Tíminn - 06.06.1991, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.06.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn ffinr - _♦. • » Fimmtudagur 6. júní 1991 Framsóknarflokkurinn hefur myndað málefnahópa og skipað málsvara fyrir hvern hóp: Boða harða en málefna- lega stjórnarandstöðu Þingmenn Framsóknarflokksins hafa myndað málefnahópa og skip- að málsvara úr sínum röðum fyrir hvern hóp. Þetta er liður í þeirri öflugu og málefnalegu stjórnarandstöðu sem flokkurinn hefur boð- að. Starfsemin mun ekki einungis vera innan þingflokksins því ætl- unin er að hafa öflugt samstarf við aðila utan hans, bæði flokks- menn sem og aðila frá verkalýðsfélögunum, vinnuveitendasam- bandinu og öðrum hópum úr þjóðfélaginu. Málefnahópamir eru sex og hafa ver- ið skipaðir málsvarar fyrir hvem hóp. Steingrímur Hermannsson mun ásamt Páli Péturssyni sjá um yfír- stjóm og samræmingu, stjómmál og efriahagsmál almennt, utanríkismál, vísindi, tækni og nýsköpun. Halldór Ásgrímsson er málsvari hóps sem sér um atvinnumál, skattamál og kjara- mál en í þeim málefnahóp em einnig Guðni Ágústsson og Jóhannes Geir Sigurgeirsson. Guðmundur Bjama- son er málsvari málefmhóps um rík- isfjármál, byggðamál og samgöngu- mál en ásamt honum em í hópnum Stefán Guðmundsson og Jón Helga- son. Finnur Ingólfsson er málsvari málefnahóps um félagsmál, heil- brigðis- og tryggingamál og dóms- mál. í þeim málefnahópi em einnig Jón Kristjánsson og Ingibjörg Pálma- dóttir. Valgerður Sverrisdóttir mun ásamt Ólafi Þ. Þórðarsyni sjá um menntamál, lista- og menningarmál og umhverfismál. Páll Pétursson mun síðan ásamt Valgerði Sverris- dóttur og Jóni Kristjánssyni sjá um störf á Alþingi og í þingflokknum. Steingrímur Hermannsson, formað- ur Framsóknarflokksins, sagði á blaðamannafundi í gær að stundum hefði verið haft á orði að þeir hefðu enga reynslu af því að starfa í stjóm- arandstöðu og það mætti til sanns vegar færa. „Hins vegar teljum við okkur hafa lært mikið af stjómarand- stöðunni undanfarin ár og kynnst því hvemig á ekki að starfa í stjómarand- stöðu," sagði Steingrímur. Hann sagði að stjómarandstaða ætti vissulega að vera hörð og þeir myndu gagnrýna það sem betur mætti fara. Hins vegar þyrfti gagnrýni alltaf að fylgja hugmyndir um það hvað gera eigi í staðinn. „Við höfum ákveðið að gera tilraun til þess að vinna málefna- lega með því að skipta niður í mál- efnahópa og skipa málsvara," sagði Steingrímur. Hann sagði að hver hópur yrði ábyrgur fyrir vinnu á sínu sviði. Hann sagði að þau ætluðu að leita mikið út fyrir þingflokkinn, bæði til flokks- manna sem og annarra. Þá yrðu stofhaðir vinnuhópar innan hvers málefnahóps sem myndu fjalla um ákveðin mál. „Við munum hafa sam- band við félög í landinu, við verka- lýðsfélög, vinnuveitendur og fleiri, og óska eftir samstarfi við þá. Við höfúm rætt við menn í þessum félögum og þeir hafa tekið þessu mjög vel,“ sagði Steingrímur. „Okkur er ljóst að þetta er mjög mik- ið starf og kannski mikið í fang færst fyrir flokk utan ríkisstjómar. Ég mun funda með flokksmönnum úti um allt land í sumar og hef þegar haldið fjóra fundi til að ræða þessi mál. Þessu er alls staðar vel tekið og mjög mikill áhugi er fyrir því að taka þátt í þessu og margar hendur vinna létt verk. Það hvílir hins vegar á forystu flokks- ins að halda starfinu gangandi," sagði Steingrímur. Steingrímur sagðist gera ráð fyrir að hafa gott samstarf við hina stjómar- andstöðuflokkana. Það samstarf hafi verið prýðilegt hingað til en að sjálf- sögðu myndu þeir starfa málefnalega á eigin vegum. Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, sagði að þetta stjórnarandstöðutímabil væri gott tækifæri fyrir Framsóknarflokkinn til að koma sinni stefnu á framfæri. Þeir hafi lengi verið í samstarfi með öðr- um og orðið að taka mikið tillit til Málsvarar málefnahópa Framsóknarflokksins á blaðamannafundi í gær ásamt framkvæmdastjóra flokksins. Á myndinni eru frá vinstri Egill Heiðar Gíslason framkvæmdastjóri og þingmennirnir Hall- dór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Steingrímur Hermannsson, Páll Pétursson, Valgerður Sverris- dóttir og Guðmundur Bjarnason. annarra. „Nú höfum við tækifæri til að boða okkar stefnu nákvæmlega eins og við viljum hafa hana,“ sagði Páll. Halldór Ásgrímsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sagði að það ætti eftir að koma Sjálfstæðisflokkn- um illa ýmislegt sem þeir hefðu sagt í stjómarandstöðu. Þeir sætu nú frammi fyrir ýmsu sem þeir hefðu tal- að öðruvísi um þegar þeir voru í stjómarandstöðu. Sem dæmi greiddu þeir atkvæði gegn núverandi sjávar- útvegsstefnu í þinginu á sínum tíma. „Þeir voru andvígir hagræðinga- sjóðnum, þeir voru andvígir verðjöfn- unarsjóð fiskiðnaðarins. Ég held að það sé mikilvægt fyrir stjómmála- flokka að þeir tali með svipuðum hætti í stjórnarandstöðu og meðan þeir em í stjómaraðstöðu. Flokkar sem tala með allt öðrum hætti í stjómarandstöðu en þeir gera í stjómaraðstöðu, geta að mínu mati ekki verið trúverðugir þegar til lengri tíma litið," sagði HalldórÁsgrímsson. Páll Pétursson sagði að það væri ástæða til aö undirstrika það að hlut- Tímamynd: Pjetur verk stjómarandstöðunnar í lýðræð- isríki væri ákaflega mikilvægt. „Við munum reyna að hafa áhrif á stjóm landsins eftir því sem við mögulega getum, þótt við eigum ekki ráðherra- liði á að skipa eins og stendur. Vak- andi stjómarandstaða getur haft mik- il áhrif," sagði Páll Pétursson. —SE Námsmenn vilja funda meö menntamálaráöherra til að tryggja lánamálin: Þjóðarsátt um lánasjóð Samstarfsnefnd námsmanna- hreyfinganna; Bandalags ís- lenskra sérskólanema, Sambands íslenskra námsmanna eriendis og Stúdentaráðs Háskóla íslands, krefst þess að menntamálaráð- herra koml tíl fundar meö náms- mönnum og reyni að ná þjóðar- sátt um lánasjóðinn. Námsmenn eru fúsir að vinna að sparaaði, gegn því að ekki verði gerðar grundvailarbreytingar á Lána- sjóðnum. í bréfi nefndarinnar til Ólafs G. Einarssonar mennta- málaráöherra segir: „Samkvæmt skýrslu fjármálaráðherra sem lögð var fram á Alþingi fyrir skömmu kemur fram á síðu 26 að ríkisstjómin hafi komið sér saman um að „... breyta úthiut- unarreglum Lánasjóðs fslenskra námsmanna þannig að viðbótar- fjárþörf sjóðsins lækki um 300 milýónir króna ...