Tíminn - 08.12.1989, Page 13

Tíminn - 08.12.1989, Page 13
Föstudagur8. desember 1989 Tíminn 13 Jóla-framsóknarvist Framsóknarvist verður spiluð sunnudaginn 10. desember kl. 14.00 í Danshöllinni (Þórs- café). í tilefni jólamánaðarins verða veitt glæsileg verðlaun karlá og kvenna (jólamatarkörfur). Aðgangseyrir kr. 400.-. Kaffiveitingar innifald- ar. Haraldur Ólafsson lektor mun flytja stutt ávarp í kaffihléi. Framsóknarfélag Reykjavíkur. Akranes - Jólabasar [ framsóknarhúsinu við Sunnubraut laugardaginn 9. des. frá kl. 11 -14. Ýmsir jólamunir til sölu á góðu verði. LFK. Akranes Munið bæjarmálafundinn laugardaginn 9. des. kl. 10.30 í framsóknar- húsinu við Sunnubraut. Bæjarfulltrúarnir. Framsóknarvist - Rangæingar Sunnudaginn 10. des. kl. 21.00 verður næst síðasta umferð í þriggjakvöldakeppninni spiluð á Hvolnum. Kvöldverðlaun. Heildarverðlaun eru helgarferð til Akureyrar fyrir tvo, 'að verðmæti kr. 25.000,- Framsóknarfélag Rangæinga. Suðurland Skrifstofa kjördæmissambands framsóknarfélaganna, Eyrarvegi 15, Selfossi er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 15-17, sími 98-22547. Lítið inn, kaffi á könnunni. Stjórn KSFS. Jólaglögg í Kópavogi Framsóknarfélögin í Kópavogi bjóða félagsmönnum sínum, vinum og samherjum upp á jólaglögg í „Opnu húsi“ að Hamraborg 5 miðvikudaginn 13. desember n.k. og hefst fagnaðurinn kl. 18.00. Sérstaklega hvetjum við samherja af landsbyggðinni sem staddir eru í bænum að líta við og ylja sér í skammdeginu. Framsóknarfélögin í Kópavogi. Freyjukonur - Hörpukonur Jólafundur Freyju í Kópavogi verður haldinn að Hamraborg 5,3. hæð fimmtudaginn 14. desember n.k. kl. 20.30. Hörpukonur f Hafnarfirði eru boðnar á fundinn. Verið allar velkomnar. Stjórnin. Jólahappdrætti Framsóknarflokksins Dregið verður 23. desember n.k. Velunnarar flokksins eru hvattir til að greiða heimsenda gíróseðla fyrir þann tíma. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða í síma 91-24480. Framsóknarflokkurinn. Framsóknarmenn Siglufirði og Fljótum Munið matarfundinn í hádeginu föstudaginn 8. des. á Hótel Höfn. Stjórnin. Árnesingar - nærsveitir Spilum félagvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi, föstudaginn 8. desember kl. 20.30. Síðasta kvöldið í 3ja kvölda keppni. Mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgarness. Keflavík Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Keflavík verður hald- inn á Glóðinni laugardaginn 9. desember kl. 16.00. Stjórnin. Framsóknarfólk Norðurlandi vestra Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár- króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757. Reykjanes Skrifstofa kjördæmissambandsins, Hamraborg 5, Kópavogi, s. 43222, er opin mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 17-19. K.F.R. Haraldur Ólafsson llllllllllllllllllllllllllll SPEGILL lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Talið f.v.: Linda Gray (1984) Mitzi Gaynor (1985) og Joan Coll ins (1989) - og virðast allar vera klæddar sama kjólnuni FékkJoan Collins kjólinnáfornsölu? Það hefur áreiðanlega farið held- ur betur í skapið á leikkonunni Joan Collins, þegar vikublað eitt í Bandaríkjunum birti þessar mynd- ir af þremur frægum leikkonum og allar voru þær í eins kjólum. Ein- hver glöggskyggn blaðamaður hafði farið í myndasafnið og fundið myndirnar. Vegna þess hve kjól- arnir voru áberandi þá festust þeir í minni blaðamannsins. Þarna var þá komin mynd af Dallas-stjörnunni Lindu Gray (t.v.) frá árinu 1984 og þvínæst leikkonunni Mitzi Gynor, en sú mynd er tekin 1985 - og svo kemur loks Dynasty-stjarnan Joan Collins, en sú mynd er frá þessu ári. Því var slegið fram til gamans, að líklega væru stórstjörnumar farnar að spara og seldu hver annarri samkvæmiskjólana sína. Þess vegna var spurt: „Fékk Joan Collins kjólinn á fornsölu, - eða fékk hún hann gefins?“ Dennis Quaid (í „Sögu rokkarans“) valinn í „úrvalsflokkinn“ Tímaritið US fékk nokkrar fræg- ar konur til að velja tíu karla í „úrvalsflokk", þ.e. þá kynþokka- fyllstu og álitlegustu karlmenn í hópi leikara sem þær þekktu. I dómnefndinni var m.a. Emma Samms (úr Dynasty o.fl.), breska poppstjarnan Samantha Fox, Mel- anie Mayron (úr „Á fertugsaldri") o.fl. . Leikarinn Dennis Quaid var hátt á lista hjá þeim, og flestar nefndu þær, að hann hefði algjörlega heill- að þær upp úr skónum með leik sínum í „Sögu rokkarans“, sem nú er sýnd í Laugarásbíói. Þar leikur Dennis Quaid rokkarann Jerry Lee Lewis, sem kom hingað til lands fyrir ca. 2 árum og spilaði og söng á Broadway. - Og það er ekki nóg með að Dennis Quaid leiki Jerry Lee heldur hefur hann farið að haga sér í einkalífinu ekki ósvipað og fyrirmyndin, en Jerry Lee Lewis var (og er víst) ekki beint náungi fyrir ungan mann að taka sér til fyrirmyndar. Melanie Mayron (úr thirty- something) segir m.a.: „Hann Dennis hefur þetta prakkaralega bros sem alveg heillar mig. Hann er alveg ofsalega sjarmerandi!"

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.