Tíminn - 08.01.1991, Qupperneq 2
. I '»
i rv;
2 Tíminn
Þriðjudagur 8. janúar 1991
Framkvæmdastjóri Félags Sambands fiskframleiðenda segir að nú eftir aðgerðir Hlutafjár-
og atvinnutryggingasjóðs hljóti að skilja milli feigs og ófeigs í fiskvinnsíunni:
Þeir sem ekki duga nú
verða bara að drepast
„Ef að fyrirtækin, sem í fyrra fengu fyrirgreiðslu hjá At-
vinnutrygginga- og hlutafjársjóði, ná ekki að halda sér á
floti sjálf, eftir þá upptöku sem þau gengu í gegnum, þá fara
þau beint á hausinn. Það er enginn mannlegur máttur sem
getur bjargað þeim í næstu umferð. Menn verða að passa
stöðu sína sjálfir," sagði Árni Benediktsson, framkvæmda-
stjóri Félags Sambandsfiskframleiðenda, í samtali við Tím-
ann. Árni sagði mörg fyrirtæki ekki hafa hugað nægilega vel
að því að greiða uppsafnaðar skuldir á liðnu ári og horfur
væru á að þau yrðu rekin með tapi á þessu ári.
Á síðasta ári hækkaði verð á unnum fiskafurðum á erlend-
um mörkuðum mikið og raunar langt umfram björtustu
vonir. Ámi sagði að þrátt fyrir þetta séu horfur á að nokkur
sjávarútvegsfyrirtæld verði gerð upp með halla á þessu ári.
Hann sagði að svo virtist sem
menn kynnu sér ekki hóf og tekj-
urnar rynnu út úr fyrirtækjunum
án þess að þau næðu að greiða nið-
ur skuldir eins og nauðsynlegt er
að gera. Árni sagði að peningarnir
færu m.a. í að greiða hærra verð
fyrir fiskinn. Kapphlaupið um fisk-
inn hefur því komið fiskvinnslunni
í koll. Árni sagði að í stað þess að
borga niður skuldir færu pening-
arnir í eyðslu annars staðar í þjóð-
félaginu. Sáralítið var um fjárfest-
ingar hjá fiskvinnslu- og útgerðar-
fyrirtækjum á síðasta ári og Árni
sagði það sama verða upp á ten-
ingnum á þessu ári.
„Það sem þarf að gera er að treysta
grundvöll atvinnuveganna. Það er
bráðnauðsynlegt, svo að unnt sé að
byggja upp betri lífskjör í landinu.
Mér virðist sem menn hugsi ekki
nægilega mikið um það. Mörg fyr-
irtæki, sem ættu að geta verið með
góða stöðu á síðasta ári, eru ekki
með nægilega góða stöðu og horfur
eru á að þau verði rekin með tapi á
þessu ári.“
Fiskvinnslufyrirtæki, sem á síð-
asta ári fengu fyrirgreiðslu hjá At-
vinnutryggingasjóði, eru nú byrjuð
að greiða af lánum sjóðsins. Árni
Ámi Benediktsson.
sagði vonast til að í flestum tilfell-
um gætu fyrirtækin staðið í skil-
um, en sér væri þó kunnugt um að
misbrestur væri á því. Hann sagði
mjög hættulegt fyrir þessi fyrirtæki
að láta lánin fara í vanskil, því eng-
in von væri til þess að fyrirtækin
fengju svipaða fyrirgreiðslu að
nýju.
Menn hafa margir hverjir verið
mjög tregir til að borga í Verðjöfn-
unarsjóð sjávarútvegsins, en til-
gangur hans er að geyma fjárupp-
hæðir til mögru áranna. Árni sagði
að sem betur fer væri greitt talsvert
í sjóðinn, en hins vegar væri mikil
óánægja innan greinarinnar með
þessar greiðslur. „Menn vilja líka fá
þessa peninga til eyðslu í staðinn
fyrir að geyma þá til erfiðari tíma,“
sagði Árni.
