Tíminn - 28.03.1991, Side 1

Tíminn - 28.03.1991, Side 1
Saltari til „glorie“ sælum Þorláki Skyggnst í jarteinabók heilags Þorláks á páskum / rið 1984 var fremsti og mesti helgimaður kaþólsks siðar á íslandi opinberlega tek- inn í dýrlinga tölu, („kanoniseraður“ eins og það nefnist) af páfanum í Rómaborg. Þessi maður var Þorlákur biskup Þór- hallsson. En þótt pápiskan hafí ekki haft hann á skrá yfir dýrlinga sína nema sjö ár, þá eru átta aldir frá því íslendingar tóku að heita á hann sem helsta dýrling sinn, en helgi Þorláks mun hafa uppbyijað árið 1198 eða fímm árum eftir dauða hans. Þótt menn hér á landi hétu löngum einnig á þá Jón biskup Ögmundsson og Guðmund Arason hinn góða, þá varð átrúnaður á þá aldrei svo mikill sem á Þorlák. En til þess að menn gætu hafíst í tölu dýrðlinga heimtaði kirkjan að órækir vitnisburðir væru dregnir saman um við- komandi öðlingsmann og helgi hans og þurfti nokkuð til svo að gildir teldust. Stóð ekki á að nógir yrðu til að vitna um kraftaverkamátt Þorláks. Slíkum vitnisburðum lét Páll biskup Jónsson safna saman á bók, svonefnda „jarteinabók“ og eru sambærilegar heimildir vitaskuld einnig til um þá Jón helga og Guðmund góða. Þessar sögur hafa það sér til ágætis að margar eru þær einstakar lýsingar á daglegu lífí og háttum íslensks almúgafólks og eru þannig í sjálfu sér tímalausar. Nokkrar þeirra verða raktar hér á eftir og mun lesandinn geta sannfærst um það sjálfur að þær gætu sum- ar rétt eins hafa átt sér stað fyrir átta árum og átta hundruð árum. Svo breytast hjörtu mannanna lítið, áhyggjur þeirra, vonbrigði og vonir. Þorlákur rýfur stíflu Grímur hét einn mikils háttar bóndi og vel fjáreigandi. Hann bjó í Holti undir Eyjafjöllum. Þar varð sá at- burður að vatn það er Holtavatn heitir stemmdi upp sem stundum er vant, en þar stóðu hey mikil að vatnsströndinni og horfði það til mikils skaða mörgum manni ef eigi næði heyjunum. Síðan reið fyrr- nefndur bóndi að sjá hversu torsótt vera mundi að grafa út ósinn. En er hann kom þar þá var eiðið fertugt föðmum að mæía. Lá þá á hið mesta hafviðri og var þess von að á hverri stundu mundi við auka. Reið hann heim og sagði konu sinni og öðrum mönnum hversu torsótt mundi út ósinn að grafa. Hétu þau hjón þá á hinn sæla Þorlák biskup að hann skyldi árna þeim við guð meiri mis- kunnar og vægðar um sinn skaða en þá þótti til horfa. Annan dag eftir fór hann með húskarla sína og einn ná- granni hans með honum og hús- karlar hans. Þeir höfðu allir graftól með sér og ætluðu að moka þann dag allan sem þeir mættu. En er þeir komu til óssins þá var hann út brot- inn og féll út vatnið og stóðu heyin í friði og á þurru landi. En sá atburð- ur var svo í móti vanda þeim sem þar er á að þeim þótti trautt að á ein- um degi mundi verða út mokaður ósinn, þótt fjöldi manna væri að. Urðu þeir fegnir þessari jarteikn og þökkuðu guði almáttugum og sæl- um dýrlingi hans Þorláki biskupi og sagði Grímur „ipse“ (sjálfur) þessa jarteikn Páli biskupi og virðu allir mikils þessa jarteikn þeir er frá heyrðu sagt. Kind fær sýn Sá atburður varð í þeirri sveit er í Flóa heitir að maður galt öðrum manni á loðna og lambaða og eigi ósýnilega. En er heim kom ærin, þá fundust þeim orð um, er með ána höfðu farið, hve illa hún hafði geng- ið og þótti hún á hvert forað vilja ganga er fyrir henni varð. En er að var hugað þá var ærin blind með öllu og augun svo í að sjá sem blóð- segi væri. Þá líkaði þeim eigi vel er Upphaf Þorlákstíða. Skinnhandrit með latneskum tíðasöngvum með nótum er var í eigu Skál- holtskirkju. ærin var goldin og þótti vél að sér dregin af því að það var fésnauður maður, en drengur góður og karl- maður í skapi og átti fjárhlut að gjalda til staðarins í Skálholti og var mjög vanfær til að gjalda. Kom hon- um síðan það í hug að hinn sæli Þorlákur biskup hafði gjört slíkar jarteiknir eða meiri en þá, þótt hann gæfi sýn ánni. Ætlaði hann það fýrir sér að fyrirgefa þeim með fullu er galt ána, ef hún yrði heil, en láta hann ella aldregi hlutlausan, fyrr en hann hefði sitt. En annan dag eftir var ærin alheil og skyggn. Kýr hjamar við Sá atburður varð enn á einum bæ að kýr lá í læk þeim er önnur kýr hafði litlu áður legið í og dáið. En sú fannst lifandi og var upp dregin og þótti nær ekki að vera og þöktu menn fötum. Síðan fóru menn heim og átu dagverð og hétu síðan á hinn sæla Þorlák biskup að kýrin skyldi við hjarna. Eftir það tóku þeir hest og lögðu vögur á og ætluðu að aka heim kúnni. En er þeir viku á leið, þá gekk kýrin á móti þeim heil og beljandi og hafði þá klæði þau á baki

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.