Tíminn - 04.01.1992, Blaðsíða 7

Tíminn - 04.01.1992, Blaðsíða 7
Laugardagur 4. janúar 1992 Tíminn 7 er ekki heldur nema þrjú þúsund fet yfír sjávarmá! og stórjöklar ná að heita má niður í flæðarmál. í öðrum landshlutum eru eldfjöll og um- hverfis þau óslétt hraun og ná þau stundum yfír mörg hundruð mflur, eins og Odáðahraun, og eru ekki einungis graslaus heldur einnig vatnslaus. Að öðru Ieyti er landið óslétt auðn úr dökkum brunasandi og grjóti eða máske það sem ennþá ömurlegra er, berangursflákar með lausagrjóti og ekki stingandi strái og svo illir yfirferðar að fótvissir hestar komast þar varla áfram. í hraunun- um geta að minnsta kosti verið runnar með dvergbirki og víði sem skýlir sér hjá lágvöxnum burknum í grjóti og holum veðursorfinna hraunklettanna, þar sem ekki bregður fyrir blómi, ekki skordýri, ekki fugli, nema dökkum hrafni, förunaut Óðins. Og síst af öllu sést þar vottur um mannlíf. Það hefði ekki þurft þjóð með eins miklu ímyndunarafli og íslendinga til þess að fylla slík öræfi tröllum og óvætt- um. Meðfram vestur- og norðurströnd- inni og í sumum breiðu árdölunum á Norðaustur- og Suðvesturlandinu er svipur landsins ekki eins ömur- legur. Þar eru breiður af gróður- landi með blómagliti fyrstu sumar- mánuðina. Þar eru bæir á stangli, notalega settir í sólskinsbrekku og grasgrænt túnið á hólnum í kring og bjartur bæjarlækurinn niðandi fyrir neðan. En jafnvel í þessum feg- urri sveitum er mikið af landinu þakið mýrarflóum og er eins og landið sé sífellt á þeirri leið, svo að segja að leggjast í auðn. Þegar riðið er áfram taka menn allt í einu eftir þvf að grasið þrýtur upp úr þurru og er þá hægt að ferðast mflur vegar yf- ir blásna jörð eða bert grjót, þangað til aftur kemur gras á bökkum ein- hverrar djúprar ár. Svona er þetta kringum Reykjavík sjálfa, höfuðstað eyjarinnar, þar sem gróðurlendið nær ekki út fyrir húsin og fimm mínútna gang frá seinasta túninu ber ekkert fyrir augun nema eyði- mörk. Af því að líf mannanna er háð sauðfé og kúm og sauðfé og kýr eru háð grasinu er það eðlilegt að bæ- imir séu fáir og strjálir. Jafnvel f byggilegustu og best ræktuðu sveit- unum eru þorp óþekkt með öllu. Sjaldan finnst nema eitt hús, þar sem óreyndur ferðamaður heldur samkvæmt landabréfmu að sé bær, nema á ströndinni, þar sem tvær eða þrjár sjóbúðir eru stundum í ná- grenni. Milli bæja er oft fimm, sex eða sjö stunda reið. Ég er heldur tregur til þess að tala um landslagið af því að ég veit af reynslunni að áhrifin sem lesandinn verður fyrir eru ekki eins og þau sem höfúndurinn ætlast til. Lands- lagið er mjög furðulegt og sérkenni- legt, svipurinn tígulegur og harð- neskjulegur, en mjög örvandi á sína vísu. En við (ferðafélagamir) urðum þess varir að hver maður sem spurði okkur um þetta þegar við komum heim aftur og hlustaði á lýsingar okkar, fór með þá hugmynd að land- ið væri hráslagalegt og drungalegt og annað ekki, ef til vill hreint og beint ljótt. Þetta spratt af þvf að við reyndum um of að vera réttorðir. Við lýstum landinu eins og það er, hinu svarta og hvíta í landinu (og þetta er land hins svarta og hvíta), og færðum það ekkert úr skorðum. Það er mjög líklegt að eins fari nú og lesandinn fái sömu hugmynd um fs- land, þá að það sé ömurlegt land og lítt aðlaðandi fyrir þann sem ann náttúrunni. En það er samt annað og meira. Náttúrufegurðin er fólgin í tign formsins og auðlegð litanna og allmikilli fjölbreytni þess hvors tveggja. Það er vitanlega oft nauð- synlegt að tign náttúmnnar komi