Tíminn - 06.06.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 6. júní 1991
UTLOND
Israelsmenn samþykkja þátttöku EB í friðarráðstefnu um Palestínumálið:
Friðarráðstefna getur
hafist á næstu vikum
Utanríkisráðherra ísraels, David Levy, sagðist í gær vera
bjartsýnn á að friðarráðstefna um deilur ísraelsmanna
og araba um Palestínu gæti haflst á næstu vikum. Hann
sagði þetta í viðtali við útvarpsstöð í Frakklandi eftir að
hafa átt viðræður Við þtjá fulltrúa Evrópubandalagsins í
París. Á þeim fundi var samþykkt að EB taki þátt í ráð-
stefnunni ásamt Bandaríkjunum og Sovétríkjunum.
Sidon, Lfbanon - Þrír pal-
estínskir skæruliðar létust í
þriðju loftárás fsraelsmanna
á bækistöðvar skæruliða (
Libanon á tveimur sóiar-
hringum. Mikill ótti rfkir nú f
Suður-Libanon vegna loft-
árásanna sem eru með þeim
hörðustu í níu ár.
Vín, Austurríki - Forseti Al-
baníu, Ramíz Alla, tllnefndi
Yllí Bufi tíl að leiöa bráða-
birgöaríkisstjómina í land-
inu.
New York, Bandaríkjunum
- Að sögn dagblaðsins New
York Times ( gær eru líkur á
því að James Baker, utanrík-
isráöherra Bandaríkjanna,
snúi aftur til Miöausturlanda
ef Sýrlendingar og fsraels-
menn sýni vilja til aö halda
fríðarráðstefnu.
Washington, Bandaríkjun-
um - George Bush, forset)
Bandaríkjanna, hefur sam-
þykkt að Mikhail Gorbatsjov,
forseti Sovétríkjanna, megi
koma tll leiðtogafundar sjö
helstu iðnríkja heims sem
verður i London í næsta
mánuöi til að kynna umbóta-
áætlanir sínar. Dagblaöið
Washington Post greindi frá
þessu ( gær. Forsætisráð-
herra Japans, Toshiki Kaifu,
sagðl á mánudag að Gorbat-
sjov mundi í raun ekki hafa
neitt upp úr því að sækja
fundinn.
Nagasaki, Japan - Tala lát-
inna af völdum eldgossins í
eldijallinu Unzen í Japan er
nú komin 138 en búist er við
að sú tala eigi eftir að hækka
talsvert Eldfjallasérfræð-
ingar, sem hafa greint ösk-
una frá gosinu á mánudag,
segja að risagos geti hafist í
fjallinu á hverri stundu. Þeg-
ar slíkt gerðist fyrír um 200
árum fórust um fimmtán
þúsund manns.
Islamabad, Pakistan -
Talsmaður skærullða f Afg-
anistan sagði ( gær að Kkur
séu á því að um fimm þús-
und manns hafi látið lifið í
flóðum f héraðinu Jowzjan (
norðurhluta Afganistan ná-
lægt landamærum Sovét-
ríkjanna.
Kúveitborg, Kúveit - Herr-
éttur í Kúveit dæmdi í gær
Kúveitbúa til tuttugu ára
fangelsisvlstar vegna sam-
vinnu við íraska hermenn
meðan á hemámi þeirra
stóð- Reuter-SÞJ
Fulltrúi bandalagsins yrði frá
því landi sem situr ( forsæti í
það skiptið, að sögn utanríkis-
ráðherra Lúxemborgar, Jacqu-
es Poos, sem var einn þeirra
þriggja sem ræddu við Levy.
Poo greindi einnig frá því að
til stæði að halda fund milli
Husseins Jórdaníukonungs og
Yitzhaks Shamírs, forsætis-
ráðherra ísraels.
ísrael hefur hingað til verið
neikvætt í garð EB varðandi
óskir þess um þátttöku í hugs-
anlegum friðarviðræðum.
