Tíminn - 23.07.1991, Blaðsíða 3

Tíminn - 23.07.1991, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 23. júlí 1991 tfminn 3 Verkalýðsforystan um hugmyndir fjármálaráðherra: Oskapa dónaskapur * +Pjármálaráðherra vill hóflega kjarasamninga til tveggja eða þriggja ára og fastgengisstefnu tengda Evrópumyntinni ECU. Verkalýðs- leiðtogar segja þetta óskapa dónaskap, óraunsæjar hugmyndir og vilja fá að vita hvað ráðherra á við með „hófsömum kjarasamning- um“. Priðrik Sophusson fjármálaráðherra lætur það álit sitt í Ijós í Morgunblaðinu nýlega að tenging krónunnar við Evrópumyntina ECU geti verið grundvöllur aðila vinnumarkaðarins til að ná „hóf- legum kjarasamningum til tveggja eða þriggja ára í haust“. Þetta segir Friðrik í sambandi við að „verðbólguvofan" sé á næsta leiti og álítur að aðilar vinnumarkaðar- ins muni vera fylgjandi „gengis- festu“ eins og ríkisstjómin, og þess vegna sé athugandi hvort tengja eigi krónuna við Evrópumyntina ECU. í greininni viðrar fjármálaráðherra ýmsar skoðanir sínar á ríkisfjármál- um og fyrirhuguðum kjarasamning- um í haust. Friðrik segir að hér verði hagvöxtur minni en enginn meðan hann sé viðunandi í öðrum löndum, og því verði erfitt að bæta afkomu heimilanna. Þá bætir hann því við að fyrirsjáanlega verði halli ríkissjóðs um 7 til 8 milljarðar á þessu ári. Þá segir Friðrik að fyrstu drög að fjárlögum næsta árs geri jafnvel ráð fyrir yfír 20 milljarða króna halla. FRIÐRIK OG SÁLMURINN „Óskapa dónaskapur er þetta," varð Guðmundi J. Guðmundssyni, for- manni Dagsbrúnar, að orði um um- mæli Friðriks um hugsanlega hóf- lega kjarasamninga til tveggja eða þriggja ára. „Friðrik virðist hafa gleymt sálminum um blómið, sem hann söng á liðnu vori um hækkun kaupmáttar," segir Guðmundur. Þá velti Guðmundur því fyrir sér hvort Friðrik lifði í fílabeinstumi eða hvort þetta væri bara einhver skylduáróður í honum. „Það er hægt að svara þessum hug- myndum Friðriks mjög stuttlega. Kaupmáttur launafólks lækkaði á árunum 1988 og 1989 um 15%. Þjóðarsáttarsamningarnir voru gerðir til að stöðva þetta kaupmátt- arhrap. Það má segja að það hafi tek- ist að mestu. Meginstefið var, að þegar lokið væri við að stöðva verð- bólguna og festa í verðlagi væri komin á, þá sköpuðust möguleikar til að auka kaupmátt," segir Guð- mundur. Hann bætir því við að Frið- rik Sophusson hafi sungið hástöfum með öðrum fyrir kosningar að það yrði að auka kaupmátt þeirra lægst launuðu. Nú segir Guðmundur að hugmyndir Friðriks þýði að mark- mið þjóðarsáttarsamninganna eigi að færa aftur um 2 til 3 ár með minni kaupmætti en var. Guðmund- ur segir Friðrik hafa átt sæti í bankaráði Landsbankans og hafi all- an þann tíma lagt í sífellu til hærri vexti, en sem betur fer segir Guð- mundur hann lengstum hafa verið í minnihluta. Hann segir Friðrik hafa barist fyrir því mánaðarlega, þjóðar- sáttarsamningatímann, að vextir yrðu hækkaðir. Við það segir Guð- mundur að vextirnir hefðu farið beint út í verðlagið og hækkað það og gert atvinnurekstrinum erfiðara fyrir við að mæta auknum kaup- mætti. „Það er ekkert í vanda þjóð- arbúsins, sem Friðrik vissi ekki fyrir þegar hann var í stjómarandstöðu. Friðrik talaði um að auka ríkisút- gjöld, en talar nú um að skera niður. „Hann fer dálítið út af laginu í Sálm- inum um blómið," sagði Guðmund- ur að lokum. HVAÐ ERU HÓFSAMAR KAUP- HÆKKANIR? „Það er Ijóst að fjármálaráðherra hyggst stuðla að stöðugu gengi og ekki fara út á þá braut að rýra kaup- mátt með gengisfellingum, eins og tíðkaðist hér á árum áður. Hann lætur í ljós þá von að stöðugt gengi muni leiða til þess að samið verði á hófsömum nótum til tveggja þriggja ára,“ segir Ögmundur Jónasson, for- maður