fram í því sem er mjög stórt og þó er þetta ekki eins nauðsynlegt og við höldum oft. íslandi er illa farið bæði að formi og litum. Fjöllin em öll úr eldbmnnu bergi, sum úr stuðla- bergi holóttu og stallagrjóti af ýms- um gerðum, stundum ur yngra hrauni og blágrýti. Fyrri fjöllin em venjulega flöt, þau síðari keilu- mynduð, en hvomg em stórbrotin eða tíguleg. Fjöllin em ekki aðskilin af dölum eins og hjá okkur, heldur af lágum, öldóttum sléttum sem fjarlægja fjöllin gersamlega hvert frá öðm, svo að lítið sést af þeim unaðsmjúku bugðum og beygjum, sem em eins mikill hluti af fegurð undirhlíðanna og tígulegar og skarpar línur em mikilsverðar fyrir fegurð hátind- anna. Á þessum sléttum em vötnin, og þau em sjaldan fögur, af því að löndin em lág og hægt er að sjá yfir allt vatnið í einu. Vötnin liggja milli hæða og hæðirnar steypast ekki beint í vatnið. Þar er ekkert af þess- um dularfullu bugðum og hvörfum fyrir nesodda eins og í Killarney eða Ullswater eða Loch Lomond. Litir em á íslandi aðeins tvennir og aðrir ekki (nema hvítan í snjófjöllunum): sem sé biksverta bmnahraunsins og gulgræna mýrlendanna. Stundum er liturinn undursamlega áhrifa- mikill. í sérstöku ástandi loftsins, einkum um sólarlag, getur hann orðið undursamlega rauður eða fjólublár. Þegar hann breiðist yfir ógöngur hraunlendisins verður hann skelfilega svipharður og þar sem hann er hulinn föl mjallar og íss, eins og á strýtu Heklufjalls. verða áhrifin ákaflega draugaleg. Á gulgræna litnum er mjög falleg slikja, einkum í tæm lofti eins og á íslandi, þar sem leikur ljóss og skugga yfir opið landið er ákaflega fagur svo að ekki verður með orðum lýst. En maður þreytist á þessum sí- felldu samböndum sömu tveggja lit- anna tilbrigðalausum. Þama em engir rauðir litir, hvorki á jörð né hömmm né heiðagróðri, engir gráir eða ljósbláir kalksteinslitir eins og í Ölpunum, engir dökkbláir hellu- steinslitir eins og í Wales, engir grænir litir á fum eða beyki eða eik eða birkivið. TVén vantar alls staðar og hver og einn getur gert sér það í hugarlund hversu mikils landslagið missir þess vegna í mýkt og fjöl- breytni. Og svo em þama engin framsvið og landið er þess vegna eins sneytt því að vera verkefni fyrir málara og nokkurt stórt land getur verið. Alls staðar þar sem er fögur útsýn er hún fjarlæg og víð. Maður rekst ekki á ljúfar, litlar fossbunur eða skógarkvosir eða blómahlíðar í slökkum niður að Iækjum eða á gráa hamra gróna burknum eða hrís- kjarri, eins og teiknarinn hefur yndi af. Allt þetta vantar, alla smámuni og blíðu í fegurð landslagsins. Berar, öldóttar flatneskjur mýrlendis og grjóts, skornar sundur af freyðandi ám og í baksýn eitt: óregluleg, ein- stæð fjöll, sum snævi þakin, sum dökk og hrjúf — þess háttar er heildarsvipur íslensks landslags. Það þarf allan lifandi ljóma loftsins og þann virðuleika sem stendur af miklum víðáttum til þess að ömur- leikinn og tilbreytingarleysið yfir- bugi það ekki. Með Dönum er til sá talsháttur að guð skapaði allan heiminn nema Island, það skapaði fjandinn. Með Dönum og íslending- um eru raunar litlir kærleikar og fólk flatneskjunnar og sandanna í Danmörku á máske enga kröfu til þess að hlustað sé á orð þess þegar um náttúrufegurð er að ræða. Samt sem áður er þessari skoðun þeirra ekki alls varnað. Ég vil að vísu ekki segja að ísland sé á svipinn eins og ill öfl hafi skapað það, en það er eins og það hafi skapast af sjálfu sér, af hendingu, af taumlausum áhrifum náttúruaflanna, eins og það hafi alls ekki