Tíminn - 24.09.1991, Side 9

Tíminn - 24.09.1991, Side 9
Þriðjudagur 24. september 1991 Tfminn 9 Mótframboð boðað gegn stjórn Dagsbrúnar: ENN REYNT AÐ VELTA JAKANUM Vildi fyrrverandi dómsmálaráð- herra auðga anda Selfosslögregl- unnar með myndlist? Jón I. Guð- mundsson yfiriögregluþjónn: Okkur vantar ekki Undirbúningur er á ný hafínn að mótframboði gegn núverandi stjóm verkamannafélagsins Dagsbrúnar í Reykjavík. Að sögn Jó- hannesar Guðnasonar, sem er í forystu fyrir mótframbjóðendum, þá er að mestu um sömu aðila að ræða og var í síðasta stjómar- kjöri í félaginu. Jóhannes sagði að aðalvandi og þröskuldur mótframboðs væri sem fyrr sá að stilla upp fullum lista til nýrrar stjórnar og trúnaðar- mannaráðs. Ætlunin hefði verið að Iaganefnd Dagsbrúnar tæki þau mál sérstaklega íyrir, en af því hefði ekki orðið enn. Á fundi mótframboðsins, sem haldinn var sl. sunnudag, var sam- þykkt ályktun þar sem þess er kraf- ist að ríkisstjómin hætti árásum sínum á mennta- og heilbrigðis- kerfið og önnur grundvallarrétt- indi vinnandi fólks. Þá er lýst hneykslun á andvara- leysi verkalýðshreyfingarinnar og þess krafist að hún snúist til varn- ar. Síðan segir: „Fundurinn krefst þess að laun verði vísitölutryggð í komandi kjarasamningum og að ríkisstjórn- in skattleggi fjármagnstekjur. Við lýsum fullum stuðningi við Sjó- mannafélag Reykjavíkur gegn skráningu skipa erlendis og brota vinnuveitenda á langtímasamningi þeirra. Fundurinn hvetur stjóm Dagsbrúnar til að halda almenna félagsfundi til að móta kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga, því aldrei hefur verið meiri þörf fyrir virka og lýðræðislega verkalýðs- hreyfingu." —sá Vaka-Helgafell: Gerpla kom- ■ * H * in ut i Þýskalandi Gerpla Halldórs Laxness er komin út hjá bókaforlaginu Steidl í Gött- ingen í Þýskalandi. Hún er fimmta bókin sem forlagið gefur út eftir Nóbelsskáldið. Hinar eru Vefarinn mikli frá Kasmír, Atómstöðin, Kristnihald undir Jökli og Sjö töframenn. Þýska heiti Gerplu er Die Glúcklic- hen Krieger. Hubert Seelow hafði umsjá með útgáfunni og endur- skoðaði þýðingu Bmno Kress. Steidl-forlagið hefur í hyggju að gefa út megnið af ritsafni Halldórs Laxness, enda hafa verk hans óvíða notið jaifnmikilla vinsælda og þar í landi. -aá. Norsk kvikmynda- og menningarvika hófst um helgina og stendur til 30. september. Hlut að henni eiga Háskólabíó, Norræna húsið og Norska sendiráðið. Á dagskrá verða myndlistarsýnlng, tón- leikar, fyrirlestar, leiksýningar og síðast en ekki síst kvikmyndasýningar. Á myndinni er undirbúningsnefnd norskrar kvikmyndaviku. Frá vinstri Friðbert Pálsson forstjóri Há- skólabíós, Lars-Áke Engblom forstjóri Norræna hússins, Margit Tveiten sendiráðsritari í norska sendiráðinu og Per Aasen sendiherra Noregs á islandi. Timamynd: Ami Bjama málverk Óli Þ. Guðbjartsson, fyrrv. dóms- málaráðherra, virðist hafa keypt málverk eftir Grétar Hjaltason fyrir Iögreglustöðina á Selfossi algerlega upp á sitt eindæmi. Yfirlögreglu- þjónninn á Selfossi er undrandi á þessum málverkakaupum, ekki síst í ljósi þess að ekki eru til peningar til að halda uppi eðlilegri löggæslu. Tíminn greindi frá þessum málver- kakaupum í fyrri viku og sýslumað- ur Árnessýslu staðfesti að málverkin hefðu verið keypt án þess að hann eða starfsmenn embættisins hefðu nokkuð beðið um þau. Svo virðist sem dómsmálaráðherr- ann fýrrverandi hafi keypt málverk- in tólf af rekstrarfé lögreglunnar í Árnessýslu. Listamaðurinn kom fyr- ir nokkru á lögreglustöðina á Sel- fossi og vildi þá heíjast handa við uppsetningu verka sinna. Lögreglu- menn komu af fjöllum og bentu listamanninum á að tala við sýslu- mann fyrst. „Ég botna ekkert í þessu máli, enda er það allt hálfgerður „Hafnarfiarð- arbrandari": Á meðan við höfum ekki peninga til að halda uppi eðli- legri löggæslu kemur í ljós að fyrr- verandi dómsmálaráðherra hefúr keypt málverk. Við höfúm beðið um ýmis tæki og búnað til starfsemi okkar og ekki fengið. Okkur vantar hins vegar ekki málverk á lögreglu- stöðina," sagði Jón I. Guðmunds- son, yfirlögregluþjónn