BSRB. Hann bætir við að við þetta vakni tvær spumingar. í fyrsta lagi spyr hann hvað séu hófsamar kauphækkanir fyrir fólk með 50 til 60 þúsund króna laun á mánuði. í öðm lagi segir Ögmundur að þegar hugað sé að lengd samningstímans, þá ráðist samningar af þeim trygg- ingum sem verkalýðshreyfingunni tekst að fá inn í þá. Þessum spurn- ingum segir Ögmundur að verði ekki svarað nema við samninga- borðið. Ögmundur gerir athugasemdir við ummæli fjármálaráherra um að hver hugsandi maður sjái að við nú- verandi aðstæður ríkisfjármála sé erfitt að bæta afkomu heimilanna. Ögmundur segir þetta vera rangt. Hann spyr á móti hvaða heimili sé verið að tala um. Ögmundur segir sum heimili búa við slíka afkomu að hún þurfi ekki að batna, því þau hafi tekið jafnvel of mikið til sín. Hann álítur að önnur heimili þurfi stór- bætta afkomu. Þannig segir Ög- mundur að áherslan hljóti að vera á aðra tekjuskiptingu í þjóðfélaginu en nú er. í þessu ljósi segir Ögmund- ur fullyrðinguna vera ranga. „Fólk mun ekki sætta sig við annað í komandi kjarasamningum en auk- inn kaupmátt kauptaxta og kaup- máttartryggingu," sagði Ögmundur að lokum. OF STÓRFELLDAR SVEIFLUR „Ég held að það sé óraunsæi að ímynda sér að það sé hægt að festa gengi íslensku krónunnar ófrávíkj- anlega við ECU eða einhverja aðra rnynt," segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASI. Hann segir að sveiflurn- ar í íslenskum sjávarútvegi séu of stórfelldar til að þetta gæti mögu- lega gengið. Ásmund minnir að í síðustu OECD- skýrslu sé greinar- gerð um þetta. Þar segir hann sér- fræðinga OECD komast að þeirri niðurstöðu að tenging krónunnar við ECU sé óraunhæf. Ásmundur segist ekki koma auga á hvernig þessi tenging við ECU eigi að ráða úrslitum um það til hve langs tíma eigi að semja. Um minnkandi hagvöxt segir Ás- Á útgáfudegi bókarinnar var Karli Ragnars, forstjóra Bifreiðaskoðunar fslands, afhent fyrsta eintakið tii skoðunar. Með Karli á myndinni er fulltrúi útgáfunnar, Guðrún Elísabet Árnadóttir. Bók um ný bflnúmer Komin er út nýstárleg bók til skemmtunar ökumönnum og ferðafólki á vegum landsins. Bókin fjallar um nýju bílnúmerin. „Gagnstætt gamla númerakerfinu hafa bókstafimir á nýju númerun- um enga merkingu frá hendi út- gefanda. Tveir bókstafir saman hafa hins vegar merkingu á ýms- um sviðum, t.d. sem orð, skamm- stafanir og tákn í íslensku og öðr- um tungumálum. Ennfremur sem tákn í vísindum, viðskiptum, fjar- skiptum, samgöngum og fleira,“ segir í fréttatilkynningu útgef- anda. „í Bókinni um bílnúmerin er safnað saman um 1200 slíkum þekkingarbrotum. Má nota bókina sem dægradvöl í ökuferðum eða til spurningaleikja og minnisæfinga við öll tækifæri." Bókin fæst á bensínstöðvum og í almennum bókabúðum. mundur að horfa verði til þess, hvað tókst í hagvexti á undangengnum árum í þeirri óðaverðbólgu sem þá ríkti. Hann álítur að sá stöðugleiki, sem við höfum búið við síðasta hálft annað ár, ætti að gefa okkur for- sendur til að ná árangri í hagvexti. Ásmundur segir að eitt grundvall- aratriði þjóðarsáttarsamninganna svokölluðu hafi verið að hér héldist stöðugleiki og atvinnulífið stæði traustum fótum. Hann álítur því að eðlilegt sé að menn búist við aukn- um kaupmætti eftir að hafa búið við þennan stöðugleika í næstum tvö ár. Aðspurður um hvort til tíðinda gæti dregið á vinnumarkaði í haust sagði Ásmundur: „Við verðum að bíða haustsins.