Tíminn - 12.12.1989, Qupperneq 15

Tíminn - 12.12.1989, Qupperneq 15
Þriðjudagur 12. desember 1989 Tíminn 15 ÍÞRÓTTIR Handknattleikur-VÍS keppnin: Dýrmæt stig KA-manna Frá Jóhannesi Bjamasyni íþróttafréttaritara Tímans á Akureyri: Körfuknattleikur: Óvæntur sigur Valsmanna á Grindvíkingum Valsmenn unnu óvæntan sigur á Grindvíkingum 75-72 er liðin mætt- ust á Hlíðarenda á sunnudagskvöld. Flestir áttu eflaust von á léttum sigri Grindvíkinga, eftir stórsigur þeirra á ÍR á fimmtudaginn. En Valsmenn voru á öðru máli og þeir Svali Björgvinsson, Einar Ólafs- son og Chris Behrends voru allir í miklum ham. I hálfleik höfðu Vals- menn fjögurra stiga forskot 44-40. í síðari hálfleik héldu Valsmenn fengnum hlut og sigruðu eins og áður segir 75-72. Grindvíkingar reyndu að jafna með þriggja stiga skoti á lokasekúndunum, en hittu ekki. Stigin Valur: Svali 20, Behrends 18, Einar 11, Björn 9, Matthías 7, Ragnar 4, Ari 4 og Hannes 2. UMFG: Ron Davis31, Guðmundur 14, Hjálmar 13, Sveinbjörn 6, Rúnar 5 og Steinþór 3. BL Staðan í Flugleiðadeildinni: A-riðill: Keflavík .. 13 10 3 1298-1040 +258 20 Grindavik . 14 8 6 1145-1119 +26 16 ÍR....... 13 5 8 1033-1126 -96 10 Valur .. 13 5 9 1138-1159 -19 10 Reynir... 13 0 13 888-1241 -353 0 B-riðill: Njarðvík . 14 12 2 1248-1153 +95 24 KR ...... 13 11 2 1012-897 +115 22 Haukar... 13 6 7 1171-1069 +102 12 Tindastóll . 13 6 7 1136-1109 +27 12 Þór...... 14 4 10 1096-1215 -119 8 Þau voru dýrmæt stigin tvö sem KA-menn nældu sér í úr viðureign- inni við Gróttu á laugardaginn, en leikið var á heimavelli norðan- rnanna. Fátt benti til þess í upphafi að um heimasigur yrði að ræða, því Seltymingar tóku leikinn í sínar hendur og höfðu náð 5 marka forskoti um miðjan fyrri hálfleik 8-3. Þá þéttist vörn þeirra gul- Leikur Þórs og KR var lengst af jafn og spennandi, en ekki að sama skapi vel leikinn. Mikið var um að sendingar rötuðu ekki rétta boðleið og hittni leikmanna var á löngum köflum slök. Varnarleikur var þó vel leikinn af beggja hálfu og það hefur sennilega ráðið úrslitum hve vel Anatolij Kovtoum tókst að hemja Dan klæddu og skotnýting tók að skána mjög. Tókst þeim að jafna leikinn fyrir hlé 10-10. Grótta skoraði fyrsta markið í síðari hálfleik en það var í síðasta sinn sem þeir höfðu forystu. Heimamenn höfðu 2-3 marka for- skot allan síðari hluta hálfleiksins og sigraðu síðan 23-20. Leikurinn var geysilega mikil- vægur fyrir bæði Iiðin og kom það töluvert niður á gæðum hans. KA- menn unnu þó tiltölulega sann- Kennard, en hann skoraði aðeins 7 stig í leiknum, eftir að hafa gert 40 stig í tveimur síðustu leikjum liðsins. Þórsarar leiddu í hálfleik 39-37 og það var ekki fyrr en 5 mín. lifðu af leiknum að KR-ingar náðu því for- skoti sem dugði þeim til sigurs. Það var fyrst og fremst Matthías Einars- son sem tryggði KR-ingum stigin tvö, en hann var óstöðvandi á þeim kafla þegar KR-ingar sigldu framúr. Leiknum lauk með sigri KR 85-81. gjaraan sigur sem lyfti þeim fra svæsnustu fallhættunni í bili. Lið KA var mjög jafnt í leiknum og erfitt að nefna einn leikmann sem var öðrum fremri. Páll Björnsson var langbestur í Gróttuliðinu og Sigtryggur Albertsson varði vel í fyrri hálfleik. Dómarar voru þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Gunnar Viðars- son. Var Gróttumönnum mjög uppsigað við þá allan leikinn en beir sluppu þó ágætlega frá honum. Bakverðirnir Konráð Óskarsson og Jón Örn Guðmundsson voru bestir Þórsara en Dan Kennard komst ekkert áleiðis gegn Kovtoum. Matthías Einarsson og Axel Nikul- ásson voru bestir KR-inga. Dómarar voru þeir Bergur Stein- grímsson og Guðmundur Stefán Maríasson, en hann dæmdi nú sinn fyrsta úrvalsdeildarleik. Komust