Tíminn - 11.12.1991, Side 13
Miðvikudagur 11. desember 1991
Tíminn 13
Keflvíkingar
Ákveðiö hefur veríö aö hafa bæjarmálafundi kl. 18.00 alla mánudaga til Jóla.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélógln.
Keflvíkingar
Skrifstofa framsóknarfélaganna að Hafnargötu 62, simi 11070, veröuropin mánu-
daga 17-19, miðvikudaga 17-19 og laugardaga 14-16.
Munið bæjarmálafundina.
Hafnfirðingar
Skrifstofa Framsóknarfélaganna aö Hverfisgötu 25, slmi 51819, veröur opin á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Allir velkomnir. Framsóknarfélögln I Hafnarfíról.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsinsað Digranesvegi 12, Kópavogi, eropin mánud-
fimmtud. kl. 17.00-19.00.
Simi 43222.
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suöuriandi aö Eyrarvegi
15, Selfossi, er opin á fimmtudögum kl. 16-18.
Slmi 22547. Fax 22852.
Borgarnes - Opið hús
I vetur veröur aö venju opiö hús á mánudögum frá kl. 20.30 til 21.30 I Framsóknar-
húsinu, Brákarbraut 1. Bæjarfulltrúar flokksins veröa þar til viötals ásamt ýmsum
fúlltrúum I nefndum á vegum bæjarfélagsins.
Heitt veröur á könnunni og allir velkomnir til aö ræða bæjarmálin.
Sími71633.
Framsóknarfélag Borgamess.
Happdrætti Framsóknar-
flokksins
Dregiö verður I Jólahappdrættinu 24. desember n.k. Munið aö greiöa heimsenda
glróseöla.
Framsóknarfíokkurinn
Jólaalmanak SUF
Eftlrtalin númer hlutu vinning I jólaalmanaki SUF:
1. vinningur almanak nr. 1397
2. vinningur almanak nr. 5731
3. vinningur almanak nr. 2569
4. vinningur almanak nr. 5681
5. vinningur almanak nr. 5469
6. vinningur almanak nr. 5652
7. vinningur almanak nr. 1177
8. vinningur almanak nr. 1484
9. vinningur almanak nr. 3895
10. vinningur almanak nr. 1655
Þökkum stuöninglnn.
11. vinningur almanak nr. 4832
12. vinningur almanak nr. 240
13. vinningur almanak nr. 5363
14. vinningur almanak nr. 2114
15. vinningur almanak nr. 1912
16. vinningur almanak nr. 666
17. vinningur almanak nr. 5794
18. vinninguralmanak nr. 1579
19. vinningur almanak nr. 753
20. vinningur almanak nr. 1841
Samband ungra framsóknarmanna
Kópavogsbúar — nágrannar
Jólaglögg
Jólaglögg verður aö Digranesvegi 12, föstudaginn 13. desember kl. 17:00. Ýmis-
legt veröur til skemmtunar.
Allir velkomnir.
Freyja, félag framsóknarkvenna og Framsóknarfélag Kópavogs.
Borgnesingar, nærsveitir
Spilum félagsvist i Félagsbæ föstudaginn 13. desember. Siðasta kvöldiö i þriggja
kvölda keppni.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgamess.
Jólaglögg SUF
Föstudaginn 20. desember stendur SUF fyrir jólaglöggi á flokksskrifstofunni, Hafn-
arstræti 20, 3. hæð, kl. 20.30.
Dagskrá:
Formenn ungliöahreyfinga stjómmálaflokkanna flytja ávörp i stil aö eigin vali.
Siguröur Pétursson, Sambandi ungra jafnaöarmanna
Davíð Stefánsson, Sambandi ungra sjálfstæðismanna
Kolbeinn Proppé, Æskulýösfylkingu Alþýöubandalagsins
Siv Friöleifsdóttir, Sambandi ungra framsóknarmanna
Komiö meö jólapakka á 500 krónur.
Mætum öll.
Framkvæmdastjóm SUF
Gódar veislur fH . rnjpj;
endavel! m
Eftir einn -ei aki ne/nn^
UÉ UMFERÐAR RÁÐ
David Bowie og Iman ganga í það heilaga:
ÞAU VILJA EKKI
SEGJA HVENÆR
Ekki skrítið aö hún hafi náð langt í fyrirsætubransanum.
David Bowie og Iman ætla að gifta
sig í vor, en vilja ekki gefa upp hve-
nær eða hvar.
