Tíminn - 04.01.1992, Síða 5

Tíminn - 04.01.1992, Síða 5
Laugardagur 4. janúar 1992 Tíminn 5 Skammdegistungl yfir Gróttu. Ttmamynd Ami Bjama Lífið er pólitík Jón Kristjánsson skrifar Þeir, sem að blaðaútgáfu standa, eiga að hafa skoðanir sem þeir vilja nokkuð á sig leggja til þess að berjast fyrir. Hlutverk Tímans um þessar mundir er að flytja frjálslynd sjónarmið og veita stjórnvöld- um það aðhald sem hann má. Hlutverk blaðsins er að bregðast við málum á gagnrýninn hátt og ég get engu um það lofað, meðan ég sit í ritstjórastól á blað- inu, að jafnvel flokksbræðrum mínum og systrum líki allt sem sagt er í blaðinu. Það verður að koma í ljós. MENN OG MÁLEFNI Sú breyting verður um áramótin að Tímabréf hættir að birtast, og í stað þess mun þessi dálkur verða skrifaður um helgar undir því gamla nafni Menn og málefni. Sú breyting verður einnig að þessar hugleiðingar verða skrifaðar und- ir nafni, og þá gjaman af aðilum sem standa í víglínunni í stjómmálabarátt- unni í landinu fyrir Framsóknarflokk- inn. Um leið og þessi fyrstu skrif á árinu birtast, vil ég nota tækifærið og þakka ffáfarandi ritstjómm, sem meðal annars höfðu veg og vanda af Tímabréfinu, fyrir góð störf við Tímann. Þeir sómdu sér vel í hópi þeirra ágætu manna, sem haldið hafa um pennann hér frá upphafi vega. Allir vom þessir menn ritfærir í betra lagi og flestir mjög áberandi í þjóðfélag- inu og virkir þátttakendur í þjóðfélags- umræðunni. HLUTVERK DAGBLAÐA Tíminn rær lífróður um þessar mund- ir. Það er í rauninni ekki nýtt í sögu blaðsins, sem nú er spannar yfir rúm- lega sjö áratugi. Hitt er ljóst að miklar breytingar hafa orðið í þjóðlífmu, jafnt í fjölmiðlun sem annars staðar. Dagblaða- útgáfa verður að taka mið af þessu. Dagblöð hafa lengst af verið gefin út af aðilum, sem vilja hafa áhrif í þjóðfélag- inu og beita blöðunum fyrir sig sem áróðurstæki í þeim tilgangi. Hér gildir einu hvort útgefendurnir em stjóm- málaflokkar eða hlutafélög einhverra sem aðhyllast ákveðnar lífsskoðanir. Hitt er staðreynd að útgáfa merkt stjórn- málaflokkum á erfitt uppdráttar um þessar mundir. Helst þetta í hendur við þær breytingar að almenningur vill síð- ur nú en áður merkja sig ákveðnum stjómmálaflokkum svo áþreifanlegt sé. LÍFIÐ ER PÓLITÍK Þetta breytir engu um það að stjómmál verða áberandi á síðum dagblaða, meðan þau koma á annað borð út. Lífið er nú einu sinni pólitík í einu eða öðm formi. Blað, sem sinn- ir ekki þessari slagæð, er ekki mikils virði. Eigi að síður hlýtur ffétta- hlutverk dag- blaða enn að vera mikilvægt. En það hefur breyst. Eðli máls samkvæmt geta blöð ekki að öllum jafnaði verið fyrst með fréttirnar. Hins vegar hafa þau mikil- vægu hlutverki að gegna í að skýra og skilgreina, og dýpka skilninginn á mál- um sem efst em á baugi hverju sinni. SKARÐ FYRIR SKILDI Tíminn hefur í sjötíu og fimm ár ver- ið málsvari þeirra sem aðhyllast frjáls- lyndar skoðanir í stjómmálum, sam- vinnu og félagshyggju. Hér hafa ýmsir haldið um pennann, sem ekki hafa dreg- ið af sér við það að halda fram þessum sjónarmiðum, og oftar en ekki hafa þeir verið í kröppum dansi og ritdeilum við andstæðingana. Þetta hefur gefið þjóðfé- lagsumræðunni aukið líf. Ef svo fer að Tíminn og Þjóðviljinn hverfa af sviðinu, verður umræðan í dagblöðunum fá- skrúðugri en ella. FRJÁLS OG ÓHÁÐ BLAÐAMENNSKA? Hér skal engum steini kastað að Morg- unblaðinu og DV. Á báðum þeim blöðum er fólk að verki, sem kann vel til blaðaút- gáfu. Þau blöð em opin fyrir greinaskrif- um, án þess að spurt sé um pólitískan lit eða aðrar skoðanir. Það em Tíminn og Þjóðviljinn einnig. Eigi að síður er gmnntónninn í útgáfu Morgunblaðsins og DV, hvorki samvinna né félagshyggja. Gmnntónninn em hægri viðhorf og frjálshyggja í einu eða öðm formi. Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga þegar rætt er um ffjálsa og óháða blaðaútgáfú. NÚ DREGUR TIL ÚRSLITA Næstu vikur munu skera úr um það hvort tekst að skapa samstöðu um nýtt blað, sem flytur sjónarmið frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju og hefur þau að leiðarljósi. Tími útgáfu á ábyrgð stjórn- málaflokkanna er liðinn, en það er höfuð- nauðsyn fýrir þjóðfélagsumræðuna í landinu að sem flest sjónarmið komist til skila. JARÐSPRENGJURNAR Fjárlög vom afgreidd á Alþingi síðustu daga fyrir jól, og enn hefur Bandormur- inn um aðgerðir í ríkisfjármálum ekki hlotið afgreiðslu. Fjárlagafmmvarpið er löggjöf sem er geysivíðtæk og hefúr reyndar með einhverjum hætti áhrif á Iíf og lífsskilyrði hvers einasta manns. Þetta fjárlagafmmvarp felur í sér miklar breytingar frá því sem áður hefur verið. í því felst afgerandi stefnubreyting frá vel- ferðarkerfinu. Ríkisumsvif em ekki minnkuð, heldur er gjöldunum í vem- legum mæli velt yfir á aðra, almenning í landinu, og, ef Bandormurinn fær end- anlega afgreiðslu, á sveitarfélögin. Sannleikurinn er sá að fjárlögin fela nú í sér ýmsar ráðstafanir, sem ekki er séð fyrir endann á hverjar afleiðingar munu hafa. Það er fullt af slíkum óspmngnum jarðsprengjum. HÁSKÓLI OG HEILBRIGÐI Hvemig verður því tekið að ekki verði innritaðir nýir nemendur í Háskóla fs- lands? Með hverjum hætti verður tekið á þeim málum, sem svo sannarlega var ýtt út af borðinu við afgreiðslu fjárlaga? Það á einnig eftir að koma í ljós að fyrirhug- uð sameining spítalanna Borgarspítala og Landakotsspítala felur ekki í sér spamað, heldur stóreykur hættuna á auknum útgjöldum þegar fram í sækir. Með þessu er búið að koma upp tveimur tiltölulega stórum spítölum á okkar mælikvarða, sem stórhætta er á að leggi í mikinn kostnað í aðstöðu og tækjabún- aði sem ekki nýtist nema að litlu leyti. Allt er þetta gert undir þeim merkjum að um frjálsa samkeppni sé að ræða. Skólagjöld verða tekin upp við háskól- ann og í ríkari mæli verður almenning- ur að borga fyrir heilbrigðisþjónustu. Á sama tíma em bamabætumar tekju- tengdar. FALIN SKATTHEIMTA Allar þessar æfingar eru til þess að fela aukna skattheimtu og skíra hana öðmm nöfnum. Enn er almenningur ekki far- inn að finna fyrir þessum aðgerðum eins og mun verða þegar kemur lengra fram á árið, en ég hygg að þegar það verður verði áhrifm fyrir ríkisstjórnina eins og að þurfa að fara yfir jarðsprengjusvæði. KYRRSTAÐA f STAÐ UPPBYGGINGAR Fjárlögin em síður en svo sá hvati til framfara og uppbyggingar sem á þarf að halda. Við þær aðstæður, sem nú em, hefðu þau þurft að auka bjartsýni og létta undir með atvinnuuppbyggingu, meðal annars með því að stuðla að auk- inni þekkingu. Slíku er ekki til að dreifa. Stór áhætta er tekin um það að æðri menntun í landinu lamist og atvinnu- vegunum er íþyngt með álögum. Þvert á móti þyrfti nú að efla menntun og rann- sóknir, sem kæmi til góða við þá upp- byggingu sem þörf er á til þess að vinna úr því, sem við höfum, og nýta okkar auðlindir sem best. Möguleikamir em miklir í þessu landi, en án þekkingar og skilnings á málefnum atvinnuveganna og landsbyggðarinnar verða þeir ekki nýttir. Fjárlögin fela í sér kyrrstöðu í stað uppbyggingar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.