Tíminn - 05.02.1991, Page 15
Þriðjudagur 5. febrúarM091
Tfminn 15
ÍÞRÓTTIR
STÆRSTA SUNDLAUG
LANDSINS TEKIN í
NOTKUN í KÓPAVOGI
Knattspyma-Dómarar:
Eyjólfur dæmir
í Danmörku
Knattspymusamband Evrópu
hefur skipað Eyjólf Ólafsson sem
dómara á leik Danmerkur og San
Marínó U-21 árs í undankeppni
ólympíuleikanna, en leikurinn
verður háður í Danmörku 17.
apríl nk.
Dómaranefnd KSÍ hefur skipað
þá Óla P. Ólsen og Ara Þórðarson
sem línuverði með Eyjólfi á leik-
inn. BL
Guðmundur
þjálfar
landsdómara
Hinn kunni knattspymuþjálfari
Guðmundur Ólafsson hefur verið
ráðinn þjálfari landsdómara. Æf-
ingar hefjast um næstu helgi og
standa fram á vorið. Dómarar
ættu því að mæta vel undir búnir
til leiks í vor.
Guðmundur hefur m.a. þjálfað
Völsung í 1. deild, kvennalið
Breiðabliks og einnig var hann
aðstoðarmaður Sigfried Held
með landsliðið. BL
Frjálsar íþróttir:
Einar setti
,glæsilegt
Islandsmet
Einar Þ. Einarsson Ármanni
keppti í 60 m hlaupi á norska inn-
anhússmeistaramótinu um helg-
ina. Einar náði þeim glæsilega ár-
angri að bæta íslandsmetið í
greininni, er hann hljóp á 6,86
sek. Gamla metið, sem var 7,12
sek., átti Hjörtur Gíslason.
Einar komst í úrslit 60 m
hlaupsins, þar sem hann hljóp á
6,94 sek. og lenti í 5. sæti. Litlu
munaði að tími Einars í undarás-
unum dugði honum til þátttöku á
heimsmeistaramótinu innnan-
húss, en lágmarkið fyrir það mót
var 6,85 sek. BL
Körfuknattleikur:
Frestuðu
leikirnir
settir á
Leikjunum sem fresta varð í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik um
helgina vegna veðurs, hefur verið
fundinn tími í vikunni.
í kvöld mætast Valsmenn og
Njarðvíkingar á Hlíðarenda kl.
14.00. Þrír leikir voru fyrir á dag-
skránni í kvöld kl. 20.00 en þá
leika ÍR og Þór í Seljaskóla, Snæ-
fell og Tindastóll í Stykkishólmi og
Grindavík og Haukar í Grindavík.
Leikur ÍBK og ÍR hefur verið
settur á fimmtudaginn 14. febrú-
ar í Keflavík kl. 20.00, leikur
Snæfells og Þórs sem vera átti á
föstudag verður leikinn föstudag-
inn 8. febrúar kl. 20.00 og leikur
Snæfells og Grindvíkinga, sem
vera átti fyrir vestan á sunnudag,
verður leikinn fimmtudaginn 14.
febr. kl. 20.00. Þá hefur leikur
Tindastóls og KR verið settur á
laugardaginn 9. febr. kl. 14.00.
BL
Á laugardaginn var tekin í notkun ný sundlaug í Kópavogi. Laugin
er staðsett við hlið gömlu iaugarinnar á Rútstúni. Hér er um að
ræða stærstu sundlaug landsins, 25x50 metrar, en laugina hannaði
Högna Sigurðardóttir arkitekt.
Með tilkomu nýju laugarinnar
verður gjörbylting á allri sundað-
stöðu í Kópavogi. í dag er gamla
laugin opin í um 30 klst. á viku
fyrir almenninng, en nú fjölgar
þeim tímun upp í 90 í nýju laug-
inni. Sömu sögu er að segja um
aðstöðu skólabarna og aðstöðu fyr-
ir keppnisfólk í sunddeild Breiða-
bliks.
Kostnaður við mannvirkið full-
klárað er áætlaður 460-480 millj-
ónir kr.