verið ætlunin að skapa neina fegurð. Til eru í heiminum héruð, eins og til dæmis Berner Oberland, miðbik Pyreneafjalla og ef til vill ekki síst ensku vatnalöndin, þar sem manni sýnist öfl náttúrunnar hafa verið vits að verki til þess að móta og skreyta landslagið til augnayndis með því að tengja saman hæðir, skóga, hamra og vötn, svo að úr verði hinar fegurstu og fullkomn- ustu myndir, eins og í Rosenlaui eða í Derwentwaterdalnum. Á íslandi er til efniviðurinn í fegurð og tign eða að minnsta kosti meginefnið: fjöll, vötn, jöklar og straumharðar ár. En úr þessu er svo að segja illa unnið, það er svo illa samstætt að fullkom- ið landslag sést sjaldan. Þar eru margir töfrandi tónar, en enginn samhljómur. Mafían missir spón úr aski í Bandaríkjunum: Stærstu verkalýðs- samtökin segja skilið við hana Vindar perestrojku, sem blásið hafa um kommúnistaheiminn, virðast nú vera að ýfa öldumar í þeim bandaríska félagsskap sem hefúr hlotið einna verst umtal og og lotið hvað mestu einræði. The Teamsters nefnist stærsta verkalýðssamband landsins. Það hefúr orð á sér fyrir glæpamennsku og spillingu, og það með réttu. Menn eru löngu orðnir úrkula vonar um að forystumenn fé- lagsins ætli að taka sig á. Nú hafa þessi samtök, sem áður notfærðu sér tengsl við skipulagðan glæpaheim til að skjóta, sprengja og kúga út fé í þeim tilgangi að halda völdum, þó valið sér forseta sem lýs- ir því yfir að nú segi The Teamsters skilið við mafi'una. Leynilegar kosningar í fyrsta sinn Kannski hefði aldrei komið til slíkrar yfirlýsingar frá æðsta manni The Teamsters ef félagsmenn hefðu ekki samþykkt — í fyrsta sinn í um- brotasamri sögu samtakanna — að kosningar til embætta færu fram leynilega í stað handauppréttinga eins og siður hefúr verið, en þannig var hægt að bera kennsl á andófs- menn og refsa þeim. Að atkvæða- talningu rétt ólokinni þótti sýnt að Ron Carey, fyrrverandi landgöngu- liði og yfirmaður New York deildar- innar, hefði unnið með miklum yfir- burðum. Þegar kosningunum var lokið sagði Carey að þama hefði verið á ferðinni hin sígilda saga um Davíð og Golíat „Við fórum beint til óbreyttra félags- manna og unnum.“ Carey hafði heitið því að höggva á vel þekkta hlekki sambandsins við mafi'una og binda enda á alla spill- ingu. Hann lofaði því líka að skera niður laun æðstu embættismanna sem sumir hverjir hafa fengið mörg hundruð þúsund dollara á ári af framlögum 1,55 milljóna félags- manna, allt frá fangelsisvörðum til karlanna sem klæðast búningi Mikka músar í Disneylandi. „Þessi verkalýðssamtök munu framvegis vinna að hagsmunum félagsmanna sinna," lýsti Carey yfir. Skelfingarstjómin liðin undir lok? Slík skelfingarstjóm hefur ríkt í fé- laginu að fáir embættismenn þess gátu mælt opinskátt fyrir endurbót- um. The Teamsters vom upphaflega samtök vömbílstjóra en hafa smám saman orðið stærstu verkalýðssam- tök Ameríku á frjálsum vinnumark- aði. Einn frægasti og alræmdasti forystumaðurinn í sögu félagsins var Jimmy Hoffa og hafði honum verið séð fyrir byssumönnum mafi'unnar til að troða sér Ieið í æðsta embættið í skiptum fyrir hlutdeild í samning- um sem félagsmenn gerðu. Hann var fángelsaður fyrir fjárkúgun 1967, en hvarf árið 1975 og er álitið að fyrrverandi ábyrgðarmenn hans í mafi'unni hafi Iátið ræna honum og drepa. Dauði Hoffa breytti litlu um starf- semi félagsins. Roy Williams, annar forystumaður sem kosinn var með stuðningi mafíunnar, var fángelsað- ur fyrir að múta öldungadeildar- þingmanni demókrata 1983, og Jackie