Tíminn - 24.09.1991, Blaðsíða 8

Tíminn - 24.09.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn Þriðjudagur 24. september 1991 Verðlaun ffyrir fatahönnun Iðja, félag verksmiðjufólks: Mótmælir hug- myndum um að auka álögur á launafólk Almennur félagsfundur Iöju, félags verksmiðjufólks á Akureyri og í ná- grenni, mótmælir harðlega öllum hugmyndum um auknar álögur á launafólk og skerðingu á félagslegri þjónustu, öllum slíkum tilraunum verður mætt af fuUri hörku. í ályktun almenns félagsfundar Iðju, sem haldinn var 14. september, segir svo orðrétt: „Fundurinn hvetur ríkisvaldið til að leita annarra leiða við tekjuöflun sína, m.a. með skatti á óhóflegar fjármagnstekjur og auk- inni skattheimtu á þá sem meira mega sín en almennt launafólk. Fundurinn krefst þess að stjómvöld taki nú þegar á vaxtaokri og að bank- ar og fjármagnsmarkaðir verði knúðir til að koma á hóflegu vaxta- stigi. Fundurinn leggur áherslu á að í komandi samningum verði fyrst og fremst hugað að auknum kaup- mætti og sérstakri hækkun launa til þeirra sem lægstu launin hafa.“ Þá hvetur Iðja til þess að verkafólk sameinist undir merkjum Alþýðu- sambandsins í komandi samningum og hrindi þannig árásum ríkisvalds- ins á börn, aldraða og sjúklinga og árásum vinnuveitenda á launafólk. -áa. Nýlega voru veitt verðlaun í sam- keppni, sem Tísku- og handavinnu- klúbburinn Nýtt á nálinni efndi til um bestu hönnun og útfærslu á nýjum íslenskum fatnaði. Margar frumlegar og glæsilegar tillögur bárust. Fyrstu verðlaun hlaut Inga Nína Matthíasdóttir fyrir samkvæmis- fatnað og hlaut hún vikuferð fyrir tvo með Samvinnuferðum-Landsýn til Dublinar á frlandi. Önnur verð- laun komu í hlut Ingibjargar Ósk- arsdóttur fyrir hönnun á fatnaði fyr- ir tvíbura og hlaut hún að launum Pfaff Overlock saumavél af full- komnustu gerð. Að auki hlutu sex þátttakendur glæsilega módelskart- gripi eftir Auði Bergsteinsdóttur að launum fyrir vel unnar hugmyndir. Bráöabirgðauppgjör fyrrí niðurfærslu: Skorið niður flatt á 13 búmarkssvæðum Bráðabirgðauppgjör fyrri niðurfærsiu á fulivirðisrétti sauðfjár- bænda liggur fyrir. Skera þarf niöur flatt á 13 af 23 búmarks- svæðum, aiis um 6.665 ærgildi. Með því gert er upp á hverju svæði fyrir sig verður rétturinn yfir iandið ailt færður niður um 6.465 fleiri ærgildi en ætlað var nú í haust. Samkvæmt búvörusamningnum skurði. Á landinu öUu hafa selst skal minnka fullvirðisrétt sauð- fjárbænda um tæp 11%, 60.800 ærgUdi. Þaö skyldl gert með ftjálsrl sölu bænda og ef settu marfd yrði ekk! náð með þelm hætti, þá með flötum niður- um 60.600 ærgiIdL En þar sem salan er mjög misjöfn eftir bú- markssvæðum og gert er upp fyr- ir hvert svæði sérstaklega þarf að skera flatt á 13 svæðum alls um 6.665 ærgildi. Ef gert hefði verið upp fyrir landið aUt hefði þurft að skera niður 200 ærgildi flatt. Bændur á þelm búmarkssvæð- um, sem selt hafa umfram það sem þeim var ætlað, njóta þess næsta haust er fullvirðisréttur verður færður niður í seinna skiptiö. Eins og áður sagði var salan mjög misjöfn eftir svæðum. Mest á suðvesturhorni Iandsins alit að 24%, en minnst á Norð- vesturlandi og á Ströndum. -aá. Norðurlandskjördæmi eystra: Framsóknarkonur stofna samtök Um síðustu helgi voru stofnuð samtök framsóknarkvenna í Norð- urlandskjördæmi eystra. Á stofn- fundinn mættu um 50 konur víðs vegar að úr kjördæminu. Formaður samtakanna var kosin Anný Lars- dóttir. Markmið samtakanna er að efla samstöðu kvenna og auka þátt- töku þeirra í stjómmálastarfi. Stofnfundurinn lýsti yfir áhyggjum og ótta vegna árása ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar á íslenskt velferð- arþjóðfélag. Minnt var á að varla líði sá dagur að ekki berist fréttir af nið- urskurði og stórkostlegum bylting- um í ríkisrekstri þar sem ávallt virð- ist vera ráðist á garðinn þar sem Perlan fer 100% fram úr áætlun: Tillögu um að rannsaka eigi sukkið vísað frá Borgarstjóm vísaði frá tillögu Nýs vettvangs um að komið yrði á fót sérstakri nefnd til að kanna hvem- ig