Tíminn - 23.07.1991, Qupperneq 2

Tíminn - 23.07.1991, Qupperneq 2
2 Tíminn ''Þriðjudágur23. júlí 1991 Krafa útgerðarmanna um áframhaldandi útflutning á ferskum fiski verður stíf ef um verulegan aflasamdrátt verður að ræða, en Samtök fiskvinnslustöðva vilja banna hann: Hagsmunir fiskvinnslu og útgerðar ekki þeir sömu Stjóra Samtaka fískvinnslustöðva hefur lagt til að allur útflutning- ur á óunnum þorski og ýsu verði stöðvaður ef um verulega skerð- ingu á aflamagni verður að ræða á næsta fískveiðiári, eins og Haf- rannsóknarstofnun gerir tillögu um. Jónas Haraldsson, skrifstofu- stjóri hjá LÍÚ, segir útgerðarmenn vera því algerlega ósammála, því eðlileg viðbrögð þeirra við aflasamdrætti væru að auka útflutning á ferskum físki. „Það er ljóst að þarna skerast hags- munir, eins og reyndar alltaf hefur verið. Ég geri ráð fyrir að þetta verði rætt með fleiru og óþarfi að rjúka upp á nef sér út af þessu," sagði Jón- as. Aðspurður sagðist hann alls ekki þora að segja neitt um það hvort bú- ast mætti við einhverri skerðingu á útflutningi. „Ef horft er á okkur út- gerðarmenn, þá verðum við fyrir verulegu tekjutapi og sjómennimir líka," sagði Jónas. Hann sagði að það væri ekki tímabært á þessu stigi að fjölyrða nánar um þetta atriði, en ef aflasamdráttur yrði mikill þá kæmi fram stíf krafa frá útgerðar- mönnum um að þeir fengju að flytja út, ekki kannski meira, en a.m.k. sama magn af ferskum fiski og áður. Jónas sagði að það væri með ýms- um öðrum hætti hægt að koma á móts við fiskvinnsluna heldur en með banni á útflutningi á ferskum fiski. Inni í dæminu væru m.a leng- ing lána og skattahagræðing. „Þeir hafa verið fljótir að nefna sínar hug- myndir. Við höfum ekkert sérstak- lega tíundað það sem við teljum að eigi að gera, meðan enn er verið að ákvarða það aflamagn sem veiða má,“ sagði Jónas. Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva fundaði fyrir helgi og voru tillögur Hafrannsóknarstofnunar um há- Rannsóknir á nautahakki ieiða í Ijós: Fitulítið nautahakk! Kannsóknir leiða í Ijós að nautahakk er magurt hér á landí samanboríð við Önnur lönd. Þá hefur dregið úr fítu í mörgum kjötvörum hér á landi síðustu ár. Þessar breytingar má rekja til al- mennrar kröfíi neytenda um fítuminni vörur. Á síðasta ári var gerð rannsókn á efnainnihaldi unninna kjötvara á vegum Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Þessi rannsókn er liður í undirbúningi að því að setja reglugerö um efnainnihald unninna kjötvara í samvinnu við Hollustuvemd ríkisiris. í reglu- geröinni verður líklega kveðið á um hámarksinnihald fítu og lág- marksinnlhald af mögru kjöti. Kannsóknin, sem nú var gerð, leiddl í Uós að nautahakk hér- lendis er yfirleitt mjög magurt og fítuminna en víða í nágranna- löndum. Hér á landi er það að jafnaðl 8.3% feitL Þess má geta að Ld. í Bretlandi er hægt að velja á milU þriggja flokka af misfitumikilu nautahakki með fituiunihaldi á biUnu 5 til 20%. Sambærileg niðurstaða fékkst þegar rannsakaðar voru ýmsar áleggstegundir, og reyndust þær magrari en víða í nágrannalönd- um okkar. Áður hafa verið gerðar svipaðar rannsóknir hér á landi. Sú