Tíminn - 28.03.1991, Page 15

Tíminn - 28.03.1991, Page 15
Fimmtudagur 28. mars 1991 HELGIN 19 Demanta- gítarinn legt, því hann hlýtur að hafa vit- að að hann mundi aldrei spila á hann framar. Fuglaskrækir fylgdu mönnun- um á leið þeirra inn í þokumett- aðan morgunskóginn. Þeir gengu í einfaldri röð, fimmtán í flokki, og vörður rak lestina. Herra Schaeffer svitnaði eins og á sólheitum degi og og honum tókst ekki að halda takti við vin sinn sem skálmaði áfram, smellti saman fingrum og blístr- aði móti fuglunum. Þeir höfðu komið sér saman um merki. Tico Feo átti að kalla „Þarf að fara afsíðis!" og látast fara á bak við tré. En herra Schaeffer vissi ekki hvenær þetta mundi gerast. Vörðurinn Armstrong blés í flautu, röðin tvístraðist og menn hans dreifðust til hinna ýmsu verkstöðva. Þótt herra Schaeffer reyndi að sinna verki sínu sem best hann gat, gætti hann þess að vera ávallt þar sem hann gat haft auga með bæði Tico Feo og verðinum. Armstrong sat á trjá- bolsstubb, munntóbakstaumur liðaðist niður andlitið og byssu- hlaupið beindist mót sólu. Hann hafði hin slóttuglegu augu spila- hrappsins. Það var eiginlega ekki hægt að vita á hvað hann var að horfa. Annar maður gaf merki. Þótt herra Schaeffer hefði samstund- is heyrt að það var ekki rödd vin- ar hans, hafði skelfingin læst sig um hálsinn á honum eins og reipi. Meðan morguninn silaðist áfram glumdi við slíkur trumbu- sláttur í eyrunum á honum að hann var hræddur um að hann mundi ekki heyra er merkið yrði gefið. Sólin færðist í hádegisstað. „Hann er bara latur draumaóra- maður. Það verður aldrei neitt úr þessu,“ hugsaði herra Schaef- fer og vogaði sér að trúa þessu eitt andartak. En „fyrst skulum við borða“, sagði Tico Feo með svip hagsýnismannsins, meðan þeir voru að koma matarfötun- um fyrir á bakkanum ofan við lækinn. Þeir borðuðu þegjandi, líkt og þeir væru gramir hvor við annan, en um síðir fann herra Schaeffer að hönd vinar hans laukst þétt um hans eigin og þrýsti hana mjúklega. „Herra Armstrong, þarf að fara afsíðis..." Herra Schaeffer hafði komið auga á sykurgúmtré og hugsaði um að bráðum kæmi vor að að þá mætti tyggja gúmsætuna. Egghvass steinn risti sundur á honum lófann þegar hann renndi sér niður hálan bakkann og niður í lækinn. Hann stóð upp og byrjaði að hlaupa. Hann var lappalangur og hljóp næst- um fram úr Tico Feo og ískaldar vatnssúlur risu umhverfis þá. Hróp manna endurómuðu hér og hvar í skógunum eins og raddir sem berast upp úr kjallara og það gullu við þrjú skot, sem öll flugu svo hátt að ætla mætti að verðirnir hefðu miðað á gæsahóp. Herra Schaeffer kom ekki auga á trédrumbinn sem lá þvert yfir lækinn. Hann hélt að hann væri enn að hlaupa og fæt- urnir gengu upp og niður. Hann var eins og skjaldbaka, sem ligg- ur á bakinu. Meðan hann lá svona og braust um fannst honum að andlitið á vini hans uppi yfir honum væri partur af hvítum vetrarhimnin- um — það var svo fjarlægt, úr- skurðandi. Það sveif þarna kyrrt og aðeins andartak, eins og kól- ibrífugl, en samt nógu lengi til þess að hann sá að Tico Feo hafði aldrei viljað að honum tækist þetta, hafði aldrei búist við því, og hann minntist að einu sinni hafði hann haldið að langur tími mundi líða uns vinur hans yrði fullorðinn. Þegar þeir fundu hann lá hann enn í ökkladjúpu vatninu, eins og það væri sumar- síðdegi og hann léti sig berast í mestu makindum með straumn- um. Þrír vetur eru liðnir frá því er þetta gerðist og um sérhvern þeirra hafa menn sagt að hann hafi verið