“ -HÞ Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, segir: „FULLYRÐINGAR UM 0FBELDISÖLDU í MIDBORGINNI ERU RANGAR" Böðvar Bragason, lögrcglu- stjóri í Reykjavík, segir að tind- anfarið hafí átt sér stað viðræð- ur við fulltrúa borgarinnar, sem miði fyrst og fremst að því að koma í veg fyrir meiðingar í miðbæ Reykjavíkur um heigar. Böðvar niinnir á það að fðlk hefur rétt tfl þess að safnast saman, ef það hagar sér sóma- samlega. Starf lögreglunnar er hins vegar að koma í veg fyrir að fólk verði fyrir meiðingum. Lfig- reglan reynir einnig að sjá tfl þess að fólk komi sér heim á skikkanlegum tíma. Tíl þess að vinna að þessum markmiðum hefur iögreglan sett á blað nokkur atriði sem send voru borgarstjóra í gær- morgun, en borgarstjóri og lög- reglustjóri áttu fund í gær um ástandið í miðbænum um helg- ar. Þar á meðaJ er tillaga um að gera meira af því að taka unga sem gamla fyrr úr umferð, sem eru með iilindi og ólæti og eru drukknir. Þetta fólk verður fært á lögreglustöð. Ef um unglinga er að ræða, þá verður reynt að hafa samband við foreldra þeirra. Síðan viljum vlð að reyna að auka það, að taka á þekktum ribbðldum og misindismönnum fvrr en gert hefur verið til þessa. Ákveðinn hópur fólks sækir sér þá skemmtun í miðborgina að lemja fólk. Síðan erum við með nokkur at- riði, sem við vildum að fulltrúar borgarinnar hugleiði með okkur. Þar er efst á blaðl sú gamla ósk lögreglunnar, að borgin tak- marki sölutíma pylsuvagna og söluopa, þannig að þeim verði lokað kl. 1.00 að nóttu um helg- ar. Lfigreglan vill stytta viðver- una t bænum hjá fólki sem kem- ur út af veitingahúsum. Eins og er loka þessir aðilar kl. 4.00 á nóttinni. Það telur lögreglan óviðunandi. Einnig er brýnt að fá lelgubfl- stjóra tfl þess að skipuleggja sína flutninga í borginni á þess- um tíma betur en nú er. Það er mikið kvartað yfir því að fóik fái ekki leigubfla til þess að komast heim. Það hafa verið viðræður við leigubflastfiðvarnar og aðra um þetta. Auk þess er mikflvægt að fysing í miðborginni verði bætt. Það er f gangi samvinna mflli lögreglunnar og borgarinn- ar, í svokallaðri samstarfsnefnd. Þar sitja tveir borgarfufltrúar og skrifstofustjóri borgarinnar ásamt fulltrúum lögreglu. Lfig- reglan óskar einnig eftír aðstoð borgarinnar við að setja upp nokkrar sjónvarpsmyndavélar á þessu svæði, tfl þess að auðvelda henni að grípa inn L Böðvar telur að það sé hoflt fyr- ir alla að átta sig á því að mið- borgin er miðpunktur skemmt- analífsins í Reykjavik og hugs- anlega nágrannasveitarfélag- anna líka. I miðborginni eru 19 skemmtistaðir sem hafa vínveit- ingaleyfi og eru opnir til Id. 3.00. Á þessum stöðum mega löglega vera inni á 5 þúsund manns. Að auki eru 13 matstað- ir f miðborginni og þeir hafa sæti fyrir rúmlega 1 þúsund manns. Bððvar varpar þvf fram að menn hugleiði það hvaða af- leiðingar það hefur, að þúsundir manna koma út af vínveitínga- stööum kl, 3 á nóttunni. Hann segir að í rauninni sé ráð- leggingin tfl fólks aðeins ein, „að menn bæti framkomu sína og þá helst með því að drekka minna“. Böðvar telur undanfarandi helgar hafa verlö afbrigöilegar vegna veðurfars og góðra skfl- yrða tíl þess að halda sig utan- dyra að næturlagL Hann segist hafa farlð fram á það fyrir ali- löngu að fá 20 manna aukningu í liðið, sem færi þá til almennrar löggæslu. Böðvar telur fullyrðingar manna um að ofbeldisalda gangi yfir miðborgina, vera rangar. Það er verið að leggja sfðustu hfind á mjög góða skýrslu um þetta efni, eftir Guðmund Guð- jónsson yfirlögregluþjón. Þar kemur fram að aukning mflli ár- anna 1989 og 1990 er 3% í meiri- og minniháttar líkams- meiðlngum. Þar af hefur alvar- legum líkamsmeiðingamálum fækkað um 23%. Þannig að þessi söngur um ofbeidisfiidu er ekki studdur nægjanlega góðum rökum. Þetta ber að harma, því það er auðvelt að æsa upp og eyðileggja marga hlutí, segir lögreglustjóri að lokum. Ekki náðist tíi borgarstjórans f Reykjavík. •j*

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.