Tíminn - 10.09.1991, Page 16
AUGL.YSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NITTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhusinu v Tryggvogotu
_____3? 28822
Áskriftarsími
Tímans er
686300
— - . mnmmsm mm —,1 r*F
j £rp>
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga /7 iVft/7
SIMI //7J / j
91-676-444 Z———/
Tíminn
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPT. 1991
Fjárlagarammi rfkisstjórnarinnar frágenginn:
BUVORUSAMNIWGIRIFT OG
HEIMILISTEKJUR RYRÐAR
Ríkisstjómin hefur gengið frá fjárlagarammanum. Ætla má að
tekjur heimilanna skerðist um 3 milljarða, eða 1%, vegna þjón-
ustugjalda sem ríkisstjórnin ætlar að taka upp. Auk þess sem
þjónustugjöldin hækka verðlag um 1%. Einstakir þættir fjár-
lagarammans eru nú að koma í ijós. Þeir vekja að vonum mis-
mikla athygli og skulu þeir helstu raktir hér.
Samkvæmt fjárlagarammanum á
landbúnaðarráðherra að skerða
framlag ríkisins til Framleiðni-
sjóðs um helming, 350 milljónir.
Minnka greiðslur til sláturleyfis-
hafa vegna geymslu á kindakjöti
um helming, aðrar 300 milljónir.
Draga úr niðurgreiðslum á verði
landbúnaðarafurða og lækka út-
flutningsbætur.
Með öllu þessu á að spara tvo
milljarða, en sú spurning vaknar
hvort ráðherra ætli, þvert ofan í
fyrri yfirlýsingar, að rifta búvöru-
samning við bændur. í samtali við
Tímann vildi lanbúnaðarráðherra,
Halldór Blöndal, ekki staðfesta að
nokkuð af því, sem hér var talið
upp, ætti að koma til framkvæmda
utan skert framlag til Framleiðni-
sjóðs. Annað sagði hann að kæmi í
Ijós á Alþingi í haust. Hins vegar
yrðu menn að hafa í huga þau
tímamót, sem nú væru í landbún-
aði er tvö ólík kerfi mættust. Hann
sagði að á næsta ári yrði ekki tek-
inn milljarður að láni hjá Seðla-
banka, eins og venjulega, til að
greiða niður búvöruverð. Einnig
yrði reynt að flytja eins mikið og
hægt er af kindakjöti út eins fljótt
og auðið yrði við hagstæðu verði.
Það kæmi öllum til góða. Ekki
náðist í Hauk Halldórsson, for-
mann Stéttarsambands bænda, en
þess má geta að sambandið hefur
þegar lýst því yfir að það telur
skerðingu á framlagi í Framleiðni-
sjóð brot á búvörusamningi.
Samgönguráðherra hyggst ná
inn um 400 milljónum með bætt-
um hag Pósts og síma.
Heilbrigðisráðherra ætlar að
krefja 500 krónur af hverjum þeim
sem nýtir sér þjónustu heilsu-
gæslustöðva og auka þannig tekj-
ur ráðuneytisins um 400 milljónir.
Þá ætlar hann að hækka gjald sem
sjúklingum er gert að greiða fyrir
að heimsækja sérfræðinga úr 900
krónum í 1.500 krónur. Sama
hækkun verður á gjaldi sem sjúk-
Iingur greiðir fyrir þjónustu á
göngudeildum. Hlutur barna og
eldra fólks í kostnaði vegna tann-
lækninga verður aukinn og ríkinu
sparaðar 300 milljónir. Þá skal enn
gert átak til að minnka kostnað
vegna lyfjaáts og lyfsölu og spara
þannig um 800 milljónir. Ekki
liggur enn fyrir hvernig það verð-
ur gert, en lyfjahópur ráðherra
hefur fleygt þeirri hugmynd að Iyf-
sala verði gefin ffjáls og einkaleyfi
apótekara afnumið. Akveðið er að
tekjutengja allar greiðslur al-
mannatrygginga nema fæðingar-
orlofið. Þannig skal spara um 400
milljónir.
Félagsmálaráðherra ætlar að
spara í húsnæðiskerfinu, senni-
lega bæði með því að hækka vexti
og lækka lán. Ráðherra hefur viðr-
að þá hugmynd sína að beina eigi
lánþegum í minni íbúðir, meðal
annars með því að lána aðeins
vegna kaupa á íbúðum í fjölbýlis-
húsum. Þá skal sérstakt ábyrgðar-
gjald á launum, sem ráðuneyti fé-
lagsmála fer með, skila ríkinu um
250 milljónum.
Menntamálaráðherra ætlar að
draga úr útgjöldum með því með-
al annars að samræma heimtur
framhalds- og háskóla á innritun-
argjöldum, setja á þær þak eins
það heitir. Þannig mega fram-
haldsskólar heimta 8.000 krónur
af hverjum nemanda og háskólar
17.000 krónur. Um leið eru fjár-
veitingar til skólanna frystar,
þannig að vilji þeir auka starf sitt,
þó ekki væri nema til að halda í við
verðbólguna, er þeim nauðugur
einn sá kostur að leggja þetta gjald
á nemendur. Með þessu skal lækka
útgjöld ráðuneytisins um 250
milljónir.
