Tíminn - 28.03.1991, Side 13
Fimmtudagur 28. mars 1991
HELGIN T 17
Satt er það að Tico Feo var Iat-
ur. Eftir fyrsta kvöldið varð
meira að segja að ganga á eftir
honum að leika á gítarinn. í da-
grenningu, þegar vörðurinn
kom að vekja mennina, en það
gerði hann með því að berja með
hamri í ofninn, kveinkaði Tico
Feo sér eins og barn. Stundum
þóttist hann vera veikur, stundi
og neri á sér kviðinn. En þetta
hélst honum aldrei uppi, því for-
stöðumaðurinn sendi hann út til
vinnu með hinum. Þeir herra
Schaeffer voru látnir vera saman
í vegavinnuflokki. Það var erfið
vinna að grafa í frosnum leirn-
um og bera strigapoka fulla af
grjótmulningi. Vörðurinn þurfti
sífellt að vera að kalla til Tico
Feo, því hann eyddi mestum
hluta tímans í að reyna að halla
sér upp að einhverju.
Alltaf í hádeginu, þegar matar-
fötunum var deilt út, sátu þeir
vinirnir saman. Sitthvað gott var
að finna í fötu herra Schaeffers,
því hann hafði efni á eplum og
sælgæti úr borginni. Hann hafði
gaman af að gefa vini sínum
þetta, því vinur hans naut þess
svo mjög, og hann hugsaði með
sér: „Þú ert að vaxa. Það er langt
þar til þú verður fullorðinn mað-
ur.“
Ekki féll öllum mönnunum við
Tico Feo. Vegna þess að þeir
voru afbrýðisamir út í hann eða
af enn djúprættari sökum, sögðu
sumir þeirra ljótar sögur um
hann. Tico Feo virtist ekkert af
þessu vita. Þegar mennirnir
söfnuðust utan um hann og
hann lék á gítarinn og söng lög-
in sín, mátti sjá að honum
fannst hann vera í miklu uppá-
haldi. Flestir mannanna höfðu
mætur á honum: þeir biðu eftir
og þótti þeir vera háðir tímanum
milli kvöldverðarins og myrkv-
unarinnar. „Tico, spilaðu á kass-
ann,“ sögðu þeir. Þeir veittu því
ekki athygli að á eftir fundu þeir
til dýpri hryggðar en nokkru
sinni. Svefninn stökk frá þeim
eins og héri og augu þeirra
dvöldu ígrundandi við skinið frá
eldinum sem snarkaði að baki
ofngrindarinnar. Herra Schaef-
fer var sá eini sem skildi óróleg-
ar kenndir þeirra, því hann fann
til þeirra líka. Raunin var sú að
vinur hans hafði vakið til lífsins
brúnar ár þar sem fiskar synda
og sólskin í konuhári.
Brátt veittist Tico Feo sá heiður
að fá rúm nærri ofninum og
næst herra Schaeffer. Herra
Schaeffer hafði alltaf vitað að
vinur hans var skelfilegur lyga-
laupur. Hann hlustaði ekki eftir
sannleikanum í frásögnum Tico
Feo af ævintýrum, sigrum og
kynnum af frægu fólki. Hann
hafði meir gaman af þeim sem
vanalegum sögum, eins og þeim
sem menn lesa í tímaritum, og
honum hlýnaði um hjartarætur
að heyra suðræna rödd vinar
síns hvísla í myrkrinu.
Að því frátöldu að þeir samein-
uðust ekki líkamlega né hugs-
uðu til þess, þótt þannig nokkuð
væri ekki óþekkt á býlinu, þá
voru þeir eins og elskendur. Vor-
ið er sú af árstíðunum sem mest
tekst að rjúfa: stilkir þrýsta sér
gegn um jarðskorpuna, stökka
undan vetri, ungir Iaufsprotar
brjótast fram á gömlum og
dauðvona greinum, sofnandi
vindar berast stefnulaust um alla
hina nýbornu grænku. Hið sama
átti sér stað í herra Schaeffer,
það var leysing, mýkt færðist í
vöðva sem orðnir voru stirðnað-
ir.
