Tíminn - 05.02.1991, Síða 4
4 Tíminn
ff ÚTLÖND
Þriðjudagur 5. janúar 1991
Rafsanjani vill friðar-
viðræður við Saddam
Rafsanjani, forseti frans, lýsti yfir vilja sínum í gær til að hitta
Saddam Hussein forseta íraks til að reyna að binda enda á Persa-
flóastríðið. Hann sagði einnig að íran mundi hafa samband við
Bandaríkin ef það reyndist nauðsynlegt og þá í gegnum svissneska
sendiráðið.
„Ef von er til þess að bjarga írösku þjóðinni, af hverju ætti ég þá
ekki að ræða við Saddam?“ sagði Rafsanjani á fréttamannafundi í
Teheran í gær. „Ef íran hefur eitthvað að segja við Bandaríkin um
friðarmyndun þá mun það gera það í gegnum svissneska sendiráð-
ið,“ sagði Rafsanjani í svari við spurningu fréttamanns.
Rafsanjani sagði að viðræðurnar
við aðstoðarforsaetisráðherra íraks
um síðustu helgi hafi leitt í ljós að
Saddam væri jafnákveðinn og áður
að halda Kúvæt. En hann sagði að
írönsk stjórnvöld hefðu beðið
hann fyrir skilaboð til Bagdad,
ef Saddam samþykir hugmyndir
okkar þá gætum við hafið friðar-
viðræður á grundvelli þeirra,"
sagði forsetinn. Rafsanjani sagðist
hafa gert fulltrúa íraks í íran grein
fyrir því að til þess að friður kæm-
ist á yrðu írakar að fara frá Kúvæt
og herir frá löndum utan Miðaust-
urlanda að fara frá svæðinu. For-
setinn sagði að írönsk stjórnvöld
gerðu hvað þau gætu til að finna
lausn á deilunni.
Fyrir utan aðstoðarforsætisráð-
herra fraks voru utanríkisráðherra
Alsírs og Jemens, franskur stjórn-
arerindreki og erindreki útlæga
emírsins í Kúvæt í Teheran í sein-
ustu viku.
Jarðskjáiftinn í Afganist-
an og Pakistan:
Óttast að yfir
1.200 hafi farist
Vestrænir embættismenn segja
að 89 íraskar flugvélar séu nú í ír-
an en írönsk stjórnvöld segja þær
einungis vera 13 og hafa lofað að
láta íraka ekki fá þær fyrr en að
stríðinu loknu. „Þið vitið að í
seinni heimsstyrjöldinni kyrrsettu
Svisslendingar um 300 flugvélar
frá báðum stríðsaðilum og afhentu
þær ekki fyrr en eftir stríðið og það
var ekki litið á það sem brot á hlut-
leysi,“ sagði Rafsanjani við frétta-
menn.
Viðbrögð frá Hvíta húsinu við
ummælum Rafsanjanis forseta ír-
ans um að íran mundi kannski
verða sáttasemjari í Persaflóastríð-
inu voru köld. „Þeir (íranir) eru
Rafsanjani, forseti írans.
ekki beint flæktir í þessi átök og
það er okkur kappsmál að hrekja
íraka frá Kúvæt,“ sagði talsmaður
Hvíta hússins, Marlin Fitzwater.
Lýðræðisher Saddams
virðist enn sterkur
Þrátt fyrir stöðugar sprengju-
árásir bandamanna á úrvalssveitir
íraska hersins, Lýðræðisherinn,
eru engin merki um að hann sé að
gefa sig. Bandarískir hershöfðingj-
ar hyggjast halda sprengjuárásum
áfram þangað til allur kraftur er úr
þessum sveitum.
Lýðræðisherinn, sem er við landa-
mæri Kúvæts og íraks, hefur orðið
fyrir sprengjuárásum bandamanna
síðastliðnar tvær vikur. En
sprengjuárásirnar hafa ekki áhrif á
hermennina, sem eru dreifðir í
eyðimörkinni og grafnir niður í
sandinn, nema sprengjurnar hitti
nákvæmlega á byrgin þeirra sem er
ekki mjög líklegt. Bandarískir
hershöfðingjar sögðust ekki hafa
neinar upplýsingar um árangur
sprengjuárásanna.
