Tíminn - 10.09.1991, Qupperneq 3

Tíminn - 10.09.1991, Qupperneq 3
Þriðjudagur 10. september 1991 Tíminn 3 Forystumenn samtaka innan VMSÍ ævareiðir Karli Steinari Guðnasyni. Halldór Björnsson, varaformaður Dagsbrúnar: FLOKKAPOLITIKIN ER HJÁ KARLI STEINARI „Það sér hver heilvita maður að eftir því sem fleira kemur í Ijós af ákvörðunum stjórnvalda, þá verður erfiðara að standa við ákvæði þjóðarsáttarsamninga um aukinn kaupmátt á næsta samningstíma- bili. Með þessari tillögu erum við fyrst og fremst að benda á það. Ég mótmæli því harðlega að með henni sé um einhveijar pólitískar of- sóknir að ræða. Það er einfaldlega misskilningur hjá Karli Steinari Guðnasyni,“ segir Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkalýðsfé- lagsins Jökuls á Höfn. Bjöm vísar á bug ummælum Karls Steinars Guðnasonar, starfandi for- manns Verkamannasambandsins, um að samþykkt ályktunar fram- kvæmdastjómar VMSf í Borgamesi um helgina sé pólitísk stjómarand- stöðuaðgerð til að koma höggi á Al- þýðuflokksmenn í framkvæmda- stjóminni. Tillagan, sem styrinn stendur um, er þessi: „Fundur framkvæmdastjómar Verkamannasambandsins, haldinn í Borgamesi 8. september, mótmælir harðlega áformum ríkisstjómarinn- ar sem fram komu í fréttatíma ríkis- útvarpsins í gær um auknar álögur og hækkun á þjónustugjöldum ásamt því að niðurgreiðslur land- búnaðarvaraverði lækkaðar. Öll þessi áform munu gera samn- ingsgerð erfiðari og rýra möguleika til þess að hægt verði að gera kjara- samning sem byggi á þeim grunni sem síðasti kjarasamningur lagði. Verkamannasambandið varar við al- varlegum afleiðingum þeirra áforma sem lýsa sér í hugmyndum ríkis- stjómarinnar um næstu fjárlaga- gerð, þar sem gjaldtaka á almenning erverulegaaukin." Ályktunin hefur valdið titringi inn- an VMSÍ, en Karl Steinar Guðnason, starfandi formaður VMSÍ í veikinda- forföllum Guðmundar J. Guðmunds- sonar, segir að samþykkt hennar sé flokkspólitísk stjómarandstöðuað- gerð. Hún hafi komið fram í lok fundarins. Hún sé unnin samkvæmt vinnubrögðum sem tíðkuðust í hreyfingunni fyrir áratugum. Með þessu sé komið aftan að ýmsum í framkvæmdastjóminni og það mis- líki honum. Hins vegar skilji hann þær tilfinningar sem fram komi í til- lögunni. En hvað segir flutnings- maður tillögunnar, Bjöm Grétar Sveinsson, formaður Jökuls á Höfh? „Fundurinn var vinnufundur, en ályktunartillagan var gerð í kjölfar útvarpsfrétta af áformum stjómvalda um gjaldtökur og minni niður- greiðslur landbúnaðarafurða, o.fl.“ Bjöm sagði að ályktunin væri fylli- lega í samræmi við það sem VMSÍ hefur verið að gera á þjóðarsáttar- tfmabilinu. Verkamannasambandið hefði verið í fararbroddi með að halda málum í því horfi sem um var samið, bæði í tíð fyrrverandi og núverandi ríkisstjómar. ,J>að er rétt að fomaður fjárhags- nefndar Alþingis er ekki sáttur við ályktunina. Við emm hins vegar ekk- ert að gera neitt annað með þessari tíllögu en við höfum verið að gera allt þjóðarsáttartímabilið. Nú emm við að undirbúa kjarasamninga og höf- um bent á að næsta skref skuli vera, eins og kveðið er á um í þjóðarsáttar- samningunum, að auka