Tíminn - 08.01.1991, Síða 7

Tíminn - 08.01.1991, Síða 7
Þriðjudagur 8. janúar 1991 Tíminn 7 Alexander Stefánsson alþingismaður: Vanræksla gacjnvart Búnaöarlélagi Islands Aðlögun landbúnaðarins á íslandi að breyttum aðstæðum, bæði í þjóðfélaginu og heiminum í heild, hefur verð í umræðu undan- farin ár, búvörusamningurinn var gerður við ríkið og er enn í gildi, en gífurlegur samdráttur hefur veríð í hefðbundnum bú- greinum. Að vísu er mjólkurframleiðsla nú í jafnvægi og gæði framleiðslunnar þau bestu sem þekkjast. En sauðfjárbúskapur á í miklum vanda, þrátt fyrir stórkostlegan niðurskurð, og fram- leiðsla hefur stórminnkað á öllum sviðum. Þetta hefur mestu áhríf í sambandi við byggðaröskun út um landsbyggðina sem í gangi er. Einnig er, eins og allir vita, framlenging búvörusamn- ingsins nú í meðferð og væntanlega áður en þingi lýkur verður hægt að greina frá því hvemig það mál stendur. Alþingi setti ný jarðræktarlög og búfjárræktarlög 1989 í samráði við fulltrúa bænda og búnaðarþing þar sem skilgreint er greinilega hver þáttur ríkisins á að vera í meðferð þessara mála sem áður voru sífellt deilueftii. f framhaldi þessa var gert samkomulag um fullnaðaruppgjör við bændur Iandsins á ógreiddum framlögum árin 1987-1989 og skýrt afmarkað hvemig með slíkar greiðslur yrði farið með framhald skuldbindinga ríkissjóðs á fjárlög- um hvers árs. Því miður virðist framgangur þessara mála, þrátt fyr- ir skýrt afmarkað samkomulag hér á hv. Alþingi, hvergi nærri full- nægjandi í framkvæmd. Ég verð því miður að lýsa vonbrigðum með framgöngu hæstv. landbrh. í þessu mikilvæga máli. Sem dæmi um þetta væri að sjálfsögðu hægt að flytja hér langt mál sem ég ætla að fella niður að hluta vegna fjarvem hæstv. ráðherra. En ég get tekið dæmi. Skuldabréfaútgáfa sam- kvæmt samkomulagi eða yfirlýs- ingu fjármálaráðherra og landbún- aðarráðherra sem var gefið út 26. mars á þessu ári átti að vera komin uppgjörsgreiðsla í gegnum skulda- bréf til bænda í síðasta lagi 1. ágúst á þessu ári. í byrjun október sl. voru bændur ekki farnir að fá þessi bréf. Sjálfsagt væri hægt að ræða hvers vegna en það er svo staðreynd að svona var haldið á málum. Uppgjör framlaga vegna ársins 1988 að fjár- hæð 107 millj. kr. eiga að greiðast til bænda eigi síðar en 1. ágúst 1991. Það væri hægt að vitna hér í sams konar yfirlýsingar sem ég hef í höndum sem fjvn. hafði um þetta mál frá bæði hæstv. fjmrh. og hæstv. landbrh. Það er Ijóst að í fjárlagafrv. nú vantar mikið á að hægt sé að standa við lögboðin framlög samkvæmt nefndum lögum þrátt fyrir loforð um að við þetta verði staðið. Fjmrh. og landbrh. hafa gert samkomulag um að taka ekki fullt tillit til lag- anna þrátt fyrir erfiðleika í land- búnaðinum sem augljóslega blasir við öllum. Og á sama tíma hafa bændur landsins tekið fullkomlega þátt í þjóðarsáttinni og vinna að því að aðlaga sig breyttum aðstæðum í markaðsmálum. Aðgerðarleysi hæstv. landbrh. í þessum mikil- vægu málum er ámælisvert þrátt fyrir hans löngu ræður á fundum með bændum um allt ísland þar sem hann fyllyrðir að allt sé í lagi, meðferð hans á þessum málum muni skila málinu í höfn. Það hlýt- ur því að vera mikið umhugsunar- efni hvernig stendur á því að málin standa eins og þau standa í dag. Fjárhagsvandi Bún- aðarfélags íslands Þá vil ég aðeins nefna eitt mál í sambandi við landbúnaðarmálin sem sjálfsagt hefur komið hér til umræðu