Tíminn - 13.07.1991, Qupperneq 6

Tíminn - 13.07.1991, Qupperneq 6
Piltamir í hljómsveitinni Gor em frá vinstri Pétur Óli Einarsson bassaleikari, Stefán Gunnarsson söngvari, Kári Hallsson grtarleikari og Skari sem einnig leikur á grtar. Á myndina vantar trommuleikarann Jón Lee. Ttmamynd: se Hljómsveitin Gor er að margra mati með merkilegri fyrirbærum í neðanjarðar- menningu borgarinnar: Hlustum mest á dauðarokk en sinfóníurnar eru heillandi Hljómsveitin Gor er þriggja mánaða gömul sveit, skipuð fímm pilt- um á aldrinum 15-18 ára. Gor var ein af mörgum sveitum, sem tróðu upp á porthátíð Útideiidarinnar sl. fímmtudagskvöld, og laug- ardagskvöldið fyrir viku hitaði sveitin upp fyrir hljómsveitina GCD á tónleikum í Nasa. Blaðamaður náði tali af fjórum meðlimum sveitarinnar milli laga á fímmtudagskvöldið og fer spjallið hér á eft- ir. Sveitin samanstendur af fimm piltum eins og áður sagði. Þeir eru: Pétur Óli Einarsson sem leikur á bassa, Stefán Gunnarsson sem syngur, Jón Lee er trommuleikari og gítarleikaramir tveir eru Kári Hallsson og Skari. Strákamir sögðu að sveitin hefði ver- ið stofnuð fyrir þremur mánuðum, en hefði ekki farið að æfa að fullu fyrr en fyrir um mánuði. Aðspurðir sögðust þeir hafa spilað nokkrum sinnum opin- berlega, m.a. í Þróttheimum og um síðustu helgi hefðu þeir hitað upp fyrir GCD í Nasa. Þeir sögðu að viðtökumar hefðu verið góðar, mun betri en þeir hefðu átt von 1 Prógrammið saman- stendur af sex lögum og aðspurður sagði Stefán söngvari að skilgreina mætti tónlistina, sem þeir spiluðu, sem „trash metal" blandað „death" söng. — Virðist þessi blanda falia í kramið núna? ,Já, meirihlutinn af þessum bílskúrs- hljómsveitum í dag spila eitthvað þessu líkt,“ sagði Stefán söngvari. Hljómsveitin hefur æft í húsnæði úti- deildarinnar að undanfömu, en flytur bráðlega í annað húsnæði við Bflds- höfða. Kári gítarleikari svaraði því strax til þegar blaðamaður spurði um framtíð- aráform, að stefnan væri sett á að verða frægir, og líka góðir, en fyrst og ffemst væru þeir í þessu tii að hafa gaman af því, og piltamir tóku allir undir það. „Við ætlum að reyna að gefa út piötu og halda áfram að gera okkar besta," sagði Stefán söngvari. Nafnið á sveitinni, Gor, er gamalt og gott íslenskt orð og samkvæmt orða- bók Menningarsjóðs er gor hálfmelt fæða í innyflum jórturdýra. Kári sagði að þeir hefðu ákveðið að hafa nafnið á hljómsveitinni íslenskt, því það væm svo margar sveitir sem væru með ensk nöfn. Aðspurðir hvers vegna þeir hefðu valið hljómsveitinni þetta nafn, þá sögðu þeir að upphaflega hefði það komið þannig til að í hljómsveitinni hefði verið piltur, sem hét Gunnar Ósk- ar, sem var rekinn. Skammstöfun á Gunnar Óskar rekinn væri hérumbil GOR, og þar með hafi hugmyndin kviknað. Piltamir sögðu að það væri gaman að spila í svona bandi, en oft á tíðum væri þetta erfitt og reyndi mikið á taugam- ar. Þeir sögðu að allt gæti farið í bál og brand á æfingum þegar þeir væru að semja lög, og einnig væri erfitt að fá eitthvað að gera. Piltamir sögðu að ástæðan fyrir, að þeir spiluðu sem upp- hitunarsveit fyrir GCD, væri helber heppni. Þeir hefðu hitt umboðsmann GCD í síðustu viku og hann hefði spurt þá hvemig þeim litist á að hafa tónleika með GCD í Nasa fyrir unglinga. „Ég sagði að mér litist vel á það, ef við fengjum að hita upp,“ sagði Kári, „og hann tók okkur á orðinu. Hann fékk hjá okkur símann og hringdi daginn eftir og sagði að allt væri klappað og klárt." — Fyrir utan að hlusta á ykkur sjálfa, á hvaða tónlist hlustið þið? „Við hlustum aðallega á „death metal" eða dauðarokk," sögðu Kári og Stefán einum rómi. „Ég hlusta líka á sinfón- íur,“ sagði Stefan og Kári tók undir það. „Ég