Tíminn - 27.11.1991, Qupperneq 4

Tíminn - 27.11.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn Miðvikudagur 27. nóvember 1991 1111111ÚTLÖND Evrópudómstóllinn fjallar um EES- samninginn fyrir luktum dyrum: Afstaða dómstólsins verður Ijós fyrir jól Embættismenn innan Evrópubandalagsins sögðu í gær að Evrópudómstóll- inn yrði sennilega búinn að taka afstöðu til þess hvort að tímamótasamn- ingurínn, um evrópskt efnahagssvæði (EES), á milli Evrópubandalagsins (EB) og Frrverslunarsamtök Evrópu (EFTA) verði staðfestur, fyrir jól. Evrópudómstóllinn átti fund með aðildaríkjum EB og Evrópuráðinu í gær til að fá firam afstöðu einstakra EB ríkja og Evrópuráðsins, um ákveðnar efasemdir sem þau hafa um hvert verði valdsvið þeirra í samningum. Fundurinn fór fram fyrir luktum dyrum. Undirritun samningsins var frestað á dögunum að kröfu Evrópudóm- stólsins. Heimildir innan EB segja að þetta mál sé þvílíkt grundvallarmál að til þess gæti komið að semja þurfi aftur um ýmis viðkvæm smáatriði í evr- ópska efnahagssvæðinu (EES). Embættismenn EB telja að fundur- inn haldi áfram í dag og jafnvel á morgun. Luxemborgardeild Evrópudóm- stólsins tilkynnti í gær að í kjölfar fundarins muni afstaða Evrópudóm- stólsins verða tilkynnt fyrir jól. Einn embættismaður EB sagði að líkleg dagsetning væri 16.- 20. desember. Evrópudómstóllinn hefur áhyggjur af því að EES og sameiginlegur dómstóll EB og EFTA, sem á að hafa framkvæmd með EES-samningn- um, hefti frelsi hinna 13 dómara Evrópudómstólsins þegar hann fæst við málefni sem heyra undir EB ein- göngu. Reuter-SlS Michael Arisn segir að stjórnvöld í Búrma reyni að fá hann til að hvetja konu sína til að fara í útlegð: Hún færi aldrei“ Eiginmaður fríðarverðlaunabafa Nóbels í ár, Michael Arís segir að kona hans, Aung San Suu Kyi, fái ekki þau bréf sem henni berast. Hann segir að skilyrðið fyrir því að hún fái bréf sín, sé að hann hvetji hana til að fara í útlegð. Aris sagði á blaðamannafundi í gær að fyrr á þessu ári hefðu stjómvöld í Búrma boðist til að afhenda henni bréfin sem henni berast ef hann bæði hana að fara í útlegð. Aris er breskur, en kennir sem gestaprófessor við Har- vardháskóla. „Hún samþykkir aldrei að fara í út- legð, hún vill vera hjá stuðnings- mönnum sínum. Hún er mjög holl sfnum hugsjónum," sagði Aris. Hann sagðist síðast hafa fengið bréf frá henni fyrír 16 mánuðum síðan. Síðan þá hefur hann ekki fengið nein- ar staðfestar fregnir af henni. „Ég hef aðeins heyrt orðróm. Ég hef stöðugar áhyggjur, borðar hún nóg? Getur hún alveg séð um sig hjáiparlaust?" sagði Michael Aris. Hann hélt blaðamannafund á hóteli nálægt höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna, en meira en 20 lönd hafa þiýst á Öryggisráð S.þ. að samþykkja gagnrýni á herforingjastjómina á næsta fundi sínum sem haldinn verð- ur í dag. Blaðamannafundurinn var haldinn til að kynna fyrstu bók Aung San Suu Kyi, Frelsi frá ótta og Önnur rit, sem hefur að geyma 20 ritgerðir eftir Suu. Hún hefur verið í stofufang- elsi síðan í júlí, 1989. Ári síðar vann flokkur hennar, Þjóðfrelsisfylkingin stórsigur í lýðræðislegum kosningum, en herfomingjastjómin neitar að fara frá völdum. Reuter-sis Evrópudómstóllinn fjallar um EES-samnlnglnn á mllll EB og EFTA. Lögreglan í Kenýa hefur handtekið aðstoðarmann for- setans, grunaðan um morð: Annar grunaðra er fyrrum iðnað- arráðherra