fyrr. Því miður var ég ekki viðstaddur þegar hv. 2. þm. Norðurl. v. flutti sína ræðu um þetta efni. En ég tel nauðsynlegt að fara nokkrum orðum um Búnað- arfélag íslands. Eins og allir hv. alþm. vita hefur Búnaðarfélag ís- lands staðið vörð um íslenskan landbúnað og allt er varðar mál- efni bænda á íslandi frá stofnun þess. Búnaðarfélagið hefur átt undir högg að sækja um fjármagn til lögboðinnar starfsemi sinnar í áratugi. Það þekkjum við. Með bréfi sem fyrrv. landbrh. sendi frá sér í september 1988 skipaði hann nefnd sem átti að fjalla um fjárþörf Búnaðarfélagsins og hvernig greiða mætti úr þeim fjárhags- vanda er Búnaðarfélagið á í og fjalla að nokkru um framtíðar- möguleika á fjármögnun í þessu skyni. í þessa nefnd voru skipaðir, auk þess sem hér stendur, alþingis- mennirnir Egiil Jónsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson og for- maður sá sem hér stendur. í sambandi við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1989 kom fram í ræðu formanns fjvn. við 2. umr. fjárlaga varðandi Búnaðarfélag íslands, með leyfi virðulegs forseta segir þar: „f grg. með fjárlagafrv. er gert ráð fyrir að endurskoðun fari fram á starfsemi Búnaðarfélags íslands og með bréfi dags. 7. sept. 1988 skip- aði hæstv. fyrrv. landbrh. nefnd til þessa verkefnis, þar með talið að gera tillögur um framtíðarskipan þessara mála og þann 19. október sl. staðfesti núv. hæstv. landbrh. skipan nefndarinnar til framhalds- starfa. Nefndin er að störfum. Hún hefur lagt áherslu á að lagfæra fjárhag Búnaðarfélags íslands í fjárlagafrv. 1989. Nefndin mun starfa áfram og gerir ráð fyrir að leggja fram ákveðnar tillögur varð- andi framtíðarskipan verkefna og tekjustofna Búnaðarfélags íslands er liggi fyrir við undirbúning fjár- laga fyrir árið 1990.“ Þessi nefnd, sem hér er átt við, skilaði ákveðnum tillögum til hæstv. landbrh. í apríl 1989. Til- lögurnar voru þess efnis að það var lögð til breyting á búnaðarmála- sjóðsgjaldi þannig að það sem áður hafði runnið til Stofnlánadeildar landbúnaðarins rynni til Búnaðar- félags íslands og þeirrar starfsemi sem heyrir undir félagslega þátt- inn í starfsemi Búnaðarfélagsins, þ.e. búnaðarsamböndin í landinu fengju þarna ákveðinn tekjustofn sem þýddi það að ríkið losnaði við framlög til Búnaðarfélagsins sem þessu næmi. Þessar brtt., sem voru lagðar fram í tveimur frv. fyrir ráð- herrann í apríl 1989, voru þess eðl- is að Búnaðarfélagið eða þessi starfsemi þess sem færðist út til búnaðarsambandanna fengi yfir 30. millj. á ári. Hvað gerðist svo? Það gerðist að landbrh. heyktist á að flytja þessi frv. og málið var jafnóljóst eftir sem áður í fjárlögum 1990. Og á þessu ári urðum við sem erum í fjvn. að reyna að brúa þetta bil með fjáraukalögum til að rétta hlut Búnaðarfélagsins í samræmi við það sem áður var gert í þessu máli. Ég vil geta þess hér að bæði búnað- arþing og fundur formanna allra búnaðarsambanda á íslandi gerðu samhljóða áskorun um það að til- laga nefndarinnar gengi fram. Ég get vitnað hér, með leyfi forseta, í fund sem haldinn var 31. okt. 1989. Þar segir: „Fundurinn væntir þess að bún- aðarsamböndunum verði sem fyrst tryggðir tekjustofnar til að mæta Úr ræðu um fjárlagafrum- varpið auknum verkefnum og bæta upp rýrnandi eldri tekjustofna. í því sambandi er bent á ályktanir bún- aðarþings og tillögu nefndar undir forystu Alexanders Stefánssonar alþingismanns er afhentar voru landbrh. í apríl sl.