þeir þokkalega frá hlutverki sínu. Handknattleikur: Óvænt tap Stjörnunnar KR-ingar unnu óvæntan sigur á Stjörnunni 21-20 í Laugardalshöll, eftir að staðan í leikhléi hafði verið 13-8 fyrir KR. Klaufaskapur Stjörn- umanna var mikill í lokin þegar þeir fengu tækifæri á að jafna leikinn. Páll Ólafsson gerði 9/1 mörk fyrir KR en Sigurður Sveinsson gerði 6. Fyrir Stjörnuna Gylfi Birgisson 8/3 mörk. ÍR missti af sigri Fjögur síðustu mörkin í leik FH og ÍR í Hafnarfirði voru heima- manna og breyttu þeir stöðunni úr 21-22 í 25-22 og sigruðu eftir að ÍR-ingar höfðu leitt lengst af. Héð- inn Gilsson gerði 10/3 mörk fyrir FH og Róbert Rafnsson 6 mörk fyrir ÍR. Jafnt í Eyjum Víkingar náðu jafntefli 25-25 gegn ÍBV í Eyjum, en leikurinn var mjög jafn og spennandi. Víkingar höfðu þó yfirleitt frumkvæðið. Sigurður Gunnarsson gerði 11/2 mörk fyrir ÍBV en Árni Friðleifsson gerði 8/2 mörk fyrir Víkinga. BL Staðaní 1. deild FH .......... 9 7 1 1 239-207 +32 15 Valur........ 9 7 1 1 223-190 +33 15 Stjarnan .... 9 5 2 2 211-182 +29 12 KR .......... 9 5 2 2 200-203 -3 12 ÍR........... 9 3 2 4 203-205 -2 8 ÍBV.......... 9 2 3 4 211-217 -6 7 KA ..........9315 199-214 -15 7 Víkingur .... 9 1 3 5 204-218 -14 5 Grótta ...... 9 2 1 6 186-206 -17 5 HK ..........9126 182-215 -33 4 Körfuknattleikur-Úrvalsdeild: KR-ingar sterkari á lokasprettinum Frá Jóhanncsi Bjamasyni íþróttafréttamanni Tímans á Akureyri: Riðlaskipting í úrslitum HM í knattspyrnu á Ítalíu á næsta ári verður þessi: A B C D E F Ítalía i Argentína Brasilía V-Þýskaland Belgía i England Austurríki Sovétríkin n Svíþjóð Júgóslavía Uruguay Holland Tékkóslóvakía Rúmenía 1 Skotland Kólombía Spánn írland Bandaríkin Kamerún M Costa Rica S.A. furstad. A-Kórea i Egyptaland SAGAN GLEYMIR ENGUM. Ásgeir Jakobsson. Ásgeir segir sögur af sjómönnum og fiskiskipstjórum, sem voru miklir aflamenn og sjósóknarar fyrr á árum, auk sögunnar af skipherra landhelgisgæslunnar, sem Englendingar létu íslenskan forsætisráðherra reka. LTKNINGAMÁTTUR ÞINN. Harold Sherman. Sherman greinir hér frá tilraunum sínum á lækningamætti hugans og setur fram ráðleggingar fyrir þá, sem þarfnast lækningar. hann er fullviss um það, að Guðs- krafturinn er til staðar í hverjum manni til að endurvekja hug og líkama. UNDIR HAMRINUM. Grétar Kristjónsson. Reynslusögur gjaldþrota einstaklinga. hér er fjaflað um reynslu nokkurra einstaklinga, sem lent hafa i greiðsluerfið- leikum og gjaldþroti. Þetta eru áhrifaríkar frásagnir, þar sem þjáningin og reiðin koma þerlega í Ijós. Oft er tekið sterkt til orða og ýmsir fá kaldar kveðjur. DULRÆN REYNSLA. Guðný Þ. Magnúsdóttir. Frásagnir af dulskynjunum sjö íslenskra kvenna. Áhugi á dulrænum fræðum hefur alltaf verið mikill. hér segja sjö íslenskar konur frá reynslu sinni í þessum efnum, greina frá því sem fyrir þær hefur borið í lífinu á þessu sviði og svara um leið ýmsum áleitnum spurningum. OG ENN MÆLTI HANN. Finnbogi Gudmundsson. 20 ræöur og greinar. Hér fjallar Finnbogi um hin margvíslegustu efni, allt frá nýársdagshugleiðingu í hafnarfjarðarkirkju til handknattleiks á fimmta tugnum og frásagnar af ferð til Albaníu. Þá er erindi um Þingvelli og Þjóðarbókhlöðu og sitthvað fleira. HIÍK ^ SKIPTIR ÞAÐ MALI? Árni Grétar Finnsson. Þetta er önnur Ijóðabók Árna Grétars. 1982 kom út Leikurað orðum, þar sem voru bæði frumort Ijóð og þýdd. hér eru eingöngu frumort Ijóð, sem eru margbreytileg að efni og framsetningu ög bera mörg með sér ákveðinn tón, sem sérkennir höf- undinn. Eirikur Smith myndskreytti. SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OUVERS STEMS SF

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.