Tíminn - 28.03.1991, Page 2

Tíminn - 28.03.1991, Page 2
2 HELGIN Fimmtudagur 28. mars 1991 ÞITT VAL - ÞÍN FRAMTÍÐ Halldór Ásgrímsson Jón Kristjánsson Jónas Hallgrímsson Karen Erla Erlingsdóttir Frambjóðendur Framsóknarflokksins á Austurlandi efna til funda undir yfirskriftinni - Þitt val - Þín framtíð - á eftirtöldum stöðum: Öræfi 2. apríl kl. 16.00 í Hofgarði Höfn 2. apríl kl. 20.30 á Hótel Höfn Djúpivogur 3. apríl kl. 20.30 í Kaffistofu Búlandstinds Breiðdalsvík 4. apríl í Hótel Bláfelli Fundarstaður og -tími á eftirtöldum stöðum verður auglýstur síðar: Breiðdalsvík, Stöðvarfjörður, Reyðarfjörður, Eskifjörður, Norðfjörður, Seyðisfjörður, Egils- staðir, Vopnafjörður, Bakkafjörður. Fundirnir verða auglýstir nánar með dreifibréfi og veggspjöldum á hverjum stað. Ræðið við frambjóðendur Framsóknarflokksins um framtíðina, atvinnumálin og stjórnmálin x-B Öflug þjóð í eigin landi x-B AUGLÝSINGASÍMAR TÍMANS: 680001 & 686300 Þingeyingar, Eyfirðingar og Ak- ureyringar búsettir í Reykjavík Finnur Ásta Ragnheióur Boili Guðmundur Valgeróur Ingvar Frambjóðendur Framsókn- arflokksins í Reykjavík, Finnur, Ásta Ragnheiður og Bolli, og þingmenn flokksins í Norðurlandi eystra, þau Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráð- herra og Valgerður Sverr- Jónas isdóttir alþingismaður bjóða þér að koma í kaffi og spjall miðvikudaginn 3. apríl nk. kl. 20.30 að Borgartúni 22. Auk ofantalinna munu þeir Ingvar Gíslason, fyrrv. mennta- málaráðherra, og Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri mæta. „GL0RIE“ N Bagall Páls biskups Jónssonar (1155-1211), en hann safnaði jarteina- sögum Þorláks biskups. Bagallinn fannst í kistu Páls í Skálholti árið 1954. Ekki er óhugsandi að hinn sæli Þorlákur hafi boríð gríp þennan. sér er hún hafði þakin verið með. Fór hún síðan til nauta, en þeir gerðu þakkir guði, er kúna áttu og hinum sæla Þorláki biskupi. Unninn selur Kona ein fór of morgun snemma að kanna fjöru því að búandi hennar var eigi heima. Sér hún síðan örkn mikið liggja á steini skammt frá sér og svaf, en hún hafði ekki í hendi sér. Fékk hún síðan lurk nokkurn er lá í fjörunni og stillti að selnum og laust í höfuð honum. En selurinn reis upp og var hann hærri miklu en hún. Þá óaðist hún og hét á hinn sæla Þorlák biskup að hún skyldi sigrað fá selinn. Þá féll selurinn að henni. Þá laust hún hann annað högg í svima. Þá komu menn út á bænum í því bili og kallaði hún á þá síðan að þeir skyldu veita henni full- tingi og komu þeir til og varð þá sóttur selurinn. Varð hún fegin hús- freyjan því að þau voru fátæk en höfðu ómegð mikla. Var sumar fanglítið en þá dróst fram sumar- fang mjög við veiði þessa. En húð selsins var níu fóta löng og var sú jarteikn mjög í gegn öðli að óstyrk kona skyldi geig gera mega svo miklum sei. En þessir menn höfðu lengi verið undir umsjá hins sæla Þorláks biskups og bjuggu á hans löndum og var þeirra ráð ávallt síð- an birgilegra er þau komu undir hans áraburð, en áður hafði verið. Þökkuðu þau guði þessa jarteikn og hinum sæla Þorláki biskupi. Sveinn féll í sýruker Þess atburðar mun eg nú næst geta er miður mundi vægt verða frásögn ef í öðrum löndum hefði orðið en eg mun nú fyrir sakir dæma þeirra er margir menn vilja kalla á slíkum hlutum verða. Sveinn ungur féll í sýruker en kona ein var frammi stödd og heyrði að nokkuð