Tíminn - 16.02.1991, Side 4
i » I > I
12
T
HELGIN
Laugardagur 16. febrúar 1991
FRIMERKI
Frímerkja-
útgáfur 1991
Nýju frímerkin.
ÍSLAN
10000
Tekin hefur verið ákvörðun
um eftirtaldar frímerkjaútgáf-
ur:
1. Frímerki með íslenskum
fuglum sem sýna myndir af
flórgoða og súlu.
Útgáfudagur: 7. febrúar
1991.
2. Tvö frímerki með lands-
Iagsmyndum, annað af Vestra-
horni og hitt frá Kverkfjöll-
um.
Útgáfudagur: 7. mars 1991.
3. Evrópufrímerki í tveimur
verðgildum. Sameiginlegt
þema þeirra er að þessu sinni
„Evrópa geimsins“.
Útgáfudagur: 29. apríl 1991.
4. Smáörk (blokk) vegna frí-
merkjasýningarinnar Nordia
91.
Myndefni arkarinnar er hluti
af landakortinu Carta marina
eftir Olaus Magnus.
Útgáfudagur: 23. maí 1991.
5. Norðurlandafrímerki í
tveimur verðgildum og er
sameiginlegt þema þeirra að
þessu sinni „Áfangastaður
ferðamanna" (Jökulsárlón og
Strokkur).
Útgáfudagur: 23. maí 1991.
6. Tvö frímerki með mynd-
efni af keppnisíþróttum.
Útgáfudagur: 14. ágúst 1991.
7. Tvö frímerki í flokknum
„Merkir íslendingar".
Útgáfudagur: 14. ágúst 1991.
8. Á degi frímerkisins 9.
október 1991 er fyrirhuguð
útgáfa frímerkis í tilefni aldar-
afmælis Sjómannaskólans.
9. Jólafrímerki í tveimur
verðgildum, teiknuð af ís-
lenskum Iistamanni.
Útgáfudagur: 7. nóvember
1991.
Flórgoði
Flórgoði (Podiceps auritus)
er andarættar og heldur sig
við tjarnir og síki. Höfuðið er
gljásvart, fiðurmikið og úfíð.
Nefið er stutt, rýtingslaga og
stélið er örstutt. Fæturnir eru
með sundblöðkur á tánum.
Frá höfði um aftanverðan
háls, bak og vængi er fjaður-
hamur svartur en á flugi koma
fram áberandi hvítir væng-
speglar. Flórgoðinn er háls-
grannur og búkurinn kubbs-
legur. Hann fellir fjaðurskúfa
að vetri og litauðugt fiðrið
tekur á sig dökkan lit. Röddin
er lík væli nema á mökunar-
og varptíma, þá er hún marg-
vísleg. Flórgoðinn verpir 3-6
eggjum í flothreiður við sef-
grónar grynningar. Á veturna
dvelur hann á sjávarvogum.
Súla
Súla (Sula bassana) telst til
sjófugla og aflar fæðu sinnar
að öllu leyti úr sjó. Hún sýnir
mikla flugfimi, þegar hún er í
leit að æti og steypir sér þá
lóðrétt á kaf eftir fiskum,
stundum úr 30 m hæð eða
meira. Súlan hefur þróað
veiðiaðferð sína og grípur
fiskinn á uppleið, þegar hún
hefur greint hann úr lofti,
enda eru augu hennar framan
á höfði og hún getur lokað
hlustum og nösum. Loftsekk-
ir súlu eru um bringu, stórir
og sterkir. Varpstöðvar hennar
eru við sjó, utan í klettum og
þar fer fram mikil barátta fyrir
rými. Fuglinn notar drit til að
líma hreiðurefnin saman.
Fullorðin súla er hvítur, stór
fugl. Blágrár goggur er lang-
ur, sterklegur og oddhvass.
Landslagsfrímerki
Póst- og símamálastofnunin
gefur nú (7.3 ‘91) út lands-
lagsfrímerki í tveimur verð-
gildum og sýnir annað frí-
merkið fjallið Vestrahorn í
Austur-Skaftafellssýslu. Það er
454 metra hátt fjall og eitt af
fáum fjöllum á íslandi sem
eru nær eingöngu úr gabbrói,
einnig er nokkuð af granofýr í
því. Það er hömrum girt og
svipmikið fjall sem stendur á
nesi milli tveggja fjarða.
Hitt frímerkið sýnir mynd frá
Kverkfjöllum sem er fjalla-
bálkur í norðurjaðri Vatnajök-
uls. Kverkfjöll eru klofin í
tvennt af þröngu skarði sem
mjó og brött skriðjökuls-
bunga fellur fram úr. Jarðylur
er þar uppi á efsta tindi en að-
alhverasvæðið er í þröngum
dal, Hveradal. Þar er einn
mesti gufuhver landsins,
Glámur. Litaskraut er þar með
fádæmum. Skammt fyrir
austan Hveradal er mikið jök-
ullón. I það falla stöðugt stór-
ir jakar er brotna úr jöklinum,
en bráðna mjög fljótlega
vegna jarðhitans sem er þarna
verulegur.
Sigurður H. Þorsteinsson
Framsóknar
Framsóknarvist verður spiluð
sunnudaginn 17. febrúar í
Danshöllinni (Þórscafé). kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun
kvenna og karla.
Finnur Ingólfsson
formaður
fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna
í Reykjavík flytur
stutt ávarp í kaffihléi.
m
Finnur Ingólfsson
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Auglýsið erlendis
Notað & Nýtt / Tíminn býður
íslenskum fyrirtækjum að auglýsa
í erlendum auglýsingablöðum.
Við erum í samstarfi við auglýsingablöð í 20 löndum og sendum
auglýsingar með gagnaneti beint til viðkomandi blaða.
Systurblað okkar í Berlín, Zweite Hand, ætlar í mars að dreifa blaðinu
í 500.000 eintökum, en á sama tíma er haldin þar í borg heimsins
stærsta ferðamálaráðstefna.
Þér gefst kostur á að auglýsa í þessu blaði ef auglýsingin þín er
tilbúin til sendingar þann 20. febrúar (næsta miðvikudag).
Dæmi um verð:
2ja dálka auglýsing, 7 cm á hæð kr. 30.000 án Vsk.
(Auglýsingin mun koma fyrir augu milljóna.)
Þú getur líka auglýst hvenær sem er í einhverju þeirra 72 blaða sem
við tengjumst í gegnum alþjóðasamtök auglýsingablaða.
Nánari upplýsingar í síma 625-444 eða 686-300.