Lögreglan í Nairóbí sagði f gær að hún hefði handtekið náinn sam- starfsmann forseta landsins, Dani- el arap Moi. Hann heitir Nicholas Biwott og er fyrrum iðnaðarráð- herra Kenýa. Lögreglan grunar Biwott um að tengjast morðinu á Robert Ouko sem var myrtur fyrir 20 mánuðum. Ouko var þá utanríkisráðherra. Biwott var nefndur fyrir átta dög- um sem einn af tveimur sem helst væru grunaðir um morðið. Handtaka Biwott, sem eitt sinn var einn valdamesti maður Kenýa, hefur vakið geysilega mikla at- hygli. Þegar Ouko fannst myrtur vakti það mikla athygli og óhug um alla Afríku, en líkamsleifar hans fundust í febrúar í fyrra. Tals- maður lögreglunnar sagði Reut- ersfréttastofunni að Biwott og þrír aðrir hefðu verið handteknir vegna morðsins. Meðal þeirra sem voru handteknir var Hezekiah Oyugi, en hann er hinn maðurinn sem var grunaður um morðið. Lögreglan vill lítið segja um handtökuna en sagði að yfirlýsing verði gefin síðar. Fréttir af handtökunni bárust að- eins klukkutíma eftir að Moi, for- seti, fyrirskipaði að nýtt fólk yrði sett f rannsókn málsins til að finna morðinga Oukos. Reuter-SIS Stasi hafði marga á sínum snærum: iróttí ma iði ir nj íósr i ia< iify rir ai Listur þýsl ku leyr liþji 3111 JStU na Lutz Dombrowski, fyrrum ólympíu- meistarí í fijálsum íþróttum, hefur viðurkennt að hafa njósnað fyrir austuþýsku leyniþjónustuna, Stasi. Hann sigraði í langstökki á ólympíu- leikunum í Moskvu árið 1980. Dombrowski segir í viðtali við þýska blaðið Morgenposten, að hann hafi gert samning við Stasi um að njósna um austuþýska íþróttamenn. Hann segist hafa gert þetta vegna ótta við að annars fengi hann ekki að ferðast til annarra landa. Hann er þekktasti íþróttamaður Austurþjóðverja sem viðurkennir að hafa njósnað fyrir Stasi. Austurþýska leyniþjónustan njósnaði um milljónir Austurþjóðverja og skráði hjá sér athafnir og einkalíf fólks. Dombrowski er f borgarráði Chemn- itz fyrir PDS flokkinn, sem var stofn- aður úr rústum gamla kommúnista- flokksins. Hann sagðist ætla að segja af sér. Hann sagðist einnig vera ábyrg- ur fyrir því að hafa komið upplýsing- um um íþróttamenn sem hugðust FRETTAYFIRLIT: BELGRADE • Tilkynnt var I gær að tvær manneskjur hafi látist i sprengjuárás serb- neskra skæruliða á bæinn Osijek í Króatíu. Að öðru leyti virtist vopnahléð ætla að halda. HAAG • Forsetl Evrópubandalagslns segir aö EB eigi ekki sjálfkrafa að viðurkenna sjálfetæði Króatfu og Slóvenfu þegarfresturtil þess renn- ur út, þann 10. desember. CLAftK FLUGVÖLLUR á Filipseyjum • Filipseyingar hafa tekið yfir stjóm á flugveliin- um sem hingað til hefur verið stærstl flugvöllur Bandarfkjamanna á etlendri grundu. Hlns veg- ar segjast þeir ekki hafa peninga tíl að halda honum í þvl horfi sem hann er. JERÚSALEM • Palestínskir samningamenn em tilbúnir til að fara til Washington til við- ræðna vlð Israel I næstu viku þrátt fyrir óvlssu um að Bandarlkin veitl öltum sendimönnum þeirra landvistarieyfl. VARSJÁ - Lech Walesa, forseti Póllands, hefur beðið Jan Krzysztof Bieleckl, sitjandi for- sætisráðherra, að gegna embætti stnu áfram þar til ný ríkistjóm tekur viö völdum. PHNOM PENH • Þúsundir studenta gengu í gegnum þorgina til að mótmæia endurkomu forystumanna Rauðu khmeranna, en þeir eiga sök á dauða milljóna Kambódia. MONTEREY, Kalifornía - Þrír gagnfræöa- skóladrengir á aldrinum 13 og 14 ára voru sak- felidir