Tíminn - 08.12.1989, Síða 15

Tíminn - 08.12.1989, Síða 15
Föstudagur 8. desember 1989 Tíminn 15 ÍÞRÓTTIR Webster blokkerar Bo einu sinni sem oftar. Tímamynd Pjetur Góöur sigur Tindastóls í úrvalsdeildinni í körfuknattleik: Valur Ingimundar skaut Hauka niður Sigur Tindastóls gegn Haukum í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi var aldrei verulega í hættu. Hins vegar varð oft darrað- Körfuknattleikur: Stórsigur UMFG Grindvíkingar unnu stóran og ör- uggan sigur á ÍR 97-65 er liðin mættust í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í Grindavík í gærkvöldi. Leikurinn var jafn framan af, en um miðjan síðari hálfleik tóku Grindvíkingar góðan sprett og náðu 13 stiga forystu 27 gegn 14. Áfram héldi Grindvíkingar og munurinn var orðinn 24 stig þegar blásið var til leikhlés 56-32. ÍR-ingar náðu ekki að klóra í bakkann í síðari hálfleik. Grindvík- ingar hittu vel og kláruðu dæmið örugglega, 97-65 eins og áður sagði. Guðmundur Bragason var yfir- burðamaður hjá Grindvíkingum og skoraði 31 stig, en næstir komu Steinþór Helgason með 15, Svein- bjöm Siurðsson með 14 og Banda- ríkjamaðurinn Ron Davis með 14 stig. Hjá IR skoraði Tómas Lee flest stig eða 20, Jóhannes Sveinsson gerði 10, Björn Bollason og nafni hans Steffensen gerðu 8 stig hvor. ardans á fjölunum í Firðinum þegar leið á seinni hálfleikinn þegar Hauk- ar gerðu örvæntingarfullar tilraunir til að saxa á forskot Tindastóls. En allt kom fyrir ekki því Tindastóll sigraði með 95 stigum gegn 84. Það var að vísu um miðjan fyrri hálfleikinn að hagur Haukanna var ekki slæmur. Þá náðu þeir að jafna 19-19 og komust yfir 22-19. En þá var draumurinn búinn. Valur Ingi- mundarson breytti honum í martröð með stórleik, en hann skoraði hverja glæsikörfuna af annarri. Af þeim 47 stigum sem Tindastóll skoraði í fyrri- hálfleik átti Valur heiðurinn af 30. Þá höfðu Haukarnir skorað 36 stig. Haukamir byrjuðu af nokkmm krafti og náðu að minnka muninn í 6 stig í byrjun hálfleiksins. En með ömggum leik gerðu Tindastóll út um leikinn og náðu 20 stiga forskoti um miðjan síðari hálfleik. Haukamir lögðu þá allt í sölumar og eygðu vonarglætu þegar tæpar þrjár mínútur voru til leiksloka og staðan 84-73. Þá missti Tindastóll út af með fimm vill'ur þá Sturlu Örlygs- son og Sverri Sverrisson sem stýrt hafði leik Stólanna. Darraðardans- inn var gífurlegur og beittu Hauk- amir pressuvörn til að freista þess að vinna boltann. Árangur þess var sá að Haukamennimir Jonatahan Bow og Henning Henningsson fuku einn- ig út af með fimm villur. Tindastóll náðu alltaf að svara fyrir sig þegar Haukarnir skomðu körfu og lauk leiknum eins og áður segir 95-84 Tindastól í vil. Stigin: Haukar: Henning 21, fvar Á. 15, Webster 14, Bow 14, Pálmar 13, Reynir 3, Jón Amar 3. Tindastóll: Valur 46, Bo 29, Sverrir 8, Pétur 8, Ólafur 5 Körfuknattleikur: Keflavík sigrar Valsmenn 97-75 Valsmenn sóttu ekki gull í greipar Keflvíkinga í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í íþróttahúsinu í Keflavík og voru Keflvíkingar ekki á þeim bux- unum að láta Reykvíkingum eftir stigin. Keflvíkingar sigruðu Valsara með 97 stigum gegn 75. Staðan í hálfleik vara 43 stig gegn 38, Keflvík- ingum í hag. KR sigrar Njarðvík KR sigraði Njarðvík 77-75 í æsi- spennandi leik í gærkvöldi. 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 Get-raunir!!! Þrefaldi potturinn gekk út um síðustu helgi eins menn vita, því alls voru tólfurnar sjö talsins. Hver og einn fékk í vinning 530.521 kr. en í hlut hvers og eins sem hafði 11 rétta kom 4.200 kr. Alls komu 218 raðir fram með 11 réttum. Úrslitin voru nokkuð samkvæmt bókinni, í það minnsta voru engin mjög óvænt úrslit á borð við þau sem orðið hafa á liðnum vikuin. Fylkir var áfram sölu- hæsta félagið með 50.690 raðir. Fram kom næst með 43.503 raðir og í þriðja sætinu var KR með 34.242 raðir. Önnur félög á topp 10 Iistanum með 16-26 þúsund raðir voru í réttri röð: ÍBK, Valur, Selfoss, ÍA, Víking- ur, KA og UBK. SOS hópurinn leiðir nú hópleikinn með 104 stig, en næstir koma hóparnir HULDA og TVB16 með 103 stig. í 4.