Þegar samið var um þjóðarsátt var
það m.a. gert með þeim rökum að
fyrirtækin þyrftu tíma til að komast
á fæturna, svo þau gætu farið að
greiða hærra kaup. Árni var spurð-
ur hvað vinnuveitendur myndu
segja við launþega í haust þegar
launþegar segja: Nú er komið að
okkur.
„Peningarnir hafa að verulegu
leyti farið til launþega, en kannski
ekki eins jafnt og maður hefði vilj-
að. f Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaga var rætt um þá hug-
mynd, þegar staða sjávarútvegsins
batnaði meira heldur en gert var
ráð fyrir í byrjun síðasta árs, að
hækka gengið. Það hefði þýtt að
batinn hefði jafnast yfir þjóðfélagið.
Það var ekki gert, sem hefur þýtt að
batinn hefur komið miklu meira til
sjómanna en til annarra stétta.
Þannig er þetta orðið og því er ekk-
ert til fiskvinnslunnar að sækja í
nýjum kjarasamningum." -EÓ
Hagkaup:
ENGINN
BÓNUS
Hagkaup hyggjast ekki breyta
rekstri sínum eða koma með nýja
verslanakeðju í „Bónus“-stíl, að
sögn Jóns Ásbergssonar, forstjóra
Hagkaupa. Jón sagði að engin slík
hugmynd hefði komið inn á borð til
sín eða verið rædd. Hann sagði að
þeir þekktu þróunina í Evrópu, en
væru ekkert farnir að velta þessu fyr-
ir sér. —SE
Sparifjáreigendur álykta um
vaxtamál.
Overðtryggðir
vextir hækki
Samtök sparifjáreigenda hafa sent
frá sér ályktun þar sem segir að
hækkun óverðtryggða vaxta sé
nauðsynleg. Samtökin fagna
frumkvæði íslandsbanka á sínum
tíma til að samræma óverðtryggð
og verðtryggð útlán, sem síðan
endurspeglast í bættum kjörum
innlána.
Sú vaxtabreyting, sem gerð hafi
verið, hafi verið vegna vaxandi verð-
bólgu, þó vonandi sé um tíma-
bundna hækkun að ræða. Samtökin
segjast virða siðferðilegt þrek stjórn-
enda ríkisbankanna með hliðsjón af
hótunum stjórnmálamanna og
hvetja allar peningastofnanir til að
standa vörð um hagsmuni sparifjár-
eigenda.
Þá vænta samtökin jafnframt þess
að stjórnmálamenn láti af þeim hrá-
skinnaleik að stýra vöxtunum með
handafli, þegar þeir sjálfir eigi stór-
an þátt í hailarekstri ríkissjóðs.
-sbs.
Fiskeldisstöðin
Smári gjaldþrota
Fiskeldisstöðin Smári hf. í
Þorlákshöfn hefur verið tekin
til gjaldþrotaskipta. Ekki er
ljóst hversu stórt gjaldþrotið
er, en skuldir fyrirtækisins
skipta hundruðum miiljóna.
Eignir þess eru líka miklar ef
þær eru metnar á raunvirði,
en hætt er við að erfitt verði
að fá fullt verð fyrir þær á
uppboði.
Þorvaldur Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Smára, var spurður
hvað hefði valdið því að fyrirtækið
varð að gefast upp eftir þriggja ára
rekstur á sviði fiskeldis. Hann
sagði að mikill fjármagnskostnað-
ur hefði átt mikinn þátt í að svona
fór. Stöðin tók afurðalán, sem eru
veitt til þriggja mánaða í senn.
Lánin voru síðan framlengd sem
Keflavíkurflugvöllur:
Áningarfar-
þegum
fjölgaði mest
Heildarumferð á Keflavíkurflugvelli
á síðasta ári jókst um alls 6,3% á síð-
asta ári. Áningarfarþegum, þeim
sem hafa skamma viödvöl, fjölgaði
mest eða um 14,4%.