“ Mcnntamála- ráðherra hafi faiið nýskipaðri stjórn sjóðsins að gera tillögur um nauðsyniegar aðgerðir tii að þessu marid verði náö. Lánasjóður íslenskra náms- manna heyrir beint undir menntamálaráðherra og eru aliar breytingar sem gerðar eru á sjóðnum á ábyrgð yðar enda eru breytingar sem samþykktar eru í stjórn Lánasjóðsins ekki annað en tiliögur sem lagður eru iyrir menntamálaráðherra til sam- þykktar eða synjunar. FuIItrúar námsmanna í stjórn Lánasjóðsins höfðu í samráði við fyrri stjórn unnið að breytingum á úthlutunarreglum sem þá var talið að miðuðu að allt að 200 milljóna króna sparnaði á náms- árinu. Með þessu bréfi bjóðumst við til þess að ganga til samninga við yður um 200 til 300 milljóna króna spamað í útlánum sjóðsins á næsta námsári miðað við óbreyttar úthlutunarregtur. Með því teljum við okkur vera að ganga að kröfum rfldsstjórnar- innar um að ná fram sparnaði í útlánum sjóðsins. Gegn þessu fórum við fram á að aliar hug- myndir um breytingar sem fram hafa komið verði dregnar til baka og fulltrúar ríkisstjómarínnar setjist niður með námsmönnum til samninga um hvemig ná megi fram þessari hagræðingu í útlán- um sjóðsins á næsta námsári. Jafnframt fórum við fram á að ekki verði samþykktar neinar út- hlutunarreglur sem ekki ríkir samstaða um mflli ríldsstjómar- fulltrúa og námsmanna. Einnig óskum við eftir því aö ekki verði gerðar grundvallarbreytingar á kerfinu á næstu árum. Við vonumst eftir því að þér, hæstvirtur menntamáiaráðherra, séuð tUbúinn til að ganga tií samninga við námsmenn um of- angreind atriði en með samning- um ættum við að geta náð fram þjóðarsátt um lánasjóðinn." Undlr bréfið rita formenn náms- mannahreyfinganna þriggja, fuU- trúar og varafulltrúar þeirra í stjórn LÍN og oddvitl Röskvu, samtaka félagshyggjufólks í Há- skólanum. •aá. Dómur í Hafskipsmálinu þyngdur í Hæstarétti. Ragnar Kjartansson: Hvar er leik- maður gagn- vart lögunum? Dómur féll í Hafskipsmálinu svo- kallaða í Hæstarétti í gær. Var dóm- ur sakadóms Reykjavíkur yfir þeim Björgólfi Guðmundssyni, Páli Braga Kristjánssyni og Ragnari Kjartanssyni þyngdur verulega í meðfórum Hæstaréttar. Þannig er Björgólfi nú gert að sæta 12 mán- aða skilorðsbundnu fangelsi, Páll Bragi fékk tveggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi og Ragnar Kjart- ansson, sem var sýknaður í saka- dómi, hlýtur nú fimm mánaða skil- orðsbundið fangelsi. Þá var sekt Helga Magnússonar hækkuð í 500 þúsund kr. „Þessi dómur kemur á óvart," sagði Ragnar Kjartansson í samtali við Tímann. „Eftir að hafa kynnt mér dóminn að mestu leyti undrast ég þá fljótaskrift sem er hjá meirihluta Hæstaréttar." Að mati Ragnars varpar dómurinn kastljósi á spurninguna um stöðu leikmanns gagnvart lögunum. „Nú er okkur leikmönnunum ætlað að þekkja lögin og fara eftir þeim í hví- vetna," segir Ragnar. Hann bendir á í því sambandi að mikill vafi um túlkun laganna hafi greinilega verið í huga þeirra þriggja sakadómara og fimm hæstaréttardómara sem dæmdu í málinu. „í skilgreiningu á fjárdráttarhlið ákærunnar er mig varðar, þá er ég sýknaður af þremur sakadómurum og einum hæstarétt- ardómara með séráliti og sakfelldur af fjórum. Þetta segir nokkra sögu um stöðu leikmannsins gagnvart lögunum,“ segir Ragnar. „Það er verið að fást við tæknileg túlkunar- atriði. Það getur nánast farið eftir skapgerð dómara hvorum megin hryggjar túlkunin lendir." Hafskipsmálið varð landslýð kunn- ugt fyrir fimm og hálfu ári. Ákæru- valdið lagði fram ákæru árið 1987 í málinu í 450 ákæruliðum. En nú er málinu lokið. „Mér er afar mikill léttir að þessu máli skuli vera Iokið,“ segir Ragnar. „Það sem að nú blasir við er að svo- kallað Hafskipsmál er vissulega hrunið til grunna. Það er ekki svipur hjá sjón miðað við upphaflegan málatilbúnað ákæruvaldsins." GS.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.