Tíminn - 04.01.1992, Side 12

Tíminn - 04.01.1992, Side 12
12Tíminn Laugardagur 4. janúar 1992 1 i MINNING Ingigerður Jóhannsdóttir Hamarsheiði Fædd 18. febrúar 1923 Dáin 23. desember 1991 Ingigerður Jóhannsdóttir var fædd 18. febrúar 1923 á Hamarsheiði í Gnúpverjahreppi, dóttir hjónanna Jóhanns Kolbeinssonar frá Má- stungu og Þorbjargar Erlendsdóttur á Hamarsheiði. Hún var yngst í hópi sex systkina. Lifa þau hana öll nema elsti bróðir hennar Kolbeinn á Ham- arsholti, fæddur 1909, en hann lést fyrir einu og hálfu ári síðan. Hin eru: Sigríður fædd 1910, fyrrum skóla- stjóri, býr í Víðihlíð. Erlendur fædd- ur 1913, bóndi á Hamarsheiði. Jó- hanna fædd 1914, býr í Haga. Krist- ín, býr á Hamarsheiði, fædd 1917. Uppeldisbróðir Ingu er Jóhann Sig- urðsson, bóndi á Stóra-Núpi, fæddur 1904. Ekkert systkinanna flutti langt frá föðurleifð sinni. Þrjú þeirra reistu sér nýbýli á Hamarsheiði eða í næsta nágrenni. Jóhanna flutti lengst, að Haga í sömu sveit. Inga bjó á Hamarsheiði til dauðadags. Erlendur, afí Ingu, hóf búskap á Hamarsheiði 1890 og hefúr sami ættleggur setið jörðina síðan. Fjár- búskapur hefur verið stundaður þar óslitið fram til þessa dags og er jörð- in vel til þess fallin, þar eru víðáttu- miklir úthagar. Jóhann á Hamars- heiði var fjallkóngur í 40 ár og gegndi margvíslegum félagsstörfum. Þorbjörg var ljósmóðir í áratugi og húsfreyja á mannmörgu heimili. Inga fór til náms að Laugarvatni, fyrst í héraðsskólann og síðar í íþróttaskólann, og útskrifaðist það- an íþróttakennari sem var sjaldgæf menntun á þeim tíma. Næstu árin kenndi hún sund og aðrar íþróttir víða um land. Aðstæður til kennsl- unnar voru um flest ólíkar því sem nú tíðkast. Yfirleitt voru þetta nám- skeið sem stóðu skamman tíma, og fylgdu starfinu mikil ferðalög og stundum svaðilfarir. Inga kenndi meðal annars á Blönduósi, Varma- Iandi, Egilsstöðum og í Fljótshlíð. Þar voru nemendurnir uppkomið fólk af báðum kynjum, sem var sér- stakt, því þá var venjan að konur kenndu kynsystrum sínum. Kennsl- an í Fljótshlíð fór fram á vegum Ung- mennafélagsins þar og svo mikil var ánægjan með störf kennarans að fé- lagið sendi henni stóra bókagjöf og áritað skrautskjal. Sundkennsla fyrir börn úr Gnúpverjahreppi fór fram á Flúðum og var Inga bæði kennari og bflstjóri og ók bömunum fram og til baka, sumum alla leið inn í Þjórsár- dal. Gamall pallbfll, Metúsalem að nafni, var notaður til þessara ferða og sátu krakkamir aftan á pallinum. Bflar vom ekki á hverju heimili á þeim ámm og var Inga fyrsta konan í Gnúpverjahreppi sem fékk ökurétt- indi. Þótt Inga hafi oft minnst þess tíma sem hún kenndi, var þó alltaf ljóst að það var bóndi sem hún vildi vera. Hún hóf því fljótlega fjárbúskap í félagi við föður sinn á Hamarsheiði og tók við búinu að honum látnum og bjó þar stóm kindabúi. Inga var stoð og stytta foreldra sinna í ellinni og annaðist þau síðustu árin þegar heilsu þeirra hrakaði. Inga var ekki allra. Hún fór aldrei á samkomur í sveitinni eftir að hún tók við búskapnum og sást sjaldan á bæjum nema hún ætti erindi. Þeir em eflaust þónokkrir sveitungar hennar sem þekktu hana varla í sjón. En þeir, sem á annað borð kynntust henni, eignuðust vin fyrir lífstíð. Æskuvinir hennar og skólafé- lagarnir úr íþróttaskólanum héldu alltaf góðu sambandi við hana, og sama er að segja um þá sem kynnt- ust henni síðar. Hún var mikill