Þeir sögðu að um 150 þúsund
hermenn hefðu verið í Lýðræðis-
hernum þegar Persaflóastríðið
hófst. Þetta væru atvinnuhermenn
sem væru betur þjálfaðir, mennt-
aðir og launaðir en aðrir hermenn
í íraska hernum. Þeir væru með
eigin fallhlífaherdeild, þyrlur,
skriðdreka og bryndreka til að verj-
ast eða sækja. Reuter-SÞJ
Suður-Afríka:
DE KLERK GENGUR
EKKI NÓGU LANGT
Talið er að yfir 1.200 manns hafi
farist í jarðskjálftanum sem varð í
Afganistan og Pakistan á föstudag,
að sögn embættismanna.
Afganskir embættismenn í höfuð-
borginni Kabúl sögðust halda að yf-
ir 1.000 hefðu látið lífið í afskekkt-
um héruðum í norður- og austur-
hluta landsins sem eru að mestu
undir stjórn skæruliöa sem eru and-
snúnir ríkisstjórn landsins. Yfirvöld
í Pakistan töldu að yfir 200 manns
hefðu farist í landinu. Þessar tölur
geta átt eftir að hækka því erfitt er
að ná sambandi við sum þorpin á
þessum slóðum vegna einangrunar.
Skjálftinn, sem var 6,8 á Richter, er
einn sá öflugusti á þessu svæði í
mörg ár. Reuter-SÞJ
Danmörk:
Brú til Malmö
Síðla árs 1993 mun að öllum lík-
indum hefjast smíði brúar milli
Svíþjóðar og Danmerkur.
Brúin sem um ræðir á að liggja frá
Kaupmannahöfn til Málmeyjar og
vera fyrir bíla og járnbrautalestir.
Kostnaður við hana er áætlaður um
110 milljarðar en hún mun vera
fjármögnuð með umferðartollum.
Talsmaður umferðarmálaráðuneyt-
is Svíþjóðar sagði að samningur
milli ríkisstjórna landanna yrði lík-
lega tilbúinn fyrir lok mars og þá
væri hægt að leggja samninginn fyr-
ir þjóðþingin. „Það er víst að brúin
verður byggð. Það er sterkur stuðn-
ingur við það í báðum þingum,"
sagði hann. Reuter-SÞJ
Þeim tilslökunum á aðskilnaðarstefnunni sem F.W. de Klerk, for-
seti Suður-Afríku, tilkynnti á föstudag að kæmu til framkvæmdar á
þessu árí hefur ekki verið tekið vel af ýmsum mannréttindahópum.
De Klerk sagði við þingið á föstudag að stefnt væri að því að nema
úr gildi lög sem kvæðu m.a. á um skrásetningu fólks eftir kynþátt-
um, hverfaskiptingu eftir kynþáttum og landívilnanir handa hvít-
um. Það sem fólk er óánægt með er að hann skuli ekkert hafa
minnst á að endurskoða Öryggislögin frá árinu 1982 sem hann lof-
aði Afríska þjóðarráðinu (ANC) fyrir um sex mánuðum.
tryggja stuðning hvíta minni-
hlutahópsins sem er hræddur við
allar tilslakanir og styður aðgerðir
lögreglunnar fullkomlega.
Þá olli De Klerk óánægju meðal
mannréttindahópa með því að
minnast ekkert á pólitísk morð
sem stjórnvöld hafa verið sökuð
um að taka þátt í og einn háttsett-
ur dómari viðurkenndi m.a.s op-
inberlega að stjórnvöld hefðu á að
skipa leynilegum aftökusveitum.
De Klerk hafði áður lofað að láta
rannsaka hvort hið opinbera væri
viöriðið á einhvern hátt um 70
morð sem andstöðumenn stjórn-
arinnar hafa sakað lögreglu um.
Reuter-SÞJ
Tuttugasta og níunda grein Ör-
yggislaganna leyfir yfirvöldum að
setja menn í fangelsi án réttar-
halda og samskipta við lögmenn
eða fjölskyldur. Yfir 60 menn eru
nú í haldi lögreglunnar undir
þessari grein sem hefur verið sögð
gefa yfirvöldum rétt til að mis-
þyrma og pynda.
