Tíminn - 24.09.1991, Side 2

Tíminn - 24.09.1991, Side 2
2 Tíminn Þriðjudagur 24. september 1991 Aldraðir skora á sveitarfélög: Takið á húsnæðis- málum aldraðra Landssamband aldraðra sfcorar á sveitarfélög að taka á húsnæðis- málum aldraðra. Einkum og sér- flagi þurfl að byggja fleiri leigu- íbúöir fyrir þá sem ekki hafi átt þess kost að koma sér upp eigin ibúð. Það hafl svo gott sem lagst af síðustu ár með því svo margar söiuíbúðir fyrir eftirlaunafólk hafl verið byggðar. Sambandið byggir álit sitt á skýrslu sem nefnd á veg- um félagsmálaráðherra hefur gert um málið. í ályktun frá Landssambandi aldr- aðra segir: „Mikið hefur verið byggt á síðustu árum af smáíbúð- um sem seldar hafa verið eftir- launafólki á markaðsverði. Er sú starfsemi mjög jákvæð, einkum þar sem íbúðirnar eru byggðar í tengslum við þjónustustofnanir á vegum sveitarfélaganna. Slíkar íbúðir leysa vanda þeirra sem búa í of stórum eða óhentugum íbúðum og auka möguleika þeirra til að búa áfram á eigin heimilum. Hins vegar kemur í ljós að á sama tíma og mikill vöxtur er í uppbygg- ingu söluíbúða á markaðsverði hafa byggingar leiguíbúða fyrir aldraða dregist saman eða lagst niður í mörgum sveitarfélögum. Hin mikla uppbygging smáíbúða sem seldar eru á markaðsverði kemur aðeins þeim að notum sem eiga íbúðir eða aðrar eignir til að selja. í fyrmefndri skýrslu starfsnefnd- ar félagsmálaráðherra kemur fram að 24.8% eftirlaunafólks eiga ekki íbúð. Fyrir þann hóp þarf að byggja leiguíbúðir eða íbúðir með eignarhlutdeild leigutaka. En til þess að leiguíbúðir verði byggðar þarf frumkvæði sveitarfélaga og fyrirgreiðslu Byggingarsjóðs verkamanna. Sveitarstjórnir hafa ótvíræðar skyldur við þá sem ekki hafa átt þess kost að tryggja sér húsnæði á sinni starfsævi eða hafa orðið fyrir áföllum á því sviði. Sveitarfélög og stofnanir á þeirra vegum eiga óv- íræðan rétt til lána úr Byggingar- sjóði verkamanna til að byggja íbúðir fyrir það eftirlaunafólk sem ekki á íbúðir fyrir. Að lokum skulu sveitarstjómir og heilbrigðisyfirvöld alvarlega minnt á brýna þörf fyrir fleiri hjúkrunardeildir eða endurhæf- ingarstöðvar í þeim sveitarfélög- um þar sem þeirri þörf hefur enn ekki verið fullnægt. Fátt er ömur- legra í heilbrigðiskerfinu en þegar aldrað fólk er sent af sjúkrahúsum á heimili sitt eftir aðgerð eða veik- indi, þó að enginn sé á heimilinu til aðstoðar eða heilsulítill maki sem litla aðstoð getur veitt. í slík- um málum bera öll stjómvöld ábyrgð, hver sem greiðir reikninga samkvæmt reglum um verkaskipt- ingu í kerfinu." -aá. „Köttur á heitu blikkþaki" í fyrsta sinn á íslandi: Afmælisár hjá Leik- félagi Sauðárkróks Frá Guttormi Oskarssynl, fróttarítara Tímans á Sauöárkróki: Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá stofnun Leikfélags Sauðár- króks, enda þótt leikstarfsemi hafl verið stunduð hér á Sauðárkróki síðan fyrir aldamót. Að sögn Skúla Björns Gunnarsson- ar, varaformanns Leikfélagsins, hef- ur verið ákveðið að taka nú til sýn- ingar