Fjölmennt var við vígslu laugar-
innar á Iaugardag, en áður en
laugin var opnum blessaði séra
Kristján Þorvarðarson mannvirk-
ið. Fyrstur stakk sér í laugina ný-
kjörinn íþróttamaður Kópavogs,
Ólafur Eiríksson, og synti hann
fyrstu 100 metrana í lauginni.
Næstir ofan í voru nokkrir fasta-
gestir úr gömlu lauginni og félag-
ar úr frístundaklúbbnum Hana-
nú. Á eftir þeim fylgdu fulltrúar
skólabarna grunnskólanna 5 í
Kópavogi og loks var röðin komin
að félögum úr sunddeild Breiða-
bliks, sem sýndu stílsund og boðs-
und.
Að lokinni hátíðardagskránni var
boðið upp á veitingar og síðan var
laugin til sýnis fyrir almenning.
Talið er að um 2.500 manns hafi
lagt Ieið sína í nýju laugina á laug-
ardaginn til að berja hið glæsilega
mannvirki augum.
BL
Nýja sundlaugin í Kópavogi er stærsta sundlaug landsins.
Tímamynd Ámi Bjama.
íslandsmótið í badminton:
ÁRNI ÞÓR VANN
ÞREFALDAN SIGUR
-Elsa Nielsen sigraði í einliðaleik kvenna
einliðaleik karla, tvíliða leik og
tvenndarleik.
í einliðaleiknum lagði Árni fyrrum
íslandsmeistara, Brodda Kristjáns-
son TBR, 15-5 og 15-12. í tvfiiðaleik
sigruðu þeir Árni og Broddi, Guð-
mund Adolfsson TBR og Jóhann
Kjartansson TBR í oddalotu.
í tvenndarleik varð Árni meistari
ásamt Guðrúnu Júlíusdóttur TBR,
er þau sigruðu Guðmund Adolfsson
og Birnu Pedersen.
í einliðaleik kvenna sigraði 16 ára
gömul stúlka, Elsa Nielsen TBR.
Hún sigraði Guðrúnu Júlíusdóttur
TBR í úrslitaleik, 11-3 og 11-0. Guð-
rún gekk ekki heil til skógar í úr-
slitaleiknum, þar sem hún meiddist
í undanúrslitunum.
í tvfliðaleik kvenna sigruðu þær
Birna Pedersen og Guðrún Júlíus-
dóttir TBR þær Elsu Nielsen TBR og
Ásu Pálsdóttur ÍA í oddalotu. BL
Ámi Þór Hallgrímsson TBR vann
þrefaldan sigur á íslandsmótinu í
badminton sem fram fór í Laugai
dalshöll um helgina. Ámi sigraði
Körfuknattleikur-Bikarkeppni:
STÓRLEIKUR í GRINDAVÍK
-Þegar Njarðvíkingar mæta heimamönn-
Á laugardaginn var dregið um
hvaða lið mætast í fjórðungs-
úrslitum í bikarkeppninni í
körfuknattleik. Athyglisverð-
asti leikur fjórðungsúrslitanna
er viðureign Grindvikinga og
Njarðvíkinga í Grindavík.
Eftirtalin lið drógust saman í
keppninni:
Valur-ÍBK UMFG-ÍBK
Þór-ÍR KR-UBK
Leikur Vals og Keflvíkinga
verður á Hlíðarenda þriðjudag-
inn 12. febrúar kl. 20. Sama
kvöld á sama tfma hefst leikur
Grindvíkinga og Njarðvíkinga í
Grindavík, en leikur Þórsara og
ÍR-inga hefst kl. 19.30. Loks
er það leikur KR-inga og
Breiðabliksmanna, en hann
verður háður í Laugardalshöll
miðvikudaginn 13. febrúar kl.
20.00.
BL
Enska knattspyrnan:
Fyrsta tap Arsenal
á tímabilinu
Arsenal og Liverpool deila nú
efsta sæti 1. deildar ensku knatt-
spyraunnar eftir leiki helgarinn-
ar, bæði Uðin hafa 51 stig, en Li-
verpool á leik til góða.
