Tíminn - 08.01.1991, Page 5
Þriðjudagur 8. janúar 1991
Tíminn 5
Launamunur kynjanna miklu meiri á íslandi en hinum Norðurlöndunum:
KONUR LANGTUM AFTAR
Á MERINNIÁ ÍSLANDI
Launalega virðast konur hvergi á Norðurlöndunum standa
eins fímalangt að baki karla eins og hér á landi. Árið 1987
voru meðaltekjur karla hér á landi 103% hærri heldur en
meðaltekjur kvenna. Samsvarandi munur var frá 44% til 50%
í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi og um 70% í Noregi. Þessi
samanburður kemur fram í Norrænu tölfræðihandbókinni
1989/1990. Miðað er við meðaltekjur fyrir skatta.
f öllum þessum löndum eru meðal-
tekjur fólks hæstar á aldrinum 35-
50 ára, bæði hjá körlum og konum.
Á þessum aldri bruna íslensku karl-
arnir þó ennþá lengra fram úr kon-
unum. Tekjur þeirra voru um 115%
hærri að meðaltali, borið saman við
40-46% mun í Danmörku, Finn-
landi og Svíþjóð.
Þarna er um svo mikinn mun að
ræða að til þess að hlutfallið yrði hér
álíka og á hinum Norðurlöndunum
hefði t.d. annað hvort þurft að
hækka meðaltekjur kvennanna um
23-25 þús. kr. á mánuði eða meðal-
tekjur karlanna þurft að lækka um
33-35 þús. kr. á mánuði, nema far-
inn væri millivegurinn.
Tæpast er þarna leti íslenskra
kvenna um að kenna, því þrátt fyrir
lægsta tímakaup á Norðurlöndum
(m.v. laun í iðnaði) öfluðu íslenskar
konur álíka meðaltekna þetta ár og
konur á hinum Norðurlöndunum,
umreiknað eftir meðalgengi. Tekjur
karla voru hins vegar um 50% hærri
hér á landi en að meðaltali í hinum
löndunum. Þótt líklegt sé að saman-
burðurinn hafi síðan orðið íslend-
ingum óhagstæðari, vegna kjara-
rýrnunar hér á landi frá 1987, benda
tölurnar til þess að íslenskar konur
geti mun fremur gert sér vonir um
launahækkun eftir brottflutning til
hinna Norðurlandanna heldur en
karlarnir.
Þessi mikli tekjumunur milli ís-
lenskra karla og kvenna á ekki að-
eins við um fólk á hátindi starfs-
ævinnar. Meðal fólks yfir 65 ára aldri
Þessa dagana stendur yfir námskeiö á vegum Rauða krossins og Sambands íslenskra tryggingafélaga. Á
námskeiöinu er sjúkraflutningamönnum kennt að bjarga fölki úr bflflökum eftir umferðarslys. Tveir bandarísk-
ir sérfræðingar leiðbeina 11 mönnum sem sækja námskeiðið og flöldi gamalla bfla og bflflaka verður klipptur
í sundur áður en því lýkur. Timamynd: Ami Bjama
Skilnaður að borði og sæng:
Birting kveöur
Alþ.bandalagid
Utanríkisráöuneytið sendi í gær
frá sér fréttatilkýnningu þar sem
segir að utanríkisráðherrar Norð-
urlandanna séu á einu máli um
að beita þurfi íraka auknum
þrýstingi svo þeiryfirgefi Kúvæt
EUa verði styrjöld eldd umflúin.
Utanríkisráðberramir hafa orð-
ið sammála um að leggja fyrir að-
alframkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna tíllögur um þau verk-
efni sem skapist í sambandi við
brotthvarf íraska hersins frá Kú-
væt. Þeir leggja til aö sendar
verði liiðargæslu- og eftirlits-
sveitír og stuðlað verði að brott-
hvarfi íraska hersins, þar með
talinni aðstoð við flóttafólk. Eins
leggja ráðherramir til að þróað
verði nýtt öryggiskerfi á svæð-
inu.
Þá segir ennfremur að hlutverk
S.þ, við lausn málsins hafi í för
með sér útgjaldaaukningu fyrir
Norðurlöndin, sem þau séu tilbú-
in að kanna nánar. -sbs.