breyt- ing hefur orðið á að dregið hefur úr fituinnihaldi kjötvara frá því sem áður var. Þessar breytingar má án efa rekja til almennrar kröfu neytenda um fituminni vörur. Þess ber að geta að í ný- legii kðnnun Manneldisráðs kemur í Ijós að 16.8% allrar fitu í fæði koma að jafnaði úr kjöt- vörum. -HÞ Handhæg og aðgengileg handbók fyrir veiði- menn og aðra: Veiðiflakkarinn 1991 kominn út Út er komin handbókin Veiðiflakk- arinn 1991, sem spannar 44 veiði- svæði á landinu og segir frá flestu því, sem veiðimaðurínn þarf að vita áður en lagt er af stað í velheppnaða veiðiferð. Veiðiflakkarinn er ekki aðeins handhægt uppflettirít, held- ur einnig sniðugt sölukerfl fyrir veiðileyfí. í Veiðiflakkaranum eru sérhönnuð kort af hverju veiðisvæði og heildar- kort yfir þau öll. í handbókinni eru einnig ýmsar gagnlegar upplýsingar, s.s. hvaða veiði er að fá, veiðivon, meðalstærð, bestu veiðistaði, heppi- Iegustu beitu, verð og margt fleira. Ferðaþjónusta bænda gefur Veiði- flakkarann út. Bókin er seld í veiði- verslunum, bókaverslunum og á ferðaskrifstofum. Að sjálfsögðu er hún einnig til sölu hjá Ferðaþjón- ustu bænda og kostar þar 975 krón- ur. —SE marksafla á næsta fiskveiðiári ofar- lega á baugi. í ályktun frá fúndinum segir að stjórn SF telji að í tillögum Hafrannsóknarstofnunar gæti fúll mikillar varfæmi og væntir stjórnin þess að sjávarútvegsráðherra ákveði heildarafla hinna ýmsu fisktegunda af raunsæi og meti óvissuþætti rannsóknanna, sem að baki tillög- unum liggja, til rýmkunar veiði- heimilda svo sem frekast sé unnt. „Stjóm SF getur fallist á þau sjón- armið sjávarútvegsráðherra að Verðlagsráði sjávarútvegsins verði heimilað að ákvarða frjálst verð á einstökum fisktegundum með ein- földum meirihluta. Hins vegar telur stjóm SF ekki ráðlegt að slík ákvörðun sé tekin í yfirnefnd ráðs- ins. Verðlagsráð hefur enn um sinn því hlutverki að gegna að ákvarða verð á tegundum, sem ekki eru seldar um fiskmarkað, og að ákvarða lágmarks- eða viðmiðunar- verð á öðmm tegundum," segir í ályktuninni. Mörg fiskvinnslufyrirtæki standa nú höllum fæti vegna samkeppni við fiskvinnslu annarra þjóða um hráefni af fiskimiðum okkar, og slæmrar skuldastöðu vegna erfið- leika undanfarinna ára, segir í álykt- uninni. „Til að bæta greiðslustöðu greinarinnar og til að forða annars óhjákvæmilegri byggðaröskun leggur stjórn SF til að lánstími At- vinnutryggingasjóðslána verði lengdur til að létta greiðslubyrði þeirra. Sjóðnum verði meðal annars heimiluð skuldabréfaútgáfa á inn- lendum fjármagnsmarkaði til að standa undir fjármögnun í því skyni. Stjórn SF ítrekar tilmæli sín um að nú þegar verði skipuð nefnd til að endurskoða lög um Verðjöfnun- arsjóð sjávarútvegsins. Markmið breytinga á lögum um sjóðinn verði að tryggja þeim fyrirtækjum, sem greiða í sjóðinn, eignarhald á reikn- ingum sínum í sjóðnum. Breyting- um verði þannig háttað að þær raski ekki megintilgangi sjóðsins, sem er að draga úr áhrifum verðsveiflna á sjávarafúrðir á þjóðarbúskapinn og tryggja afkomu sjávarútvegsins fyrir markaðsáföllum." Þá segir ennfremur í ályktun stjórnar SF að hún leggi til að gerð- ar