Tíminn - 04.01.1992, Page 1

Tíminn - 04.01.1992, Page 1
Laugardagur 4. janúar1992 2. tbl. 76. árg. VERÐ f LAUSASÖLU KR. 110.- 20-30 íslenskir smalahestar munu fara með vorskipunum til Samabyggða: Islenskum hestum beitt gegn heilbrigðisvanda í vor veröa á milli 20 og 30 íslenskir hestar fluttir í tilraunaskyni til Samabyggðarinnar Gransameby við Ammarnes í norðurhluta Svíþjóðar. Þar á að nota þá við smöiun hreindýra, en á umliðnum árum hafa Samar notast við vélknúin ökutæki við smölunina, fjór- hjól og vélsleða. Ökutækin hafa hins vegar ekki reynst nógu veí því hristingurinn sem skapast við akstur í ófærum hefur leitt til slæmra nýrna- og Iiðamótakvilia hjá smalamönnum og blóðrásar- truflanir eru algengar. Kvillar af þessu tagi eru að verða plága meðal Sama og hafa bæði fjölmiðlar og yflrvöld flokkað þá sem heilbrigðisvandamál. Vonast menn nú til að íslenski hesturinn, sem í árhundruð hefur reynst íslendingum vel í göngum, muni bjarga heilsu samískra smalamanna. Þeir hestar sem héðan munu fara í vor verða fluttir út í samvinnu fyrir- tækisins Loka-íslandshesta sem er starfrækt af íslenskum aðilum í Sví- þjóð og Osvald Jonson, Sama sem hefur umboð frá Landsambandi Sama f Svíþjóð, „Samamas riksfor- bund“. Hugmyndin að þessu verkefni er komin frá Þórði Erlingssyni hjá Loka- íslandshestum og Osvald Jon- son og hefur undirbúningur staðið yfir um alllangt skeið. Osvald Jonsson sagði í samtali við Tímann í gær að hann hafi sjálfur átt íslenskan hest og reynsla hans af honum hafi verið góð og því hafi hann fengið áhuga á að breiða út notkun hans við smölun hreindýranna. Skandinavíski hestur- inn væri hins vegar ómögulegur í smalamennsku af þessu tagi, enda þyrfti hann helst að vera á jafnsléttu. Islenski hesturinn væri margfalt harðari af sér og þolbetri. Hann bend- ir á að mótorhjólin komist hvergi nærri eins mikið um ófærur og hest- urinn, auk þess sem menn geti illa haft með sér hund í smalamennsk- unni ef vélknúin ökutæki eru notuð. Því verði smalamennska á hestum trúlega fljótlegri en smalamennska á hjólum þegar upp er staðið auk þess sem hún losi menn við sjúkleika vegna hristingsins sem einkum kem- ur fram í nýrum, höndum og liða- mótum, hnakka og höfði auk annars. En það er fleira sem spilar inn í áhuga manna í Samabyggðum á að fé íslenska hestinn. í fyrsta lagi er hér um umhverfisvæna breytingu að ræða og í öðru lagi telja menn að hross falli betur að menningararfleið Sama en mótorhjól eða vélsleðar. Eins og áður sagði verða á milli 20 og 30 hross flutt út í vor og að sögn Þórðar Erlingssonar verður leitað eftir góðum og duglegum smalahest- um sem hafa til að bera þá eiginleika sem Samarnir sækjast eftir. Það vor munu 20-30 íslenskir hestar leggja upp í ferð til Norður- Svíþjóðar þar sem þeir munu leysa af hólmi vélhjól og -sleða við smölun á hreindýrum. verða hinir kunnu skagfirsku hrossa- bændur, Jóhann Þorsteinsson á Mið- sitju og Sigurður Hansen í Kringlu- mýri, sem munu sjá um að velja hrossinn. Að sögn Þórðar hefur ekki endanlega verið ákveðið um verð fyr- ir hrossin og hann undirstrikar að um tilraun sé að ræða. Þórður vildi heldur ekkert fullyrða um'hversu mikill þessi útflutningur gæti orðið ef tilraunin heppnast vel, en Osvald Jonson var hins vegar ekki í miklum vafa um að Samabyggðir vítt og breitt myndu skipta úr vélhjólum