Þá leggur menntamálaráðherra
til að framlag til Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna verði skert
um einn milljarð.
Dómsmálaráðherra ætlar að
hækka stórlega öll svokölluð
dómsgjöld, það eru gjöld vegna
þinglýsinga, veðbókarvottorða og
fleira. Þannig hyggst hann ná inn
um 100 milljónum.
Samtals má svo gera ráð fyrir að
þetta kosti heimilin í landinum
um 3 milljarða, lækki tekjur
þeirra um 1% og hækki verðlag
um 1%.
Við þetta má bæta að flokksstjórn
Alþýðuflokksins varð sammála um
það á föstudagskvöldið að hún
styddi forystu flokksins einhuga.
Menn bjuggust við stormasömum
fundi og um hríð voru umræður
allsnarpar, en allt fór þó ffam í
mestu vinsemd. Skilningur
manna svona eftir á er þó misjafn.
Guðmundur Arni Stefánsson, bæj-
arstjóri og foringi vinstrimanna í
Alþýðuflokknum, segir að forystan
hafi verið minnt rækilega á grund-
vallarstefnu flokksins. Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður flokks-
ins, segir stuðning flokksstjómar
ótvíræðan.
-aá.
Islenskur skáksigur í Kaupmannahöfn
Sveit Æfingaskóla KHÍ varð í efsta
sæti á Norðurlandameistaramóti
bamaskólasveita í skák, sem lauk í
Kaupmannahöfn í fyrradag. Sveitin
keppti fyrir hönd íslands á mótinu.
Allar Norðurlandaþjóðimar áttu
eina sveit á mótinu, utan Danir sem
áttu tvær.
Úrslit urðu þessi: ísland 13,5 vinn-
ingar, Svíþjóð 12,5 vinningar, Nor-
egur 12 vinningar, Danmörk I 11
vinningar, Danmörk II 6,5 vinningar
og Finnland 4,5 vinningar.
íslenska sveitin var þannig skipuð:
1. borð: Arnar E. Gunnarsson. Hann
hlaut 3,5 vinninga af 5. 2. borð:
Bragi Þorfinnsson. Bragi fékk 4
vinninga af 5. 3. borð: Björn Þor-
finnsson. Björn fékk 3 vinninga af 5.
4. borð: Freyr Karlsson. Freyr fékk 3
vinninga af 5. Varamaður var Oddur
Ingimarsson. Hann tefldi enga skák.
íslenska sveitin hlaut alls, sem fyrr
segir, 13,5 vinninga í 20 skákum.
Fararstjóri og fyrirliði íslensku
skáksveitarinnar var Ólafur Guð-
mundsson, kennari í Æfingaskólan-
um. Þetta er í annað sinn sem Norð-
urlandamót í skák fyrir sveitir
grunnskóla er haldið, en í fyrra var
mótið haldið í Noregi. Þá báru Svíar
sigur úr býtum.
—sá
SILFURLAX HF.
í RANGÁRNAR?
Þreifingar em nú uppi milli félags
landeigenda við Rangár og Silfurlax
hf. um að Silfurlax taki vatnavæðið
á leigu næstu 10 árin.
Stjórn landeigendafélagsins mun
halda fund í vikunni þar sem afstaða
verður tekin til slíks leigusamnings,
en fleiri aðilar munu einnig hafa lýst
áhuga á að taka árnar á leigu. Þá hef-
ur ekki verið endanlega útilokaður
sá möguleiki að landeigendur sjálfir
verði með árnar. Það verður síðan
endanleg ákvörðun félagsfundar í
landeigendafélaginu hvort slíkur
samningur við Silfurlax verður
gerður.
Búfiskur, sem haft hefur árnar á
leigu undanfarin ár og séð um slepp-
ingar í þær, er gjaldþrota og mun
þrotabúið skila af sér ánum þegar
veiðitímabilinu lýkur þann 20. sept.
nk.
Silfurlax, sem er ein þeirra fiskeld-
isstöðva sem fékk opinbera fyrir-
greiðslu í sumar, er að stórum hluta
í eigu sænskra aðila, ASEA o.fl., en
erlend áhrif í stangveiði á íslandi er
viðkvæmt mál meðal íslenskra
stangveiðimanna. Engu að síður er
Silfurlax íslenskt fyrirtæki sem lýtur
íslenskum lögum.
Tilraunir með sleppingar í Rang-
ámar þykja hafa gefið nokkuð góða
raun og þó ekki hafi gengið nægjan-
lega vel þar í sumar telja menn að
rekja megi ástæðuna til minni
sleppinga þar í fyrra en áður.
Landeigendur hafa ekki fengið í
sinn vasa miklar leigutekjur frá Bú-
fiski, en leigutekjurnar hafa fyrst og
fremst farið í að byggja upp svæðið,
t.d. með smíði laxastiga o.fl.
Vinningstölur
iaugardaginn
7. sept. 1991 l
v.NNiNrim FJ0LDI UPPHÆÐ Á HVERN
VÍNNIINlaAM VINNINGSHAFA VINNINGSHAFA
1. 5af5 | 3
2. 4a"íf jgjf 11
5.207.323
3.
430
137.081
6.049
4. 3af5 14.242
426
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
kr. 25.798.022
upplysingar SIMSVARI91 -681511 lukkulina991002