-7. sæti eru síðan FYLKISVEN, FÁLKAR, SÍLENOS og MAGIC-TIPP með 101 stig. Prír hópar voru með 12 rétta um síðustu helgi og 33 hópar með 11 rétta. Getspeki fjölmiðlanna var með eindæmum góð um síðustu helgi, enda lítið um óvænt úrslit. Dagur og Al- þýðublaðið náðu 9 réttum og aðrir miðlar voru skammt undan. Staðan í fjölmiðlaleiknum er nú þessi þegar tvær vikur eru eftir: Alþýðublaðið 77, DV og Bylgjan 75, Dagur 74, RÚV 70, Stöð 2 69, Morg- unblaðið, Þjóðviljinn og Hljóðbylgjan 68, Stjarnan 65 og Tíminn 61. Á morgun sýnir Sjón- varpið beint frá leik Boruss- ia Dortmund og Werder Bremen í v-þýsku úrvals- deildinni. Leikurinn hefst kl. 14.30 og sölukerfinu verður Iokað 5 mín. áður *eða kl. 14.25. Yfirferð ætti að vera lokið um kl. 17.30. B.Dortmund-W.Bremen: 1 Lið Borussia Dortmund hefur staðið sig vel fram til þessa, meðan Werder ■ Bremen hefur átt í nokkru basli. Ætli sjónvarpsáhorf- endur verði ekki vitni að heimasigri. Charlton-Millwall: X Hinn dæmigerði jafnteflis- leikur í ensku deildinni, en hafa ber þó í huga að allt getur gerst þegar þessi lið eigast við. í fyrra vann Millwall stórsigur þegar þeir sóttu Charlton heim. Coventry-Arsenal: 2 Það þarf að fara fjögur ár aftur í tímann til þess að finna tapleik Coventry gegn Arsenal á heimavelli. Reyndin verður sú á morg- un að meistararnir fagna sigri. Liverpool-Aston Villa: 1 Aston Villa hefur ekki náð að sigra Liverpool á Anfield Road nú síðari árin og ósennilegt er að breyting verði þar á nú, þótt gengi Villa liðsins hafi verið með besta móti upp á síðkastið. Man. United-C.Palace: 1 Nú mætast þessi lið loks í 1. deild eftir nokkurt hlé, því Palace er nýkomið upp úr 2. deild. Ekki er líklegt að gestirnir fari með stig með sér frá Manchester að þessu sinni. Nott.Forest-Norwich: 1 Þessi lið eru bæði skammt frá toppi deildarinnar og samkvæmt hefðinni ætti Forest að vinna sigur í þess- um leik. QPR-Chelsea: X Botnlið QPR nær að hirða stig af Chelsea liðinu sem er í fremstu röð um þessar mundir. Langt er síðan Chelsea hefur farið með öll stigin frá Loftus Road. ShefT.Wed.-Luton: 1 Wednesday liðið hefur ver- ið í nokkurri sókn uppá síðkastið eftir mjög slaka byrjun. Þessi leikur er einn þeirra sem liðið verður að vinna til þess að eiga mögu- leika á að bjarga sér frá falli í 2. deild. Southampton-Man.CHy: 1 Southampton hefur verið í fremstu röð það sem af er í vetur og liðinu ætti því ekki að verða skotaskuld úr því að leggja City á The Dell. Tottenham-Everton: 1 Þessi lið eru nú stödd um miðja deild og þurfa því bæði á sigri að halda til þess að færast ofar í töfluröðinni. Þau eru bæði hálfgerð jójó Iið og því erfitt um vik að spá í úrslit leiksins. Heima- völlurinn hefur löngum gert gæfumuninn og ætli svo verði ekki einnig að þessu sinni. Wimbledon-Derby: X Síðustu tvö árin hefur Derby ekki sótt gull á greip- ar Wimbledonmanna og því er varla við meiru að búast af gestunum en að þeir nái jafntefli. Ipswich-Sunderland: 1 Þessi lið eru með í barátt- unni um þriðja sætið í 2. deild, en Sheffield United og Leeds eru að stinga af. Ætli Ipswich hafi það ekki og kræki í þrjú dýrmæt stig. BL FJÖLMIÐLASPÁ LEIKIR 9. DES, '89 -I £ > o z z s p ii ij* II t tr < e •3 tri .2 a. z < 3 -J úá É w 2 <. Z a 1 Q □ 3 1 •J < z < —> 3 1 2 r SAMTALS 1 X 2 B. Oortmund - W. Bremen 1 2 1 2 1 1 1 1 X X 2 6 2 3 Charlton - Millwall 2 X X 2 i 2 X i 1 1 1 2 4 3 4 Coventry - Arsenal 2 2 2 2! 2 2 2 1 1 2 2 2 0 $ Liverpool - Aston Villa 1 1 1 1 1 1 1 1 i 1 1 11 0 0 Man. Utd. - C. Palace 1 1 1 11 1 1 1 1 1 1 11 0 0 Nott. For. - Norwich X nr 1 X 1 1 1 1 X 1 1 8 3 0 Q.P.R. - Chelsea T 2 X 2 2 2 2 1 2 X 2 2 2 7 Shett. Wed. - Luton T 1 1 xix 1 X X X 1 X 5 6 0 Southampton - Man. City i 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0 Tottenham - Everton 1 1 1 X! 1 X 11 1 1 X 8 3 0 Wimbledon - Derby X X X 2 i 2 X X X 1 X 1 2 7 2 Ipswich - Sunderland 1 1 1 1 í X 1 1 1 1 1 1 10 1 0

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.