per- sónuleiki, með ákveðnar skoðanir á flestum hlutum og sérlega viljaföst og setti sterkan svip á allt umhverfi sitt. Áhugamálin voru margvísleg. Hún hafði ákveðnar skoðanir á stjórnmálum, þó hún kysi aldrei. Oft sagðist hún vera fyrsta kvenrétt- indakonan í sinni sveit og var eflaust talsvert til í því. Það var ekki aðeins í orði kveðnu, því allt lífshlaup henn- ar bar þess glögg merki að hún væri í uppreisn við hið hefðbundna kven- hlutverk. Hún fór í fjallferðir löngu áður en það varð almennt meðal kvenna og fór þá gjarna einhesta, enda vel ríðandi. Allan sinn búskap átti hún hross af sama kyni, afkom- endur Stóm-Gránu, hvítrar merar sem Jóhann faðir hennar hafði með sér frá Mástungu þegar hann fluttist að Hamarsheiði. Eftirminnilegustu reiðhross Ingu vom allt merar. Ýmsir sýndu áhuga á að kaupa þær, en þær vom aldrei falar. Búskapar- hættirnir kröfðust góðra reiðhrossa, bæði í smalamennskum og eins þeg- ar kindurnar bám enn um allan út- hagann. Var hún þá mikið á ferð um landareignina og þekkti þar hverja þúfu með nafni. Sjálf vítnaði hún oft í brot úr ljóðinu Ekkjan við ána: Hún elskaði ekki landið, en aðeins þennan blett, af ánni nokkra faðma og hraunið svart og grett. Er grannamir sig fluttu á hnöttinn hinum megin, hún hristi bara kollinn ogstarði fram á veginn. (Guðmundur Friðjdnsson) Þetta sagði hún að ætti vel við um sig. Það var þó orðum aukið, því þótt Hamarsheiðin væri henni mikils virði, náði ást hennar og áhugi á landinu og fróðleik tengdum því langt út fyrir landareignina. Eftir að hún hóf búskap ferðaðist hún fyrst og fremst í huganum og á korti. Inga las mikið, einkum ferðasögur, ævi- sögur og ýmsan kveðskap, auk þess sem hún var mikill ættfræðingur. Varð sá maður tæpast nefndur að hún kynni ekki að segja frá ætt hans og uppruna, enda var hún stálminn- ug. Hún safnaði vísum og þjóðlegum fróðleik og átti meðal annars í fómm sínum tvo vísnaflokka um bændur í sveitinni og nokkur lausakvæði sem hvergi hafa birst á prenti. Við bróðurdætur Ingu, sem þessar línur ritum, ólumst á margan hátt upp undir hennar handleiðslu á Hamarsheiði. Samband okkar við hana var meira og merkara en svo að hægt sé að gera því nokkur skil í stuttri grein. Það væri efni í ritsafn. Hún var órjúfanlegur þáttur í öllum okkar uppvexti, hafði áhuga og skoð- anir á öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Vitanlega breyttist samband okkar við hana eftir því sem árin Iiðu, en það var alltaf sterkt og bæði okkur og henni afar mikils virði. Hún var frá því við munum fyrst eftir okkur, leikfélagi okkar og vinur, kennari og fyrirmynd um margt. Síðustu árin var hún orðin afesystir tveggja bama og sagan ferin að endurtaka sig. Vináttan við þau var jafnmikil, en því miður verður sagan ekki lengri. Síðustu mánuðimir voru erfiðir. Margir komu þó við sögu til að gera þá léttbærari. Hjónin í Haga, J6- hanna og Haraldur, áttu þar stærst- an hlut að máli. Hjá þeim dvaldi hún síðustu mánuðina, orðin mikið veik, og naut einstakrar umönnunar og uppörvunar Jóhönnu systur sinnar, en samband þeirra systra var ávallt gott og náið og gott. Þær vikur, sem hún lá á krabbameinsdeild Landspít- alans, fékk hún góða aðhlynningu og bar hún mikið traust til lækna og hjúkrunarfólks þar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Margir gestir heimsóttu hana í veikindunum, bæði á spftalann og að Haga. Það mat hún mikils. Sérstak- lega mikils virði voru heimsóknir Hrannar, vinkonu Ingu, sem stóð eins og klettur við hlið hennar alltaf, þegar þörfin var mest. í erfiðum veikindum sýndi Inga þann fádæma viljastyrk sem alltaf hafði einkennt hana. Hún einangraðist heldur aldr- ei, því lífslöngunin og áhugi fyrir öllu, sem var að gerast, hélst til síð- ustu stundar. Björg Eva, Vigdís og Margrét Erlendsdætur Fleiri greinar um Ingigerði munu birtast á þriðjudag. Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Syðstabæ Fædd 20. október 1897 Dáin 26. desember 1991 Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Farþú í friði, friður Guðs þig blessi, haíðu þökk fgrir allt og allt. Gekkstþú með Guði, Guð þér nú fglgi, hans dgrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) í dag verður amma mín, Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, fyrrum hús- freyja í Syðstabæ í Ólafsfirði, jarðsett frá Ölafsfjarðarkirkju. Með ömmu Pálu er héðan horfin blíðlynd, hugljúf og fómfús, en um leið hógvær afbragðskona. Hennar er Ólafsfirði nú minnst með ást, þakklæti og virð- ingu af okkur öllum sem höfum not- ið ástríkis hennar, umhyggju og hlýju í ríkum mæli. Hún var dóttir hjónanna Jóhanns Björnssonar og Svanfríðar Margrétar Jónsdóttur, er þá bjuggu í Sandgerði í Dalvík, en var á 11. ári er þau fluttu til Ólafsfjarðar og settust að í Hom- inu með dæturnar tvær, ömmu Pálu og Sigríði (síðar Sigga í Sandgerði). Amma Pála er í sögu Svarfdæla talin ein af frumbyggjum Dalvíkurþorps, og Ólafsfjarðarkauptún var á frum- byggjastigi er hún settist þar að. Aríð 1918 gekk hún að eiga heit- mann sinn Helga Jóhannesson, sem ættaður var úr Fljótum en flust hafði til Ólafsfjarðar í foreldrahúsum. Þau settu bú saman í Sandgerði í Horn- inu, en fluttu að jörðinni Lóni 1921. 1924 fluttu þau aftur í kauptúnið og síðar sama ár hóf Helgi þar byggingu nýs íbúðarhúss. í það fluttu þau 1926 og gáfu nafnið Syðstibær. Þau vom síðan ætíð við hann kennd. Afi í Syðstabæ var ekki heilsuhraust- Leikskólar Reykjavíkurborgar Leikskólastjóri Leikskólastjóri óskast á 25-30 barna leikskóla í Vesturbæ strax. Upplýsingar gefur Bergur Felixson á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. ur, en ötull og mjög verkhygginn, enda greindur vel og forsjáll. Hann stundaði smíðar og hlaut réttindi til að standa fyrir byggingum í Ólafs- firði, sem hann gerði ásamt verk- stjórn við vegagerð. Síðar annaðist hann fiskmat og var þá fulltrúi Fisk- mats ríkisins. Hann tók þátt í málefn- um bæjarins, sat í nefndum og ráð- um um ýmis mál og framkvæmdir; hann var tillögu- og úrræðagóður og fylginn sér. Amma og afi eignuðust 12 böm. Hennar verk var að sjá um heimilis- haldið og annast bömin og skepn- umar, því lengst af höfðu þau einnig búskap til heimilisþarfa. Hún gekk jafnframt að hvers konar fiskvinnu og heyskap. Verkahringur hennar var stór og umsvifamikill, enda urðu vinnudagamir oft ærið langir. Heim- ilistæki og þægindi nútímans vom ekki til á fyrri hluta aldarinnar, svo allt varð að vinna í höndunum. Við þær aðstæður skapaði hún eigin- manni sínum og bömum heimilið sem varð þeim skjól og afdrep í önn- um og amstri; þar var hlýtt og bjart hvemig sem viðraði, hvað sem á gekk utan þess. Börn þeirra vom: (1) Guðrún Hulda, f. 2. okt. 1917, e-m. Halldór J. Kristinsson, (2) Sigurbjörg, f. 9. mars 1919, e-m. Brynjólfur