á afmælisárinu leikritið „Cat on a hot tin roof', eftir Tennessee Williams, í þýðingu Örnólfs Árna- sonar. Leikstjóri verður Andrés Sigur- vinsson. Sautján manns koma fram í verkinu sem nefnist á íslensku „Köttur á heitu blikkþaki“. Þessi sýning Leikfélags Sauðárkróks á leikritinu „Köttur á heitu blikk- þaki“ er frumsýning á verkinu hér á landi. Kattholt: 20 KETTIR I VANSKILUM Frá því að Kattholt, hús Kattavina- félags íslands, var tekið í notkun í lok júlí sl. hefur verið tekið á móti tugum vanskilakatta og þeim komið til réttra eigenda. Auk þess hafa 18 kettir, sem fundist hafa á víðavangi, fengið samastað hjá góðu fólki. Þessa dagana eru í Kattholti um 20 óskilakettir, sem ekki hefur tekist að koma heim til sín. Þessir kettir hafa fundist á ólíklegustu stöðum innan og utan borgarmarkanna, en sam- kvæmt upplýsingum frá Kattholti eru þetta allt saman hreinlegir kett- ir og blíðir og flestir þeirra ungir. Það er því ástæða fyrir þá, sem glat- að hafa ketti, til að líta við í Kattholti og kanna hvort kötturinn sé þar, jafnvel þó hann hafi glatast fýrir löngu síðan. Nýtt fyrirtæki stofnað um kvótasölu: Uppboð á aflakvóta Fyrsta opinbera uppboðið á aflakvótum mun fara fram á mánudag- inn eftir viku. Uppboðið verður í Átthagasal Hótel Sögu, og er hug- myndin að framvegis verði haldin opinber kvótauppboð á mánudög- um kl. 10:00. Það er nýtt fyrirtæki, Kvótamark- aðurinn hf., sem stendur að þessu uppboði og er fyrirtækið stofnað gagngert í þessu augnamiði. A blaðamannafundi í gær kynntu aðstandendur Kvótamarkaðarins fyrirhugaða starfsemi og þar kom fram að þeir telja að fyrirtækið muni skapa vettvang fyrir kaupendur og seljendur að fiskikvótum þar sem þeir geti átt eðlileg og greið við- skipti sín á milli. Að sögn þeirra Kvótamarkaðsmanna vinnst ýmis- legt með uppboði á fiskikvótum sem ekki hefur áður verið til staðar í kvótaviðskiptum. Þannig fái kaup- endur og seljendur aðgang að mikil- vægum upplýsingum á einum og sama staðnum. Kaupendur fái upp- lýsingar um það magn af hverri fiskitegund sem í boði er og aðgang að þeim kvóta sem í boði er. Seljend- ur hins vegar fái upplýsingar um markaðsverð og geti því vænst þess að fá hæsta fáanlegt verð fyrir kvóta sinn. Þeir geta þó fyrirfram dregið úr áhættunni með því að tilkynna um lágmarksverð. Það er mat að- standenda þessa uppboðsmarkaðar að þegar reglubundnar upplýsingar um kaup, sölu og markaðsverð verði fáanlegar muni sparast bæði tími og fyrirhöfn í kvótaviðskiptum. Þá muni þessi viðskipti þegar til lengd- ar lætur auka hagkvæmni í fiskveið- um, vegna þess að útgerðarmenn geti þá með einföldum hætti ein- beitt sér að veiðum sem þeim eru hagkvæmar, en eftirlátið öðrum að nýta með hagkvæmari hætti þann kvóta sem þeir kjósa að selja. Má þannig búast við að kvótauppboðin bjóði upp á aukna möguleika varð- andi sérhæfmgu í veiðum og vinnslu. Bæði verður um varanlega kvóta- sölu að ræða á þessum uppboðum og kvótaleigu og verður farið með allar upplýsingar um kaupendur og seljendur sem trúnaðarmál. Fram- kvæmdastjóri Kvótamarkaðarins er Hilmar A. Hilmarsson. Hilmar Á. Hilmarsson framkvæmdastjóri kynnir starfsemi Kvótamarkaðarins fyrir blaðamönnum ( gær. Tlmamynd: Áml Bjama Skoðanakönnun DV sýnir fylgishrun hjá stjórnarflokkunum í sumar: Aðeins 1/3 þjóðarinnar styður ríkisstjórnina „Könnun DV um helgina sýnir að stjórnin er orðin áberandi óvinsæl meðal kjósenda.