verði ráðstafanir til að efla rann- sóknar- og þróunarstarfsemi á sviði sjávarútvegs. Starfsemi rannsókn- arstofnana sjávarútvegsins verði efld og samstarf þeirra og sjávarút- vegsins styrkt, m.a. með virkari þátttöku sjávarútvegsins í stjómun þeirra. Á fundinum kom einnig fram að fiskvinnslan er nú rekin með 4% halla, sé miðað við 6% ávöxtun stofnfjár. Hún er hins vegar rekin með 5% halla miðað við 8% ávöxt- un stofnfjár, sem fiskvinnslumenn telja að sé eðlileg viðmiðun. —SE Aðstaða fyrir ferðalanga stórbætt á Egilsstöðum: ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI TEKIÐ í NOTKUN Á tjaldstæðinu við Kaupfélag Hér- aðsbúa á Egilsstöðum hefur að- stæða fyrir ferðalanga verið stór- lega bætt og er nú öll til fyrirmynd- ar. Þjónustuhúsnæði hefur verið tekið í notkun og þar með eru bygg- ingar á svæðinu orðnar u.þ.b. 155mJ. í þjónustuhúsnæðinu er að finna böð og snyrtingar, þvottavél, upplýs- Víða eru gatnaframkvæmdir: BESSASTAÐA- HREPPUR LÝKUR GATNAGERÐAR- FRAMKVÆMDUM Hreppsnefnd Bessastaðahrepps hefur ákveðið að ljúka gatna- gerðarframkvæmdum í hreppn- um á þessu ári. Nýlega var geng- ið frá samningum við verktaka- fyrirtækið Loftorku, og mun það sjá um að Ijúka þessum fram- kvæmdum sem staðið hafa yfir síðan árið 1986. Þessi áfangi mun kosta um 14 milljónir króna. Að honum loknum verða allar götur hreppsins lagðar bundnu slitlagi. I heild hafa gatna- og gangstéttafram- kvæmdir á vegum hreppsins kostað um 75 milljónir á núvirði frá því árið 1986. Næstu verkefni á vegum hreppsins er efna til samkeppni um uppbyggingu á miðbæjar- svæði. Ibúafjöldi sveitarfélagsins hefur vaxið mikið á síðustu ár- um. Árið 1990 fjölgaði íbúum um 14% frá árinu á undan. Núna búa í hreppnum um 1100 manns. -HÞ Gunnlaugur Kristjáns- son látinn Gunnlaugur Kristjánsson, aðstoð- arbankastjóri Landsbankans, !ést að- faranótt mánudags s.l. eftir stutta sjúkdómslegu. Hann var 62 ára að aldri. Gunnlaugur hóf störf í bókhalds- deild Landsbanka íslands árið 1953 og 1961 varð hann aðalbókari bank- ans og gegndi því starfi til 1. janúar 1970 er hann varð aðstoðarbanka- stjóri. Eftirlifandi kona Gunnlaugs er Hallgerður Sigurgeirsdóttir. Þau eignuðust tvo syni. ingamiðstöð, umferðarmiðstöð ásamt aðstöðu starfsmanna tjald- stæðis. í húsinu er jafnframt salur sem bæði notast sem biðsalur og setustofa fyrir gesti af svæðinu, t.d. til að borða nesti eða bíða af sér veð- ur. Gestum á tjaldstæðinu fer stöðugt fjölgandi og vom gistinætur á síð- asta ári tæplega 8000 og allt útlit er fyrir fjölgun á þessu ári. í sumar er unnið að aukinni þjónustu við þá ferðamenn sem ferðast með hús- vagna eða á húsbflum. T.a.m. er ver- ið að setja upp raftengla fyrir slík farartæki, ásamt því að verið er að koma upp búnaði til að tæma safn- tanka þeirra. Tjaldstæðið er rekið af Kaupfélagi Héraðsbúa og hefur fé- lagið kostað alla uppbyggingu á svæðinu án styrkja frá opinberum aðilum, ef frá eru taldar 100.000 krónur sem Ferðamálaráð veitti til uppbyggingar fyrri áfanga þjónustu- hússins. -sis Gunnlaugur Krístjánsson aðstoðarbankastjóri.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.