“ Undir þetta skrifa allir formenn búnaðarsambanda landsins. Það sama gerðist síðar að það kom sams konar áskorun til landbrh. Þetta var sem sagt ekki gert og þar með var fallið frá því að reyna að losa ríkissjóð við að fjármagna Búnaðarfélagið að þessu leyti til heldur búa til gjaldstofn sem bændurnir sjálfir vildu leggja á sínar framleiðsluvörur, sínar eigin framleiðsluvörur, og nota til þess að standa undir þeim rekstri sem ríkið hafði lagt fram fé til áður. Aðgerðaleysi ráðherra Ég má til, virðulegi forseti, í fram- haldi af þessu að geta þess að loks- ins á síðasta þingi kom fram stjórnarfrv. frá hæstv. landbrh., frv. til. um Búnaðarmálasjóð þar sem hann leggur til breytingu á gjald- töku Búnaðarmálasjóðs. Þar var ekki stafkrókur um að Búnaðarfé- lagið fengi eina krónu, alls ekki, heldur var verið að hugsa um allt aðra tilfærslu í sambandi við aðrar búgreinar, bæði að því er varðar garðyrkjumenn og svína- og ali- fuglabændur o.s.frv. en Búnaðarfé- lagið var ekki nefnt. • Landbn. Nd. gerði það að tillögu sinni við þetta frv., sem raunar gerbreyttist í meðförum hennar, að stinga Búnaðarfélaginu þarna inn. En það fékk ekki nema mjög lítið framlag sem er ekki nema 0,1% samtals í þessum gjaldstofni, sem er ekki nema fimmti hluti þess sem tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir, eða áætlaðar 7 millj. kr. á ári. Þannig voru slegnar úr höndum nefndarinnar þær tillög- ur sem hún gerði til þess að losa ríkið við þetta vandamál sem hefur verið vandamál hér á Alþingi svo lengi sem ég man eftir í sambandi við fjármál Búnaðarfélagsins. Það var slegið hendi á það sem bændur landsins samþykktu fyrir fram, að búa til sérstakan gjaldstofn fyrir Búnaðarfélag íslands þannig að ríkið eða fjvn. og Alþingi þyrftu ekki sífellt að leggja fram sérstök framlög til Búnaðarfélagsins að því er varðar félagsþjónustu bænda. Þetta er rétt að skýra hér vegna þess að núna í tveimur síðustu fjárlagafrv. sem hæstv. fjmrh. hef- ur lagt fram segir svo í athuga- semdum við fjárlagafrv., Búnaðar- félag íslands, með leyfi forseta: „í tengslum við gerð fjárlaga und- anfarinna tveggja ára hefur verið gert ráð fyrir að heildarendurskoð- un færi fram á framtíðarskipan verkefna og tekjustofnum félags- ins. Aðstæður hafa breyst á þessu ári sem stýra lækkun fjárframlags úr ríkissjóði. Annars vegar hafa til- tekin verkefni verið færð frá Bún- aðarfélaginu til Hagþjónustu land- búnaðarins," sem ég vil taka fram að nefndin lagði einnig til og landb. Nd. umbreyttir frv. hæstv. landbrh. í meðförum hér á Alþingi og náði samkomulagi við alla aðila um það að bæði Þjóðhagsstofnun og Hagstofa íslands yrðu þátttak- endur í þessari Hagþjónustu land- búnaðarins. Þannig náðist víðtækt samkomulag um þá tilfærslu. — „Hins vegar fær félagið aukið starfsfé með nýsettum lögum nnr. 41/1909, um Búnaðarmálasjóð. Framlag úr ríkissjóði miðast við að félagið geti staðið undir þeim verk- efnum sem ríkissjóði er lögum samkvæmt ætlað að greiða. Það á fyrst og fremst við um ráðunauta- þjónustu í landbúnaði og skýrslu- hald" o.s.frv. Enn á ný er tilgreint að það sé þessi nefnd sem eigi að sjá um fjár- mál Búnaðarfélagsins í fjárlaga- gerðinni, eftir að fjárlögin hafa verið sett fram. Þar af leiðandi var ekkert óeðlilegt að við í fjvn. ósk- uðum eftir nákvæmri útfærslu á því hvað kostnaður við Búnaðarfé- lagið