Tíminn - 22.06.1991, Side 7

Tíminn - 22.06.1991, Side 7
Laugardagur 22. júní 1991 Tíminn 7 Hann slakaði á miðstjóm (efnahagsmálum, en viðheldur flokkseinræði: Deng Xiaoping. landsbyggðinni. Nokkrum árum síðar voru gerðar umbótatilraunir í iðnaði borganna og gaf góða raun. Allar þessar umbætur voru byggðar á markaðstengingu fram- leiðslunnar og því að losa hana undan miðstýringu Ijarlægra valdhafa. Jafnvel ýmis fyrirtæki í ríkiseign hafa sitt sérstaka at- hafnafrelsi og rétt til að ráðstafa ágóða og eiginfé í þágu fyrirtækis- ins en ekki ríkiskassans. Þetta er að vísu ekki hin algilda lýsing á kínverskum ríkisfyrirtækjum, því að flest eru þau rekin á hinum gamla maóíska grundvelli. Blandað markaðs- _________hagkerfi____________ En hvað sem því líður þá hefur allt stefnt í þá átt að þróa blandað hagkerfi sem byggist á markaðs- lögmálum. Þótt römm einsflokks- stjórn ríki í Kínaveldi — hin al- gera pólitíska miðstjórn Komm- únistaflokksins — hefur hægt og hægt verið slakað á hinu efna- hagslega miðstjórnarvaldi. Vaxt- arbroddur efnahagsskipulagsins felst ekki í ríkisfyrirtækjunum, þeim fækkar hlutfallslega ár af ári. Hið efnahagslega framtak skiptist milli fýrirtækja sameign- arfélaga og fyrirtækja í einstak- lingseigu. Þegar talað er um einkavæðingu í Kína virðist vera átt við hvers konar lausn fyrir- tækja undan ríkiseign og opinber- um afskiptum, en ekki það að fyr- irtækin séu einvörðungu rekin af stétt eignamanna eða atvinnurek- enda. Það er mikill sameignar- blær á kínverskri einkavæðingu, en eðli markaðslögmála fær að njóta sín eins og gerist í hverju því blönduðu hagkerfi sem rís undir nafni. Einsflokksstjórn ræður öllu Eins og ljóst er af þessari lýsingu á kínversku þjóðfélagi fer því víðs- fjarri að lýðræði og mannréttindi sé í einhverju samræmi við það sem hægt er að segja efnahags- þróuninni til hróss. Þótt The Ec- onomist dáist að efnahagsundr- inu í Kína, bendir leiðarahöfund- ur blaðsins eigi að síður á, að harðlínumennirnir í kommún- istaflokknum virði þá þróun svo lítils að þeir myndu fyrr fórna efnahagsframförunum en gefa eitthvað eftir af völdum sínum, ef á slíkt reyndi. Þetta gæti þýtt það að ef athafnamenn á efnahags- sviðinu og hin nýja stétt neytenda í Kínaveldi hygðist stofna til stjórnmálasamtaka eða efla pólit- ísk áhrif sín með öðrum hætti, myndi flokksvaldið berja það nið- ur með harðri hendi. Að flokksvaldið brygðist þannig við getur varla verið neitt vafa- mál. Það gerðist fyrir tveimur ár- um, þegar sjálfur Deng, frum- kvöðull efnahagsumbótanna, lagði blessun sína yfir árás hers og lögreglu á friðsamlegar mót- mælagöngur lýðræðissinna á Torgi hins himneska friðar. Það urðu blóðug átök, sem lýðræðis- þjóðir eiga erfitt með að fyrirgefa. Trúin og reynslan Þess er að minnast að mótmæla- aðgerðir þessar tengdust með sérstökum hætti opinberri heim- sókn Gorbatsjovs til Kína. Hann kom sem boðberi frelsisins og átrúnaðargoð þeirra sem sáu þá fyrir sér að tími lýðræðisins væri að ganga í garð. Kínversku stúd- entarnir, sem mest létu að sér kveða á Torgi hins himneska frið- ar, hafa áreiðanlega trúað því að Gorbatsjov bæri með sér nýja strauma og hefði miklu að miðla í lýðræðisframförum Kínverja eins og hann hafði rutt lýðræði og mannréttindum braut meðal síns eigin fólks. Kínversku stúdentarnir höfðu raunar fulla ástæðu til að sýna Gorbatsjov þetta traust. Engar brigður verða bornar á það að Mikael Gorbatsjov hafi verið í broddi fylkingar um að gera sov- éskt þjóðfélag lýðræðislegra og mannúðlegra en það hafði verið. Það var heldur ekkert óeðlilegt við það, þótt bjartsýnismenn tryðu því að auknu lýðræði og mannúð fylgdu verklegar og efna- hagslegar framfarir sem færðu sovéskum almenningi kjarabætur og frjálslegra mannlíf. Vonbrigð- in hljóta því að verða þeim mun meiri sem sýnilegt er að lýðræð- isbyltingin hefur ekki gert betur en að standa undir sjálfri sér, en hefur engu skilað í því að bæta efnahagskerfið eða koma á kjara- bótum. Þess vegna stenst sú lýs- ing að Sovétríkin eru í rúst, þrátt fyrir allar sínar pólitísku koll- steypur sem áttu að flytja með sér uppbyggingu og framfarir. Kína stendur aftur á móti föstum fót- um í efnahagslegum framförum, þrátt fyrír grunnmúrað eins- flokkskerfi, sem einskis svífst til þess að viðhalda sjálfu sér. Deng og Gorbatsjov Margir standa dolfallnir frammi fyrir þessum andstæðum sem koma í ljós þegar farið er að bera saman þessi tvö stórveldi komm- únismans og þjóðfélagsþróun þeirra. Til þess að persónugera þennan samanburð mætti stilla Deng upp öðru megin og Gorbat- sjov hinu megin. Þeir eiga það sameiginlegt að vera frumkvöðlar umbóta hvor í sínu kommúnista- ríki. En samt höfðust þeir ólíkt að. Deng hróflaði ekki við pólitíska kerfinu, en slakaði með hægð á miðstýringu í efnahagskerfinu. Pólitíska valdið er allt við það sama, en efnahagsframfarir svo miklar að málgögn kapitalista í Bretlandi og Ameríku kalla að kraftaverk hafi verið unnið í Kína. Gorbatsjov lagði meira undir. Hann byrjaði á því að gera lýð- ræðisbyltingu og ætlaðist til að efnahagsbyltingin kæmi í kjölfar- ið. Því miður hefur Gorbatsjov misst allar sínar góðu fyrirætian- ir út úr höndunum á sér. Ekki af því að góðar fyrirætlanir séu ekki góðar, heldur af því að góðar fyr- irætlanir eru ekki einhlítar. Dæmi Gorbatsjovs sannar að góð- um fyrirætlunum verður ekki komið á með byltingum. Jafnvel vondum efnahagskerfum verður að breyta með skipulegum áætl- unum og viðráðanlegri þróun. Kínverjar virðast átta sig á því. Það gera Sovétmenn ekki. Þeir virðast trúa á gagnbyltinguna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.