Tíminn - 06.07.1991, Blaðsíða 8
16 T HELGIN
■■í TÍMANS RÁS
ATLI MAGNÚSSON:
Innanmein nýsköpunar
Nú er mikil gjaldþrotanna tíð.
Hvert ólagið dynur yfir á eftir
öðru og seint ætlar að verða
hægt að segja hver báran sé
„síðust og mest“, alltaf er nýrrar
von sem tekur þeirri síðustu
ffam. Starfsfólkið að Álafossi var
að fara í sumarfrí sitt og enginn
veit hvort það fær að snúa aftur
til sinna gömlu spunavéla. Allra
handa bjargráða, sameiningar
fyrirtækja og fleira, er búið að
neyta, til þess að halda þessu
stærsta ullarvinnslufyrirtæki
landsins gangandi, en ekkert
virðist duga. Einhver illur andi
spólar í öllu saman, kollvarpar
hinum góðu áformum og er
ekki ýkja lengi að því. Hvort um
er að kenna ónógri kænsku
þeirra, sem reka fyrirtækið, eða
einhverslags fellibyljum á
vindasvæðum heimsmarkaðar-
ins (tískumarkaðarins) er ekki
gott að segja. Sjálfsagt veldur
hér sín ögnin af hvoru. En
kannske er það bara orðið tíma-
skekkja að vinna ullarvörur. Það
segir a.m.k. stórsöngvarinn
Kristján Jóhannsson, sem lítur
yfir sviðið úr hástóli menning-
arinnar á Scala. Eftir honum er
haft að íslendinga sameini nú
ekki annað en „púkalegar ullar-
vörur“, sem þeir halda að allur
heimur vilji eignast, en séu ekki
annað en dæmi um hlægilega
nesjamennsku. Ljótt er ef satt
er, sagði einhver kerling. En
samt má það vera umhugsunar-
efni og orka tvímælis að láta ull-
ariðnaðinn detta upp fyrir, skipi
hann þó þann sess að vera
helsta sameiningarafl þjóðarsál-
arinnar.
Ekki hefur svo landslýðurinn
fyrr meðtekið ótíðindin ofan af
Álafossi, en röðin er komin að
rækjuvinnslunni, sem líkt og
ullariðnaðurinn er atvinnuupp-
spretta grúa manns um allt
land. Það er heldur ekki eins og
það sé eitt fyrirtæki, sem sé að
berja nestið, heldur heil runa.
Um þennan vanda er forsætis-
ráðherrann ómyrkur í máli og
segir hann víða stafa af því að
forráðamenn rækjufyrirtækja
hafi tekið „glæfralegar ákvarð-
anir“ í fjárfestingarmálum og
varla er að efa að hæfa sé í því.
Slíkt hefur lengi verið árátta
með þessari þjóð. Þurfí t.d. fyr-
irtæki að flytja svo sem tvo kart-
öflupoka bæjarleið á dag, má
ekki minna duga en tíu tonna
vörubfll. Sé ný vél keypt í gam-
alt skip er hún undantekninga-
lítið svo sem þúsund hestöfl
umfram þarfir og guðsmildi að
fleyið skuli fljóta með hana inn-
anborðs. En ekki bregst að allt á
þetta ráðslag víst að heita ný-
sköpun og horfa til framfara.
Þegar í óefni er komið að borga
fyrir þetta allt, kenna menn um
búraskap og þröngsýni ef sér-
hver hönd er ekki á lofti að
borga menn út úr heimskupör-
um þeirra — helst auðvitað að
fjármagna kaup á ennþá stærri
vörubíl og vél sem tryggir að
botninn bresti loks endanlega
úr fleyinu.
Nú er að vita hvar engill gjald-
þrotanna fer um hinu sveipanda
sverði sínu næst. Sjálfsagt er
það víða sem menn þessi dæ-
grin berjast við að halda rekstri,
er rambar á brún hengiflugs, of-
an við brúnina. Hamingjan gefi
þeim lukku til þess sem flestum.
En hverjum er láandi á þvflík-
um tímum þótt hann bíði samt
sem áður eftir nýjum bresti?
Laugardagur 6. júlí
Það var Jökulsá á
Breiðamerkursandi
sem síðast var á
myndinni hér í skot-
inu.
Spumingin að þessu
sinni er ekki heldur
svo ýkja vandasöm.
Við sjaum þekktan
samkomustað að
fomu og nýju. Hver
skyldi hann vera?
KROSSGÁTA
0 T?0RH ’/fr- - ToUH LZYH flF- MMÍ ÍSLj. sr/iFJR IflWoF ■* —V G/H-LfíF KPRAÍ firr e SYKKJft i
ifÆ> vffr jL.-* éjETSOI V/Ð r SLfl flKUR LIMUR
{ Soo 2
° AC $)) 5 L—
PɧI ÁVÖA'T- UR skúfur titilL io ‘b
NckINí íuss- flVI
TÍU FÆ RJP TZh 5LÓ h>KA H
BÚism SKERF- UF
fuOtl VflTN LÚP U- Í.£G Fiskur 5
SKlH/f
í sL • 5T?!FUR SRUNfl KRlKfj 5Tfi KF pLETl 8 SfJLlÐ HhTÍ Ð 6 MfiNH L
jt’FÓTT £/NS
ENSK $0-R& dM<F0í> wuiE KEYRÐ- UM ruh 1
SuKKlP P\TT Hf?FlN r/iRgJ SQR mu 8
T r WMJf\ ftSKUR H P£W- iNGfl /}XIR n
KL/íKl ToT
'm fls VBIN BUN' FRBMLIF, fú] <1 Si/flK 'flTT l V i \o
'flTT GhMLfi / O c-' 'AK L3ÓS- M£TiÐ Kfo K
5AM- TEtiG • KÓF KfWJM SÝSH U
P foKW- 3ÓK
KfNDUM
Smr U R fæði ii S'EM Hnío flSGG - VOTN 1Ö5Ö ÍYJfl KV/ZDI n
Td/VN SVAK- DA6A A FA
jsoo LlrtDl ns k flWD/157* h\ M D Á -- ElNS BL/NDI n /3
rsK fíF . . -T SLfl
SK'ÆDftK iH 51&fí ft/IML- lF /V
RNMRR SlGvLo fLJÓT
EYJfl UfNftK UTfiti FA& ÍS