Tíminn - 27.11.1991, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.11.1991, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 27. nóvember 1991 Tíminn 7 ■ VETTVANGUR Árni Helgason: Bindindisdagur fjölskyldunnar Það er ekki mikið þó þjóðin helgi Qölskyldunni einn eða fleiri bind- indisdaga á ári; svo mikinn usla hefur áfengi og önnur vímuefni gert innan fjölskyldnanna á kostn- að heilbrigði og hollustu, að það verður aldrei metið til verðs. Vald- hafar þjóðlanda hafa sagt að þessi eiturefni hafi lagt í rústir fleiri heimili og byggðir en allar styrj- aldir frá upphafi vega. Við þurfum ekki að líta nema yfir okkar litla land, fámennt á heims- mælikvarða, til að sjá hversu þessi vímuefni hafe tætt í sundur, gert gleði að sorg, heill að óhamingju. Því er bráð nauðsyn að gera allt sem í okkar valdi stendur til að vinna gegn vímuefnaöflunum. Svo að árangur náist er áhrifamest það sem unnið er innan heimilanna, því að heimilin eiga að vera hom- steinar þjóðfélagsins. Þar liggja rætur bættra siða og heilbrigðis. Ef heimilin standa vörð um böm- in, sjá um þau fái hollt veganesti út í lífið, em líkur til að hægt verði að stemma stigu við því sem eitrar þjóðlífið mest, ef foreldrar vaka yf- ir bömum sínum og benda ti! hamingjuríkra lífshátta, vinnst mikið. Eitt heimili, sem bregst, getur sýrt út frá sér, eins og skemmd kartafla spillir heilum poka. Þetta skulum við leggja okk- ur á hjarta. Við heymm oft raddir um að skól- amir eigi að gera þetta eða hitt. Vissulega gera skólamir það sem þeim er mögulegt, en það er nú svo að því miður em það oftast heimilin sem bregðast; þá tekur það sinn tíma að bæta það sem heimilin hafa vanrækt, og hæpið að skólavist dugi til. Þetta sést allt- of víða. Þess vegna er uppbygging heimilanna eitt hið brýnasta í þjóðfélagi okkar. Heimilin mega ekki loka augunum fyrir því sem úr skorðum fer. Fólk verður að skilja að það em foreldramir sem bömin líta upp til sem fyrirmynd- ar. Ást þeirra til mömmu og pabba er svo mikilvæg að foreldrar verða að hlúa að henni eftir getu. Það þarf ekki mikinn kulda til að þar verði sú breyting á, sem erfitt verð- ur að laga. Heilsteyptar fjölskyldur og gott heimilislíf hafa sfn áhrif. Það er mergurinn málsins. Því fagna ég að sérstakur bindind- isdagur fjölskyldunnar er haldinn. Auðvitað væri kærast að þeir yrðu sem flestir. En þegar einn dagur er valinn til að hugleiða og brjóta til mergjar mun eitthvað á eftir fara. Þá verða fleiri dagar íhugunartími bindindis og kristins lífemis. Þá stefnir að því að íhuga slíkt dag hvem. Nú tvístrast heimili, hjónabönd rofna. Við þurfum traust hjóna- bönd, sterk heimili, og um leið heilbrigða þjóð. Það er til mikils að vinna. Nú byrjum við og svo skal áfram haldið. „Guð í hjarta, guð í stafni gefur fararheill." Bogi Arnar Finnbogason, formaður Vímulausrar æsku — foreldrasamtaka: Vímulausar fjölskyldur f nútímaþjóðfélagi eru þær að öllum líkindum í minnihluta. Fullorðnu fólki þykir mörgu að það geti ekki „lyft sér upp“ án þess að vera undir nokkrum áfengisáhrifum. Segja má að þetta sé ofur eðlileg afleiðing af þeim linnulausa beina og óbeina áróðri sem rekinn er fyrir áfeng- isneyslu í þjóðfélaginu. Því er linnulaust haldið að