Tíminn - 28.03.1991, Qupperneq 11
Fimmtudagur 28. mars 1991
HELGIN
15
Nick Nolte vinnur enn einn sigurinn í nýjustu mynd Sydneys Lumet,
Lögreglurannsókninni.
Hvað er rétt, hvað er rangt?
Q&A***
Aöalhiutverk: Nick Nolte (48 Hours,
Three Fugitives), Timothy Hutton,
Armand Assante, Lee Richardson, Paul
Caldreon.
Handrit: Edwin Torres.
Framleiöandi: Arnon Milchan,
Burt Harris.
Leikstjóri: Sidney Lumet.
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd í Bíóborginni.
Timothy Hutton og Nick Nolte eru í
aðalhlutverkum í nýjustu mynd
Sydneys Lumet sem segir frá ung-
um lögmanni sem fenginn er til að
rannsaka mál sem lítur vel út á yfir-
borðinu en er rotið innst inni.
Nick Nolte er hreint stórkostlegur í
hlutverki undurförula lögreglu-
mannsins og er ég á því að þetta sé
hans besta hlutverk til þessa. Þegar
myndin var rétt byrjuð fannst mér
ég hafa séð þetta flest áður, lög-
reglumaður undir eftirliti og ungur
og efnilegur lögmaður að sanna sig
og þótti mér hún ótrúlega lík ný-
legri mynd, Internal Affairs með Ri-
chard Gere í aðalhlutverki.
En annað kom upp á teninginn.
Þarna er á ferðinni hugsandi mynd
sem er geysilega vel uppbyggð, með
margslungnum persónuleikum og
mjög sterkum söguþræði. Persóna
Nolte er einn sá ógeðfelldasti skúrk-
ur sem ég hef séð í lögreglumynd
fyrr og síðar og ýmis smáatriði, eins
og samtöl sem maður er lengi að
átta sig á, gefa myndinni eðlilegri
blæ heldur en maður á að venjast í
bandarískum kvikmyndum.
Myndin skilar mörgum spurning-
um ósvarað og tel ég það mikinn
kost og skapar sér þannig stöðu
langt frá hinni venjubundnu afþrey-
ingu sem oftar en ekki má líta í bíó-
húsum borgarinnar. Þeir sem eru á
höttunum eftir slagsmálum og lát-
um verða sennilega fyrir vonbrigð-
um með myndina en þeir sem safn-
ast í bíósalina með það fyrir augum
að sjá eitthvað sem verður þeim
minnisstætt ættu að fá þó nokkuð
fyrir sinn skerf.
Þarna vinnur Lumet eftir bók Ed-
win Torres og verður ekki annað
sagt en honum takist vei til að vinna
úr handriti sem er jafnflókið og
þetta. ÁHK.
Myndatexti: Leikaramir Mark Lamos og Bruce Davidson á góöri stundu.
Samfélag samkynhneigðra
Longtime Companion++l/2
Aöalhlutverk: Stephen Caffrey, Patrick
Cassidy (Nickel Mountain, Something
in Common), Brian Cousins, Bruce
Davison (Spies Like Us).
Handrit: Craig Lucas.
Leiksjóri: Norman René.
Sýnd í Regnboganum.
Longtime Companion er falleg
mynd sem segir frá samskiptum
homma og hvernig sjúkdómurinn
eyðni kemur upp hjá þeim og vanda-
málum því fyigjandi. Lítið er hægt
að skrifa um söguþráðinn vegna
þess hversu sérstakur hann er.
Hér er sagt frá vinum sem allir eiga
það sameiginlegt að vera í góðum
stöðum og Iífið ieikur við, þar til
einn góðan veðurdag að áður óþekkt
afbrigði af krabbameini kemur upp
meðal homma. Þetta er raunsæ
mynd sem segir frá þeirri hræðslu
sem greip um sig um allan heim og
fordómana sem spruttu upp í kjöl-
farið, jafnt meðal homma og al-
mennings vítt og breitt.
Norman René hafði löngu áður
ákveðið að gera mynd um eyðni-
sýkta einstaklinga en fékk frekar
dræm viðbrögð hjá framleiðendum
vegna þess hversu viðkvæmt mái-
efni var á ferð. Hann eyddi löngum
tíma í að kynna sér hjálparstöðvar
eyðnisjúklinga og í því skyni tók
hann að sér sjálfboðastarf á einni
slíkri og annaðist sjúklinga í tals-
verðan tíma.
Margir efnilegir leikarar fara með
hlutverk í myndinni og er það besti
kostur hennar að öðrum ólöstuð-
um. Flestir eru þetta leikarar sem
hafa alið ævi sína á Broadway fyrir
utan Bruce Davidson sem áður hef-
ur leikið í kvikmyndum og að þessu
sinni er hann tilnefndur til Óskars-
verðlauna fyrir bestan leik í auka-
hlutverki.
Það sem fór mest í taugarnar á mér
er ég horfði á myndina var oft á tíð-
um óþarfa væmni sem mér fannst
tilgerðarleg og ekki nauðsynleg og
hefði mátt forðast með aðeins vand-
aðri vinnubrögðum. En þrátt fyrir
þetta er myndin heilsteypt kvik-
myndaverk sem á erindi við alla og
beinir augum fólks að vandamáli
sem skiptir okkur öll máli. ÁHK.
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000
MÓTORHJÓLIN
eru að koma
á kynningarverði
FZR 1000 145 ha.............Verð kr. 1130.000.-
FZR 600 92 ha...............Verð kr. 742.000.-
TDM 850 77 ha...............Verð kr. 800.000.-
JF 1200 125 ha..............Verð kr. 945.000.-
XJ 900 98 ha................Verð kr. 690.000.-
XJ 600 72 ha................Verð kr. 590.000.-
XV 1100 62 ha...............Verð kr. 620.000.-
XV 535 46 ha................Verð kr. 520.000.-
XT 600K 45 ha...............Verð kr. 499.000.-
TV 200 ......................Verð kr. 374.000.-
YZ 250 55 ha................Verð kr. 680.000.-
YZ 80 25 ha.................Verð kr. 299.000.-
DT50R3.1 ha.................Verð kr. 276.000.-
Mikið úrval af aukahlutum.
Góð varahlutaþjónusta.
Vinsamlegast staðfestið pantanir.
YAMAHA vann gullna stýrið 1991.
Hafið samband við sölumenn okkar,
sem gefa allar nánari upplýsingar.
Wlésoiífúj