Tíminn - 23.07.1991, Síða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 23. júlí 1991
■RI ÚTLÖND
Fréttayfirlit
Ráðherra íhugar afsögn vegna
fjárframlaga til Inkataflokksins:
ANC vill opin-
bera rannsókn
Afríska þjóðarráðið (ANC) krafðist í
gær að gerð yrði opinber rannsókn
á leynilegum fjárframlögum lög-
reglunnar til Inkataflokks Zúlu-
manna, helstu andstæðinga ANC
meðal blökkumanna, og sagði að af-
sögn Adríaans Vlok, ráðherra reglu
og laga, nægði ekki. Vlok bauðst á
sunnudagskvöld til þess að segja af
sér, eftir að upp komst um fjár-
framlag lögreglunnar, sem nam
rúmlega þrjátíu milljónum króna á
sex ára tímabili.
Mestur hluti fjárins rann til verka-
lýðsfélags sem er tengt Inkatafrels-
ishreyfingunni.
Ríkisstjórn F.W. de Klerks hóf
tveggja daga fund í gær og munu
fjárframlögin til Inkatafrelsishreyf-
ingarinnar að öllum líkindum verða
ríkjandi umræðuefni á fundunum.
Þetta er eitt erfiðasta mál, sem De
Klerk hefur staðið frammi fyrir síð-
an hann hóf viðræður við blökku-
menn um framtíð landsins og afnám
kynþáttaaðskilnaðarstefnunnar í
febrúar á síðasta ári.
Tálsmaður ANC, Gill Marcus, sagði
í gær að afsögn Vloks mundi ein og
sér ekki nægja til að binda enda á
þetta mál. Hann sagði að stjórnin
hefði fjárhæð, sem svaraði til átta
milljarða ísl. kr., í mútusjóðum, sem
notaðir væru til að fjármagna ýmsar
„spilltar aðgerðir". Hann sagði að
ANC-samtökin vildu að fram færi
opinber rannsókn á öllum styrkveit-
ingum stjórnvalda til svokallaðra
leynilegra aðgerða, þ.á m. til árásar-
sveita og samtaka eins og Inkata-
flokksins. Marcus sagði að einnig
þyrfti að rannsaka störf varnarmála-
ráðherrans og utanríkisráðherrans.
Vlok hefúr neitað að fjárframlög
lögreglunnar til Inkataflokksins hafi
verið ætluð til þess að efla mótstöðu
samtakanna gegn ANC. „Ef ég virka
sem hemill á samningaviðræðurnar
og framtíð landsins mun ég endur-
skoða stöðu mína... Ég er að endur-
skoða stöðu mína núna,“ sagði Vlok
í fjörugum sjónvarpsumræðum á
sunnudagskvöld.
Dagblöð í Suður-Afríku, líka þau
sem að jafnaði styðja stjórnina,
lögðu í gær hart að De Klerk að gera
hreint fyrir sínum dyrum.
Reuter-SÞJ
isins.
LUNDÚNIR - Salman Rushdie,
sem skrifaði trúar- og ádeilubók-
ina „Söngvar Satans“, mun að
sögn vina biðja Hosni Mubarak,
forseta Egyptalands, um aðstoð
við að koma á sáttum miHi sín og
músiima.
ISLAMABAD - Yfirmaður í pak-
istanska hemum sagði í gær að
stríð gæti brotist út mllli Indverja
og Pakistana vegna Kasmfr-hér-
aðsins á Indiandi. Pakistan ræð-
ur yfir einum þriðja hluta Kasmír,
en Indland yfir tveimur þriðju.