fólki í fjöl- miðlum og reyndar í öllu þjóðfé- lagsmynstrinu að áfengi sé ómissandi fylginautur við nánast allar aðstæður. Þeir sem lagnir eru við að finna vímulausa gleði- gjafa, svo sem íþróttir, fjallaferðir og gönguferðir, eru á stundum nánast litnir hornauga sem furðufuglar. Við þessu virðist gagna lítt að segja nokkuð við fullorðið fólk nema að beina þeim eindregnu tilmælum til þess að verða ekki sjálfum sér og fjölskyldu sinni til hneisu með framferði sínu undir áhrifum áfengis. Og að sjálfsögðu að hvarfla að því huga við og við að það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Þá erum við komin að kjarna máls. Líklega er almennt siðferði ekki lakara hér á landi en með öðrum þjóðum. En virðing fyrir lögum virðist eyjarskeggjum lítt hugstæð. Sú er líklega skýringin á síaukinni áfengisneyslu ung- linga. Kannski gera fæstir sér grein fyrir því að samkvæmt landslögum er fólki undir tvítugu óheimilt að hafa, kaupa og neyta áfengis. Þetta lagaákvæði virðist gleymt og grafið og drykkjuveisl- ur þykja víða ekkert tiltökumál, eða í besta falli óhjákvæmilegur fylgifiskur unglingsáranna. Spyrja mætti hvers vegna yfir- völd grípa ekki oftar í taumana vegna slíkra brota. Skýringin er líklega sú að það stoði lítt ef al- menningsálitið er fylgjandi eftir- látssemi við unglinga varðandi áfengisneyslu. Líklega er hér á ferðinni umburðarlyndi á villi- götum. Þjóðfélagið hefur kannski engan rétt til þess að skipta sér af fullvaxta fólki, þótt það drekki áfengi „í hófi“. En það er stóral- varlegt mál ef unglingar venja sig á neyslu áfengis; ekki einungis vegna þess að það tefur þá frá skólanámi, er kostnaðarsamt og truflar allt lífsmynstur þeirra, heldur getur áfengisneysla hæg- lega dregið úr þroska þeirra, e.t.v. varanlega, og spillt fyrir þeim tækifærum við upphaf lífshlaups- ins. Við erum of sinnulaus um þettal Við líðum það endalaust að lög séu brotin fyrir augum okkar, jafnt áfengislög sem önnur. Áfengi er fyrsta ávana- og fíkni- efni flestra. Tóbak, sá argi fylgi- fiskur, kemur fljótlega í kjölfarið, ef hann hefur ekki þegar náð tök- um á unglingnum. Og ekki bætir úr skák þegar farið er að prófa „eitthvað nýtt“, hvort sem það heitir hass, kókaín, amfetamín eða hvað þeir heita allir „gleði- gjafarnir". Því væri ekki úr vegi að hafa einn vímulausan dag til að hug- leiða þetta. Jafnvel mætti hugsa sér að fjölskyldan tæki sig til og gerði eitthvað saman, t.d. að fara á skíði, í sund eða fjöruferð, og ræddi þessi mál með þeim hætti að öllum í fjölskyldunni gæfist tækifæri til að tjá sig hreinskiln- islega og umbúðalaust. Tökum höndum saman um að vernda börnin okkar fyrir hvers konar vímuefnum á viðkvæmu mótunarskeiði þeirra. Leggjum hornstein að farsælli framtíð þeirra með góðu fordæmi og kær- leika. Notum daginn til að spyrja börnin okkar álits á þessum mál- um. Hvað vilt þú að gerist til að bæta ástandið í fjölskyldu okkar? Hvernig finnst þér að ætti að taka á þessum vanda í þjóðfélaginu? Hlustum á svör barnanna okkarl Foreldrar! Ef einhver vandamál hrjá ykkur á þessu sviði er hugs- anlegt að við getum veitt ykkur nokkurt liðsinni. Hafið samband. Síminn er 91-622217.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.