féll í ker- ið og ætlaði hún að vera mundi hundur eða köttur og fór hún til hurðar og kallaði á menn þá er í stofunni voru og sagði að eitthvað hefði fallið í kerið. En þá saknaði móðirin sveinsins og varð óttafull. En sá er fyrst kom til kersins leitað- ist fyrir og kenndi brátt skyrtunnar er vindur hafði hlaupið á milli og sveinsins, en hann var allur í kafi. Tók hann þá síðan upp sveininn. Kom þá og faðirinn sveinsins og kunni illa vanhyggju sinni, en lífláti sveinsins, er honum þótti þá víst vera, er hann unni sem sjálfum sér. Báru þeir síðan sveininn þangað er ljóst var og lögðu undir þófa. Síðan hét hann enn á hinn sæla Þorlák biskup að hann skyldi þeim nokkura miskunn hyggja framar en hann kynni til mæla. Eftir það hrærðu þeir sveininn smám saman. En er þeir höfðu það mjög lengi gert, þá tók sveinninn að hræra fingurnar nokkuð. Síðan hóf hann upp augu sín, eftir það gaus upp grátur. En hann spjó síðan of nóttina og batn- aði stund frá stund, uns hann var heill og þóttust þau son sinn hafa úr helju heimtan er áttu. En ek kann eigi meira taka af en svá sem nú er sagt. Nistið týnda Sá atburður varð enn er mjög er á mót því er menn mega af líkindum ráða. Menn fóru að vinna heyverk í eyju þeirri er á skipi varð til að fara. En er þau komu þangað þá fór kona sú úr fötum þeim er hún vildi eigi við verk hafa og spretti frá sér félitlu nisti er önnur kona hafði léð henni. Síðan unnu þau allan dag. En er þau skyldu heim fara síðla of aftaninn þá fann konan eigi nistið, er hún hafði frá sér sprett um morguninn. Öng- vir menn höfðu farið í eyna né þaðan síðan er þau fóru. Þá leituðu þau nistisins og fundu eigi. Henni þótti illa, konunni, er hún skyldi hafa týnt því er önnur kona átti. Hét hún síð- an á hinn sæla Þorlák biskup að fmnast skyldi nistið. Síðan fóru þau heim á leið. En áður þau kæmi að landi þá sáu þau liggja á steini þeim er næstur var vörum knýtiskauta, er þau komu að landi. Þá tóku þau knýtiskautann og leystu og var þar í nistið, það er týnst hafði, og mátti það enginn maður vita hverju far- aldi þangað mundi farið hafa. Maður tók sótt Maður tók sótt mikla og blés hann allan og gerði svo digran sem naut og hafði fárverki. En húsfreyja hans var næfurkona og kunni vel fyrir sér. Yfirkjörstjórn Suðurlandskjördæmis tilkynnir: Framboðsfrestur vegna alþingiskosninga 20. apríl 1991 rennur út kl. 12.00 á hádegi 5. apríl nk. Listum til framboðs í Suðurlandskjördæmi skal skilað til yfirkjörstjórnar er tekur á móti framboðum á fundi sínum að Hótel Selfossi föstudaginn 5. apríl nk. frá kl. 10.00 til kl. 12.00 árdegis. Samkvæmt 27. og 33. gr. kosningarlaga skulu eftir- talin gögn fylgja framtíbðslistunum: 1. Skriflegt samþykki allra þeirra er sæti eiga á listan- um. 2. Skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann og fyr- ir hvaða stjórnmálasamtök listinn er boðinn fram frá eigi færri en 120 og eigi fleiri en 180 kjósend- um í kjördæminu. 3. Skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans.' . Framboðslistarnir verða síðan úrskurðaðir á fundi yfirkjörstjórnar sem haldinn verður á sama stað iaug- ardaginn 6. apríl nk. kl. 11.00 árdegis. Yfirkjörstjórn Suðurlandskjördæmis Kristján Torfason Stefán A. Þórðarson, Pálmi Eyjólfsson Már Ingólfsson, Magnús Aðalbjarnarson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.