Birting, félag jafnaðar- og lýðræðis-
sinna, hefur ákveðið að hætta öllum
samskiptum við Alþýðubandalagsfé-
lagið í Reykjavík. Þar með er útséð
um að Birtíng mun ekki sem félag
sfyðja framboð Alþýðubandalagsins í
Reykjavík. Óvíst er hvað einstakir fé-
lagar í Birtingu gera í komandi kosn-
ingum. Birtíngarfélagar samþykktu
á fundi, sem haldinn var um helgina,
að móta hugsanlega síðar afstöðu tíl
framboða þegar þau em komin fram.
„Við teljum samvinnu við Alþýðu-
bandalagsfélagið í Reykjavík ekki
þjóna markmiðum Birtingar og þess
vegna höfum við ákveðið að hætta
henni. Þetta er einfaldlega eðlileg af-
leiðing af því sem undan er gengið.
Við höfum lagt okkur fram við að ná
samkomulagi við ABR um framboðs-
mál. Niðurstaðan er engin að okkar
mati. Hér getur þess vegna komið
amen eftir efninu," sagði Kjartan Val-
garðsson, formaður Birtingar, í sam-
tali við Tímann.
Auk þingmannanna Svavars Gests-
sonar og Guðrúnar Helgadóttur hafa
eftirtaldir gefið kost á sér í forvali Al-
þýðubandalagsins, en það mun fara
fram 19. janúar: Auður Sveinsdóttir,
formaður Landverndar; Birna Þórð-
ardóttir blaðamaður, Haraldur Jó-
hannsson hagfræðingur, Ragnar
Stefánsson jarðskjálftafræðingur og
Þorvaldur Þorvaldsson iðnaðarmað-
ur.
Gengið verður endanlega frá þátt-
tökulista í þessari viku. -EÓ
hörðu karlar ennþá um 105% hærri
tekjur heldur en konur, borið saman
við 40-67% mun á hinum Norður-
löndunum.
Virðist Ijóst að miklum launamun
karla og kvenna fylgir jafnframt
mikill munur á ráðstöfunarfé milli
fjölskyldna: annars vegar þeirra er
hafa tvær fyrirvinnur og hins vegar
þeirra sem aðeins hafa eina konu að
fyrirvinnu. Ekki sýnist óiíklegt að
þarna sé að hluta til skýringin á því
af hverju einstæðar konur, jafnvel í
fullu starfi, þurfa að leita félagslegr-
ar aðstoðar sveitarfélaga í miklu
meiri mæli en karlar, þ.e. ef að
áfengismáladeildir eru undanskild-
ar. - HEI
Laus staða
yfiríæknis er heilbrígðis- og
tryggingamálaráðherra veitir.
Staða yfirlæknis við fyrirhugaða réttargeðdeild er
laus til umsóknar.
Læknirinn skal hafa sérfræðiviðurkenningu í
geðlækningum og sérþekkingu eða reynslu á
sviði réttargeðlækninga.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og störf
sendast heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík, fyrir 5.
febrúar 1991.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í ráðuneytinu.
Heilbrígðis- og tryggingamálaráðuneytið
4. janúar 1991
Breytt símanúmer
Frá mánudeginum 7. janúar 1991
verður símanúmer umhverfisráðu-
neytisins
609600
Umhverfisráðuneytið
----------------------------------------------------------\
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Ólafur Jón Hávarðsson
Efri-Fljótum II, Meðallandi
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, 3. janúar.
Jarðsett verður að Prestbakka á Síðu laugardaginn 12. janúar kl.
14.00.
Þórunn Sveinsdóttir
Magnhildur Ólafsdóttir Viðar Pálsson
Hávarður Ólafsson
Margrét Ólafsdóttir Jón Reynir Einarsson
Guðlaug Ólafsdóttir
og bamaböm
Þökkum af hjarta auðsýnda samúð við andlát og útför
Bimu Helgadóttur
Fremsta-Gili, Langadal.
Böm, tengdaböm, bamaböm og bamabamaböm.