Tíminn - 08.01.1991, Síða 10

Tíminn - 08.01.1991, Síða 10
10 Tíminn Þriðjudagur 8. janúar 1991 MINNING Siguiiaug Sigurðardóttir Fædd 13. ágúst 1940 Dáin 19. desember 1990 Það var okkur öllum mikil harma- fregn að heyra lát Sigurlaugar Sig- urðardóttur og hefur skarð verið höggvið í kennaralið Menntaskólans við Sund. Ekki aðeins að hún væri virk í allri skólamálaumræðu, held- ur hafði hún til að bera hlýjan per- sónuleika. Sigurlaugu var einkum hugstætt að bæta tungumálakennslu og starfaði af heilum hug á því sviði, var meðal annars um skeið formaður Félags frönskukennara og átti oft sæti í nefndum innan skólans. Sjálf var hún ágæt málamanneskja, kenndi bæði frönsku og ensku og fór létt með að bregða fyrir sig öðrum tungumálum. Hún dvaldist lang- dvölum erlendis, var víðlesin og naut í starfi þekkingar sinnar á ólíkum menningarstraumum, ekki hvað síst frönskum. Hún þýddi franska skáld- sögu og las upp í útvarp, var túlkur á ráðstefnum og vann við ensk-ís- lensku skólaorðabókina. Sam-visku- semi var ríkur þáttur í fari Sigurlaug- ar og bar hún hag nemenda sinna fyrir brjósti. Var hún óþreytandi að leita leiða til að gera námið skemmti- legt og innihaldsríkt Það er eríitt að sætta sig við að Sig- urlaug hafi kvatt og verður hennar sárt saknað úr okkar hópi. Ekki var ávallt auðvelt að gera sér grein fyrir þeim veikindum sem hún átti við að stríða, svo mikinn áhuga sem hún sýndi viðfangsefnum skólans. Þar villti líka um fyrir okkur eðlislæg kímnigáfa hennar og létt viðmót, eiginleikar sem eru okkur efstir í huga nú þegar hún er kvödd hinstu kveðju. Astrid, Bera, Fanný, Guðrún Vinkona mín, Lalla, er látin langt fyrir aldur fram. Við slíka staðreynd er erfitt að sætta sig og hefur þessi fregn skyggt á allt jólahaldið og mun skilja eftir skarð sem ekki verður fyllt af neinum öðrum. Maður kem- ur aldrei í manns stað, hvað sem máltækið segir. menntaskólakennari Hún fæddist 13. ágúst 1940 í Núpa- sveitarskóla í Norður- Þingeyjar- sýslu. Foreldrar hennar voru Hall- dóra Friðriksdóttir skólastjóri og Sigurður Björnsson frá Grjótnesi. Sigurður lést árið 1971 en Halldóra árið 1985. Fjölskyldan flutti til Reykjavíkur árið 1954. Leiðir okkar Löllu lágu fyrst saman austur í Hallormsstaðarskógi er ég var barn að aldri. Ég man fyrst eftir henni 12 ára gamalli þegar hún dvaldi um sumar hjá móðursystur sinni, Þórnýju Friðriksdóttir skóla- stýru Húsmæðraskólans á staðnum, en veruleg kynni okkar hófust þegar við unnum saman í gróðrarstöðinni á Hallormsstað. Fyrsta sumarið hennar þar var hún 16 ára. Eitt sum- arið vorum við líka herbergisfélagar ásamt Vilborgu, systur hennar, og Sigríði Ólafsdóttur, frænku minni. Var það ánægjulegt og eftirminni- legt sambýli og hefur vinátta okkar frænkna við þær systur haldist æ síð- an. Margar ógleymanlegar endurminn- ingar leita á hugann þegar mér verð- ur hugsað til samverustunda okkar Löllu á Hallormsstað á þessum ár- um. Minning mín um þessa vinkonu mína er og verður ævinlega tengd sumrunum í Hallormsstaðarskógi. Allt stuðlaði að því að skapa sérstaka stemmningu — skógurinn, veður- blíðan, mannlífið á staðnum og ótal kvöldstundir við samræður, upplest- ur, gítarspil og söng. Þessa tíma rifj- uðum við oft upp hér fyrir sunnan, enda var grunnurinn að okkar löngu vináttu lagður í þessu fagra um- hverfi. Leiðir okkar lágu áfram sam- an eftir sumrin fyrir austan. Við vor- um báðar við nám í Menntaskólan- um í Reykjavík, en Lalla varð stúdent vorið 1961. Hún naut mjög námsár- anna í menntaskólanum. Skólafélag- arnir löðuðust að henni vegna aðlað- andi framkomu hennar og lífsgleði og á þessum árum eignaðist hún þá vini sem hafa haldið tryggð við hana fram á þennan dag, og það var líka Löllu eiginlegt að rækja vel vinátt- una. Eftir stúdentspróf hélt Lalla til Frakklands og dvaldist í París um skeið við frönskunám. Hún átti eftir að fara aftur til Frakklands til náms eftir þetta, var m.a. í Toulouse og Montpellier í samtals fjóra vetur. Frönsk tunga og menning voru henni alla tíð mjög hugleikin og á þessum árum erlendis