Það var seint í janúar. Vinirnir
sátu á þrepum svefnskálans,
hvor um sig hélt á sígarettu.
Mjótt og gult tungl, eins og skári
af sítrónusneið, bugðaðist yfir
þeim og í Ijósinu frá því höfðu
hrímrákir á jörðinni tekið að
merla, eins og silfruð slóð eftir
snigla. í marga daga hafi Tico
Feo verið horfinn inn í sjálfan
sig — þögull eins og ræningi
sem bíður átekta í skugganum.
Það dugði ekkert að segja við
hann: „Tico Feo, spilaðu á kass-
ann.“ Hann leit aðeins á menn
þýðu og þokukenndu augnaráði.
„Segðu sögu,“ sagði herra
Schaeffer, sem varð taugaóstyrk-
ur og hjálparvana, þegar hann
fékk ekki náð sambandi við vin
sinn. „Segðu frá því þegar þú
fórst á veðreiðarnar í Miami."
„Ég hef aldrei farið á neinar
veðreiðar," sagði Tico Feo og ját-
aði þar með á sig eina ærilegustu
lygi sína, en þar komu mörg
hundruð dollarar og kynni af
Bing Crosby við söguna. Honum
virtist standa á sama. Hann tók
upp greiðu og renndi henni
gegn um hárið, stúrinn á svip.
Nokkrum dögum áður hafði
þessi greiða orðið tilefni til
hörkurifrildis. Einn af mönnun-
um, hann Blikki, fullyrti að Tico
Feo hefði stolið greiðunni frá
sér, en því svaraði sá ákærði með
því að hrækja í andlitið á hon-
um. Þeir höfðu byrjað handalög-
mál, sem lauk með því að herra
Schaeffer og annar maður gengu
til og skildu þá. „Þetta er mín
greiða. Segðu honum það!“
hafði Tico Feo heimtað af herra
Schaeffer. En herra Schaeffer
hafði sagt „nei“ með kyrrlátri
festu, þetta væri ekki greiða vin-
ar hans — svar er virtist slá
vopnin úr höndum allra hlutað-
eigandi. „Nú,“ sagði Blikki,
„fyrst hann langar svona í hana.
I guðanna bænum lofum þá
þessum tíkarsyni að eiga hana.“
Og síðar hafði Tico Feo sagt ráð-
villtum og hikandi rómi: „Ég
hélt að þú værir vinur minn.“
„Ég er það,“ hafði herra Schaef-
fer hugsað með sér, en hann
sagði ekkert.
„Ég fór ekki á neinar veðreiðar
og þetta sem ég sagði um ekkj-
una — það er ekki satt heldur.“
Hann tottaði sígarettuna, þar til
það snarkaði í glóðinni og horfði
rannsakandi á svip á herra
Schaeffer. „Segðu mér, áttu pen-
inga?“
„Kannske tuttugu dollara,"
sagði herra Schaeffer hikandi og
óttaðist í hvað þetta mundi
stefna.
„Tuttugu dollarar, ekki nógu
gott,“ sagði Tico en var þó ekki
vonsvikinn að sjá. „En það gerir
ekkert, við björgum því. Ég á vin
í Mobile, sem heitir Frederico.
Hann mun koma okkur um borð
í skip. Engin vandræði," og það
var eins og hann væri að segja að
það hefði kólnað í veðri.
Herra Schaeffer nísti í hjartað.
Hann kom ekki upp orði.
„Enginn hérna getur hlaupið
og náð Tico. Hann hleypur hrað-
ast.“
„Byssukúlur hlaupa hraðar,“
sagði herra Schaeffer í rómi sem
varla fannst lífsvottur í. „Ég er of
gamall,“ sagði hann og vitundin
um aldurinn ólgaði hið innra
með honum eins og klígja.
