Tíminn - 08.12.1989, Qupperneq 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FUJTNINGAR
Hatnorhúsinu v/Tryggvogötu.
SJM2Í , ,
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
DAGAR TIL JOLA
Tíminn
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1989
Kaupsýslumenn og forystumenn í atvinnujrfi á spástefnu Stjórnunarfélags Islands:
Spyrja himintungl
um efnahagsþróun
Á næsta ári má búast við hægum bata í efnahagsmálum.
Afstaða Júpíters við Neptúnus bendir til góðs fiskerís.
Samstaða Satúrnusar og Neptúnusar sýnir að mestu
erfiðleikar í fiskeldi og loðdýrarækt eru að baki. Þá er útlit
fyrir að ferð Júpíters í gegnum Ljón- og Meyjarmerki
haustið 1990 og 1991 geti skapað þenslu og vaxtarmögu-
leika, líkast til í sambandi við erlenda markaði, ferðamál,
stóriðju og virkjunarframkvæmdir.
Þetta kom fram á spástefnu
Stjórnunarfélags íslands í gær, en
þar flutti Gunnlaugur Guðmunds-
son stjörnuspekingur erindi um
horfur í efnahagsmálum. Á erindið
hlustuðu forystumenn í atvinnulífi,
m.a. forstjórar og framkvæmda-
stjórar virtra stórfyrirtækja.
Gunnlaugur segir að erlendir
stjórnmálamenn og stjórnendur
fyrirtækja leiti í auknum mæli ráða
hjá stjörnuspekingum. Ronald
Reagan studdist t.d. mikið við ráð
stjörnuspekinga í sínum stjórnar-
athöfnum. Það var stjörnuspeking-
ur sem ráðlagði honum að halda
leiðtogafund í Reykjavík og hann
átti einnig mikinn þátt í að breyta
áliti forsetans á Sovétríkjunum og
Míkhaíl Gorbatsjov.
Sem dæmi um umfang stjörnu-
spekinnar í Bandaríkjunum má
nefna að um fjögur þúsund stjörnu-
spekingar eru starfandi þar í landi.
Áhrif þessarar speki á viðskiptalíf-
ið eru mikil sem sést m.a. af því að
gefin eru út fjögur tímarit sem
sérhæfa sig í upplýsingum fyrir þá
sem nota fjárfestingamarkaðina
m.a. í Wall Street.
Áhrif stjörnuspekinnar á við-
skiptamenn á íslandi hafa líka
vaxið eins og sjá má af því að
stjörnuspekingur var fenginn til að
spá um framtíð efnahagsmála á
íslandi á spástefnu Stjórnunarfé-
lags íslands.
Gunnlaugur stjörnuspekingur
útskýrði fyrir spástefnugestum
grundvallaratriðin í stjörnuspeki
og rakti með dæmum hvernig
stiórnmál og markaðsmál sveiflast
til í takt við gang himintunglanna.
Gunnlaugur segir að um þessar
mundir sé að verða afgerandi skil
Niðurstaða fundar sjávar-
útvegsráðherra og hags-
munaaðila í sjávarútvegi:
Fallið frá
veiðibanni
Á fundi sjávarútvegsráðherra með
hagsmunaaðilum í sjávarútvegi
vegna loðnunnar, var ákveðið að
falla frá þeim hugmyndum að stöðva
veiðar, enda þótti ástæða ekki til.
Árni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu sagði að
breyttar aðstæður frá því sem var
um síðustu helgi, hafi leitt til þessar-
ar niðurstöðu.
Loðnusjómenn hafa ekki verið að
kasta á smáloðnuna eins og var um
helgina, heldur hefur það litla sem
veiðst hefur verið nokkuð stór
loðna. Þá er einnig hafís kominn á
verulegan hluta miðanna og þar sem
ýmsir hugðust hætta leit og veiðum
í bili þótti ekki ástæða til að grípa
inní, með sama hætti og til stóð um
síðustu helgi.
Þá var einnig rætt á fundinum
hvemig að leit skuli staðið í þeim
leiðangri sem nú stendur yfir og hins
vegar eftir áramót.
Engin ioðnuveiði var á miðunum
í fyrrinótt og er hafísinn kominn
inná það veiðisvæði sem bátarnir
hafa verið að reyna fyrir sér að
undanförnu. Á sunnudag er búist
við suðaustan eða austan áttum og
ætti þá hafísinn að reka til baka.