Nelson Mandela, einn af leiðtog-
um ANC, sagði að það ylii miklum
vonbrigðum að De Klerk hafi ekki
minnst á að endurskoða Öryggis-
Iögin Einnig olli það mikilli
óánægju að hann minntist ekkert
á að sleppa pólitískum föngum,
hætta pólitískum réttarhöldum og
heimila útlögum að snúa heim. í
gær hófust réttarhöld yfir Winnie
Mandela, eiginkonu Nelson Man-
dela, en hún er ákærð fyrir mann-
rán og ofbeldi. ANC hefur sakað
stjórnvöld um að sviðsetja réttar-
höldin til þess að skaða samtökin
og Nelson Mandela.
ANC segja að það sé hugsanlegt
að samtökin hætti samningavið-
ræðum við De Klerk nema hann
sleppi 3.000 pólitískum föngum,
leyfi 20.000 útlögum að snúa
heim og hann endurskoði Örygg-
islögin fyrir 1. apríl.
Stjórnmálasérfræðingar telja að
De Klerk hafi ekki minnst á end-
urskoðun Öryggislaganna til að
FRETTAYFIRLIT
Nikósía - Forseti Irans, Rafs-
anjani, sagði á fréttamannafundi
( gær að það kæmi til greina að
hann mundi hitta Saddam Hus-
sein forseta (raks til þess aö
reyna að binda enda á Persa-
flóastríðið, að sögn irönsku
fróttastofunnar IRNA.
Karachi, Pakistan - Byssu-
menn réðust á heimili saudi-ar-
abisks stjómarerindreka í Kar-
achi í gær og særðu einn vörð,
að sögn lögreglu.
Bagdad - Þrjár flugsveitir
bandamanna gerðu loftárásir á
Bagdad í gær. Talsmaður iraska
hersins sagði í útvarpinu i Bagd-
ad að níu flugvélar bandamanna
hefðu verið skotnar niður á ein-
um sólarhring.
Dhahran - Bandaríska orrustu-
beitiskipið Missouri tók þátt í
bardögunum í gær, að sögn
bandarískra ofursta, Skipið
skaut sjö sprenglkúlum sem
hver vó 1,2 tonn.
Jerúsalem - Forsætisráðherra
ísraels, Yatzhik Shamir, sagði
að fsraelsmenn langaöi mjög að
ráöast á fraka en héldu sig utan
átakanna til að tryggja sigur
bandamanna. Hann hét þvi i
ræöu sem hann hélt á ísraelska
þinginu að fsrael mundi aldrei
taka þátt f alþjóölegri ráðstefnu
um vandamál Miðausturlanda.
Riyadh - Byssumenn réðust á
sunnudagskvöld á nokkra
bandaríska hermenn sem voru í
iitilli rútu í hafnarborginni
Jeddah i Saudi- Arabiu. Tveir
hermenn særðust. Bandariskir
hershöfðingar töldu að þetta
væri fyrsta hryðjuverkið i S- Ar-
abiu síðan stríðið braust út.
Briissel - Utanríkisráðherrar
Evrópubandalagsins ákváðu í
gær að EB mundi aflétta við-
skiptabanninu á Suður-Afríku
um leið og F.W. de Klerk forseti
landsins hefur hrint þeim breyt-
ingum sem hann boðaði í ræðu
sem hann héit á föstudag.
Brussel - Utanríkisráðherrar
Evrópubandalagsins hittust í
gær I fyrsta sinn síðan strlöiö
braust út og ræddu um leiðir til
að hjálpa til við að koma ástand-
inu í Miðausturlöndum í samt
horf eftir stríö.
Washington - George Bush
lagöi fram fjárlagafrumvarp fyrir
árið 1992 fyrir þingiö að upphæð
1,45 miiljón milljarða dollara.
Moskva - Talið er a.m.k. 1.200
manns hafi látist og hundruð
slasast í jarðskjálftanum sem
gekk yfir Afganistan og Pakistan
á föstudag. Þetta haföi sovéska
fréttastofan Tass eftir útvarpinu í
Kabúl.
Jóhannesarborg - Winnie
Mandela, kona Nelsons Man-
dela ieiðtoga Afríska þjóðar-
ráðsins, var leidd fyrir rétt í gær,
sökuð um mannrán og ofbeldis-
verk.
Davos, Sviss - GATT-viðræð-
urnar sem miða að þvf að koma
á frjálsri heimsverslun fyrir alda-
mót eru að komast á fullan skrið
eftir að þær sigldu í strand í des-
ember út af niðurgreiðsium Evr-
ópubandalagsins til landbúnað-
ar. Reuter-SÞJ