fyrir að hafa iagt á ráöin og myrt 11 ára gamlan dreng í Walter Coldon Mlddleskóia f Kalifomfu. Drengirnir vom sakfelldir fyrir mann- dráp. Þeir eiga yfir höfði sér allt að 11 ára fang- elst. Sjö skólabræður þeirra voru ákærðir fyrir að bera vopn á sér á skólalóðinni og fyrir vikið voru þeir reknir úr skólanum. Lögreglan segir að samsærið megi rekja til deilna effir körfu- knattleik á skólalóðinni. LEIGHTON BUZZARD, Englandi • Nfu ára drengur var rifin á hol af þremur hundum sínum á mánudag. Foreidrar drengsins létu farga hundunum. Lögreglan erennþá að rann- saka tildrög þessa hörmulega atburðar. LAGUNITAS, KalHornla • Leikarinn Klaus Kinski fannst látlnn á heimlli sínu um helgfna. Hann dó af eðlilegum orsökum. Hann var fæddur þann 18. október áriö 1926 í Banzig f Póllandi. Hans raunverulega nafn var Niko- lausz Guenther Nakszynski. Klaus Kinski hóf feril sinn f fangabúðum i Síð- ari heimsstyrjöldinni. Hann lék í rúmlega 200 kvikmyndum, og ber helst að nefna Sívago læknir, Handfylli af doilurum og Fifzcarraldo. Dóttlr hans, Nastassja Kinski er heimsfræg leikkona. TÓKÍÓ - Heilbrigðisráðuneytið í Japan sagði í gær að búið væri að tilkynna um 10 ný alnæm- istilfeili og um 46 sem hefðu greinst með vfrusinn í sér. Tafsmaður hellbrigðisráðuneytis- íns sagði að Japanir stæðu nú framml fyrir þeirri aivariegu staðreynda að fjöldi alnæmis- sjúklinga gæti aukist verulega á skömmum tíma. Hann sagði að töiur fyrir september-októ- ber sýndu að alis væru fómariömb ainæmis 415. Tala þeirra sem hafa HlV-veiruna í sér er 1.898. Á þessu tveggja mánuða tímabili létust 6 manns úr alnæmi og þar með hafa 208 manns f Japan látist úr sjúkdómnum. Af þeim 46 sem fundust með virusinn f sér eru 26 frá Suðaustur-Asíu, þ.á.m. Thaiíandi og Fllipseyj- um. ISTANBUL • Tyrkir hafa ákveðið að ráða konur ( stöðu fiugstjóra. „Okkur vantar fiug- menn og konum er meira en velkomið að sækja um,“ segir Engin Oktemer, talsmaður Tyrkneska fiugfélagins, en það er í eigu rikiss- ins. „Vtð gerum ekki lengur upp á miiii kynja. Ef karimenn geta flogið þotum, hvers vegna ættu konur ekki að geta það?“ segir hann. Hann sagði að auglýst verði eför konum til starfa. ætla að flýja landið. Stasi hafði rúmlega 85.000 manns í fullu starfi við njósnir og notaðist við þúsundir uppljóstrara. Reuter-SIS Kólera geysar í Mexíkó: TILFELLUM FJÖLGAR Fjöldi kóreutilfella í Mexíkóborg er orðinn 2.377 sem er mun meira en skráð tilfelli voru í júní sl. Eduardo Arvizu Marin, talsmaður heilbrigðisráðuneytisins í Mexíkó, sagði að kólerutilfelli væri skráð í 16 fylkjum að 31. Hann sagði að 78 tilfelli af þeim 103 sem tilkynnt var um í síð- ustu viku væru í suðuríylkjunum, Chi- apas, Giuerrero, Tabasco og Yucatan. Kólerufaraldurinn hefur lagt 36 Mexí- kana í gröfina frá því að fyrstu tilfellin voru skráð, í júní sl. Meira en 589 kólerutilfelli hafa verið tilkynnti í lábasco, þar af 38 í þessari viku. Arvizu Marin segir að bráðasjúkra- vakt hafi verið send á þau svæði sem kóleran geysar til að reyna að ná nið- urlögum sjúkdómsins. Talsmaður heilsumála íTábasco, Hec- tor Lie segir að venjulega sé byrjað á að finna uppruna feraldursins. „Vatn er sótthreinsað, skólpræsakerfi er kann- að og hús eftir hús er skoðað" segir hann. Á þessu ári hafa 3 þúsund manns í Rómönsku-Ameríku dáið úr kóleru. Reuter-SIS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.