ísraelsstjórn hefur sakað
bandalagið um að vera hiynnt
málstað araba og lúta efna-
hagslegum þrýstingi frá araba-
ríkjum. En stjórn EB hefur ít-
rekað lagt áherslu á að fram-
tíðarsamskipti ísraelsmanna
við EB geti oltið á þátttöku
þess í friðarviðræðunum, ekki
síst eftir að sameiginlegum
markaði Evrópu hefur verið
komið á en meginútflutningur
ísraelsmanna er til bandalags-
ríkjanna. Hvorki Poo né Levy
skýrðu hve miklu hlutverki
fulltrúi EB mundi gegna á
friðarráðstefnunni.
Talsmaður Hvíta hússins í
Washington skýrði frá því á
mánudaginn að George Bush,
forseti Bandaríkjanna, hefði
sent leiðtogum helstu ríkja í
Miðausturlöndum, þ.á m. for-
sætisráðherra ísraels Yitzhak
Shamír, skeyti þar sem hann
lýsir persónulegum stuðningi
David Levy, utanríkisráðherra
ísraels, er bjartsýnn á að af frið-
arráðstefnu milli ísraelsmanna
og araba geti orðið á næstu vik-
um.
sínum við friðarviðræðurnar
og hvetur leiðtogana til að
gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að láta þetta tæki-
færi ekki ganga þeim úr greip-
um.
Forsætisráðherra Ítalíu, Gi-
ulio Andreotti, er nú á ferð um
Miðausturlönd þar sem hann
ræðir hugsanlega friðarráð-
stefnu. Hann átti í gær við-
ræður við stjórnvöld í Lýbíu
en hafði áður farið til Saudi-
Arabíu, Kúveits, Sameinuðu
arabísku furstadæmanna,
Ómans og Sýrlands. Talsmað-
ur Assads Sýrlandsforseta
sagði að forsetinn og Andreotti
hefðu Iagt áherslu á hlutverk
Sameinuðu þjóðanna í ráð-
stefnunni.
Þá fór Assad til viðræðna við
Mubarak Egyptalandsforseta í
gær og sagði talsamaður Mu-
baraks að þeir hefðu verið
sammála um að hefja ætti frið-
arráðstefnuna eins fljótt og
unnt væri. Reuter-SÞJ
Friðarverðlaunaræða Gorbatsjovs
Hvetur til stuðnings
við umbótastefnu sína
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, flutti í gær þakkarræóu
vegna friðarverðlauna Nóbels sem
hann hlaut í fyrra. Gorbatsjov sá sér
ekki fært að taka við verðlaununum
þegar þau voru veitt vegna annríkis
heima fyrir og sendi þess í stað full-
trúa sinn til að taka við þeim.
í friðarverðlaunaræðunni, sem
Gorbatsjov flutti í Ráðhúsinu í Osló í
gær, skoraði hann á Vesturlönd að
styðja umbótastefnu sína. Það væri
eina leiðin til þess að tryggja frið í
heiminum. Hann lagði áherslu á að
Sovétríkin yrðu að finna eigin leið til
lýðræðis. Þá ítrekaði hann áskorun
sína til Vesturlanda um efnahagsað-
stoð. Formaður nóbelsverðlauna-
Mikail Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna.
nefndarinnar sagði að enginn hefði
lagt jafnmikið af mörkum til að
binda enda á kalda stríðið og Gorbat-
sjov.