Arsenal tapaði sínum fyrsta leik
á keppnistímabilinu á laugardag.
Það voru leikmenn nágrannaliðs-
ins í Lundúnum, Chelsea sem
báru sigurorð af „fallbyssunum"
2-1. Chelsea komst f 2-0 með
mörkum þeirra Graham Stuart
og Kerry Dixon, en mark Arsenal
gerði Álan Smith stuttu fyrir
leikslok.
Á sunnudag mistókst Liverpooi
að endurheimta efsta sætið í
deildinni er liðið gerði jafntefli
gegn Manchester United á Old
Trafford, 1-1. Bæði mörkin voru
gerð í fyrri hálfleik, fyrst skoraði
Steve Bruce úr vítaspymu fyrir
United, en síðan jafnaði David
Speedie, eftir undirbúning John
Barnes. Speedie lék sinn fyrsta
leik fyrir Liverpool á sunnudag.
Úrslitin urðu þessi:
1. deild:
Aston Villa-Derby .........3-2
Chelsea-Arsenal............2-1
Everton-Sunderland ........2-0
Luton-QPR .................1-2
Norwich-Manchester City ..1-2
Nott. Forest-Crystal Pal...0-1
Sheff. United-Southampton ...4-1
Tottenham-Leeds ...........0-0
Wimbledon-Coventry.........1-0
Manch. United-Liverpool ...1-1
2. deild:
Barnsley-Blacburn......frestað
Bristol City-WBA...........2-0
Charlton-Brighton..........1-2
Hull-Bristol Rovers........2-0
Ipswich-Millwall...........0-3
Leicester-Plymouth.........3-1
Middlesborough-Swindon ..2-0
Newcastle-Port Vale .......2-0
Oxford-Oldham .............5-1
Porstmouth-Notts County .2-1
Watford-Sheff. Wednesday .2-2
Wolves-West Ham ...........2-1
Staðan í 1. deild:
Arsenal........24 15 8 143-12 51
Liverpool......23 15 6 2 43-1851
Crystal Pal....24 14 6 4 34-23 48
Leeds..........2412 7 538-2443
Man. United....24 118 5 37-2540
Tottenham .....2410 8 6 35-2738
Wimbledon ......24 9 8 7 36-33 35
Man. City......23 9 8 6 34-3135
Chelsea........24 10 5 9 38-4135
Norwich .......24 10 2 12 32-4232
Nott. Forest....23 87 837-3331
Everton.......24 8610 28-26 30
Southampton....24 7 512 35-45 26
AstonVilla.....23 69 8 24-2427
Coventry ......24 6 6 12 23-30 24
Luton..........24 6 5 13 27-4023
Sunderland.....24 5 613 25-37 21
QPR............24 5 613 29-43 21
Sheffield Utd..24 5415 18-4019
Derby..........24 4 614 21-4318
Staðan í 2. deild:
WestHam ......2817 9 2 39-15 60
Oldham........2716 7 4 55-3155
Sheff.Wed.....27 13 12 2 51-29 51
Notts County..2813 7 845-3846
Middlesbro....2713 5 941-2544
Brighton .....26 13 4 9 44-46 43
Miilwall......2711 8 840-3141
Wolves........27 912 6 42-3337
Bristol City...2711 4 1241-4337
Barnsley......26 9 9 8 35-28 36
Bristol Rov...27 9 9 9 35-34 36
Newcastle.....27 9 9 9 30-3136
Swindon.......28 811 9 39-3935
Ipswich.......28 811 9 35-43 35
PortVale......27 9 612 36-4033
Charlton......28 7101137-4131
Oxford........27 71010 47-5231
WBA...........27 7 9 11 31-3630
Leicester.....27 8 6 13 37-54 30
Blackburn.....28 8 515 29-38 29
Plymouth......28 611 1131-4329
Portsmouth....28 7 714 36-4928
Watford.......28 5 10 13 24-37 25