bjöm Eriksson, en framtíð- in mun skera úr því, hvort honum tekst að finna morðingja Olofs Palme. Gautaborg í október 1989. Einar Freyr.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.