staðið geti á því að kostnaður við byggingu Perlunnar svoköll- uðu varð jafn mikill og raun er. Á fundinum kom fram að Perlan kostar fullbyggð 1.600 milljónir króna. í upphaflegri áætlun, þeirri fyrstu sem samþykkt var í borgar- stjóm, var gert ráð fyrir að kostn- aðurinn yrði um 800 milljónir. Minnihluti borgarstjómar vill að kannað verði hvemig á þessu mis- ræmi getur staðið. Hvemig það má vera að hinir og þessir mökuðu króka sína ótæpilega án þess að nokkrar athugasemdir væru gerð- ar. Og hvers vegna ekki hafi verið leitað samþykkis þar til kosinna yf- irvalda fyrir öllum þeim breyting- um sem gerðar hafa verið á áætl- unum og aukið hafa kostnaðinn. Sjálfstæðismenn vísuðu tillögunni frá. -aá. Húsaleiga hækkar 1,9% um næstu mánaðamót: hann er lægstur. Á fundinum kom fram ótti um að þeir stjómunarhættir, sem viðhafðir hafa verið í höfuðborginni, þar sem bruðlað hefur verið með almannafé og því veitt í óþörf stórhýsi á sama tíma og velferðarmálum er illa sinnt, hafi nú verið yfirfærðir á stjórnun þjóðfélagsins alls. Bent var á að sú gjaldþrotastefna, sem birst hefur í gervi atvinnu- stefnu, lýsi skilningsleysi stjórn- valda á undirstöðum íslensks þjóðfé- lags og því hvar r'aunveruleg verð- mæti verða til. Fundurinn krafðist þess af ríkisstjórninni að hún sýni framleiðsluatvinnuvegunum þann skilning og þá virðingu sem þeir verðskulda. -EÓ Lánasjóður: L-cii laojuuui. Arshækkun mest nsiæ á launavísitölunni veldur töfum Vegna tengingar nýs símkerfis og mikils álags nú í byrjun námsárs, getur reynst erfitt að ná sambandi við skiptiborð Lánasjóðs íslenskra námsmanna. heldur en hún hefði annars gert. Miðað við gamla vísitölugrunninn hefði lánskjaravísitalan hækkað um 7,9% síðustu 12 mánuðina. Verðbólgan hefur faríð sér fremur rólega milli ágúst og september. Lánskjaravísitalan hefur aðeins hækkað um 0,28% milli þessara mánaða, sem umreiknað til árshækkunar svarar til 3,4% verðbólgu. Lánskjaravísitala 3194 gildir fyrir októbermánuð. f október í íyrra var vísitalan 2934. Hækkunin er því 8,9% á einu ári. Milli ágúst og september hækkaði byggingarvísitalan mjög svipað, eða um 0,3%, og er hún nú 187 stig. Árshækkunin er einnig mjög svipuð, þ.e. 8,4% síðustu tólf mánuði. Vísi- tala framfærslukostnaðar hækkaði um 7,7% á þessu sama eins árs tíma- bili. Þessar tvær vísitölur ásamt launa- vísitölunni mynda grunninn að lánskjaravísitölunni. Launavísitalan hækkaði ekkert í þessum mánuði. Á síðustu tólf mánuðum hefur hún hins vegar hækkað meira en báðar hinar, eða 10,5% á einu ári. Hækkun launavísitölunnar um- fram hinar veldur því m.a. að láns- kjaravísitalan hefur á síðustu 12 mánuðum hækkað um 1% meira Þá tilkynnir Hagstofan nú um hækkun húsaleigu fyrir íbúðarhús- næði og atvinnuhúsnæði sem samið hefur verið um að fylgi vísitölu hús- næðiskostnaðar eða breytingum meðallauna. Leiga septembermán- aðar hækkar um 1,9% í október og verður síðan óbreytt í nóvember og desember. - HEI -aá. Opnunartími Stjórnarráðs Frá 1. október 1991 til 30. april 1992 verða skrifstofur Stjórnarráðs ís- lands opnar frá kl. 9:00 til kl. 17:00 mánudaga til föstudaga. -aá. Stjórn og trúnaðarmannaráð Verslunarmannafélags Árnessýslu: Mótmælir auknum álögum Fundur stjómar og trúnaðar- mannaráðs Versiunarmannaféiags Ámessýslu mótmælir harðlega þeim auknu álögum sem felast í breytingum á verðlagningu lyfja. í ályktun fundarins, sem haldinn var 18. september sl., segir svo: „Einnig varar fundurinn við öllum hugmyndum sem heyrst hafa um skólagjöld og gjaldtöku fyrir heil- brigðisþjónustu og munu ef af verð- ur leiða til hruns velferðarþjóðfé- lagsins. Menntun og fullkomin heil- brigðisþjónusta öllum til handa án tillits til efnahags eru hornsteinar þess þjóðfélags sem við viljum byggja. Augljóst er að sú óvissa, sem ríkir um fyrirætlanir stjórnvalda, tefur og torveldar gerð kjarasamninga. Því krefst fundurinn þess að ríkisstjórn- in geri nú þegar grein fyrir fyrirætl- unum sínum.“ -aá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.