Tíminn - 24.09.1991, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 24. september 1991
B ÍÞRÓTTIR
Frá lokahófi knattspyrnumanna og kvenna þar sem tilkynnt voru úrslit í vali knattspyrnumanna um bestu og efnilegustu knattspyrnu-
menn ársins. Á myndinni má sjá frá vinstri: Arnar Grétarsson UBK, efnilegasti knattspyrnumaður ársins, Elísabet Sveinsdóttir UBK, efni-
legasta knattspyrnukona ársins og Guðmundur Steinsson Víkingi, knattspyrnumaður ársins. Tímamynd Pjetur
Lokahóf knattspyrnumanna og kvenna:
Guðmundur og Laufey
bestu leikmenn 1991
Cuðmundur Steinsson, Víking, og
Laufey Sigurðardóttir, ÍA, voru í
lokahófí knattspymumanna og
kvenna, kjörin knattspymumenn
ársins. Þá vom þau EUsabet Sveins-
dóttir og Amar Crétarsson, bæði úr
Breiðablik, kjörin efnilegusL
Kjör Knattspymumanns ársins í
Samskipadeildinni kom á óvart, því
fyrirfram var búist við því að Pétur
Ormslev yrði fyrir valinu. En svo fór
ekki og var það vilji leikmanna í Sam-
skipadeildinni að Guðmundur
Steinsson yrði fyrir valinu. Guð-
mundur lék 15 leiki í Samskipadeild-
inni fyrir Víking, gerði í þeim 13
mörk og varð með því markahæsti
maður Samskipadeildarinnar. Guð-
mundur gekk til liðs við Víking fyrir
nýlokið tímabil, en hann lék áður
með Fram. Það má með sanni segja,
að öðmm leikmönnum Víkings ólö-
stuðum, að Guðmundur Steinsson
hafi gert gæfumuninn fyrir Víking.
Laufey Sigurðardóttir, ÍA, varð fyrir
valinu hjá leikmönnum í 1. deild
kvenna sem knattspymukona ársins.
Hún, eins og Guðmundur Steinsson,
varð markahæst í 1. deild kvenna og
setti hún knöttinn 16 sinnum í net
andstæðinganna. Fyrir þennan ár-
angur var Laufey verðlaunuð með
„Skotskónum“, sem er gullskór frá
HI-TEC umboðinu á íslandi.
Laufey var ekki í lokahófinu og ger-
ist það alltof oft að kvenfólkið er ekki
viðstatt þegar afhenda á viðurkenn-
ingar af þessu tagi. Það er slæmt og er
ekki þeim til framdráttar.
-PS
Enska knattspyrnan:
lan Wright
til Arsenal
Ensld landsliðsframherjínn
Ian Wright var í gær seldur frá
Crystal Palace tíl Arsenal fyrir
utn 2.5 milljónir steriings-
punda, og er það nálægt þvf að
vera tvöfalt hærri upphæð en
Arsenal hefur áður greitt fyrir
leikmenn. Áður hafði Arsenal
þurft að punga út 1.3 milljón-
um steriingspunda fyrir Davld
Seaman.
George Craham sá sig tíl-
neyddan tíl þess að taka upp
veskið vegna lélegs gengis f
upphafí móts.
Wright, sem hefur gert fímm
mörk í fyrstu átta ieikjum
Crystai Palace, gekk tíl liðs við
Crystal Palacc fyrir sex árum
og lék hann sinn fyrsta lands-
leik gegn Kamerún f febrúar.
Hann hefur nú leikfð fíóra
landsleiki fyrir Engiand.
George Graham hefur nú reitt
fram um 3 milljónir steriings-
punda á einni viku, en f sfðustu
viku keyptí hann norska lands-
liðsmanninn Paui Lydersen
fyrir um 500 þúsund sterlings-
pund, reyndar með fyrirvara
um atvinnuleyfi.
Enska knattspyrnan:
Man. Utd er
enn á toppi
1. deildar
Manchester United heldur enn
nokkuð góðri forystu í ensku 1.
deildinni eftir stórsigur, 5-0, á
Luton sem vermir nú næst
neðsta sæti í deildinni. Brian
McClair gerði tvö marka United,
sem virðist vera algerlega
óstöðvandi og hefúr ekki tapað
leik enn sem komið. Reyndar
hafa áhangendur Man. Utd séð
þessa hluti gerast áður, en yfir-
leitt hefur sigið á ógæfuhliðina
þegar liðið hefur á tímabilið. En
við sjáum hvað setur. Lítið
gengur þó hjá Luton sem er eins
og áður sagði í næst neðsta sæti
deildarinnar.
