Tíminn - 13.07.1991, Qupperneq 2

Tíminn - 13.07.1991, Qupperneq 2
10 HELGIN Laugardagur 13. júlí 1991 Ford Econoline, árgerð 1987, til sölu Ekinn aðeins 25 þús. km. 36” dekk og margt fleira. Uppl. hjá Litlu bílasölunni I síma 91- 679610. Auglýsing um viðtalstíma ráðherra á ísafirði 24. júlí 1991. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Sighvat- ur Björgvinsson, hefur ákveðið að reglulegur við- talstími ráðherrans miðvikudaginn 24. þ.m. verði I Verkalýðshúsinu á ísafirði, Pólgötu 2 (2. hæð) frá kl. 09:00-12:00. Þeir, sem áhuga hafa á að panta fastan viðtals- tíma við ráðherrann, geta látið skrá sig á bæjar- skrifstofunni á ísafirði, sími 94-3722. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 11. júlí 1991. Staða bæjarstjóra í Stykkishólmi Staða bæjarstjóra I Stykkishólmi er auglýst laus til umsóknar. Allar upplýsingar veita Ellert Kristinsson, forseti bæjarstjórnar, I síma 93-81353 og 93-81300, og Sturla Böðvarsson bæjarstjóri, I síma 93-81136 og 93-81274. Umsóknir skal senda undirrituðum á bæjarskrif- stofurnar við Skólastíg fyrir 15. ágúst n.k. Fyrir hönd bæjarstjórnar Stykkishólms, Sturla Böðvarsson. HUSNÆÐI FYRIR HÉRAÐSDÓMSTÓL SUÐURLANDS ÓSKAST Óskað er eftir til kaups eða leigu húsnæði á Selfossi fyrir Héraðsdómstól Suðurtands. Um er að ræða 130-170 m2 skrifstofuhúsnæði með greiðri aökomu og aögengi fyrir fatlaöa. Til greina kemur húsnæði á byggingar- stigi. Afhending skal miðast viö að húsnæðið verði fullbúiö um mitt næsta ár. Tilboð ásamt nánari lýsingu og teikningu sé skilaö á skrifstofu vora I Borgartún 7, eigi slðar en 25. júlí n.k. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK m c Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Rafmagnsveitu Reykjavlkur, óskar eftir tilboðum I lóðafrágang á 16 dreifistöðvalóðum I Reykjavík. Um er að ræða jarðvegsskipti og hellulögn á ca. 40 m2 lóöum, sem eru vlðsvegar um borgina. Útboösgögn veröa afhent á skrífstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuö á sama stað þriðjudaginn 23. júll 1991, kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 ■ ■■ getaö grætt peninga? Það vissi ég ekki því hvorttveggja var að íslendingar voru búnir að leiða mig í allan sannleika, og svo hafði ég fyrir nokkrum árum heyrt svipaðri skoðun fleygt í Noregi að þetta hefði sem sagt verið norskt fé. Vel getur verið að um þetta megi eitthvað sjá í gömlum reikningum, en ég er ekki sterkur á því svelli. Það er leiðinlegur galli hve við erum illa að okkur. Og sú fáfræði er slæmur dragbítur í óhjákvæmilegum rökræð- um. Hverju er unnt að svara ef menntaður íslendingur spyr: Hvemig getið þið verið þekktir fyrir að geyma handritin okkar svona illa? Það þarf ekki meira til en að kærulaus stúdent fleygi frá sér sígarettu, þá fúðra þau upp! Hvað geta þeir sagt við slíku sem aldrei aldrei hafa gengið úr skugga um þetta sjálfir á staðnum? Þeir geta sagt: Já, en þetta er nú víst ekki alveg rétt, ég hef heyrt þetta eða hitt Eða: Já, þetta nær nú ekki nokkurri átt! Þessi eða þvflík svör eru dæmigerð og verri en engin. Fáfróðum manni kemur margt á óvart Ég hafði ekki hugmynd um að töluvert stór hópur íslendinga hefur viljað gera tilkall til Grænlands. Ég man ekki eftir að hafa heyrt neitt um það í dönskum blöðum. Um það fræddumst við af íslendingum og einnig það að ýmsir þjóðréttarfræð- ingar hefðu sökkt sér niður í að rann- saka hvort unnt væri að rökstyðja slíka kröfu. Þeir kváðu vera komnir að þeirri niðurstöðu að á því væru ýmsir óþægilegir annmarkar frá laga- legu sjónarmiði. En siðferðilega kröfu getum