fæ mikið út úr því að hlusta á sinfóníur. Það er svo mikið af tónum í þeim að ég verð alveg heillaður," sagði Kári. Piltamir sögðust hafa verið í mörgum öðrum hljómsveitum, sem hefðu allar orðið frekar skammlífar. Þeir sögðust vonast til að þessi sveit myndi lifa eitthvað lengur. „Við höfum fengið frábærar móttökur og öllum líst vel á okkur," sagði Stefán söngvari. „Við ætlum að reyna að halda áfram, þó það sé oft hundleiðinlegt að mæta á æf- ingar, semja lög og æfa þau,“ sagði Kári. -*e Laugardagur 13. júlí 1991 Hljómsveitin Morbid Silence í hörku sveiflu. ■i ISkv :• I gm. 'w'.j wM Aödáendur hljómsveitanna sátu dotfallnir viö fótskör meistaranna. iQkmQrkanir á umferb í Kvosinni vegna gatna- framkvæmda Nú standa yfir gatnaframkvæmdir í Vonarstræli, Templarasundi og norburhluta Tjarnargötu, göturnar veröa malbikaöar, stein-lagöar og settar snjóbræöslnlagnir i þær. jafnframt veröur noröurbakki Tjarnarinnar endurbyggöur. Nauösynlegt er að loka götunum meðan á íramkvæmd stendur. Verkiö veröur unnið í áföngum. Eftirfarandi er endurskoöuö áætlun um verktíma einstakra áfanga. Verktími: Vonarstræti austan nr. 10..............30. apríl -15. sept. Templarasund ..........................5. júlí - 15. ágúst. Vonarstræti frá nr. 8 ab Tjarnargötu og Tjarnargata frá Vonarstræti ab nr. 4..1. júlí -15. sept. Tjarnargata frá nr. 4 að Kirkjustræti....1. júní - 6. ágúst. Tjarnargata frá Vonarstræti að nr. 20....15. júlí - 20. okt. Tit 15. sept. verður ekki unnt að aka um Vonarstræti frá Lækjargötu ab Suðurgötu. Þess í stab er ökumönnum bent á ab aka Skólabrú, Pósthússtræti og Kirkjustræti. Framkvæmdum við Tjarnargötu milli Vonarstrætis og Kirkju- strætis verður hagaö þannig, að aðkoma verbur möguleg ab bflastæbi Alþingis. Við upphaf hvers áfanga verbur auglýst nánarum lokanir gatna og breytingar á umferð. garverkfræ&ing ferbardeild urinn í Reykjavík l 15 Laugardagur 13. júlí 1991 HELGIN T MIKILL FJOLMIUTI- DEILDARPORTINU Porthátíð Útideildarínnar var haldinn í porti Útideildarinnar við Tryggvagötu sl. fímmtu- dagskvöld, og tóku fjölmargar bflskúrshljómsveitir þátt í tón- leikunum. Tónleikarnir voru að flestra mati vel heppnaðir og var mikill fjöldi mættur til að hlýða á þær hljómsveitir sem tróðu upp. Sveitirnar, sem komu fram á fimmtudagskvöldið, spiluðu flestar svokallað dauðarokk eða ruslrokk, og þeim, sem ekki hafa kynnt sér málið, er víst óhætt að segja að það sé í þyngri kantinum. Á tónleikun- um á fimmtudaginn komu m.a. fram sveitirnar Cazbol, Insectary, Gor, Sjálfsfróun, Scum of society, Strigaskór nr. 42, Morbid silence, Sororicide, Putrid, Mortuary og Leprous. TONLIST Umsjón Stefán Eiríksson Þessi porthátíð er orðin árviss við- burður og sagði Gunnfríður Svala Arnardóttir, starfsmaður Útideildar- innar, að þetta væri orðin hefð í starfi deildarinnar. Aðspurð sagði hún að þetta skipti töluvert miklu máli fyrir þessar sveitir, þær hefðu mikinn áhuga á því að koma þama fram og þetta gæfi þeim markmið til að stefna að. —SE Mikill fjöldi mætti á tónleikana og þurftu menn jafnvel að standa uppi á sorptunnum til aö hlýöa á tónlistina. Útideildarportið var fulit altt kvöld- iö og er þaö mál manna aö sjald- an eöa aldrei hafí jafn margir komið á porthátíöina. Tfmamyndir SE FerðagriU_T_ Istranddýnur ; ’T \ msift 1.850; Capisa 4 manna matarferðasett Hústjald_______— HjólabrettþWUaufy 1.995; vm Kaelibox 27 Ijtra—— TjaldborðjWÁsí^lyí? 499^ KAUPSTADUR OPIÐ l)M HEIGINA: Miktigarður v/Sund Kaupstaður MiktigarðurJL-husinu Miktigarður Miðvangi Mikligarður Garðabæ Laugard. kl. 10-14 kl. 10-14 kl. 10-16 kl. 10-18 kl. 10-18 /MIKLIG4RDUR ÍMJÓDD ALLAFt BUÐIR

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.