Tíminn - 05.02.1991, Qupperneq 1
1«S
■
g-, I
KÍIÍIÍ
§§§§
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991 - 24. TBL. 75. ÁRG. - VERÐ
Ofsaveður um allt land. Hús, bílar, þök og grjót
flugu um loftið fyrir sunnan, vestan og norðan:
UTGONGUBANN
í REYKJAVÍK
OFSAVEÐRIÐ sem gekk yfir landið sl.
sunnudag er það versta í manna minnum
á íslandi. Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum
var meðalvindhraði um tíu mínútna bil
hvorki meiri né minni en 110 hnútar.
í Reykjavík var varla stætt og stórhættu-
legt að vera á ferli. Þótt ekki væri um
eiginlegt útgöngubann að ræða var fólk
almennt ekki á feröinni fýrir utan björgun-
armenn og aðra sem brýnt erindi áttu.
Veðrið olli gríðarlegu eignatjóni. Heilu
húsin tættust í sundur, byggingahlutar og
byggingaefni dreifðust um víðan völl, tré
rífnuðu upp með rótum, allt sem fokið gat
fauk; bílar, bátar og byggingakranar, svo
eitthvað sé nefnt, eyðilagðist í stórum
stíl. Þá eyðilagðist mikilvægur hlekkur í
almannavamakerfinu er langbylgjumast-
ur Ríkisútvarpsins á Vatnsendahæð fauk
um koll. Ljóst þykir að tjón er gríðarlegt
og skiptir hundruöum milljóna króna.
• Opnan og bls. 3
Utandagskrárumræða á Alþingi
Sjötta skilningarvitið eða hvað?
Dulvitað
hrossastóð
• Bls. 5
: . •:■:
Wwmm
;
,