Tíminn - 04.01.1992, Qupperneq 6

Tíminn - 04.01.1992, Qupperneq 6
6 Tíminn Laugardagur 4. janúar 1992 Islenskt landslag Feguröarmat manna breytist gjarna frá einni öld til annarrar og þaö á m.a. viö um landslag. Vottur þess er eftirfarandi þáttur úr feröabók James Bryce lávaröar frá 1872. En fróölegt er eigi aö síö- ur aö sjá íslenskt náttúrufar meö hans augum. Bryce lávarður — James Bryce — kom til íslands 1872, um haustið. í för með honum voru Æneas Mackay lögfræðingur og C.P. IlberL Þeir höíðu áður ferðast sam- an um Alpafjöll og ætluðu eiginlega þetta haust til Nor- egs, en Mackay stakk upp á því að fara til íslands. Þeir fóru frá Leith til Seyðisfjarð- ar og munu hafa verið hér um þijár vikur. Bryce var mikill ferðagarpur og hafði farið víða og gengið á torsótt fjöll. T.d. hafði hann klifið Ararat. Bryce var lögfræðing- ur og sagnfræðingur og stjómmálamaður og hefur m.a. skrifað ágætlega um lög og stjómarfar íslendinga á þjóðveldistímanum. Fræg- asta bók hans var The Holy Roman Empire. Hann var fæddur 1838 og dó 1922. Hér hefur Viihjálmur Þ. Gíslason býtt kafla úr ritgerð hans um íslandsferðina (Im- pressions of Iceland 1872) úr bókinni Memories of Tra- vel. Sumt hefur farið öðru- vísi en Bryce spáði, t.d. um Vatnajökulsferðir og enn annað mun mönnum nú þykja orka tvímælis. En Bryce skrifaði svo ágætlega, hafði svo víða farið og tók svo vel eftir að ánægja og fróðleikur er í að lesa lýsing- arhans og hugleiðingar. „íslandi er auðveldast að lýsa með því að segja hvað þar er ekki. Þar eru engin tré þótt svo virðist sem trjá- gróður hafi verið mikill á tíundu öld því að þá er sagt að menn hafi falið sig í skógum og verið hengdir í trjám. Ekkert korn er ræktað og enginn annar þess háttar jarðar- gróði nema ofurlítið af rófum og kartöflum, sem eru á bragðið eins og þær séu hálfþroskaðar. Einu villtu, ferfættu dýrin eru blárefur (og hefur sennilega komið á rekís frá Grænlandi, eins og hvítabirnir gera endrum og eins enn í dag) og hreindýr. Þau voru flutt inn fyrir svo sem einni öld og eru enn sjaldgæf og eigra um eyðifjöll. Borg er engin nema höfuðstaðurinn og þar eru 1800 manns, enginn annar staður sem hægt væri að kalla þorp hvað þá meira, nema ef vera skyldi hverfið á Akureyri á strönd Norðuríshafsins, en þar eru kringum 50 hús. Þar eru engin gistihús nema eitt á Akyureyri og allt og sumt sem þar er til þæg- inda eru tvö rúm og ein vatnsskál og krukka og knattborð. Þar eru engar hænur, endur eða gæsir (nema villt- ar), engin svín, engir asnar, engir vegir, engir vagnar, engar búðir, enginn iðnaðaur, enginn trúarflokk- ur utan lúthersku þjóðkirkjunnar, enginn her eða floti, engir sjálfboða- liðar eða aðrir varðmenn laga og reglu (nema einn lögregluþjónn í Reykjavík), engir glæpamenn, ekki nema tveir málaflutningsmenn og svo loks engir höggormar. „Hvað er þar þá eiginlega?" Snæfjöll, hverir, jöklar, eldfjöll landskjálftar, norður- ljós, hrafnar, mýrar og umfram allt öræfi eða eyðimerkur. Eða öllu heldur, þar er eyðimörkin, því að þetta er það, sem engin ferða- bók leiðir í ljós: ísland er í raun og veru ein víðáttumikil eyðimörk, umkringd beitilandsbelti sem liggur á láglendinu með ströndum fram og teygist á stöku stað upp í dalina meðfram stóránum upp í hálendið. Og á íslandi merkir eyðimörk ekki einungis víðáttumikið og einmana- legt land eins og stórir flákar á Skot- landi og írlandi hafa orðið (einkum eftir að veiðilönd urðu svo verðmik- il), heldur land sem alltaf hefur ver- ið og ávallt mun verða öræfi, bert land og auðnarlegt, trjálaust og runnalaust og graslaust, þar sem hvorki fé né hross geta gripið niður og þar sem maðurinn getur því aldr- ei sest að. Af þessu miðbiki landsins er mikill hluti þakinn jöklum og fannbreiðum. En jökulbreiðan sem hæstu tindar eyjarinnar rísa upp úr tekur yfir hér um bil 4000 fermflur. Yfir þann jökul hefur aldrei verið farið og mun aldrei verða farið. Fjöllin eru ekki ýkjahá, en snjólínan „Hreindýr eru sjaldgæf og eigra um eyðifjöll." Myndin er frá 1836 og sýnir hreindýr á leiðinni frá Reykjavík til Þingvalla.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.