Tíminn - 23.07.1991, Blaðsíða 13

Tíminn - 23.07.1991, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 23. júlí 1991 REYKJAUIK Sumarferð framsoknarmanna Fiallabaksleið nyrðri - Landmannalauear - Eldgjá Sumarferð framsóknarmanna í Revkiavík verður farin lauaardaainn 27. iúlí n.k. Lagf verður af sfað frá BSÍ kL 8.00. Ekin verður Dómadalsleið. Uið Landmannafíelli mun Sfeinerimur Hermannsson ávarpa ferðalanea um leið oa beir snæða nesfi sitf. Á Herðu* steinerímur breiðarháisi ofi í EldSiá mun Jón Hermannsson Jónsson iarðfræðinaur lýsa bví sem fyrir aufiu ber. Áæflað er að koma til ReykJavíkur aftur kl. 22.00. Farfiiald er kr. 2600 fyrir fullorðna en kr. 1400 fcíiir börn ynfiri en 12 ára. Skráið ykkur sem alíra fyrst í síma 624480, Því sæfafiöldi er í>ví Jón Jónsson miður takmarkaður. Fulltrúaráðið Sumarhappdrætti Framsókn- arflokksins 1991 Dregið var í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 12. júlí sl., en númerin eru í innsigli hjá Borgarfógeta til 5. ágúst 1991. Vel- unnarar flokksins, sem ekki hafa greitt heimsendan gíróseðil, eru hvattir til að gera skil eigi síðar en 5. ágúst. Það er enn tækifæri til að vera með. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokks- ins, Hafnarstræti 20, III. hæð, eða í síma 91-624480. Framsóknarflokkurinn. Suöurland Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suður- landi, Eyrarvegi 15, Selfossi, verður opin á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 15-17. Simi 98-22547. Félagar hvattir til að líta inn. KSFS Héraðsmót framsóknarmanna, Vestur-Skaftafellssýslu verður haldið í Tunguseli laugardaginn 27. júlí og hefst kl. 23,00. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi. Stjómin. BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMl 26102 Kynning á tillögu að Aðalskipu- lagi Reykjavíkur 1990-2010 Þriðjudaginn 30. júlí kl. 16.30 kynna starfsmenn Borgarskipulags og Borgarverkfræðings tillögu að nýju aðalskipulagi fyrir Reykjavík. Kynningin fer fram á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgar- túni 3 á 4. hæð. Sýning á skipulagstillögunni er á sama stað og stendur til 31. júlí n.k. Frestur til athugasemda er til 8. ágúst. Borgarskipulag Reykjavíkur Tíminn 13 SPEGILL Unga tennis- stjarnan Monica Seles Tennisstjarnan Monica Seles segir að sér þyki mest gaman að versla, þegar hún er ekki að spila tennis. Einnig finnst henni gaman að klæða sig í fín föt, sem hún kaupir á ferðalögum sínum um heiminn. Monica elskar að láta taka af sér myndir og hefur hún þegar prófað fyrirsætu- störf. Árið 1985 fluttist Monica frá Júgóslav- íu til Bandaríkjanna ásamt fjölskyldu sinni og búa þau í Florida. Hún segir það vera mjög þægilegt að búa í Banda- ríkjunum, en þó vanti þar eitthvað. Hún segist vel geta hugsað sér að búa í Ástralíu 5 mánuði á ári, 4 mánuði í Bandaríkjunum, 2 til 3 í Evrópu og þá 1 mánuð í Japan. Monica gerði nýlega samning við bandaríska hárgreiðslu- og snyrtifyr- irtækið „Matrix Essentials". Þar var hárið á henni klippt og fyrir það fékk hún 350.000 pund. Bróðir hennar, Zoltan, sér um fjármál hennar, en pabbi hennar er í fullu starfi við að þjálfa hana í tennisíþróttinni. Monica segir að það sé erfitt að halda í vinina heima í Sarasota í Florida, þegar hún sé alltaf á ferðalögum. „Þeir sjá mig í sjón- varpinu, lesa um mig og heyra hversu mikið ég þéna,“ segir hún. Monica er nú 17 ára og segist vita það að hún geti ekki spilað tennis að eilífu. Hún heldur að um 25 ára aldur verði tennis- ferli hennar endanlega lokið. Hvað taki þá við segir hún óráðið, því möguleikarnir séu margir. Hún hefur sótt tíma í leiklist og segir það vel koma til greina að fara í háskóla þegar tennisferillinn sé á enda. Monicu Seles þykir mjög gaman aö klæðast fínum fötum og stilla sér upp fyrir Ijósmyndara. Tveir mánuóir frá dauða móður Sophiu Loren: S0PHIA S0RGMÆDD Stór sólgleraugun hylja ekki sorgarsvipinn á andliti Sop- hiu. Svo virðist sem það muni taka Sophiu Loren langan tíma að jafna sig eftir dauða móður sinnar. Sophia var við að tárfella, og stór sólgleraugun földu ekki sorgarsvipinn á henni, þegar hún kom í kirkjugarðinn í Róm þar sem móðir hennar hvílir. Hún gekk hægum skrefum að legsteininum, lagði blóm á gröf móðurinnar sem Sophia segir að hafí svo mörgum sinnum hvatt hana til dáða og hjálpað henni á erfiðum tímum og not- að alla sína krafta til að gera hana að stjörnu. Eftir að hafa lagt blóm á gröfina dvaldi hún við nokkra stund í þögulli bæn. Þegar móðir hinnar fögru ítölsku leikkonu kvaddi þennan heim, þann 11. maí sl., missti Sophia ekki aðeins bestu vin- konu sína, heldur einnig þá manneskju sem hún mat mest allra. Jafnvel þótt eiginmaður hennar, Carlo Ponti, og synir þeirra tveir geri allt sem í þeirra valdi stendur til að gera henni sorgina léttbærari, kemur ekk- ert í stað móður hennar. Leikkonan leggur blóm á leiði móður sinnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.