kaupmátt og millifæra ákveðna ftármuni í þjóðfé- laginu," segir Bjöm Grétar. Iframkvæmdastjóm VMSÍ sitja níu manns og af þeim em tveir flokks- bundnir í Alþýðuflokki, þau Guðríð- Karl Steinar Guðnason. ur Elíasdóttir og Karítas Pálsdóttir, en að sögn eins af stjómarmönnum í framkvæmdastjóminni studdu þær báðar tillöguna í orði og greiddu henni atkvæði. Bjöm Grétar sagðist í gær ekki sjá hvemig Karl Steinar gæti verið með fullyrðingar um pólitískar aðgerðir stjómarandstæðinga í þessu sam- bandi og sagði: „Eg vænti þess að Karl Steinar skýri sjálfur frá því hvemig atkvæðagreiðslan fór, fyrst hann leggur málin upp með þessum hætti. Eg vil einnig mótmæla þess- um Ieiða misskilningi Karls Stein- ars. „Sex stjómarmenn greiddu atkvæði með tillögunni. Enginn var á móti og þrír sátu hjá. Það segir sína sögu,“ segir Halldór Bjömsson, varaformað- ur Dagsbrúnar. Halldór harmar að málið skyldi hafa þróast með þessum hætti. Hann seg- ir að það hefði litið ansi ankannalega út í augum félagsmanna verkalýðs- hreyfingarinnar ef framkvæmda- stjómin hefði ekkert ályktað um fyr- irætlanir stjómvalda, sem ályktunin Halldór Björnsson. tekur á. „Ég man ekki betur en ffarn- kvæmdastjóm VMSÍ hafi ályktað varðandi þjóðarsáttarsamninga þeg- ar henni fannst fara úr böndum það sem þar var lofað. Þá minntist eng- inn á flokkspólitík. í sjálfu sér veit ég ekki hvemig menn hugsa, en í spor- um Karls Steinars hefði ég látið duga að lýsa yfir því að ég tæki ekki þátt í afgreiðslu málsins. Allir þeir, sem taka alvarlega sitt starf í forystusveit launþegahreyfing- arinnar, hljóta að hrökkva við þegar á að draga úr framlögum til landbún- aðarins upp á 1900 milljónir króna. Hvaðan á að taka það fé nema af neyt- endum vörunnar?“ sagði Halldór. Halldór sagði að þessi uppákoma af hálfu Karls Steinars væri ódrengileg gagnvart félögum hans í fram- kvæmdastjóm. Engum hefði til hug- ar komið að leggja til Karls Steinars með tillögunni. Verkalýðshreyfing- unni lægi nú á að standa sameinuð þegar samningar væru að losna. „Maður er fyrst og fremst sár og reið- ur vegna þessarar framkomu Karls Steinars. Við hljótum að þurfa að Bjöm Grótar Sveinsson. fylgjast með aðgerðum stjómvalda. Manni sýnist hlutimir ekki vera í heppilegum farvegi fyrir launafólk. Nú síðast lét forsætisráðherra í veðri vaka að litlu skipti þótt tugir sjávar- útvegsfyrirtækja færu á hausinn. Ég á von á því að fyrir dymm standi mjög erfiðir samningar og að hreyf- ingin þurfi að vera mjög samhuga. Einstakir forystumenn virðast ekki ætla að vera alveg samstíga við hina sem eru að vinna að bættum kjörum fólks. Sé hægt að saka einhvem um flokkspólitíska afstöðu í þessu máli þá er það Karl Steinar. Afstaða hans, sem þama kom fram var flokkspólit- ísk, en ekki stéttarlega fagleg." Bjöm Grétar Sveinsson sagði að framkvæmdastjóm VMSÍ væri aðeins að vinna þau verk sem verkafólk í Iandinu hefði falið henni. Þetta dæmi nú sýndi að menn gætu lent í hags- munaátökum við sjálfa sig. Það gæti verið erfitt fyrir formann fjárhags- nefndar Alþingis, sem verður sem stjómarþingmaður að koma ákveðn- um tölum á blað og fó stuðning við það á þingi. Mannbjörg varð er trilla sökk Mannbjörg varð þegar tæplega sex tonna bátur, Hornstrendingur HF 117, sökk 3-4 mílum norður af Dritvíkurtöngum á Snæfellsnesi í gærmorgun. Báturínn hafði siglt á eitthvað rekald, svo mikill leki kom að honum og sökk báturinn á u.