yf- ir í íslenska hesta ef þessi tilraun gengi vel. Þess má geta að íslenska landbúnað- arráðuneytið og Félag íslenskra hrossabænda hafa lýst stuðningi sín- um við þetta tilraunaverkefni. -ÁG/BG/SÁ Ríkisendurskoðun hefur margt að athuga við rekstur Tryggingastofnunar: „Smákóngastríö“ um 36% ríkisútgjalda Tryggingastofnun ríkisins nær að sinna því hlutverki sínu að af- greiða réttar bætur, til réttra aðila, á réttum tíma, að mati Rfldsend- urskoðunar. En aðrír þættir í starfseminni, svo sem áætlanagerð og hagsýsla, hafa setið á hakanum. Enda, þótt ótrúlegt sé, reynist eng- in áætlana- eða hagdeild til hjá þessarí stofnun sem sýslar þó með um 36% af útgjöldum rfldssjóðs, eða um 37 milljarða króna árið 1990. Endurskoðunardeild hefur heldur ekki sinnt því hlutverki sínu að fylgjast með starfsemi stofnunarinnar. Kannski að vonum þar sem ekkert op- inbert eða staðfest skipurit er til að þessari miklu stofnun. Hin víða stjóm- spönn forstjóra er talin helsti galli stjómskipulagsins. Losaralegyfirstjóm hafi stundum truflað starfsemina. Rík- isendurskoðun telur á vanta að nægi- lega fari saman vald og ábyrgð. Einsog nú er 'skiptist TVyggingastofhun í 15 jafnsettar deildir, hverra verkefni virð- ast oft skarast þvers og kruss sem veld- ur togstreitu um starfssvið milli deild- anna. Þar á ofan skattyrðast .smákóng- ar“ um verk- og valdsvið, hvar af sumir þeirra ráðherraráðnu telja jafnvel for- stjórann ekki hafa yfir sér að segja. TVyggingaráð stússast svo aðallega í úr- skurðum og reglubundnum afgreiðsl- um en sinnir lítið því hlutverki sínu að hafa eftirlit með rekstrinum. Þá skortir skýr lagaákvæði um hver eigi að vera tengsl milli tryggingaráðs og heilbrigð- isráðherra/ráðuneyti, sem valdið hefur vandræðum í samskiptum stofnunar og ráðuneytis. J raun má segja að með núverandi fyrirkomulagi nái TVyggingastofhun að sinna aðalstarfi sínu, þ.e. afgreiðslu bóta, en aðrir þættir hafa setið á hakan- um. Þar er um að ræða öfluga áætlana- gerð, hagsýslu ýmiss konar og hinn faglega þátt sem lýtur að tryggingamál- um,“ segir Ríkisendurskoðun. Hún leggur til að TVyggingastofnun verði skipt í þtjú meginsvið, þ.e. sjúkratrygg- ingasvið, lífeyrissvið og stjómsýslusvið. Læknadeild, sem eigi að vera fagdeild, og endurskoðunardeild skuli svo heyra beint undir forstjóra. Veigamesta breytingin fælist í stofnun stjómsýslu- sviðsins, sem tæki yfir allt það sem lýt- ur að fjármálum, hagsýslu, upplýsinga- málum, starfsmannahaldi og þjónustu við sjóði. (Sjá einnig blaðsíöu 3) -HEI íþróttir þroskaheftra: Sigrún Huld nr. 1 í heiminum í dag Samkvæmt fréttabréfl alþjóða- samtaka þroskaheftra íþrótta- manna er Sigrún Huld Hrafns- dóttir, sundkona úr íþróttafélag- inu Ösp, nú efst á afreksmanna- lista þroskaheftra í heiminum í dag. Forsíða fréttabréfsins, sem við sjáum hér, er lögð undir afrek Sigrúnar og dylst engum sá boð- skapur sem þar er á ferðinni. Sig- rún er nú sjöfaldur heimsmethafl í sundi. Þá var hún kjörin iþrótta- maður ársins hjá íþróttasam- bandi fatlaðra á dögunum. Sigrún keppir sem gestur á nýarsundmóti fatlaðra bama og unglinga sem haldið verður í Sundhöll Reykjavíkur á morgun og hefst það kl. 14.30 -PS Sigrun, number u in the world .,... Forsíða fréttabrófslns sem öl er lögð undir Sigrúnu Huld.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.