Tíminn - 27.10.1990, Blaðsíða 8
16 Tíminn
Laugardagur 27. október 1990
Mæða „markaðsstefnunnar“
Lautinantarnir, ensignerarnir og
generálarnir í KGB eru orðnir
áhyggjufullir út af ýmsum ósóma
sem færist í vöxt innan Rússlands,
eftir að „Tommaborgarar" lýð-
frelsisins héldu innreið sína í
þetta mikla ríki jafnaðarins. í
Moskvu segja menn nú sprottin
upp allra handa fjölþjóðleg eld-
hús, sem steikja mikinn, og gnótt
er af Pepsi, svo flæða má út um
bæði munnvik á þeim er hafa efni
á því. En ekki hefur þessi blessun
samt nægt til að seðja borgarbúa
alla. Þótt rússneskar annexíur
amerískra stórfýrirtækja búi ef-
laust ríkulega að kjötdeigi og
sinnepi, þá kvað þetta kosta sitt
og alla langar nú einhvem tíma til
að geta keypt eitthvað til að borða
heima hjá sér. En það er að sögn
þrautin þyngri á þessum síðustu
og verstu dögum og það er núlif-
andi Rússum nýjung, þrátt fyrir
allt. Alltaf höfðu þeir einhvem
veginn náð sér í eitthvað að elda.
Rýrt vöruframboð er ekki nýj-
ung í Rússlandi og ekki er víst að
það hafi þótt slíkt böl og af er lát-
ið. íslendingar ættu að þekkja
það best, að svo lengi sem menn
hafa það jafn gott eða skítt og
granninn, geta flestir yfirleitt sof-
ið sæmilega. Rússar sáu við
skortinum með haganlega gerðu
neðanjarðar- og svartamarkaðs-
kerfi, sem gekk ágætlega - eða
þangað til arftakar Breshnevs
komu til sögunnar og fóru að
tmfla það. Því er almenningur nú
hinn reiðasti og sem verra er - öf-
undin er komin í spilið.
Þótt forystusveit flokksins nyti
ýmissa sérkjara, þá leit allur al-
menningur á það sem hvert ann-
að náttúrulögmál og nennti yfir-
leitt ekki að gera sér rellu út af
því. En nú eru vaknaðir til lífsins
þeir einstaklingar meðal sauð-
svarts almúga, sem náttúran hef-
ur lagt svokallað verslunarvit í
brjóst og fæstir fengu „að njóta
sín“ áður - nema þá í einhverri
mjög skringilegri mynd. Þeir
segjast auðvitað líta á sig sem
frumherja nýrrar markaðsstefnu
stjórnvalda og em teknir að vas-
ast í allra handa einkarekstri við
nokkurt frelsi og ekki óskoraðan
óvilja ofan frá. Þessi útvaldi kyn-
þáttur er þegar farinn að reka
sjoppu og búinn að verða sér úti
um myndband og góðir Rússar af
gamla skólanum eru auðvitað æf-
ir. Yfirvöld ætla nú samt að láta
slag standa og vona að á endan-
um verði betur af stað farið en
heima setið - ekki sé um annað
að ræða en samfylkja með fram-
taksviljanum og viðskiptavitinu.
Þetta veit hinn almenni
Rússi og sér að ekki dugar annað
en að hafa þá einhverja króka úti
líka, eins og hinir, og þeim kaup-
sýslusinnuðu fjölgar. En verkur-
inn er nú sá að menn með við-
skiptavit hafa engan hug á að
fórna sér eða samfylkja með ein-
hverri „stefnu", hvaðan sem hún
kemur og það þótt hún nefnist
„markaðsstefna". Þeir samfylkja
auðvitað fyrst og fremst með
sjálfum sér og það bakar þeim
ekki lítil vandræði í Kreml að
hafa ekki séð það fyrir. Þeir vilja
hafa vissar skorður, að gömlum
sið, en einkarekstrinum er það
náttúrlegt að hann vill engar
skorður hafa. Allir reyna að
sneiða fram hjá þeim með marg-
háttuðum kaupmannlegum klók-
indum - og stundum óvöldum
aðferðum. Því kaupsýslumenn
eiga ekki færri sauði svarta í sín-
um hópi en aðrir - kannske ein-
um eða tveimur fleiri! Æðsti
KGB-foringinn hefur líka komið
fram opinberlega og borið sig
upp undan því að allt sé vitlaust
að verða. Af er sú friðartíð, er
vandinn var leystur með einni
óvæntri næturheimsókn og
byssuhvelli. Einnig í þessu kenna
þeir KGB-mennirnir agnúanna á
lýðfrelsinu og einkaframtakinu.
Fyrrum liðu vinnudagarnir við
setur í makindum inni í Volgabíl
með samloku og vodkasnafs í
lúkunum utan við húsgreni
„geggjaðra" andófskarla og kerl-
inga. Nú er þetta að gerast elt-
ingaleikur við smyglara, eitur-
lyfjasala og fleiri kaupsýslusinn-
aða, svo menn mega signa sig í
bak og fyrir, ef þeir komast
óskaddaðir heim að kvöldi. „0,
tempora, o, mores," mega þeir
víst segja með Rómverjanum.
Gettu nú
Síðast var spurt um
kirk
kirk'
nes
u og var þetta
a þeirra Suður-
amanna í Garð-
inum.
Nú er spurt um foss í
S- Þingeyjarsýslu,
sem skartar fögru
stuðlabergi til beggja
hliða. Hver er fossinn
og í hvaða fljóti er
hann?
KROSSGÁTA
XÝIK.
SE.G1K
ÆKl
msr-
un
KE YK
E1/V3
NIÐUR
sett/i
YOL'
LÍTlft
um
'JOYN
y/£ s
Qti'ín
flSKUR
fARM
nm/i
pGJör
fíNDl
G'05>S
£tNS
ÖFOG,
Rc>Ð
i SUPl
MLMI
kT$!NS
SWF/)
ttíK
vóMS-
REISU
T
tft-
IfíTNl
KJ OSN
AI?/1
ÖSKUF
mm
TÆMft
50
ruGt
3 NN
RVMJl
0
íteconi
!5l~ ■
srAfóR
SOKál
ForN
Ko/VfiUR
— •
nn o
K/ði/R
SVAR
C7 Ðl-
INPO.
Ri'KI
FRofJSK
VOKG
KIAKÍ
HLE
Hh~
K/ÆNT
iílSKRfJ
Vl Ð
10
ODLIST
BofiÐ-
HALDS
HLIP
'A/
fíVr
HA
TUOT
N-F.M.
Ulr
fYR f R
ODOÍ
SLETT
íftUCft
OLV
X’ÆKr.
t&rvo
/0
Yo\i
PRfíKK
f/sks
KoNA
M
BINS
HIIF
Tom
VLOGI
fíUFT
//
SWOolX
fcKfí
sf/LöU
TlTRfí
II
ÍFM
HULDÚ
Hfí\s/N
SfíK
(2
FLJóT
sríRfí
LfíND
r~
WJÆQI?!
~?L\« 5
V"
SEIN-
fíSTuR
/3
T?c>Ð
S LITIÐ
FEF/
sfthT-'
HULm
z
/3
Ut-J
KYK-
/5
SP/Kl
FíRÐ
lÓLGfí
/5