Múslimar í indverska hlutanum
berjast fyrir sjálfetæði hans eða
sameiningu við Pakistan, sem er
islamskt riki. Yfirmaðurinn sagði
að stuðnlngur vlð barátiu mús-
MOSKVA - Sovéskir kommúnistar fordæmdu i gær þá ákvörðun Bor- lima feeri vaxandi og hann óttast
sar Jeltsin, fbrseta Rússlands, að banna með tilskipun seliur kommún- í örvæntingu sinni geti Indverj-
istaflokksins í verksmiöjum og stofriunum lýðveldisins. En seilumar ar ráðist á Pakistan. IncBand og
stuðluðu eitt sinn að yfirráðum flokksins yfir iðnaðinum. Þeir sögðu að Pakistan hafa þrisvar sinnum
aðgerð Jeltsins brytl I bága við stjómarskrána og rétt manna til að hafa báð strið síðan löndin féngu sjálf-
eigin stjómmálaskoðanir. Engin viðbrögð komu frá Gorbatsjov Sovét- stseði og tvisvar sinnum um Ka-
forseta, semreynirnúaðkomaívegfyrirkommúnistafiokkurinnklofni. smír- Reuter-SÞJ
(sraelsmenn svara tillögum Bandaríkjamanna um friðarráðstefnu innan fárra daga:
Baker býst viö
MANILA - Feliibyiurinn Brendan
kom af stað mildum aurskriðum í
Pinatubo-eldljallinu á Filippseyj-
um I gær, og kaffærðu þær nokk-
ur þotp við rætur fjallsins. Einn
maður lést og um fjögur þúsund
manns einangruðust, að sögn fil-
ippeyskra embættismanna. T gær
varfertugasti og fjórði dagur eld-
gossins í Pinatubo, en eldijallið
haföi ekki gosið í sex hundruð ár
þegar gos hófet I þvi í byrjun júní.
BONN - Fyrrum yfirmaður þess
jákvæðu
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
hann vonaðist til að ísraelsmenn
myndu fljótlega samþykkja til-
lögur Bandaríkjamanna um frið-
arráðstefnu milli Araba og ísra-
elsmanna og hann skoraði á þá
að nýta sér þetta „sögulega tæki-
færi“. Taismaður Yitzhaks
Shamir, forsætisráðherra ísra-
eis, sagði að svars væri að vænta
innan fárra daga. „Baker var ...
varfærinn þegar hann setti enga
ákveðna dagsetningu... en við
getum sagt að við séum að tala
um daga en ekki vikur,“ sagði
Avi Pazner, talsmaður Shamirs.
svari
Shamir sagði á ríkisstjórnarfundi
eftir að Baker var farinn frá ísrael, að
Bandaríkjamenn teldu að afstaða
Sýrlendinga hefði tekið stakkaskipt-
um og að af friðarráðstefnu gæti orð-
ið fýrir október næstkomandi, að
sögn ísraelska útvarpsins. Innanrík-
isráðherrann sagði að loknum ríkis-
stjórnarfundinum að Shamir, sem
venjulega er þungbúinn, hafi verið
bjartsýnn á ríkisstjómarfundinum.
Baker sagði að loknum viðræðum
sínum við Shamir og nokkra hátt-
setta ráðherra í ríkisstjórn hans, að
hann byggist fljótlega við svari frá
ísraelsmönnum um tillögur Banda-
ríkjamanna. „Forsætisráðherrann
gaf í skyn að hann myndi gefa fljót-
lega svar við tillögum okkar. Ég er
ánægður með að hann og ráðherrar
hans ætli að íhuga stöðu sína og til-
lögur okkar vandlega og ég hlakka
vongóður til að heyra frá þeim,“
sagði Baker við fréttamenn.
James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels.
Baker sagði að ísraelsmenn hefðu
nú sögulegt tækifæri á að hefja bein-
ar friðarviðræður við nágrannaríki
sín, en það hafi staðið til í 43 ár.
Baker sagði að hann hefði ekki á
prjónunum að snúa aftur til svæðis-
ins, en það væri þó komið undir því
hvert svar ísraelsmanna yrði.
Embættismenn Frelsissamtaka Pal-
estínu (PLO) ræða nú við stjórnvöld í
Egyptalandi, Sýrlandi og Jórdaníu
um tillögur Bandaríkjamanna um
friðarráðstefriu Araba og ísraels-
manna. Tálsmaður PLO sagði í sam-
tali við Reuter- fréttastofuna í gær að
fúlitrúar úr framkvæmdanefnd sam-
takanna væru nú að ræða við stjóm-
völd í þessum löndum. PLO hefur
ekki verið boðið að ræða við Baker,
en hann ræddi við þrjá Palestínuar-
aba í Jerúsalem á sunnudag.