þ.b. hálftíma. Einn maður var um borð, Kristján Albertsson, en hann gat ekki sent út neyðarkall vegna rafmagnsleysis, en rafgeymarnir fóru á kaf í sjó, og setti Kristján strax út gúmmíbjörgunar- bát og skaut upp neyðarblysi um sex- leytið. Kristján geymdi sér hins veg- ar annað blys, sem hann var með, þar sem enginn virtist vera í ná- grenni við hann. Upp úr kl. níu í gærmorgun sá hann til ferða Auð- bjargar SH 197 frá Ólafsvík og skaut þá upp neyðarblysinu. Á Auðbjörg- inni sáu menn blysið og komu Krist- jáni til hjálpar, sem þá hafði verið á fjórða tíma í gúmbátnum. Auðbjörg- in fór síðan með Kristján til Ólafsvík- ur og kom þangað um hádegisbilið. Homstrendingur var á leið frá Bol- ungavík til Hafnarfjarðar og hafði lagt af stað um kl 16:00 á sunnudag. Sjópróf munu fara fram í Hafnar- firði, heimahöfn Homstrendings, sem var í eigu Kristjáns og félaga hans. - BG Rækjuvinnslur á ísafiröi að samelnast: RÍKIÐ KAUPI HÚS ÍSVERS Góðar Hkur eru nú á að þrjár kennslu Menntaskólans á ísa- stærstu rækjuvinnslumar á fsa- firði. flrfti, ísver, Rækjustöftin og Samningar um sameiningu hafa Rækjuvinnslan, sameinist í eina. staftift yflr um nokkra hríð. Nokk- Forsenda þess er þó aft takast urt bakslag kom í þá á vormánuft- megi aft selja einhveijar af elgn- um, ckki varft séft hverju samein- um þeirra. Til þess sýnast miklar ing stti aft skila þegar eignir líkur nú. Rækjuverkendur hafa stóftu aUar óseldar. Vindutinn fengift viiyrfti fyrir því aft ríkift kom svo aftur meft vilyrfti ríkisins kaupi hús ísvers undir verk- um kaup á húsi ísvers. -aá. Eldur kom upp í Bylgjunni VE í Skipalyftunni í Eyjum: Bókmenntasjóftur og Stofnun Sigurftar Nordal gangast fyrir þýðendaþingi í Norræna húsinu dagana 18.-20. september. Þingið sitja á annan tug þýftenda íslenskra bókmennta í Evrópu- löndum. Megintilgangur þings- ins er aö efla samskipti þýftenda og rithöfunda og efla gfldi þýft- ingastarfsins. TUGMILLJONA TJON Gífuriegt tjón varft á vélbátnum Bylgjunni VE 75 þegar eldur kom upp í bátnum þar sem hann stóð í Skipalyftunni í Vestmannaeyjum á sunnudag. Talift er aft kviknað hafl í út frá frystikistu. Eldsins varð vart um kl. 11 á sunnudagsmorgun og gaus upp mikill reykur frá bátnum. Enginn maður var í bátnum og þrátt fyrir erfiðar aðstæður gekk slökkvistarf vel eftír atvikum. Eldur virðist hafa verið mestur í vistarverum áhafnar stjómborðsmegin á millidekki, en talið er að öll stjórntæki í brú séu ónýt af völdum reyks. Vélarrúm slapp þó að mestu. Tálið er að tjón á bátnum nemi tug- um milljóna króna. Eldsupptök hafa ekki verið endanlega staðfest, en flest bendir til að kviknað hafi í út frá frystikistu í gangi á millidekki, en engar vélar vom í gangi um borð og straumur var á frá streng úr landi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.