Tíminn - 24.09.1991, Qupperneq 4

Tíminn - 24.09.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn Þriðjudagur 24. september 1991 UTLOND Samið um vopnahlé í Júgóslavíu á sunnudag Vopnahléð í Júgóslavíu heldur enn Vopnahléð í Júgóslavíu hélt í gær, þrátt fyrir átök á stöku stað í Króa- tíu. Eftir átök vikum saman virðist vera að færast ró yfir Júgóslavíu. Friðarráðstefna Evrópubandalags- ins hefur tilkynnt að bandalagið hyggist standa að allsherjarfundi um málefni Júgóslavíu í Haag á miðviku- daginn. Vopnahléssamningur sá, sem Carr- ington lávarður gekkst fyrir í síðustu viku, hélt ekki, en um helgina tókst samkomulag á ný um vopnahlé. Ráðamenn í Króatíu segja að Stipe Mesic, forseti Júgóslavíu, ætli að fara til höfuðstöðva Sameinuðu þjóðanna í New York í dag og hvetja til að frið- arsveitir Sameinuðu þjóðanna verði sendar til Júgóslavíu. Búist er við að Öryggisráð Samein- uðu þjóðanna komi saman síðar í þessari viku til að ákveða hvort frið- arsveitir verði sendar á vettvang. Meira en 500 manns hafa týnt lífi í Júgóslavíu undanfama þrjá mánuði í átökum á milli Serba og Króata. En átök á milli þeirra brutust út í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar Króatíu. Lífíð í Zagreb var að komast í eðli- legt horf í gær eftir að herinn sam- þykkti vopnahlé á sunnudaginn og stöðvaði sóknarárásir á króatískar sveitir. „Ég held að það versta sé liðið hjá," sagði Franjo Tlidjman, forseti Króa- tíu, í gær við vegfarendur þegar hann gekk um götur Zagreb í gær í fylgd með lífvörðum sínum. Á götunum varð umferðaröngþveiti að nýju í gær og kveikt var á ljósa- staurum eftir fjögurra daga fyrirskip- aða myrkvun vegna hugsanlegra loft- árása. „Ég held að vopnahléð haldi, þrátt fyrir átök á stöku stað. Yfirmenn stríðandi aðila virðast vilja að það haldist," segir vestrænn diplómati. Annar diplómati sagði að yfirmenn í hernum hefðu látið í Ijós bjartsýni um að vopnahléð haldi, þrátt fyrir smávægileg átök. Loftvamaflautur fóm í gang í að minnsta kosti tveimur bæjum í Króatíu, en loftárásir áttu sér ekki stað. Útvarpið í Króatíu sagði í gær að röð Vopnahlé, sem samið var um á sunnudag, heldur enn. árása ætti sér stað á landi, en byrjaði þó hverja frétt á að tilkynna að vopnahléð væri enn virt. Tilkynning- amar um átök vom ekki staðfestar. útvarpið sagði að a.m.k. þrjár mann- eskjur hafi látist og 33 særst í átök- um á aðalátakasvæðunum þremur. Það em Mið- og Austur- Króatía og við strönd Adríahafs. Herinn hefur afturkallað hafnbann- ið sem sett var á í síöustu viku. Útvarpið í Sibenik greindi frá því að óbreyttur borgari týndi lífi og fjórir slösuðust í sprengjuárás stjórnlausra hermanna. Herþyrla skaut á skóla nálægt höfninni í Zadar, en ekki var greint frá hvort einhver slasaðist. 12 manns slösuðust í Vukovar þegar sprengjum var varpað á borgina. í miðju Króatíu, um 50 km suður af Zagreb, tilkynnti útvarpið um átök aðfaranótt mánudagsins þar sem 2 létust og 10 manns slösuðust. Níu manns slösuðust þá sömu nótt í borginni Karlovac, þar af 5 óbreyttir borgarar, króatískur gæslumaður og þrír serbneskir hermenn. Tlidjman og Veljko Kadijevic varn- armálaráðherra samþykktu að vopnahléð skyldi taka gildi klukkan 13:00 á sunnudaginn. Klukkutíma eftir að vopnahléð tók gildi byrjuðu ásakanir á báða bóga á milli hersins og króatískra sveita um að vopnahléð