Tíminn - 24.09.1991, Side 16
-r
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnorhusinu v Tryggvagotu
S 7882?
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvísi bílasala
BlLAR • HJÓL •
BÁTAR•VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BlLL HJÁ ÞÉR
SIMI 679225
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
SIMI
91-676-444
Tímiiin
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPT. 1991
Vatnsútflutningurinn kominn í um 1.340 tonn á miðju ári:
BLÁVATNIP SELT FYRIR
FJÓRFALT BENSÍNVERÐ
Á miðju þessu árí var útflutningur óáfengra drykkja kominn í
um 1.340 tonn fyrir rúmlega 65 milljónir króna, að langmestu
leyti til Bretlands og Bandaríkjanna. Þar af fór um þríðjungurínn
í júnímánuði einum. Þarna er fyrst og fremst um að ræða okkar
rómaða blávatn, þó í hluta þess hafi að vísu verið blandað ein-
hvetju smáræði af bragðefnum.
Samkvæmt útflutningsskýrsl-
um Hagstofunnar lætur nærri
að útlendingar borgi glaðir um
50 þúsund krónur fyrir tonnið af
Gvendarbrunnavatninu okkar.
Verður það ekki að teljast nokk-
uð gott, t.d. þegar til þess er lit-
ið að íslendingar sleppa með að
borga tæplega 13 þúsund krón-
ur fyrir hvert tonn af bensíni
sem flutt var til landsins á sama
tíma?
Sem sagt að blávatnið virðist
þannig skila um fjórfalt hærra
„framleiðsluverði" heldur en
bensínið. Vatnsútflutningurinn
er hins vegar aðeins brot af því
bensíni sem flutt er til landsins,
enn sem komið er.
Vonir um gróða af útflutningi
áfengra drykkja frá íslandi virð-
ast á hinn bóginn heldur slakar,
ef marka má útflutningsskýrsl-
ur. Á miðju ári var aðeins búið
að selja 60 tonn af slíkum mjöð
fyrir rúmar 5 milljónir króna.
Einnig þar voru Bandaríkja-
menn kaupendur að bróðurpart-
inum, um 43 tonnum (væntan-
lega af vodka) fyrir 4,4 milljónir.
Eldsterkt vodka virðist sem sagt
ekki seljast á nema tvöföldu
vatnsverði, þ.e. um 100 þús.
krónur tonnið. - HEI
-c.
Slysavarnafélagið gagnrýnir síðari hluta nafns Landsbjargar og segir:
Landssambandið er
ekki landssamband
Á haustfundum Slysavamafélags
íslands kom fram hörð gagnrýni á
að síðarí hluti nafns Landsbjargar,
sambands hjáiparsveita skáta,
flugbjörgunarsveitanna o.fl., skuli
vera „landssamband björgunar-
sveita". Innan Landsbjargar verði
aðeins 28 sveitir, en innan SVFÍ
séu þær 94. Með nafngiftinni sé
því of djúpt í árina tekið.
Stjórn SVFÍ hefur óskað eftir því
við forystumenn Landsbjargar að
þeir noti ekki heitið „Landssam-
band björgunarsveita", enda gefi
það alranga og ósanna mynd af
nýju samtökunum. Þá hefur SVFÍ
áréttað yfirlýstan vilja sinn til að
vinna að sameiningu allra björg-
unaraðila í landinu í einu félagi.
Haustfundir SVFÍ voru að þessu
sinni 11 og haldnir víðs vegar um
landið. Um 450 formenn björgun-
arsveita, slysavarnadeilda og ung-
lingadeilda sóttu fundina. Á þeim
var rætt um stöðu SVFÍ, slysavarn-
ir og björgunarmál, nýtt átak í
slysavömum barna, tækjabúnað,
björgunarskýli, Slysavarnaskóla
sjómanna, Tilkynningaskylduna og
nýja björgunarmiðstöð. Jafnframt
voru fluttar skýrslur um starfsemi
sveita og deilda Slysavarnafélags
íslands. —sá
Mengunarflekkur með ströndinni suður af Sauðanesvita:
VARLA UM GRUTAR-
MENGUN AÐ RÆÐA
Vart varð við nokkurra metra breið-
an froðukenndan mengunarflekk út
af fjörunni við Sauöanesvita og allt
suður með ströndinni til Haganes-
víkur fyrir helgi.
Tilkynnt var um þennan flekk á
laugardag, sem talin var grútar-
mengun svipuð þeirri sem spillti lífi
á Ströndum í sumar og fór maður
frá Siglingamálastofnun norður til
að kanna málið. Sökum lélegs
skyggnis fékkst þó ekki greinargóð
mynd af umfangi eða eðli þessarar
mengunar, en þó er Ijóst að hún er
ekki eins mikil og á Ströndum og
trúlega ekki af sama toga. Nú virðist
mengunin vera froðukennd frekar
en lýsiskennd, en Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins fékk í gær sýni til
rannsóknar og staðfesti Snorri Þór-
isson, efnafræðingur hjá RF, að við
fyrstu sýn virtist þessi mengun ekki
sams konar og sú sem varð á
Ströndum í sumar. Snorri undir-
strikaði þó að ekki lægju fyrir nein-
ar niðurstöður um eðli þessarar
mengunar.
Hjálparsveitir skáta, flugbjörgunarsveitirn-
ar o.fl sameinast í nýju landssambandi:
Landsbjörg stofn-
uð á hátíðarfundi
Landsbjörg — landssamband
björgunarsveita verður formlega
stofnað á Akureyrí næstkomandi
laugardag, 28. sept., á sérstökum
hátíðarfundi þar sem viðstödd
verða Vigdís Finnbogadóttir for-
seti íslands, biskup íslands Ólafur
Skúlason og Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra.
Landsbjörg verður samband
björgunarsveita sem áður voru
innan Landssambands hjálpar-
sveita skáta og Landssambands
flugbjörgunarsveita. Jafnframt hafa
björgunarsveitin Stakkur í Keflavík
og Björgunarfélag Vestmannaeyja
sótt um aðild að Landsbjörg. Alls
verða því innan Landsbjargar 30
björgunarsveitir víðsvegar um
landið.
í tengslum við stofnþing Lands-
bjargar verður mikið um að vera á
Ákureyri, en þinginu mun ljúka
um miðnætti á laugardagskvöld
með mikilli flugeldaskothríð af þil-
fari varðskipsins Týs.
í undirbúningsstjórn Landsbjarg-
ar sitja dr. Ólafur Proppé formaður,
Ingvar Valdimarsson, Arnfinnur
Jónsson, Bjarni Axelsson, Jón
Gunnarsson, Páll Árnason, Gunnar
Bragason, Gylfi Garðarsson og Ög-
mundur Knútsson. Framkvæmda-
stjóri Landsbjargar er Björn Her-
mannsson.
Hjá Slysavarnafélagi íslands er
það gagnrýnt að hið nýja samband
nefni sig landssamband, þar sem
innan þess verði mun færri björg-
unarsveitir en eru innan vébanda
SVFÍ, auk þess sem starfssvæði
þess verði minna.
—sá
Vinningstölur 21. SepL 1991
laugardaginn I— —------ -
VINNINGSHAFA
UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
1.
3.716.152
2.
I 8
100.434
3.
182
7.615
4.
6.440
502
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
kr. 12.854.586
upplýsingar:Símsvari91-681511 lukkul!na991002