sá kaldasti, sá lengsti. Tveir rigningarmánuðir ristu hjólförin enn dýpra niður í leir- veginn til býlisins fyrir skömmu, og er nú torveldara en nokkru sinni að komast þangað og fara þaðan. Tvö leitarljós hafa verið fest á fangelsisveggina og þar glóa þau alla nóttina, eins og augu í risavaxinni uglu. Að öðru leyti hafa ekki miklar breytingar orðið. Til dæmis er útlit herra Schaeffers mjög svipað, að því frátöldu að hið gráa í hárinu hef- ur þykknað og hann stingur við vegna ökklabrots. Það var for- stöðumaðurinn sjálfur sem hélt því fram að herra Schaeffer hefði ökklabrotnað, er hann reyndi að handsama Tico Feo. Það kom meira að segja mynd af herra Schaeffer í blaðinu og undir henni svohljóðandi texti: „Reyndi að koma í veg fyrir flótta." Þetta fékk mjög á hann, ekki af því að hinir mennirnir hlógu að þessu, heldur vegna þess að hann hélt að Tico Feo mundi sjá þetta. Samt klippti hann fréttina út úr blaðinu og geymir hana í umslagi ásamt nokkrum öðrum úrklippum er varða vin hans: piparmey nokk- ur sagði lögreglunni að hann hefði komið inn á heimili henn- ar og kysst sig, tvisvar var til- kynnt um að hann hefði sést í grennd við Mobile, loks var álitið að hann hefði farið úr landi. Enginn hefur nokkru sinni ve- fengt að herra Schaeffer ætti til- kall til gítarsins. Fyrir nokkrum mánuðum kom nýr fangi í svefn- skálann. Hann var sagður góður tónlistarmaður og menn töldu herra Schaeffer á að lána honum gítarinn. En öll lögin sem mað- urinn lék á hann hljómuðu hjá- róma, því það var eins og Tico Feo hefði lagt bölvun yfír gítar- inn er hann stillti hann síðasta morguninn. Hann liggur nú undir bedda herra Schaeffers og glerdemantarnir eru farnir að gulna. Á nóttum teygir hann stundum handlegginn eftir hon- um og fingurnir þreifa um strengina. Svo er það bara heim- urinn. Atli Magnússon þýddi Ágætu Vestfirðingar Frambjóðendur Framsókn- arflokksins í Reykjavík, Finnur, Ásta Ragnheiður og Bolli, og þingmaður Finnur flokksins á Vestfjörðum, Ólafur Þórðarson, bjóða þér að koma í kaffi og spjall fimmtudaginn 4. apríl nk. kl. 20.30 að Borgartúni 22. Komið og hittið kunningja að vestan. Taktu með þér gesti. Kemur Jóhannes Kristjáns- son eða Steingrímur? Frambjóðendur Bolli Asta Ragnheiöur Ólafur LÖGGILDINGARSTOFAN óskar eftir að ráða EÐLISFRÆÐING Nú er unnið að endurskipulagningu Löggilding- arstofunnar vegna aukinna og breyttra verkefna. Leitað er að starfsmanni sem vinna skal á sviði mælifræði og gæðastjórnunar auk þess að taka þátt í endurskipulagningunni. Nauðsynlegt er að væntanlegur starfsmaður hafi gott vald á ensku og einu Norðurlandamáli. Umsóknum skal skila til Löggildingarstofunnar, Síðumúla 13 í Reykjavík eigi síðar en 8. apríl 1991. Upplýsingar um starfið veitir Sigurður Axelsson, forstjóri Löggildingarstofunnar. Atvirtnuhúsnæði óskast Lögreglan í Reykjavík óskar eftir húnæði, til kaups eða leigu, fyrir bifreiðaverkstæði og aðra starfsemi lögreglunnar. Húsnæðið þarf að vera á bilinu 600- 800 ferm. Tilboð sendist lögreglustjóranum í Reykjavík, Hverfisgötu 115, eigi síðar en föstudaginn 5. apríl 1991, merkt „Verkstæði“. Allar nánari upplýsingar veitir Valgeir Guð- mundsson í síma 33820 og 672693. fBauknecht ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI KÆLISKÁPAR FRYSTISKÁPAR 0G MARGT FLEIRA 0G 0FNAR KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT Mfma &SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VID MIKLAGARÐ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.