-ABÓ
Fyrstur mætti á fundinn Jakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar
og skenkir Halidór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra honum kaffi í bolla í
morgunsárið. Tímamynd Árni Bjurau
á mjög mörgum sviðum þjóðmála
vegna þess að a.m.k. þrenn
stjörnukerfi em nú að ganga í
gegnum tímamót. Gunnlaugurseg-
ir að það þurfi ekki að koma
neinum á óvart að Berlínarmúrinn
og kommúnisminn hafi hrunið á
síðustu vikum. Eitthvað verði jú
að láta undan.
Um efnahagserfiðleika íslend-
inga sagði Gunnlaugur: „Ég tel að
núverandi erfiðleika íslendinga
megi að hluta til rekja til þess
hversu lokaður og úreltur markað-
urinn er. Við höfum búið við
haftabúskap og forræðiskerfi sem
er lítt skapandi fyrir einstaklings-
framtak í landinu. Ég vil setja
okkur á bás með austantjaldsþjóð-
um að því leyti að stefna í mörgum
af grunnatvinnugreinum okkar,
s.s. landbúnaði ogfiskveiðum, hef-
ur dregið vígtennurnar úr sköpun-
armætti einstaklingsins.“
Gunnlaugur ræddi síðan um
helstu breytingar sem framundan
eru í efnahagsmálum landsmanna.
Hann sagði alveg ljóst að kvóta-
kerfi í sjávarútvegi og landbúnaði
yrðu lögð niður á næsta eða allra
næstu árum. Leyfður yrði innflutn-
ingur á landbúnaðarvörum, mörg-
um búum yrði lokað og fiskiskipum
lagt. Hann sagði að næsta ár myndi
einkennast af áframhaldandi
hreinsun í efnahagslífinu. í heild-
ina yrði þó hægur bati.
Að síðustu bar spekingurinn þau
skilaboð til forystumanna atvinnu-
lffsins að ekki væri ástæða til
annars en að vera hress. Fundar-
menn fögnuðu Gunnlaugi innilega
með dúndrandi lófataki.
-EÓ
Hæstiréttur úrskuröar um gæsluvarðhalds-
úrskurð í stóra kókaínmálinú:
Maðurinn laus
úr varðhaldi
Maðurinn sem setið hefur í gæslu-
varðhaldi síðan 12. maí sl. grunaður
um að hafa smyglað til landsins einu
kílói af kókaíni og dreift hluta þess
hér á landi var látinn laus í gær.
Þetta kom til eftir að Hæstiréttur
úrskurðaði að kærður gæsluvarð-
haldsúrskurður sakadóms í ávana-
og ftkniefnamálum skyldi úr gildi
felldur, en hann hafði úrskurðað að
gæsluvarðhaldið yrði framlengt til
þar til undirréttardómur hefði geng-
ið í máli hans, en þó ekki lengur en
til 15. febrúar 1990.
Ákæra á hendur manninum og
tveim öðrum var gefin út þann 11.
október s.l. fyrir brot gegn 173. gr.
almennra hegningarlaga. Þeim er
gefið að sök að hafa staðið fyrir
stórfelldum innflutningi og dreifingu
á kókaíni og geta sannaðar sakir
varðað allt að tíu ára fangelsi.
Játningar hinna tveggja með-
ákærðu í þessu máli liggja fyrir og
hafa þeir báðir lýst þætti mannsins í
málinu. Auk þess hefur maður einn
borið að hafa selt kókaín í umboðs-
sölu fyrir hinn ákærða og neytandi
nokkur viðurkennt að hafa keypt
efni af manninum.
Farið hefur verið fram á að dómur
í máli þessu, sem manna í milli hefur
verið nefnt Stóra kókaínmálið, yrði
fjölskipaður. Dómsmálaráðuneytið
hefur talið að lagaheimildir til slíks
skorti og liggur nú lagafrumvarp
fyrir Alþingi um það mál þannig að
tafist getur að málið verði dómtekið.
-sá
Kúrdinn:
Fékk land-
vistarleyfi
Dómsmálaráðuneytið hefur
veitt kúrdanum Mustafa Kocka,
tímabundið landvistarleyfi á ís-
landi. Hann starfar nú sem vinnu-
maður hjá Birni Björnssyni á
Ytri-Löngumýri í A-Húnavatns-
sýslu. Þar hyggst hann dvelja
fram á vor en ætlar þá að reyna
að fá vinnu við Blönduvirkjun.
-EÓ