eignaðist hún vini sem hún hafði samband við fram á síðustu stund. Hún fór einnig í sumarfríum til Frakklands og sérstaklega naut hún vel síðasta sumarleyfisins í þessu landi þegar hún dvaldi í nokkrar vikur hjá Nou- als-fjölskyldunni, sem voru henni óvenju ástríkir vinir alla tíð. Hér heima vann hún í franska sendiráð- inu nokkur sumur og var formaður Félags frönskukennara um skeið. Á Frakklandsárunum skrifaði Lalla mér oft og lýsti á eftirminnilegan hátt því sem fyrir augu bar. Dvölin í þessu landi lagði mikilvægan grunn að traustri frönskuþekkingu henn- ar, skerpti sýn hennar á hin marg- víslegustu efni og átti trúlega þátt í því fordómaleysi og umburðarlyndi sem mér fannst svo mjög einkenna hana. Við urðum samferða í námi í Há- skóla íslands á árunum 1963-67. Þar lagði Lalla stund á frönsku og ensku og tók BA próf í þessum greinum. Einnig tók hún próf í uppeldis- og kennslufræðum. Eftir að hún hóf kennsluna ræddi hún oft við mig hve mikla ánægju hún hefði af að um- gangast ungt fólk, enda var hún gædd ótvíræðum hæfileikum til að leiðbeina og fræða. Þessa eiginleika átti hún ekki langt að sækja því að móðir hennar, Halldóra Friðriks- dóttir, var einstakur kennari. Lalla kenndi um skeið við Austur- bæjarskólann, Kvennaskólann og Menntaskólann í Reykjavík. Árið 1978 hóf hún kennslu við Mennta- skólann við Tjömina sem síðar varð Menntaskólinn við Sund, þar sem hún kenndi frönsku og ensku til hins síðasta. Mikil samviskusemi var henni í blóð borin og því hafði hún áhyggjur af því að geta ekki lagt sig eins fram í starfi undanfarið og hún hefði viljað. Því ollu ýmiss konar veikindi en vegna þeirra þurfti hún alloft að leggjast á sjúkrahús og tók þetta skiljanlega sinn toll af vinnu- þrekinu. Lalla gat illa sætt sig við þetta ástand og var staðráðin í að láta veikindin ekki buga sig. Baráttan var oft hörð en seiglan mikil. Lalla var þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga fjölskyldu sem bar ríka um- hyggju fyrir henni. Hún naut mjög samvista við sín mörgu skyldmenni, ekki síst systkinaböm sín. Hún var bundin æskuslóðum sínum í Núpa- sveit sterkum böndum og frá síðasta ferðalaginu þangað með Vilborgu systur sinni og manni hennar sum- arið 1988 átti hún sérstaklega góðar minningar. Þegar ég kveð nú þessa kæm vin- konu mína vil ég þakka henni allar mörgu samverustundirnar og vin- áttu sem aldrei bar skugga á. Við ræddum stundum hvernig á því stæði að okkur hefði aldrei orðið sundurorða. MiIIi okkar ríkti skiln- ingur og traust sem ekki verða skýrð í orðum. Oft leitaði ég álits LöIIu á hinum margvíslegustu efnum því að ég mat dómgreind hennar mikils. Vegna hárfínnar kímnigáfu gat hún skynjað hvert mál frá mörgum hlið- um. Einstakt næmi, sem auðveldaði henni að setja sig í annarra spor, olli því jafnframt að hún fann sjálf djúpt til. Innilegustu samúðarkveðjur flytj- um við hjónin systkinum hennar og fjölskyldum þeirra svo og öðrum skyldmennum. Elísabet Guttormsdóttir Anna Krístjánsdóttir fyrrum húsfreyja í Arnarholti, Stafholtstungum Fædd 29. október 1913 Dáin 26. desember 1990 Anna fæddist að Örlygsstöðum í Helgafellssveit. Foreldrar hennar voru Þóranna Sigurðardóttir og Kristján Guðmundsson bóndi. Hún var næstyngst sjö systkina en eftir lifa tvö, Sigurður sem býr í Borgár- nesi og Unnur sem býr á ísafiröi. Þegar Anna er á sjöunda árinu flyst fjölskyldan að Búlandshöfða í Eyr- arsveit þar sem hún elst upp til tví- tugsaldurs og þaðan voru hennar kærustu bernskuminningar. Það var fyrir 25 árum að leiðir okkur Önnu bar saman er ég kom að Arnarholti með unnustu minni, Elínborgu Önnu, dóttur hennar. Ég var ungur og lítt reyndur með hálf- um huga eins og gengur. Kvíði minn reyndist ástæðulaus. Anna tók mér með sínu hlýja uppörvandi brosi, sem hún var svo rík af. Um þetta leyti var hún að bregða búi og flytjast búferlum til Reykjavíkur. Ég fann að hún var sátt við um- skiptin, þau voru eðlileg. Hún hafði að mestu lokið því verki sem hún hóf með manni sínum, koma börn- um sínum til manns og rækta og byggja upp jörðina. Anna giftist 