Á síðasta ári voru áningarfarþeg-
arnir alls 135.938 talsins, en voru á
árinu 1989 155.965. Brottfararfar-
þegum fjölgaði um 3,5% og komu-
farþegum um 4,6%. Lendingar á
vellinum voru á síðasta ári 6.262, en
voru 5.908 á fyrra ári. Sú aukning er
rétt6%. -sbs.
leiddi til þess að fyrirtækið borg-
aði í reynd allt upp í 25% raun-
vexti. Verðfall á laxi, sem hefur átt
sér stað síðustu tvö ár, hefur kom-
ið illa við Smára, eins og önnur
fiskeldisfyrirtæki. Þorvaldur sagði
að menn sæju fram á að verðfallið
væri á enda, en staðan væri orðin
það slæm að eilítið hærra verð
dygði ekki til að snúa rekstrinum
við.
Þorvaldur sagði að framleiðslan
sjálf hefði gengið vel. Að vísu hefði
magnið verið minna en gert var
ráð fyrir í upphafi. Framleiðslan
hefði hins vegar gengið áfallalaust
fyrir sig. „Við sáum ekki fram á að
geta snúið við blaðinu og þá er
betra að stoppa fyrr en seinna,"
sagði Þorvaldur.
Guðrún Erlendsdóttir, forseíi
Hæstaréttar.
Fiskeldisstöðin Smárí h.f. um það leyti sem reksturinn var að hefjast.
Tfmamynd: Pjetur
Islenskt leikrit
sett upp erlendis
NYR FOR-
SETIHÆSTA-
RETTAR
Guðrún Erlendsdóttir hæstarétt-
ardótnari var nýlega kosin til að
gegna embætti forseta Hæstarétt-
ar næstu tvö ár og er fyrst kvenna
á Norðurlöndum tíl að gegna
slfku embætti.
Guðrún útskrifaðist úr lagadeild
Háskóla íslands árið 1961 og
fékk réttindi héraðsdómslög-
manns ári síðar. Hún varð hæsta-
réttariögmaður árið 1967 og
skipuð í embætti hæstaréttar-
dómara árið 1986, en hafði verið
settur dómari þar áður frá 1982,
Eiginmaður Guðrúnar er Öm
Clausen hæstaréttarlögmaður.
Leikritið Dagur vonar eftir Birgi Sig-
urðsson, sem verið hefur á fjölum
Leikfélags Reykjavíkur og í sjónvarp-
inu, verður sýnt í þremur leikhúsum
erlendis á næstunni og tvö leikhús
hafa ákveðið að sýna leikritiö á næsta
leikári.
11. janúar næstkomandi verður leik-
ritið frumsýnt í leikhúsinu í Álaborg,
sem margir telja besta leikhús í Dan-
mörku um þessar mundir. Þar leik-
stýrir Stefán Baldursson verkinu, leik-
mynd er eftir Messíönu Tómasdóttur
og tónlist eftir Gunnar Reyni Sveins-
son. Leikritið verður síðan sýnt í Kon-
unglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn
25. janúar. Leikstjóri þeirrar sýningar
er sænskur, Göran Stangertz, en hann
er þekktur sem leikstjóri og leikari í
Skandinavíu. í vor, nánar tiltekið 30.
maf, verður leikritið sýnt í Los Angeles
Theater Center, sem nú er eitt virtasta
leikhús vestan hafs.
íslenskt leikrit hefur aldrei verið sett
upp í stóru og virtu atvinnuleikhúsi í
Bandaríkjunum fyrr en nú. Leikritið
Dagur vonar var leiklesið á leiklistar-
hátíð þessa sama leikhúss fyrir tveim-
ur árum og var það þá eina nýja er-
lenda verkið á hátíðinni. Innan
skamms verður leikritið leiklesið í
New York.
Á næsta leikári verður leikritið sýnt í
Det Norske Teater í Ósló, og síðan í
Rogalandsleikhúsinu í Stavanger.
—SE
í