Tíminn - 16.02.1991, Síða 2

Tíminn - 16.02.1991, Síða 2
10 liaugardagur 16. febrúar 1991 T HEUGIM FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVlKURBORGAR Síöumúla 39-108 Reykjavík - Sími 678500 FRÆÐSLA — UPPLÝSINGAR Starfsmann vantar nú þegar til afleysinga á fræðslu- og upplýsingasvið öldrunardeildar. Starfið er fólgið í almennri fræðslu og upplýsinga- starfsemi í þágu deildarinnar, útgáfu fréttablaðs o.fl. Fyrir hugmyndaríkan starfsmann býður þetta starf upp á marga skapandi og skemmtilega möguleika. Starfið gerir kröfu til frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða. Menntun á sviði félagsvísinda, t.d. fé- lagsráðgjöf, félags- og fjölmiðlafræði eða kennslu, er áskilin. Upplýsingar veitir yfirmaður öldrunarþjón- ustudeildar, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, í síma 678500. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk. VERKSTJÓRI í ÖLDRUNARÞJÓNUSTU Verkstjóra í heimaþjónustu vantar í félags- og þjón- ustumiðstöð fyrir aldraða að Vesturgötu 7. Starfssvið verkstjóra er fólgið í daglegum rekstri heimaþjónustu aldraðra, verkstjórn og ráðgjöf við starfsmenn. Æskilegt er að umsækjendur geti unnið sjálfstætt og hafi einhverja reynslu á sviði félagslegrar þjónustu og þægilegt viðmót í mannlegum samskiptum. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 627077. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk. STARFSMENN í ÖLDRUNARÞJÓNUSTU Sjúkraliða vantar til aðstoðar við böðun aldraðra. Um er að ræða 50% starf við félags- og þjónustumiðstöð- ina að Vesturgötu 7. Góð vinnuaðstaða og fullkomið sjúkrabað. Upplýsingar veitir forstöðumaður ( síma 627077. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk. Aðstoðarmann við böðun aldraðra vantar að félags- starfi aldraðra í Furugerði 1. Góð vinnuaðstaða og fullkomið sjúkrabað. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 36040. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu- blöðum er þar fást. Listskreytingasjóður ríkisins Listskreytingasjóður ríkisins starfar samkvæmt lög- um nr. 71/1990 og hefur það markmið að fegra opin- berar byggingar og umhverfi þeirra með listaverkum og stuðla þannig að listsköpun í landinu. Verksvið sjóðsins tekur fyrst og fremst til bygginga sem ríkis- sjóður fjármagnar að nokkru eða öllu leyti. Með list- skreytingu er átt við hvers konar fasta og lausa list- muni, svo sem veggskreytingar innan húss og utan, höggmyndir, málverk, veggábreiður og hvers konar listræna fegrun. Þegar ákveðið hefur verið að reisa mannvirki sem lögin um Listskreytingasjóð ríkisins taka til, skulu arkitekt mannvirkis og bygginganefnd sem hlut á að máli hafa samband við stjórn Listskreytingasjóðs, þannig að byggingin verði frá öndverðu hönnuð með þær listskreytingar í huga sem ráðlegar teljast. Heim- ilt er einnig að verja fé úr sjóðnum til skreytingar bygginga sem þegar eru fullbyggðar. Umsóknum um framlög úr Listskreytingasjóði skal beinttil stjórnar Listskreytingasjóðs ríkisins, skrifstofu Sambands íslenskra myndlistamanna, Freyjugötu 41, 101 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöö fást einnig í afgreiðslu menntamálaráðu- neytisins að Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir vegna fyrri úthlutunar 1991 berist sem fyrst og ekki síðar en 1. maí nk. Nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu Sambands íslenskra myndlist- armanna, frá kl. 10.00 til 14.00 alla virka daga, sími 11346. Reykjavík, 15. febrúar 1991 Stjóm Listskreytingasjóðs ríkisins ÆSKUAR GRÍMS THOMSEN Magdalene Thoresen, bamsmóðir Gríms Thomsens. hann er þegar farinn að safna skuidum. Það mun hafa verið ætlunin að Grímur legði stund á