héldi ekki. Kadijevic sendi bréf til Tlidjman þar sem hann ásakaði króatískar sveitir um 11 árásir á hersveitir fyrstu 5 klukkutíma vopnahlésins. „Fyrir hönd allra borgara Króatíu og Júgóslavíu skora ég á ykkur að stöðv- ar allar árásir," segir Kadijevic í bréf- inu til Tudjman. Embættismenn í Zagreb sögðu í gær að enn hefðu helstu nauðsynjar ekki borist þangað. Þeir sögðu einnig að rafmagn og símar væru enn ekki komnir í lag. Reuter-SIS Amnesty International rannsakar hegðun lögreglunnar í Los Angeles: Lögreglan þykir hrottafengin Byssumaður tekur 9 manns í gíslingu á sjúkrahúsi: Drap hjúkrunarkonu Mannréttindasamtökin Amnesty Intemational hófu í gær rannsókn á staðhæfingum um hrottaskap lög- reglunnar í Los Angeles. „Við ætlum að athuga hvað er til í þessum ásökunum um hrottaskap lögreglunnar og ákveða til hvaða að- gerða skuli gripið til að vekja athygli á þessu rnáli," segir Anita Tiessen, LONDON - Bretar eiga von á að Sameinuðu þjóðimar bregð- ist hart við vegna afdráttariausr- ar neitunar íraka um að eftirlits- menn S.Þ. fengju að ferðast á talsmaður Amnesty. Samtökunum barst í hendur myndbandsupptaka sem sýnir lög- reglu berja blakkan mótorhjóla- kappa, Rodney King. Það varð til þess að samtökin ákváðu að láta til sín taka á þessum vettvangi. Skrifstofa lögreglustjórans í Los Angeles, sem vinnur með sveitum hræða Saddam Hussein í burtu. WASHINGTON - Bandaríkin og sjö helstu iðnrfki heims vinna nú hörðum höndu bak við tjöidin til að finna leiðir til hjálpar Sovét- rikjunum og útvega þeim ián. borgarlögreglunnar, hefur vakið mikla athygli undanfarið, vegna þess að lögreglan hefur skotið fjórar manneskjur til bana á einum mán- uði. Einn hinna látnu, maður sem var truflaður á geði, var skotinn níu sinnum í bakið. Borgarlögreglan skaut 18 manns til bana síðasta ár en sýslulögreglan skaut 26 manns til bana. Tiessen kom til Los Angeles á laug- ardaginn ásamt Angelu Wright og Rod Morgan, en hann er prófessor í afbrotafræði við Bristolháskóla í Suðvestur-Englandi. Þau munu sjá um rannsókn þessa máls fyrir Am- nesty International. Samkvæmt heimildum er þetta í annað sinn sem Amnesty Interna- tional tekur mál lögreglunnar í fylki í Bandaríkjunum til meðferðar. Lög- reglan í Chicago var tekin til skoð- unar snemma á níunda áratugnum. Reuter-SIS Maður, sem hélt 9 manns föngn- um, þar á meðal þremur börnum, og er grunaður um að hafa orðið hjúkrunarkonu að bana, segir að honum hafí verið misboðið þegar konan hans gekkst undir ófrjó- semisemisaðgerð án þess að læknar hefðu haft hann með í ráðum. Hann sagðist eiga böm á himnum sem biðu þess að fæð- ast. Richard Worthington, en svo heitir maðurinn, kom á Alta View sjúkrahúsið í Utah með tvær byss- ur og dýnamítsprengju til að drepa lækninn sem hafði gert að- gerðina á eiginkonunni. Talsmaður lögreglunnar í Utah segir að Worthington hafi álitið að hann ætti að ákveða hvort konan hans færi í uppskurð eða ekki. Hann hefði ekki verið hafður með í ráðum. Karen Kaldleck, nágrannakona þeirra hjóna, segir að Worthing- ton telji sig eiga nokkur börn á himnum sem bíði fæðingar, en þau hjón eiga þegar átta börn. Kaldleck segir að Worthington, sem reki skrúðgarðaþjónustu, hafi ráðið þrjá af sjö sonum sínum til starfa hjá sér. Hún segir að hann komi alltaf fram við þá eins og starfsmenn sína, jafnvel heimafyr- ir. Hún