David Bowie þekkja allir, hann er
bæði söngvari og leikari og gerir
það gotL Iman var lengi vel ein eft-
irsóttasta fyrirsæta í heimi og
fyrsta svarta fyrirsætan sem vakti
verulega athygli. Hún hefur greitt
götuna fyrir stúlkur eins og Naomi
Campbell og fleiri. Iman hefur að
mestu leyti snúið sér frá fyrirsætu-
störfum, en þess í stað snúið sér að
kvikmyndaleik í auknum mæli.
Meðal mynda, sem hún hefur leik-
ið í, er t.d. No Way Out, með Kevin
Costner og Sean Young.
David og Iman hittust fyrir einu
ári síðan, en þá var David nýlega
hættur með Melissa Hurley.
„Hann varð alveg gagntekinn af
henni,“ segir vinur hans. Stuttu
eftir að þau byrjuðu saman, eyddu
þau saman jólunum f Sviss. Eftir
það hafa þau verið óaðskiljanleg og
þegar þau eyddu saman síðbúnu
sumarleyfi í París, bað David henn-
ar.
„Ég var búinn að hugsa lengi um
þetta og ákvað að það yrði að vera í
París. Yfir kvöldverði, og ég vissi að
ég yrði að syngja til hennar til að
tjá henni tilfinningar mínar. Þann-
ig geri ég það best,“ segir David
Bowie. Hann söng ekkertaf sínum
frægu lögum, sem hafa gert nafn
hans ódauðlegt f poppheiminum.
Hann leitaði aftur til klassísku ást-
arsöngvanna frá sjötta áratugnum
og söng lagið hennar Dorisar Day,
Apríl í París, en þar var að finna allt
sem hann langaði til að segja. Það
eina, sem hann varð að breyta, var
mánaðarheitið og lagið varð Októ-
ber í París.
„Sem betur fer heppnaðist það.
Það var allt fullkomið. Við borðuð-
um kvöldmat yfir kertaljósi um
borð í snekkju, þegar ég stóð upp
og byrjaði að syngja Október í Par-
ís. Síðan bað ég hana að giftast
mér og hún sagði strax já. Henni
brá svo þegar ég byrjaði að syngja
að hún datt næstum um koll og út
í ána,“ segir hann. „Þetta kom
henni mjög á óvart, en hún þurfti
ekki að hugsa sig tvisvar um og ját-
aðist mér strax.“
David segir einnig að það hafi ver-
ið kominn tími fyrir þau bæði að
festa ráð sitt. „Við ætlum ekki að
setjast í helgan stein, en við viljum
eyða ævinni saman,“ segir David
Bowie.
Hann segir að Melissa, fyrrum
kærasta hans, sé mjög yndisíeg, en
það hafi verið óumflýjanlegt að
binda enda á það samband. „Sam-
band okkar Iman er öðruvísi. Hún
er nær mér í aldri, við höfum bæði
verið gift áður, og skilið, og við eig-
um bæði böm. Þar að auki eigum
við svo margt sameiginlegt, og eig-
um mikið af sameiginlegum vin-
um,“ segir David.
Hann var giftur Angie Bowie í 10
ár, en þau skildu fyrir 12 árum.
Þrátt fyrir allan þennan tíma hefúr
aldrei gróið um heilt milli þeirra
og þau em langt því frá að vera
góðir vinir og senda hvort öðm
ekki einu sinni jólakorL f átta ár
var Iman gift körfuboltakappanum
Spencer Haywood. Hjónaband
hennar var mjög gott í fyrstu, en
endaði illa. David á son sem heitir
Zowie og er 19 ára. Iman á 12 ára
dóttur sem heitir Zulekha. David
segir að þau hafi rætt um bam-
eignir og það gæti orðið af þeim
við tækifæri.
Þau hafa einnig rætt um fyrir-
hugaða giftingu, en vilja ekkert
segja til um hvenær eða hvar hún
fer fram. Iman segir sjálf að David
sé þannig gerður að hún geti ekki
annað en elskað hann. „Ég hef allt-
af laðast að heillandi mönnum og
hann er það svo sannarlega. Allar
konur viíja rómantíska menn, og
hann er mjög rómantískur. Mig
langar til að eignast tvö böm í við-
bót. David og ég eigum bæði eitt
bam. Það væri indælt ef þau væm
samtals fjögur," segir Iman.
En fyrst ætla þau að gifta sig og
svo verður tíminn bara að leiða í
ljós hvað verður.