á Selfossi. —SBS, Selfossi Verkalýðsfélag Húsavíkur vill verja velferðarkerfið: Fjárlagagatið fyllt með fjármagnsskatti „Höfuðkostir þess að búa á íslandi hafa jafnan verið taldir að við hefð- um gott og vel búið velferðarkerfi, sem væri opið fyrir alla, og hér væri stéttaskipting minni en víðast hvar annarsstaðar," segir í ályktun al- menns félagsfundar í Verkalýðsfé- lagi Húsavíkur. Lýst er áhyggjum af þeim hug- myndum sem fram hafa komið um niðurskurð og auknar álögur á sjúk- linga, aldraða, öryrkja og skólafólk. Verði slíkar hugmyndir fram- kvæmdar, verði vandanum velt yfir á þá sem síst skyldi. Nær væri og sanngjarnara að mæta vanda ríkis- sjóðs með því að leggja skatta á fjár- magnstekjur og taka upp eitt eða fleiri skattþrep á háar tekjur. Þess er krafist að í komandi kjara- samningum verði megináhersla lögð á lífskjarajöfnun og að lægstu kauptaxtar verði hækkaðir þannig að enginn kauptaxti verði undir skattleysismörkum, enda sé ekki verjandi að greiða fullfrísku fólki laun, sem eru svo lág að það sé ekki fært um að leggja neitt af mörkum til sameiginlegra þarfa. Slíkt sé bæði óréttlátt og niðurlægjandi. Þá krefst Verkalýðsfélag Húsavíkur þess að vextir verði lækkaðir — með lögum ef með þarf. Núverandi vaxta- okur sé fyrst og fremst afleiðing óhóflegrar útgáfu húsbréfa, auk fá- keppnisaðstöðu á fjármagnsmark- aði. Verði núverandi vaxtastigi hald- ið áfram, muni sífellt fleiri heimili og fyrirtæki komast í þrot. Fyrirtæki í sjávarútvegi séu einkum í hættu af þessum sökum og þar með byggð út um landið. Þá telur fundurinn óverjandi að viðhalda verðtryggingu á fjármagni á sama tíma og kaupgjald njóti ekki slíkrar tryggingar. Þess er því krafist að horfið verði frá verðtryggingu fjárskuldbindinga svo fljótt sem kostur er. —sá Innflytjendareglur í Bandaríkjunum rýmkaðar íslendingum í hag: Nú geta ísl. fengið innflytjendaleyfi Bandarísk yfírvöld hafa ákveðið að veita árlega næstu þrjú árin 40 þúsund manns frá 34 löndum innflytjendaleyfi til Bandaríkjanna, svokallaðar AA-1 vegabréfsáritanir. Innflytjendaleyfi fylgir réttur tií varanlegrar búsetu í Bandaríkjunum. Þau 34 lönd, sem um ræðir, hafa ver- ið valin af því að talið er að breyting- amar á innflytjendalögunum í Bandaríkjunum árið 1965 hafi verið þeim sérlega óhagstæðar. ísland er eitt þessara landa. Umsóknartímabil- ið fyrir fjárlagaárið 1992 hefst 14. október og lýkur 20. október nk. Umsókn skal senda til: AA-1 Program P.O. Box 60000 Arlington, VA. 22218-0001 U.SA Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í umsókninni: Nafn um- sækjanda. Fæðingardagur og fæðing- arstaður. Nafn, fæðingardagur og fæðingarstaður maka og bama. Heimilisfang umsækjanda. Senda skal umsóknir um skráningu innflytjendaleyfis til skrifstofa banda- ríska ræðismannsins á hverjum stað. Oftast er hér um bandaríska sendiráð- ið í heimalandi umsækjanda að ræða, eins og tilfellið er með ísland. Frekari upplýsingar um AA-1 skrán- inguna er hægt að fá hjá bandaríska sendiráðinu. -js BFtETAR SENDA NÝJAN HERRA Patrick Francis Michael Wogan hef- ur verið skipaður sendiherra henn- ar hátignar Elísabetar II. á íslandi. Wogan fæddist árið 1937. Mennt- aðist í Salesian College, Famboro- ugh. Hóf störf hjá utanríkisþjónust- unni árið 1959 og hefur ferðast eftir framabraut hennar síðan. Hann hef- ur lengstum starfað í Mið-Austur- löndum og Afríku. Wogan er kvæntur Afsaneh Khalat- bari og á eina dóttur og tvo syni. -aá Samdráttur í herafla hefur áhrif: Ræstingafólk varnarliðsins missir starfið Vegna breytinga, sem stjómvöld í Washington, D.C. hafa ákveðið að gera á rekstrarfyrirkomulagi, sem snerta m.a. vamarliðið á Keflavíkur- flugvelli, hefur 33 starfsmönnum, sem unnið hafa við ræstingastörf þar, verið sagt upp störfúm. Uppsagnar- fresturinn er allt að sex mánuðum. Þjónusta þessi verður nú fengin í hendur verktaka, og standa vonir til að hann muni endurráða sem flesta þá starfsmenn sem nú hafa misst vinnu sína hjá vamarliðinu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.