Reuter-SÞJ
hluta austur-þýsku leyniþjónust-
unnar, sem sá um njósnir f er-
lendum ríkjum, Wemer Gnoss-
man, hefur verið ákærður fyrir
landráð vegna þeirrar njósna-
starfeemi sem hann stjómaði f
Vestur-Þýskalandi, að sögn
þýska ríWssaksóknarans í gær.
ALGEIRSBORG - Sld Ahmed
Ghozali, forsætisráðherra Alsirs,
gerði nokkrar breytingar á stjóm
sinni og skipaði nýja menn f ýms-
ar mikih/ægar stjómunarstöður á
nýafstaöinni helgi. Ghozali leiðir
óháða bráðabirgðastjóm, sem
komið var á fót til að undirbúa
þingkosningar slöar á þessu ári.
Upphaflega áttu kosningamar að
fara fram f júni, en vegna mikilla
óeirða múslimskra heittrúar-
manna varð að fresta þeim. Litið
var á aögerðir Ghozalis sem til-
raun tfl að sýnast óháður Þjóð-
frelsisflokknum (FLN), sem farið
hefur með stjóm landsins frá því
það fékk sjálfetæði 1961. Chadli
Benjedid, forseti landsins, sagði
af sérformennsku FLN í lokjúnf,
til að leggja áhersiu á að hann
væri forseti allra landsmanna.
KÚVEITBORG - Bandaríski
hershöiðinginn, Norman
Schwarzkopf, sem ieiddi tjöl-
þjóðaiiðið til sigurs gegn írökum í
Persaflóastrlðinu, var í gær
sæmdur æðstu orðu furstadæm-
Átök Króata og
Serba í Króatíu í
Júgóslavíu:
A.m.k. tólf
féllu í gær
Að minnsta kosti tólf menn, tíu
króatískir Iögreglumenn og tveir
borgarar, létust í hörðum bardög-
um í Króatíu í gær og leiðtogar
Júgóslavfu sögðust óttast að hið
versta gæti gerst, ef friðarviðræð-
umar, sem stóð til að halda síðdeg-
is, yrðu árangurslausar.
Tánjug-fréttastofan sagði að harðir
skotbardagar hefðu blossað upp í
gærmorgun í bænum Mirkovci í
austurhluta Króatíu, 120 kflómetra
norðvestur af Belgrad, og tólf menn
hefðu látið lífið. Útvarpið í Króatíu
sagði að herþotur sambandshersins
og króatískir þjóðvarðliðar hefðu
skipst á skotum í bænum Vinkovci,
en upplýsingar um manntjón voru
ekki á reiðu.
Svo virðist sem bardagarnir í gær
hafi verið þeir hörðustu frá því að
serbneskir þjóðernissinnar í Króatíu
gripu tii vopna til að berjast gegn
sjálfstæði lýðveldisins. Bardagarnir
vörpuðu skugga á friðarviðræðurn-
ar, sem gengið hafa brösuglega til
þessa, en til stóð að halda friðarvið-
ræður síðdegis í gær með þátttöku
leiðtoga lýðveldanna sex, forseta-
ráðs Júgóslavíu og annarra helstu
leiðtoga Júgóslavíu. Viðræðurnar
áttu að fara fram í Ohrid í suður-
hluta lýðveldisins Makedóníu.
Átökin í gær, sem fylgdu í kjölfar
mikilla átaka yfir helgina, vekja að
nýju upp efasemdir um hvort stjórn-
málamennirnir geti í raun og veru
stöðvað átökin. Með þeim, sem lét-
ust í gær, hafa a.m.k. 26 menn Iátist
í átökunum síðan á föstudag, og 64
ef öll síðasta vika er tekin með.
Reuter-SÞJ