16. des. 1937 Guð- mundi Guðbjarnasyni bónda í Arn- arholti, ættuðum frá Jafnaskarði í sömu sveit. Þau hófu uppbyggingu jarðarinnar af bjartsýni og ótrúieg- um stórhug. En skugga bar á er Guðmundur fórst með Glitfaxa, flugvél Flugfélags íslands, hinn 31. janúar 1951, þá stóð Anna uppi með fjögur börn og hið fimmta á leiðinni og hálfkaraðar byggingar. En þeirri kynslóð sem við erum að kveðja var annað betur í blóð borið en uppgjöf. Anna hafði alist upp við fátækt og harða lífsbaráttu þar sem fólkið gat nánast ekki leyft sér ann- að en að horfa fram á veginn og það gerði hún. Hún hélt áfram því starfi sem þau hjónin höfðu hafið, með dyggum stuðningi vina og vanda- manna, og ekki nóg með það held- ur tók hún að sér bróðurdóttur sína og bætti henni í hópinn og ól upp sem sína eigin. Þarna sumarið 1965 er jörðin vel hýst, ræktun í góðu lagi og börnin að vaxa úr grasi hvert af öðru, og auk þess jörðin í góðum höndum elsta sonar og tengdadóttur. Anna hafði ríka tilfinningu fyrir landinu og fegurð þess. Gilti þá einu hvort hún var að fylgjast með fuglalífinu úti í náttúrunni, bú- smala á beit ellegar að klappa kún- um í fjósinu. Og þá sjaldan hún komst á hestbak hér hjá okkur, leyndi sér ekki á ásetu og taum- haldi að þar fór kona sem hafði kynnst góðum hestum og kunnað með þá að fara. Þá langar mig að geta þess hversu vel hún náði til yngri kynslóðarinnar og hve heim- sóknir hennar voru öllum drengj- unum okkar mikils virði. Ég vil að lokum þakka fyrir alla þá ástúð og styrk sem Anna veitti mér og minni fjölskyldu og þess at- hvarfs sem við nutum á hennar heimili á erfiðum stundum í okkar lífi. Að lokum sendi ég aðstandendum öllum innilegar samúðarkveðjur. í Guðs friði. Friðgeir Stefánsson Laugardalshólum Hún elsku amma er farin til æðri heima er haldin. En eftir lifir minningin bjarta sem mynd í mínum hug og hjarta. (A.S.S.) „Ég kveð þig, elsku amma mín, og óska heitt, er sólin skín, þig englar leiði Ijúfri hönd á Ijóssins fögru sólarströnd. “ (Á.N.) „Hún amma ykkar er dáin“. Við vissum að hverju stefndi, því að amma hefur legið mikið veik síðustu vikurnar. En samt er erfitt að sætta sig við þessi orð. Við leit- um huggunar í minningunum um elsku ömmu sem var okkur alltaf svo ljúf og góð. Við þökkum ömmu okkar fyrir þann tíma sem áttum við með henni. Allt það sem hún kenndi okkur og tók þátt í með okkur. Okkur auðnaðist aldrei að kynnast afa okkar sem lést árið 1951. En gott er að vita að þau eru nú aftur saman. Við vitum þrátt fyrir sökn- uð okkar að nú líður ömmu vel. Og að vel hefur verið tekið á móti henni. Amma var mikill föðurlandsvinur og náttúruunnandi. Og kveðjum við hana í hinsta sinn með þessum fallegu ljóðlínum Hannesar Péturs- sonar. Ferð þín er hafin, fjarlægjast heimatún. Nú fylgir þú vötnum sem falla til nýrra staða og sjónhringar nýir sindra þér fyrir augum. (Hannes Pétursson) Barnaböm og barnabamaböm Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka í Reykjavík 4.-10. janúar er ( Ingólfsapóteki og Lyfjabergi, Breið- holti. Það apótek sem fýrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi til kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýs- ingar um læknis- og lyflaþjónustu eru gefnar (síma 18888. Hafnarfiöröun Hafnarfiaröar apótek og Norður- bæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugardagi kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00.. Upplýsingar I simsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartíma búöa. Apó- tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opiö I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfia- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar enr gefnar I slma 22445. Apótek Keflavfkur Opiö virka daga frá k. 9.00- 19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frf- daga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opiö virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Seiföss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30. Op- ið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00- 12.00. Akranes: Apótek bæjaríns er opið virka daga til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garöabæn Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Læknavakt fyrír Reykjavfk, Sottjamamos og Kópavog er I Heilsuverndarstöð Reykjavlkur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög- um og helgidögum allan sólarhringinn. Á Sol- tjamamesl er læknavakt á kvöldin kl. 20.00- 21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokað á sunnudögum. Vitjanabeiðnir, simaráðleggingar og tfmapantan- ir I sima 21230. Borgarspitalinn vaktfrá kl. 08-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki- hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slml 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar- hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um lyfiabúðir og læknaþjónustu enjgefriar I simsvara 18888. Ónæmisaögerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram á Heiisuvemdarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskirteini. Seltjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og 20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Slmi 612070. Gatðabær Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I slma 51100. Hafriarfiötður Heilsugæsla Hafnarfiarðar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100. Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Sími 40400. Keflavík: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð Suðumesja. Simi: 14000. Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sál- fræöilegum efnum. Slmi 687075. Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15- 16. Heimsóknartími fyrir feður kl. 19.30-20.30. Bamaspftali Hrfngsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunaifækningadeild Landspitalans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa- kotsspitali: Alla virka kl. 15tilkl. 16ogkl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartimi annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg- arspitalinn i Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftirsamkomulagi. Álaug- ardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúöin Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvita- bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartlmi frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu- daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl. 14 til kl. 19. - Fæöingarheimili Reykjavikur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspítall: Alla daga kl. 15.30 tilkl. 16ogkl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa- vogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vífilsstaöaspitall: Heimsóknar- timi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St Jósepsspítali Hafnarffröl: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlíö hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim- sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavikurfæknishéraðs og heilsu- gæslustöövar: Vaktþjónusta allan sólarhring- inn. Sfmi 14000. Keflavik-sjúkrahúsið: Heim- sóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgarog á hátlöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00- 19.30. Akureyri- sjúkrahúsiö: Heimsóknartlmi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusimi frá kl. 22.00- 8.00, simi 22209. Sjúkrahús Akraness: Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30. Reykjavfk: Seltjamames: Lögreglan simi 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 11100. Kópavogun Lögreglan slmi 41200, slökkvllið og sjúkrabifreiö slmi 11100. Hafnarfiöröun Lögreglan sími 51166, slökkviliö og sjúkrabifreið sími 51100. Keflavík: Lögreglan simi 15500, slökkviliö og sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjar Lögreglan, sími 11666, slökkviliö simi 12222 og sjúkrahúsið slmi 11955. Akureyri: Lögreglan simar 23222, 23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreiö simi 22222. Isafiöröur: Lögreglan sími 4222, slökkvilið slmi 3300, brunasimi og sjúkrabifreið slmi 3333.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.