lýsir honum sem kapp- sömum manni sem hafi gaman af íþróttum, en sé ótrúlega tapsár. Læknirinn, sem Worthington ætlaði að myrða, segir að hann hafi haft í sífelldum hótunum við sig eftir að konan gekkst undir ófrjósemisaðgerðina. Worthington fann ekki lækninn, hennti stól út um gluggann og tók fæðingarstofu á sjúkrahúsinu á sitt vald snemma á laugardaginn. Hjúkrunarkona á sjúkrahúsinu lést af skotsárum sem hún hlaut, og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni verður Worthington dreginn fyrir dómstóla fyrir morð á henni. Reuter-SIS Fréttayfirlit ALSÍR - Yasser Arafat, leíðtogi PLO, hefur sagt að hann sé til- búinn til samvinnu við alla þá að- ila, sem standa að ráðstefnunni um málefni Miðausturianda. sínum eigin þyrlum um írak. ANKARA - Tyrkir hafa sagt að vestrænar sveitir, sem sendar voru til aö vemda franska Kúrda, skuli dregnar til baka frá suð- vesturhluta Tyrklands. Þeir segj- ast treysta á flugher sinn til að Nýnasistar halda uppi árásum á erlenda verkamenn: Hóta að halda árásum áfram Lögreglan í Dresden í Þýskalandi sagði í gær að nýnasistar hefðu haldið uppi skipulegum árásum á heimili erlendra verkamanna víðs- vegar um Þýskaland um helgina. Þeir hafa hótað að halda áfram árás- um á flóttamenn. Talsmaöur lögreglunnar sagði blaðamönnum að nýnasistar hefðu haldið uppi stöðugum árásum í sex daga á gistiheimili í Hoyerswerda, þar sem erlendir verkamenn frá Víet- nam og Mósambík búa. Hann sagði að 33 manns hafi verið handteknir á sunnudagsnótt þegar ungmenni grýttu gistiheimilið og köstuðu að því bensínsprengjum. Lögreglan notaðist við hunda og táragas til að dreifa fólkinu. Sex manns slösuðust. Flytja þurfti marga erlenda verka- menn á öruggari staði eftir óeirðir helgarinnar. Jafnaðarmenn í Bonn ásaka yfirvöld um heigulshátt vegna vaxandi of- beldis í garð erlendra verkamanna í Þýskalandi. Leiðtogi Jafnaðarmanna, Hertha Daeubler-Gmelin, sakar Kristilega demókrata um að notfæra sér árás- imar til að breyta lögum um flótta- menn og með því stemma stigu við straumi flóttamanna til Þýskalands. „Háttsettir embættismenn hafa hingað til þagað þunnu hljóð vegna ástandsins," sagði Daeubler-Gmelin í útvarpsviðtali í gær. „Það er skelfi- legt að fólk, sem ekki getur varið sig sjálft, skuli notað á þennan hátt af stjórnvöldum." Helmut Kohl kanslari vill gera lagabreytingu á innflytjendalögun- um, sem taldar em afturhvarf til laga í þriðja ríki Hitlers á nasista- tímabilinu. Til að lagabreytingin nái fram að ganga þarf hann tvo þriðju hluta þingatkvæða. Mikill fjöldi flóttamanna hefur streymt til Þýska- lands á þessu ári og hafa 200.000 manns sótt um hæli þar í landi það sem af er árinu. Kohl vill að lögin verði þrengd þannig að fólk sem á á hættu að verða fyrir árásum heima- fyrir og á jafnvel á hættu að týna lífi verði leyft að koma inn í landið en öðrum ekki. Wolfgang Scháuble innanríkisráð- herra fordæmdi atburði helgarinnar í gær, en sagði jafnframt að meiri- hluti þjóðarinnar hefði áhyggjur af þessum fjölda flóttamanna. Kohl hittir flokksmenn sína á föstudag til að ræða aðgerðir nýnas- ista. Nýnasistar í vesturhluta Saarlands brenndu Afríkumann til bana um helgina. Nýnasistum fer sífjölgandi í Þýska- landi og virðast ætla að vera stærstu ungliðasamtök þar í landi. Reuter-SIS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.