Sveins- son, lést 1981, (3) María Sigríður, f. 22. maí 1920, e-m. Sverrir Þ. Jóns- son, lést 1978, (4) Jófríður, f. 7. sept. 1922, e-m. Eiríkur B. Friðriksson, (5) Sigríður, f. 6. júlí 1924, e-m. Gísli Magnússon, lést 1984, (6) Sumarrós Jóhanna, f. 20. mars 1926, e-m. Kle- mens Jónsson, (7) Helga, f. 15. nóv. 1927, lést 1941, (8) Sesselja Jóna, f. 3. aprfl 1931, e-m. Hörður Jóhannes- son, (9) Guðlaug, f. 19. mars 1933, e- m. Snorri Halldórsson, (10) Ásta, f. 28. mars 1937, e-m. Kristján H. Jóns- son, (11) Viðar, f. 29. ágúst 1938, lést 1979, e-k. Bima M. Eiríksdóttir, (12) Jóhann, f. 1. okt. 1940, e-k. Hildur Magnúsdóttir. Barnabömin urðu 42, bamabama- böm em orðin 75 og barnabama- barnaböm em orðin 8. Afkomendur þeirra búa víða um land, margir í Ól- afsfirði og meirihluti við Eyjafjörð. Að ömmu Pálu stóðu sterkir norð- Ienskir stofnar. Jóhann faðir hennar, áður bóndi í Sauðaneskoti í Svarfað- ardal, var sonur Bjöms Björnssonar, bónda á Hóli í Svarfaðardal, og Krist- ínar Jónsdóttur konu hans, Þorkels- sonar bónda og hreppstjóra í Göngu- staðakoti í Svarfaðardal. Svanfríður Margrét móðir hennar var dóttir Jóns Þórðarsonar, bónda í Hrapps- staðakoti í Svarfaðardal, og konu hans Sesselju Jónsdóttur, Jónssonar bónda á Ytraholti í Svarfaðardal. Ég naut þess láns að kynnast ömmu Pálu vel. Oft átti ég leið í Syðstabæ þegar ég óx upp í Ólafsfirði, og var ekki að spyrja að móttökum hennar. Alltaf átti hún hlý orð og oft eitthvert góðgæti að stinga að lítilli telpu- hnátu. Ef eitthvað amaði að, var hún alltaf til staðar og huggaði af þolin- mæði og næmi þess sem ekkert aumt má sjá. Þannig var hún amma Pála mín. Eftir að við höfðum flutt burt frá Ól- afsfirði hélt Syðstibær áfram að vera fastur punktur í tilvemnni, og fastur liður í ferðunum til Ólafsfjarðar að heimsækja þau í Syðstabæ. Eftir að hún flutti þaðan að afa látnum, árið 1978, til Ástu og Kristjáns, og síðan 1982 að hjúkmnar- og dvalarheimil- inu Hombrekku þegar það var opn- að, hefur enn verið litið á mannlaust húsið. En því er nú sjálfhætt, Syðsti- bær er í raun horfinn — hann hvarf með ömmu Pálu. Amma Pála naut í elli kærleiksríkr- ar umönnunar Ástu dóttur sinnar og Kristjáns manns hennar, bæði með- an hún dvaldi á heimili þeirra og síð- ar á Hombrekku. Þeim góðu vinum færi ég mínar bestu þakkir, svo og stjómendum og starfsfólki að Hom- brekku. Að ferðalokum þakka ég elskulegri ömmu minni samfylgd og fordæmi sem hefur reynst vel, þó ég teljist kona af ólíkri kynslóð. Megi hún á himnum fá góða heimkomu í ríki hins kærleiksríka föður og njóta þar friðar, sem hún sjálf í hógværð óskaði sér. Lífið var ömmu Pálu ekki mjúkhent fremur en mörgum öðmm. En hún átti lífsspeki sem gerði henni kleift að mæta köldum vindum lífsins og bera þunga sorg af óvenjulegu jafnaðar- geði. Hún var trúuð vel og í trúnni átti hún þessa sterku kjölfestu. Hún færði hana þannig í orð: Ég er sátt við Guð og menn. Það er Guð einn sem ræður, en mennimir þenkja. Hún hélt Iíka mikið upp á sálma. Ein af sálmavísum þeim, sem hún söng oft og fann í styrk þegar á bját- aði, er hér tilfærð að endingu: Regnslutími œvin er. Ó, minn Guð, mig veikan leiddu, gegnum böl, sem mætirmér, mína leið til heilla greiddu. Veit í trú ég vakað fái, veit ég sigri góðum nái. (Helgi Hilfdánarson) Guðlaug Pálína Eiríksdóttir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.