Það eru aðeins tvö lið sem eru
taplaus í ensku 1. deildinni.
Annað þeirra er eins og áður
sagði Man. Utd, en hitt er Leeds
United. Leeds mætti þar Li-
verpool og sigraði með einu
marki gegn engu. Þetta er fyrsti
sigur Leeds á Liverpool í eitt-
hvað á annan áratug. Það var
Steve Hodge sem tryggði Leeds
sigurinn með glæsilegu marki á
af um 25 metra færi. Leeds fylg-
ir Man. Utd eftir á toppi deildar-
innar, fjórum stigum á eftir. Erf-
iðlega gengur nú hjá Liverpool
þessa dagana. Liðið hefur tapað
tveimur leikjum og gert tvö
jafntefli það sem af er móts.
Guðni Bergsson og félagar
hans í Tottenham nældu sér í
þriðja sætið í deildinni með 5-3
sigri á Wimbledon. Guðni
Bergsson lék í vörninni við hlið
Mabbuts og lék ágætlega. Hann
fékk þó á sig víti, en staðan var
þá 5-1. Gary Lineker gerði fjög-
ur mörk fyrir Tottenham í leikn-
um.
Meistarar Arsenal eru eitthvað
að vakna af þeim væra blundi
sem þeir voru á í upphafi móts.
Um helgina unnu þeir stórsigur,
5-2, á Sheffield United, sem nú
eru á botni deildarinnar. Það
voru þeir Alan Smith, Lee Dix-
on, David Rocastle, Kevin
Campbell og Perry Groves, sem
gerðu mörk Arsenal. Arsenal er
nú í áttunda sæti á eftir Liverpo-
ol.
Evrópukeppni landsliða U21 árs:
Sterkt íslenskt unglinga-
landslið mætir Spánverjum
í dag klukkan 17.15 leikur íslenska
landsliðið skipað leikmönnum 21 árs
og yngri gegn Spánverjum. íslenska
liöið er sterkt á pappímum og fara þar
allir efnilegustu leikmenn okkar, sem
margir hverjir gætu og hafa verið að
leika með A-landsliði okkar. Leikur-
inn fer ffam á Kópavogsvelli. Hólm-
Knattspyrna:
Tveir leikir ytra
íslenska landsliðið í knattspyrnu á
eftir að Ieika þrjá landsleiki áður en
árið er liðið, og eru tveir þeirra er-
lendis. Á miðvikudag leika þeir gegn
Spánverjum, eins og allir vita, en
þann 16. október heldur liðið til
Kýpur og leikur þar einn leik. Leik-
urinn er vináttulandsleikur, en er
jafnframt kærkomið tækifæri fyrir
Ásgeir Elíasson að kynnast liðinu og
leikmönnum þess betur, því rúmlega
mánuði seinna leikur liðið síðasta
leik sinn í undankeppni Evrópu-
keppninnar í knattspyrnu. Sá leikur
er gegn Frökkum og er þann 20.
nóvember í París.
bert Friðjónsson hefur valið leik-
mannahóp þarjn sem mætir þeim
spænsku í dag og er hann skipaður
eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Kristján Finnbogason ÍA
Ólafur Pétursson ÍBK
Vamarmenn:
Kristján Halldórsson ÍR
Amaldur Loftsson Valur
Brandur Sigurjónsson ÍA
Indriði Einarsson Fylkir
Miðjumenn:
Steinar Adolfsson Valur
Rúnar Kristinsson KR
Amar Grétarsson UBK
Anton Markússon Fram
Haraldur Ingólfsson ÍA
Ingólfur Ingólfsson Stjaraan
Finnur Kolbeinsson Fylkir
Sóknarmenn:
Valdimar Kristófersson Stíaman
Leifur Geir Hafsteinsson IBV
Amar Gunnlaugsson ÍA
íslendingar hafa háð fimm viður-
eignir við Spánverja í þessum aldurs-
flokki og höfum við aldrei farið með
sigur af hólmi. Þrivegis höfum við
tapað og einu sinni hafa liðin skilið
jöfn. Þá hafa Spánverjar gert fimm
mörk, en íslendingar ekkert. Viður-
eignin er sú sjötta í röðinni við Spán-
verja og hefur íslenska landsliðið ekki
hildi háð jafn oft við neina aðra þjóð í
þessum aldursflokki. Næstir koma
Hollendingar eða fjórum sinnum.
-PS