málfræði og var þá varla um aðra stöðu að ræða en skólakennaraembætti við lærða skólann á íslandi. Ingibjörg á Bessastöðum virðist ekki bera mikla virðingu fyrir slíkum emb- ættismönnum, hefur haft þá fyrir augunum árum saman og telur að „þeir séu oft dauðir tíu árum áður en þeir hætta að draga andann". En þegar að hausti 1839 er hún orðin vondauf um að hún hafi mikla gleði af einkasyni sínum, enda þekkir hún skap hans. Hann lætur sig ekki leiða og þeim sem ekki vilja hjálpa sjálfum sér getur enginn hjálpað. Hún segir að Grímur eyði tvöfalt meira fé en aðrir menn í hans stétt og sé faðir hans að hugsa um að kveðja hann heim og láta hann hætta. Lögvísi að yfirvarpi Grímur hefur fengið ávæning af þessu og því hyggst hann nú gera foreldrum sínum glatt í geði með því að segja skilið við málfræðina og leggja stund á lögvísi. Þar var framavonin meiri til æðstu emb- ætta á íslandi. En faðir hans setur honum þá kosti að hann muni hætta að styrkja hann ef hann hætti einnig við þessa grein vísinda eftir eitt eða tvö ár. Þorgrímur hef- ur litla trú á því að hann eiri við lögvísina stundinni lengur, enda kom það brátt á daginn. Lögfræði- námið hafði hann aðeins að yfir- varpi til að ná fjárstyrk út úr gamla manninum. Hann er frekur á fóðr- unum. Árið 1839 hefur hann eytt 500 ríkisdölum og hrekkur þó ekki til, en árslaun gullsmiðsins á Bessastöðum voru 200 ríkisdalir! Láta mun nærri að hann hafi eytt þreföldum launum föður síns á þessu ári og hélt svo áfram hin næstu ár. „Mér dettur oft Grímur í hug á nóttunni og er þá ekki að spyrja um svefninn," skrifar Ingibjörg á Bessastöðum Grími bróður sínum 22. september 1841. Eftir því sem á líður vaxa áhyggjur móðurinnar og ekki verða þær minni fyrir það að hann skrifar sjaldan og þá sjaldan hann skrifar eru það nokkrar línur og tónninn ber ekki vott um hugar- þel iðrandi syndara. „Dálítinn seðil fékk ég frá Grími litla með póst- skipi. Ekki var hann sérlega skemmtilegur, heldur þver og myndugur." Hann hefur ekki þegið boð móður sinnar að koma heim til Bessastaða glataður sonur, þótt fyr- irgefningin bíði hans með opinn föðurarminn. „Svo miklu hef ég komist að hjá öðrum löndum mín- um að ekki hefur hann þreytt sig á lögvísinni sumarið sem leið," bætir hún við beisklega. Og ekki batna tíðindin af honum. Síðsumars 1842 skrifar Ingibjörg bróður sínum aft- ur og segir farir hans ekki sléttar: „Grímur, sem á ári hefur fengið á fimmta hundrað dali, skrifar nú föður sínum að hann sé kominn í sex hundruð dala skuld.“ Varð gullsi nú að taka peningalán til þess að borga þessa skuld auk 120 dala skraddarareiknings, reikning hjá úrsmið og 60 dali til Eggerts Bri- em. Og til þess að bæta gráu ofan á svart er Grímur litli kominn út í opinberar ritdeilur, er „farinn að semja stríðsrit", eins og móðir hans komst að orði. Hann hefur sem sagt lagt lögvísina á hilluna, enda aldrei haft hana nema í hjáverkum og að yfirvarpi, en hefur því meir Iagt sig eftir heimspeki og fagurfræði. „Stríðsritið", sem móðir hans getur um var lítill bæklingur „Folk, Pu- blicum, offentlig Mening“, sem Grímur skrifaði gegn frægasta fag- urkera Danmerkur, J.L. Heiberg, og þótti djarflega gert af ungum og ókunnum íslendingi. Bjargvætturín Finnur prófessor En rit þetta var nokkur vísir til þess að Grímur Thomsen mundi ætla að leita metorða í Danmörku en hygðist ekki hugsa til embættis á íslandi. Þegar foreldrum Gríms varð kunnugt um fjárhag hans hafði íslenskur öðlingsmaður, Finnur Magnússon, prófessor og skjalavörður, hlaupið undir bagga með honum og afstýrt því að Grím- ur yrði saksóttur vegna skulda, en slík saksókn hefði gert bráðan endi á háskólaferil hans. Grfmur hafði