Tíminn - 10.09.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Þriðjudagur 10. september 1991
Þriðjudagur 10. september 1991
Tíminn 9
Samgöngubót, sem skipti sköpum fyrir heilan landshluta, hefur þjónað dyggilega í hundrað ár:
OLFUSA MINNST MEÐ VIÐHOFN
100 ára afmæli Ölfusárbrúar við Selfoss var
haldið hátíðlegt sl. sunnudag, en undanfama
viku héldu Selfyssingar og raunar þeir, sem
notið hafa brúarinnar sl. öld, hátíð. Sú hátíð
náði hámarki á sunnudag og var margt sem
fólk gat haft ofan af fyrir sér með.
En sl. sunnudag var 100 ára afmæli Ölfusár-
brúar. Dagskráin hófst með guðsþjónustu í
Selfosskirkju kl. 10.30 og kl. 13 lagði skrúð-
ganga af stað frá Hótel Selfoss við brúarsporð-
inn. Skrúðgangan gekk Kirkjuveg, Engjaveg,
Reynivelli og Austurveg að áfangastað, sem
var á planinu við brúna.
Þar fór fram sérstök dagskrá um brúna: Leik-
félag Selfoss flutti þar þátt úr Brúarleikriti eft-
ir Jón Hjartarson leikstjóra, en leikritið fjallar
um aðdraganda að smíði brúarinnar og þau
áhrif sem hún svo hafði á umhverfi sitt, byggð
á Suðurlandi og Selfossi ekki hvað síst. Leikrit
þetta verður íyrsta verkefni Leikfélags Selfoss
Eftir
Sigurö Boga Sævarsson og
Stefán Ásgrímsson
á því leikári sem nú er að hefjast.
Það atriði, sem sýnt var á brúartorginu á Sel-
fossi á sunnudag, sýndi vígslu brúarinnar fyr-
ir einni öld og til þess var tekið hve Árni Valdi-
marsson, sem leikur TVyggva Gunnarsson, yar
líkur fyrirmyndinni. Samgönguráðherra,
Halldór Blöndal, flutti ávarp og Stórkór Sel-
foss söng brúardrápu þá sem flutt var við
vígsluna fyrir öld síðan, þann 8. september
1891. Að loknum söngnum ávarpaði forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir, viðstadda.
TVjáplöntun í vinalundi
Að þessari dagskrá við brúarsporðinn lokinni
var gengið yfir Ölfusárbrú og forseti íslands
og gestir vinabæja Selfoss gróðursettu tré í
sérstökum lundi skammt austan við norður-
enda brúarinnar.
Dagskrá á tröppum hins nýja safnahúss Sel-
foss — fyrrverandi aðalbyggingu Kaupfélags
Árnesinga — hófst kl. 15.00. Þar lék m.a.
Lúðrasveit Selfoss fyrst, en að því búnu af-
henti byggingarnefnd safnahússins safnastjór-
um og bæjarbúum það formlega. Við það
tækifæri flutti Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra ávarp. Sama gerðu fulltrúar
safnanna og að lokum blessaði sr. Sigurður
Sigurðarson húsið og starfsemi þess. Að dag-
skrá lokinni var safnahúsið opið og til sýnis al-
menningi.
Á leiksvæðinu við Sigtún höfðu skátar létta
dagskrá fyrir yngri kynslóðina, en auk þess var
kvikmynd um sögu Selfoss frumsýnd. Myndin
er eftir Martein Sigurgeirsson, kennara á Sel-
fossi.
Sex fermetra terta og
mysa með
í tilefni afmælisins var að sjálfsögðu bökuð
terta. Tertan þakti rúmlega sex fermetra svæði
og sýndi hún Ölfusárbrú og nánasta umhverfi.
Tertuna bakaði Guðni Andreassen, bakara-
meistari á Selfossi, og það voru bæjarstjómar-
menn sem skáru tertuna niður og skenktu
gestum. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadótt-
ir, fékk fyrstu sneiðina. Hún var tekin af eftir-
mynd þess staðar sem forseti hafði áður plant-
að tré. Til að skola niður Ölfusárbrú Guðna
Andreassen hafði Mjólkurbú Flóamanna
blandað sérstakan brúardrykk, sem í var m.a.
mysa.
Sérstök dagskrá hófst í íþróttahúsinu kl.
18.00. Þar lék Lúðrasveit Selfoss, Leikfélag
Selfoss flutti þátt úr brúarleikriti Jóns Hjart-
arsonar og Olafur Þórarinsson hljómlistar-
maður í Glóm flutti nokkur lög ásamt hljóm-
sveit sinni, Stórkór Selfoss söng auk fleiri dag-
skráratriða. Um kvöldið var hátíðarkvöldverð-
ur bæjarstjórnar í Hótel Selfoss fyrir
boðsgesti. Dagskránni lauk síðan með veg-
legri flugeldasýningu um kl. 11.30.
Á fyrstu myndinni gengur æskulýður Seifossbæjar fylktu liði yfir Ölfusárbrú undir
stjórn Hafsteins Þorvaldssonar. Hinir eldri ganga á eftir og í baksýn sést brúin og
hinum megin við hana hið nýja safnahús sem fyrr hýsti Kaupfélag Árnesinga og
starfsemi þess. Sr. Sigurður Sigurðarson fiutti blessunarorð og ámaði safnahúsinu
og starfsemi þess allra heilla. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, fékk sér bita af
brúartertu Guðna Andreassens bakarameistara. Meðlimir bæjarstjórnar Selfoss
skám síðan tertuna niður handa gestum og til vinstri á myndinni stendur einn
þeirra, Bjöm Gíslason rakari. Honum á vinstri hönd sést i Ólaf G. Einarsson
menntamálaráðherra og Bryndísi Brynjólfsdóttur, forseta bæjarstjórnar, fyrir fram-
an Ólaf. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, plantaði tré í nýjan skógarlund við
norðurenda Ölfusárbrúar. Sama gerðu fulltrúar vinabæja Selfoss. Loks sjáum við
Bryndísi Brynjólfsdóttur, forseta bæjarstjórnar Selfoss, sýna forseta islands og
Sigríði Jónsdóttur, félagsfræðingi og starfsmanni forsetaembættisins, mjólkurbíls-
dekkið sem Jón I. Guðmundsson, yfirlögregluþjónn en þáverandi mjólkurbílstjóri,
bjargaðist á til lands, eftir að gamla Ölfusárbrúin brast undan mjólkurbíl hans og féll
í ána þar sem hún er dýpst. Timamyndir gtk