Presser, eftirmaður hans, yfir- skyggði alla framkomu fyrri forystu- manna félagsins þegar hann var bor- inn á gullnum hægindastóli inn í veislu á þingi samtakanna 1986 af fjórum mönnum, klæddum eins og rómverskir hermenn. Uppljóstrari FBI Það kom Teamsters í koll að Press- Ron Carey, hinn nýkjömi forseti The Teamsters, lofar aö rjúfa öll tengsl við mafíuna. Jimmy Hoffa, nafntogaðasti forseti verkalýðssamtakanna, hvarf sporlaust 1975 og er álitið að mafían hafi komið honum fyrir kattarnef. Jackie Presser barst mikið á í forsetastóli en hann reyndist vera tvöfaldur í roðinu. er reyndist vera uppljóstrari fyrir FBI og veitti geysimiklar upplýsing- ar um hvemig mafían hefði gegnsýrt félagið. Með aðstoð hans setti dóms- málaráðuneytið saman 112 blað- síðna ákæruskjal á hendur 18 æðstu embættismönnum samtakanna og á annan tug mafi'umanna, þ.á m. „Snáknum", „Hnetubrjótnum", „Matta hrossi“ og ,Jackie skósveini". Ákæruskjalið var hrikaleg Iesning. Tíu blaðsíður voru helgaðar lýsing- um í smáatriðum á því hvemig þaggað var niður í félagsmönnum sem andmæltu spillingu með byssu- kúlum og sprengjum. En samband- ið greip til harðsnúinnar baráttu og eyddi mörgum milljónum dollara í að þrýsta á þingmenn og dagblaða- auglýsingar. Vald sambandsins var slíkt að á árinu 1988 vom þingmenn fengnir til að undirrita bænarskjal gegn því að málsókn fáeri fram. En ári síðar, rétt áður en átti að hefja dómsmeðferð, gáfúst samtökin upp og féllust á að dómstóllinn mætti skipa þrjá embættismenn til að annast rekstur félagsins, að reka mætti spillta embættismenn þess og að réttmætir endurskoðendur mættu fara yfir bókhald þess. Síðan hafá 135 embættismenn þess verið ákærðir og samtökin hafá varið sex milljónum dollara til að veija þá. Flekkaðir forsetaframbjóðendur Mikilvægasti hluti samkomulags- ins var þó að halda skyldi leynilegar kosningar í félaginu undir eftirliti al- ríkisyfirvalda. Þrír menn gáfú kost á sér til forsetaembættisins en litið var svo á að Carey einn væri óflekkaður af starfsemi fyrirrennaranna. Einn frambjóðendanna, Walter Shea, hafði starfað sem nánasti að- stoðarmaður hvers einasta forseta frá og með Hoffa. í hópi félaga hans eru Joseph ,Joe T.“ TVerotola, 82ja ára, sem dró framboð sitt til varafor- seta til baka frekar en að snúast gegn ásökunum um að hann léti vísvit- andi ógert að rannsaka starfsemi mafi'umanna í félagi sínu. Annar fé- lagi Shea, yfirmanns Chicagodeild- arinnar, skaut son sinn til bana í ág- úsL Hann heldur því fram að um sjálfsvöm hafi verið að ræða og hef- ur ekki verið kærður. Þriðji frambjóðandinn, R.V. Dur- ham, var jafnflekkaður vegna gam- alla tengsla. Allir þrír meðframbjóð- endur hans til varaforseta höfðu ver- ið kærðir fyrir mútuþægni. Kosningin á Carey endurspeglaði vaxandi reiði óbreyttra félagsmanna vegna glæsilífs og spillingar meðal forystumannanna. Jafnframt því sem Carey hefur lofað að útrýma spillingu hefur hann heitið því að leggja niður flugflota Teamsters, en í honum eru fjórar þotur sem yfir- mennimir nota á ferðum sínum um Bandaríkin. Innan við þriðjungur félagsmanna greiddi atkvæði í kosningunum og það er ekki ljóst nákvæmlega hversu mikið ítök skipulagðra glæpasam- taka hafa veikst Jafnframt hefur fé- lögum fækkað um 750.000 frá 1978 og heldur enn áfram að fækka. Car- ey verður að takast að sannfæra meirihlutann um að endalok mútu- þægninnar, sem áður tíðkaðist, sé gjald sem vert er að greiða fyrir ör- ugga framtíð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.