Gorbatsjov lagði áherslu á að koma
yrði í veg fyrir að borgarastyrjöld
brytist aftur út í Sovétríkjunum og
það yrði að tryggja að allir færu að
Iögum og það væri best tryggt með
sterkri miðstjóm. Hann minntist
ekkert á aðgerðir sovéska hersins í
ræðunni en sagði í viðtali við norsku
sjónvarpsstöðina NRK að Moskvu-
stjómin hefði ekki skipað fram-
kvæmd aðgerðanna í Litháen á
mánudag. Vytautas Landbergis, for-
seti Litháens, skoraði á Gorbatsjov í
gær að heita því að beita hemum
aldrei framar gegn lýðveldinu og var
tímasetning Landbergis augljóslega
miðuð við friðarverðlaunaræðu Gor-
batsjovs. Reuter-SÞJ
Umsátursástand í Alsír:
Stjórnin segir af sér
Forseti Alsírs, Chadli Benjedid, lýsti yfir umsátursástandi í
landinu í gær eftir sólarhringsátök milli hers og öfgasinnaðra
múslima í Algeirsborg. Ríkisstjórn landsins hefur sagt af sér
og fyrstu frjálsu kosningunum í landinu, sem áttu að fara
fram 27. júní, hefur verið frestað. í kjölfar þessara atburða
hvöttu leiðtogar íslömsku frelsishreyfingarinnar (FIS) öfga-
sinnaða stuðningsmenn sína til að hætta mótmælunum.
íslömsku leiðtogarnir sögðu að allsherjar verkfallinu, sem
þeir boðuðu til í síðasta mánuði, yrði bráðlega aflýst.
Talsmenn íslömsku frelsishreyf-
ingarinnar greindu frá því að við-
ræður væru hafnar milli leiðtoga
hreyfingarinnar og stjórnvalda.
Þúsundir öfgasinnaðra múslima
komu saman í Algeirsborg í fyrra-
dag til að leggja áherslu á kröfur
sínar um að stofnað verði íslamskt
ríki í Alsír og krafist var breytinga
á kosningalögunum. Nokkrir féllu
í átökum við her og lögreglu.
Ástandið róaðist hins vegar í gær
eftir að leiðtogar íslömsku frelsis-
hreyfingarinnar skoruðu á stuðn-
ingsmenn sína að hætta mótmæl-
unum. Hersveitir og skriðdrekar
eru við helstu stjórnarbyggingar í
Algeirsborg og aðra mikilvæga
staði.
Mikil spenna hefur ríkt í Alsír
undanfarna mánuði. Mikið herlið
var sent til helstu borga og bæja
landsins vegna fyrirhugaðra kosn-
inga 27. júní. Stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn, íslamska frelsis-
hreyfingin, hefur mikið látið að
sér kveða í kosningabaráttunni.
Leiðtogar hans hafa krafist af-
sagnar forsetans og segja að kosn-
ingalögin séu flokki hans, Þjóð-
frelsisfylkingunni (FLN), í hag. ís-
lamska frelsishreyfingin vann
stórsigur í bæjar- og sveitarstjórn-
arkosningunum á síðasta ári.
Reuter-SÞJ
SPRENGJU-
TILRÆÐII
MADRID
Spænskur flugliðsforingi lét líf-
ið og fjöldi manna slasaðist, þar
af þrjár táningsstúlkur, þegar
sprengja sprakk í einu úthverfa
Madrídborgar á Spáni í gær.
Enginn hefur lýst yflr ábyrgð
sinni á verknaðinum en talið er
að skæruliðasamtökin ETA, sem
berjast fyrir sjálfstæði Baska á
Spáni, standi á bak við tilræðið.
Atburðurinn átti sér stað ein-
ungis viku eftir að öflug spreng-
ing varð í búðum spænska þjóð-
varðliðsins, Guardia dvil, (smá-
borginni Vic, nálægt Barcelona.
Þá létust níu manns, þar af þrjú
börn og tveir táningar, og hátt í
hundrað manns slösuðust.
Skæruliðar ETA eru grunaðir
um tilræðið. Harmteikurinn í
Barcelona vakti almenna reiði á
SpánL Nokkur þúsund manns
tóku þátt í mótmælum sem
borgaryfirvöld í Barcelona
skipulögðu á sunnudag tíl að
mótmæla tilræðinu.
Tríið er að skæruliðasamtökin
ETA hafl drepið 665 menn á
þeim 23 árum sem barátta þeirra
fyrir sjálfstæöi Baska hefur
staðið. Reuter-SÞJ