lent í höndunum á dönskum okr- ara, Hansen nokkrum urtakram- era, sem hótaði honum öllu illu og lögsókn, nema hann greiddi skuld- ina upp að fullu með áföllnum vöxtum. Finnur Magnússon gekk þá í ábyrgð fyrir hann og sendi Þor- grími gullsmið bréf, þar sem hann sagði allt af létta. í bréfi þessu hrós- aði hann Grími Thomsen fyrir gáf- ur og andlegt atgjörvi, kvað hann afhuga orðinn lögfræðinni, en hug- ur hans snerist nú allur til bók- mennta. Hefði Grímur samið merkilega fagurfræðilega verð- launaritgerð um nýfranskan skáld- skap, sem háskólaráð hefði lokið miklu lofsorði á og talið tæka til verðlauna, þótt annar maður hefði þar orðið hlutskarpari. Þorgrímur svaraði þessu bréfi og lofaði að greiða skuldina sem Finn- ur hafði ábyrgst og var hálfundr- andi á áliti hans á Grími, þar sem hann væri sjálfur „hér um bil von- arlaus með drenginn“, segist hafa boðið honum að koma heim, en hann vilji það ekki. Verði hann að standa straum af sér sjálfur, því að meiri peninga fái hann ekki hjá sér, enda mundi fé það er hann hefði þegar fengið nægja hverjum ís- lenskum pilti við háskólann í sex ár. Finnur svarar honum aftur um haustið 1842 og ber enn í bætifláka fyrir Grím og segir hann vera Iangt kominn með undirbúning að meistaraprófi í bókmenntum, í prentun sé ritgerð hans um ný- franskan skáldskap, en auk þess vinni hann að stærra riti um ensk- ar bókmenntir. „Nú stendur hann þá eins og á eyðimörk, yfirgefinn af öllum, en var annars sannarlega staðráðinn í framhaldi hans áður- nefnda loflega, til hans heiðurs og lukku miðandi, fyrirtækis." Kveðst Finnur munu gera allt sem í sínu valdi standi til að útvega honum peninga, gegn því að Þorgrímur sendi honum einhverja greiðslu með vorinu. Hann lýkur bréfmu með þessum orðum: „Vissulega mun uppihald sonar yðar hér hafa kostað ærna peninga, en rentur þeirra hefur hann unnið og geymt í margföldum vísindaarði, er ég vona að bráðlega muni efla gæfu hans." Magistersritgerð um Byron Sjaldan hafa drengilegri orð verið mælt til að bjarga ungum íslensk- um snillingi frá því að fara í hund- ana. Þorgrímur er Finni Magnús- syni þakklátur fyrir að hafa hjálpað hinum bruðlunarsama syni sínum, þótt hann játi í bréfi til Gríms mágs síns að ennþá hafi Finnur ekki get- að kennt drengnum sparsemi. Þeg- ar Grímur Thomsen kom heim til Bessastaða snögga ferð haustið 1843 var honum því vel fagnað af föður og móður og dvaldi hann þar í góðu yfirlæti fram á útmánuði 1844. Þá fór hann enn til Kaup- mannahafnar til að leggja fram rit- gerð sína um skáldskap Byrons, sem hann varði í aprfimánuði 1845. Magistersritgerð þessi færði hon- um níu árum síðar doktorsnafnbót, og virðist þá sem hann hafi verið farinn að greiða renturnar af því fé sem faðir hans hafði lagt honum til í átta ár. En 3. mars 1846 segir Þor- grímur í bréfi til sonar síns að hann hafi fram til þessa kostað honum til frama í Höfn ríflega 4100 ríkisdöl- um. Raunar átti gamli maðurinn eftir að blæða fyrir son sinn rífleg- um skildingi enn um sinn. Á konunglegum styrk En þó horfði nú allt miklu björgu- legar fyrir Grími Thomsen, þegar hér var komið sögu. Hann hafði Iokið prófi í fagurfræði og bók- menntum með miklu lofi, var orð- inn kunnur um allt Danaveldi fyrir rit sín og nú hlaut hann launin: Konungur veitti honum 1200 ríkis- dala styrk til þess að ferðast um Evrópu árið 1846 og í hartnær tvö ár hin næstu dvelur Grímur í París, Brussel og Lundúnum. Þetta var stærri styrkur en almennt var veitt- ur mönnum, en auraleysið elti hinn unga fagurkera og heimspeking þó sem fyrr. Bréf hans til landa hans í Höfn eru barmafull af kveinstöfum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.