við að minnsta kosti gert, sagði einn heimildamanna okk- ar. Eins er að orði komist um aðra kröfu og ef taka ætti manninn bók- staflega og handritin yrðu afhent á morgun, mundi réttinda verða krafist á Grænlandi hinn daginn. Ekki bar öllum saman þegar minnst var á Grænland. Margir voru óánægð- ir með að íslendingar og Færeyingar fá ekki að veiða við Grænlandsstrend- ur, það er í fjörðunum — það var líka kvartað yfir háu verðlagi í Færeyinga- höfn á Grænlandi. Þegar við héldum því fram að Grænlendingar ættu líf sitt undir þessum miðum fengum við það svar að gætu Grænlendingar ekki bjargað sér í harðri samkeppni á haf- inu, væri úti um þá hvort sem er. Stöku maður var á því að Grænlend- ingar væru frumþjóð, sem væri að deyja ÚL Viðhorfið sem bjó að baki þessum kvörtunum er einkennilega líkt því sem Danir eru sakaðir um að hafa haft til íslendinga og Færeyinga. Harðir dómar heyrast líklega oftar af beggja vörum um stjóm Dana á Grænlandi, smásmugulegar forræð- istilhneigingar, lélega heilbrigðis- þjónustu og hreinlætisbrest, berkl- ana. Sennilega er þessi gagnrýni að verulegu leyti bergmál gagnrýninnar í dönskum blöðum frá síðustu ámm. En þeir íslendingar og Færeyingar eru býsna margir, sem koma til Grænlands, sjá þetta með eigin aug- um. Einn íslendingur sagði: Hvers vegna seljið þið ekki Bandaríkjamönnum Grænland þegar í stað? Þeir gætu haft eitthvað upp úr því. Eða látið Norð- mönnum eða íslendingum það eftir? Þið hafið ekki hugmynd um aðstæður norður í Atlantshafi eða þá kosti sem þar eru fyrir hendi. Hvað veit venju- legur Dani í sinn haus um þetta? Þeg- ar konur af íslandi koma til Kaup- mannahafhar segja þær dönsku: Æ, og við sem vorum að vona að þið kæmuð í þjóðbúningi. Okkur finnst hann svo fallegur, búningurinn ykkar með síðu skinnbuxunum og breiða perlukraganum! Það er hægt að gera ýmislegt annað en dútla við smádót á Grænlandi. Annars er sjálfsagt sama hvað þið segið, það eru Bandaríkja- menn sem ráða, þeir hafa herstöðvar, ekkisatt! Danir fáfróðir og hlægi- legir bragðarefir? Ferðabækur skálda hafa frá fomu fari verið lausar í reipnum og hljóta að vera það. Þau hlaða ekki tum úr Halldór Laxness: Lét í Ijósl þá von á elskulegan hátt „að danskir lesendur hefðu ekki misskilið þriggja binda skáldsögu hans, „Is- landsklukkuna“.“ pottþéttum staðreyndum, heldur raða saman skyndimyndum úr áhrif- um sem þau verða fyrir. Það er ákveð- ið lögmál. Af þeim sökum telja þau ekki skyldu sína að lýsa því sem þau ráða ekíd við á stöðum þar sem áhrif- in láta á sér standa eða em svo yfir- þyrmandi að allt fer í einn graut í þessa bók vantar margt, sem óhugs- andi hefði verið að sleppa í traustu heimildariti — til dæmis hef ég, sveitamaðurinn, ekki treyst mér til við Reykjavíkurborg, hina þróttmiklu smiðju nýja íslands, þar sem áhrifin sveima allt um kring, eins og kríu- hópamir yfir höfninni, sem iðar af Iffi. Sérstök umræðuefni festast hinsveg- ar í minni ef línumar eru hreinar og skýrar. Það fengum við staðfest þegar við kynntumst viðhorfum örgeðja eyjarskeggja sem hugsar á nútfma- vísu og þau viðhorf skipta okkur máli. Varkárir landar mínir kveinka sér kannske undan þeirri mynd sem upp er dregin. Ég álít að það sé misráðið að á hana sést nær aldrei minnst í dönskum blöðum og bókum, en Dan- ir sem á þessu kunna einhver skil kjósa heldur að þagga niður allar um- ræður og slá yfir þetta striki. Þegar okkur veittist sú ánægja að hitta Halldór Kiljan Laxness, sem meiri frægðar nýtur fyrir bækur sínar víða um lönd en aðrir íslendingar og ég veit að ýmsir bestu bókmennta- menn okkar vilja að fai Nóbelsverð- launin, lét hann í ljós þá von á elsku- legan hátt að danskir lesendur hefðu ekki misskilið þriggja binda skáld- sögu hans, „íslandsklukkuna", þar sem hún væri ekki sagnfræðirit. í spjalli okkar talaði hann síðan um fyrirvarann sem prentaður var í dönsku útgáfunni: „Höfundur vill láta þess getið að bókin er ekki „sagn- fræðileg skáldsaga", heldur lúta per- sónur hennar, atburðir og stíll ein- vörðungu lögmálum verksins sjálfs.