Tico Feo hlustaði ekki. „Svo er
það bara heimurinn, el mundo,
vinur kær.“ Hann stóð upp og
tiraði eins og ungur hestur. Það
var eins og allt hefði færst þétt
upp að honum - - tunglið, uglu-
vælið. Andardrátturinn varð
hraður og varð að gufu í loftinu.
,/Ettum við að fara til Madrid?
Kannske mun einhver kenna
mér að verða nautabani? Held-
urðu það?“
Herra Schaeffer hlustaði ekki
heldur. „Ég er of gamall," sagði
hann „allt of fjári garnall."
Næstu vikur lét Tico Feo hann
ekki í friði — heimurinn, el
mundo, vínur kær, og hann
langaði til að hlaupa í felur.
Hann lokaði sig inni á salerninu
og lagði sig fram um að vera
raunsær. Eigi að síður æsti þetta
hann, kvaldi hann. Hvað ef þetta
mundi nú heppnast, flóttinn
með Tico Feo í gegnum skógana
og niður til sjávar? Og hann sá
sjálfan sig fyrir sér um borð í
skipi — hann, sem aldrei hafði
séð sjóinn og allt sitt líf hafði
verið rótfastur á þurrlendinu.
Um þetta leyti dó einn af saka-
mönnunum og menn gátu heyrt
þegar verið var að smíða kistuna
úti í garðinum. Herra Schaeffer
hugsaði er hann heyrði hvern
naglanna um sig rekinn í far sitt:
„Þessi er handa mér, hann er
minn.“
Sjálfur hafði Tico Feo aldrei
verið í betra skapi. Hann sprang-
aði um með flagaratíguleik at-
vinnudansara og hafði spaugs-
yrði á reiðum höndum handa
hverjum sem á vegi hans varð. í
svefnskálanum að loknum
kvöldverði skutust fingurnir á
honum yfir gítarstrengina eins
og púðurkerlingar. Hann kenndi
mönnunum að hrópa olé, og
sumir þeirra hentu húfunni
sinni upp í loftið.
Þegar vegavinnunni lauk voru
þeir herra Schaeffer og Tico Feo
fluttir út í skógana á ný. Um
ÞAÐ ER ENGIN TILVILJUN AÐ...
PZ vélarnar eru mest seldu heyvinnutæki á íslandi.
Á því eru nokkrar einfaldar skýringar:
Pær eru viðurkennd gæðavara á góðu verði.
Endingin er frábær.
íslenskir bændur hafa aldarfjórðungs reynslu af notkun þeirra
- og reynsian er ólygnust.
F A N E X
HEYPYRLUR
Vinnslubreidd er frá 400 - 730 sm.
Við eigum flestar gerðir þeirra
á lager.
CMH.'
A N D E X
STJÖRNUMÚGAVÉLAR
Vinnslubreidd er 330 og 380 sm.
Þessar vélar eru léttar, sterkar
og raka mjög vel.
SLÁTTUPYRLUR
Vinnslubreidd 135-212 sm.
PZ-186 og PZ-212 sláttuþyrlur
fáanlegar með knosara.
H A Y B O B
FJÖLNOTAVÉLAR
Raka og snúa.
Vinnslubreidd 300 sm.
CZ RAKSTRARVÉLAR. Vinnslubreidd 165 sm.
Sérstakt kynningarverð aðeins kr. 119 þúsund!
CM-184 SLÁTTUÞYRLUR. Vinnslubreidd 185 sm.
Sérstakt kynningarverð aðeins kr. 190 þúsund!
Hjá PZ er stöðug þróun byggð á langri reynslu
og þrotlausu rannsóknarstarfi.
Fáðu JÖTUN og PZ til liðs við þig í heyskapnum í sumar,
það munar um minna!
G5D
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMl 91-670000