er í raun og veru þegar búið er að draga frá þær 7 millj. kr. sem bændur landsins taka á sig til þess að standa undir þeirri félagslegu þjónustu sem þeim ber, sem er ekki nema eins og ég sagði áðan 1/5 af því sem nefndin lagði til. Hvað gerðist þá? Það lá ljóst fyrir að nákvæmlega sama gerðist og á árinu 1990, það vantaði um 15-16 millj. kr. til að standa við lögboðin framlög til Búnaðarfélagsins. Og hvað kemur þá? Það kemur sam- eiginleg niðurstaða frá hæstv. fjmrh. og hæstv. landbrh. Ég vil taka fram með innskoti að landbrh. var áður búinn að skrifa nefndinni og koma í eigin persónu á fund hennar til að lýsa því yfir að hann teldi að fjvn. ætti að skila Búnaðarfélaginu því sem því ber samkvæmt lögum. Síðan kemur bréf frá sama ráðherra og hæstv. fjmrh. þar sem þeir gera sameigin- lega tillögu um eftirtaldar breyt- ingar á frv. til fjárlaga fyrir 1991, Búnaðarfélag íslands, með leyfi forseta. „Gerð er tillaga um að hluti Bún- aðarfélagsins af búnaðarmála- sjóðsgjaldi" — þ.e. gjaldi sem bændur leggja sjálfir á sig — „sem er áætlað 7,5 millj. kr. á næsta ári reiknist ekki að fullu til lækkunar á framlagi ríkisins til félagsins. Miðað er við að helmingur tekn- anna komi til frádráttar á næsta ári. Framlag úr ríkissjóði hækkar því um 3,5 millj. kr. vegna þessa og færist á viðfangsefnið Sérfræðileg aðstoð við landbúnaðinn. Að auki hækki framlag á sama viðfangsefni um 3 millj. kr. vegna ákvæðis 12. gr. búfjárræktarlaga nr. 84 og 89 sem kveður á um að ríkissjóður greiði laun aðstoðarfólks við upp- gjör og úrvinnslu ræktunar- skýrlsna." Framlagið til Búnaðar- félagsins hækkar þá samtals um 6,5 millj. kr. í staðinn fyrir tæpar 16 milljónir. Trúnaðarbrot við bændur Miðað við þessi málalok get ég ekki staðið í því að vera tilnefndur í athugasemd með fjárlögum núna tvö ár í röð um að við eigum að sjá um að við þetta verði staðið, ég hef enga stöðu til að ganga gegn sam- eiginlegu áliti hæstv. fjmrh. og hæstv. landbrh. Ég tók þá stöðu, hæstv. fjmrh., að vísa þessu máli algerlega á hendur hæstv. landbrh., sem er tví- og þrísaga í meðferð málsins gagnvart fjvn. Ég verð að segja það alveg eins og er að það er hálfömurlegt til þess að vita að enn á ný þurfi í fjáraukalög- um fyrir árið 1990, sjálfsagt eftir áramótin, að bæta við 6+6 millj. kr. á Búnaðarfélagið vegna þess að hæstv. ráðherrar hafa ekki þorað og ekki getað staðið við það sam- komulag sem var búið að gera. Og ég mun beita mér fyrir því og lýsi því yfir hér að sem ábyrgðarmaður fyrir þessari nefnd margumtalaðri sem skilaði ákveðnum tillögum til þess að leysa þetta mál til framtíð- ar, þá get ég ekki annað gert en að beita mínu afli til þess að inn á fjáraukalög komi það sem á vantar. Og það mun ég að sjálfsögðu gera. En ég hlýt að varpa þessari ábyrgð á herðar hæstv. landbrh. sem fer um landið þvert og endilangt til að fullvissa bændur landsins um að hann sem landbrh. tryggi meðferð þessara mála og öryggi bænda í landinu. Það er vissulega umhugs- unarefni fyrir bændur sem trúa á Alþb. að átta sig á þessari stöðu. Það er kominn tími til. Ég tel þetta trúnaðarbrot við bændur, ekki síst Búnaðarþing og þá aðila sem hafa gengið vasklega fram í því að koma þessum málum á fastan grunn og losa ríkið við félagsþjónustu bænda, standa undir henni sjálfir af sinni eigin framleiðslu. Það er málið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.