“ Ég gat þá svarað að ég hefði eingöngu séð lofsamlega dóma um bókina, margir sérfróðir menn sem ég þekkti vel hefðu á henni dálæti og mér væri ekki kunnugt um neina landa mína sem hún hefði reitt til reiði. Sjálfúr var ég þá ekki búinn að lesa lokabindið, „Eld í Kaupinhafn", sem gerist að mestu í höfúðborg okkar snemma á 18. öld. Annars hefði kannske verið freistandi fyrir mig að spyrja hvort höfúndur beini þar máli sínu sérstaklega til Dana, af því að ekki er á færi annarra en þeirra, sem eru þeirra fróðastir, að gera sér grein fyrir hve sagnfræði í skáldsögunni er fjarri lagi. Nú er mér ekki allskostar ljóst hvað átt er við með sagnfræðilegri skáld- sögu. Samkvæmt venjulegri skil- greiningu eru það óskráð lög að sá fyrirvari sem Laxness nefhdi á einmitt við um þessar bókmenntir. Sjaldnast er að því fundið að rangt sé farið með söguleg efnisatriði í skáldsögu, ef þau veikja ekki frásögnina að öðru leyti. „íslandsklukkan", sem gegnsýrð er af rómantík og ekki verri fyrir það, er með sínu fasta frásögusniði og fjöl- breytta lífi næsta fágætt skáldverk í norrænum nútímabókmenntum og er þá ekki mikið um að tala. Hún er einkonar goðsaga um íslands óham- ingju og andlegt stolt íslendinga, og okkur kann að þykja skömm að því að Danmörk er þar hin mikla óvættur, okkur getur þótt hvimleitt að allir Danir í sögunni eru aumingjar, einn og einn innan um, sem eitthvað get- ur, þegar best lætur, en annars eru þeir heimskir, fáfróðir og umfram allt hlægilegir bragðarefir, og það getur verið gremjulegt að sjá einhverju haldið fram, sem ekki er rétt, fær með öðrum orðum ekki staðist sem sögu- leg fullyrðing og hefur aldrei verið annað en fjandsamlegur uppspuni, og þó verður það að játast að þetta eru alls ekki sögulegar fullyrðingar, því að við sitjum uppi með skráðan sem óskráðan fyrirvara og vitum að skáld- saga kærir sig kollótta um alla sagn- fræði. Ekki er það heldur ætlun mín að fara í þrætur út af „íslandsklukkunni", vil miklu heldur mæla með henni af því að hún er ágætt skáldrit Við það bæt- ist að lesandinn finnur þar í harla list- rænum búningi eitthvað sem er lík- lega ekki, en líkist þó mjög safni af goðsögum, sem eru fullar af þjóðem- isrómantík og líf og yndi eyjarskeggja í Atlantshafi, meira en margan grun- ar. Þreytandí skilningur? Að því leyti er skáldsaga í samræmi við þjóðarvitund. Eins og á hefúr ver- ið minnst er hún það líka í þeim skilningi að fulltrúum okkar skelfi- legu þjóðar er jafnan lýst með köldu háði, beiskri ádeilu. Þannig voru þeir ef til vill. Þannig er Dönum einatt lýst meðal eyjarskeggjanna, sem áður voru nefhdir. Við því gæti svarið verið: Látið það ekki á ykkur fá. Ætli það detti af okk- ur gullhringamir, er ekki sérhver þjóð svolítið brosleg í augum ann- arra? Það er verið að gera að gamni sínu. Eitt gildir framar öðru: Við verðum að sýna skilning. Margir Danir nú á dögum telja sig hafa einhverskonar Messíasarhlut- verki að gegna: Skilning framar öllu. Ekki vantar það nú. En skilningi, sem tekur út yfir allL fylgir oft andleg leti,

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.