“ „Framsókn rýkur upp.“ Þessar eru m.a. niðurstöður DV eftir skoðanakönnun sem blaðið gerði nú um helgina, sem sýnir gífurlegar breytingar á afstöðu kjósenda til ríkisstjómar og stjóramálaflokka frá því á s.l. vorí. Kom m.a. fram að aðeins um þríðjungur þátttakenda lýsir sig fylgjandi ríkistjórainni og aðeins um 28% beinlínis lýsa fylgi við annan hvora stjóraarflokkanna. Sé aðeins litið til þeirra, sem tóku ákveðna afstöðu til stjóraarínnar, verður niðurstaðan sú að 53% fylgi í maí hefur snúist í 58% andstöðu nú í september. Fylgi Framsóknarflokksins hefur á sama tíma aukist um meira en þríðjung. Blaðið kemst að þeirri niðurstöðu að fylgið hafi hrunið af báðum stjórnarflokkunum í sumar, þótt Alþýðuflokkurinn hafi samt fengið enn harkalegri útreið. Samanlagt hlutu stjórnarflokkarnir fylgi 54% kjósenda í kosningunum í apríl, en það virðist nú komið í tæplega 46%. Og af því leiðir að meirihlut- inn bak við stjórnina hafi hrunið úr 36 þingmönnum við myndun hennar niður í 29 þingsæti ef þjóð- in heföi gengið til kosninga núna, fimm mánuðum síðar. Af öllum þátttakendum í könnun- inni sögðust nú tæp 34% fylgjandi ríkisstjórninni, 47% andvígir og um 19% létu ekki álit sitt í ljós. Sé aðeins litið á þá sem afstöðu tóku, verður niðurstaðan sú að 58% eru henni andvígir en aðeins um 42% fylgjandi, borið saman við 53% stuðning í maí í vor. Við könnun á fylgi stjórnmála- flokkanna voru þeir hins vegar geysilega margir sem ekki vildu láta álit sitt í ljós. Nær 44% þátt- takenda voru óákveðnir eða vildu ekki svara. En kosningaspá, sem DV hefur reiknað út frá úrslitun- um, sýnir þá niðurstöðu að stjórn- arflokkarnir mundu missa þing- meirihluta sinn ef kosið yrði nú. Sú niðurstaða sýnir eftirfarandi fylgi við flokkana nú, borið saman við fylgi þeirra í kosningunum s.l. vor. Fylgi flokkanna: Framsóknarflokkurinn hefur auk- ið fylgi sitt um meira en þriðjung samkvæmt könnuninni, en Al- þýðuflokkurinn á hinn bóginn misst hátt í þriðjunginn af sínu fylgi. Miðað við þessa niðurstöðu breyttist skipting þingsæta þannig: Skipting þingsæta: Alþýðufl. Framsókn Sjálfst.fl. Alþ.banda. Kvennalisti Kosningar: (10) (13) (26) ( 9) ( 5) Kosnjpá: 7 17 22 11 6 Alþýðufl. Kosningar: (15,5) Kosn.spá: 10,9 Stjórnarandstöðuflokkarnir eru Framsókn (18,9) 25,8 þarna komnir með 34 þingsæti. En Sjálfst.fl. (38,6) 34,8 36 þingsæta meirihluti stjórnar- Alþ.bandal. (14,4) 17,1 flokkanna í kosningunum er dott- Kvennalisti ( 8,3) 9,5 inn niður í 29 sæta minnihluta. Þ-listinn ( 1,8) 1,5 - HEI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.