Tíminn - 04.01.1992, Qupperneq 16

Tíminn - 04.01.1992, Qupperneq 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 AUÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 Öðruvísi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUTIR. MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 EURO-HfllR á Islandi Lausnin er: Enzymol , ' '^Nýtt í Evrópu ! .J§ nEngin hárfgræðsla *nEngin gerfihár JbW nEngin lyfjameðferð nEinungis tímabundin notkun Eigió hár með hjálp lifefna-orku EURO-HAIR (f, QÍ C7CM1 P:0:Box 188- 121 Rvik V3l 0/UJJ I e.kl. 16.00 Áskriftarsími Tímans er 686300 TVðFALDUR 1 ■ vlnnlngur (U lnninii LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1992 Grunnur lagður að tengingu fslensku krónunnar við ECU með nýrri gengisvog: Evrópumyntir fá aukið vægi í gengisskráningu Við gengisskráningu í gærmorgun var í fyrsta skipti notuð ný gengisvog, sem samsett er af evrópsku gjaldmiðilseiningunni (ECU), Bandaríkja- dollar og japönsku yeni, en áður var gengi miðað við gengi 17 gjaldmiðla landa sem ísiand á mest viðskipti við. í nýju gengisvoginni er vægi ECU 76%, Bandaríkjadollars 18% og japansks yens 6%. Vægi evrópskrar myntar hefur aukist á kostnað dollars og yens. Með þessari breytingu er verið að leggja grunninn að tengingu íslensku krónunnar við ECU í samræmi við yfirlýsingar ríkisstjómarinnar frá því í október í haust Gengi krónunnar verður eftirleiðis skráð þannig að meðalgengi sam- kvæmt gengisvoginni verði stöðugt frá lokum síðasta árs, en fram til þessa hafði það haldist stöðugt í tvö ár frá desember 1989. í október í haust sendi viðskipta- ráðuneyti ftá sér fréttatilkynningu þar sem skýrt var frá því að ftá og með áramótum yrði gengisvog breytt og hún einfölduð, þannig að í henni verði ECU, Bandaríkjadollar og jap- anskt yen. Breytingin undirstrikar að verið er að leggja grunninn að þvf að tengja íslensku krónuna við ECU. Hin nýja gengisvog leysir af hólmi gengisvog sem samsett var úr 17 gjaldmiðlum og byggðist á hlutdeild landa í vöruskiptum íslands. Sam- kvæmt eldri gengisvog var hlutur Evrópugjaldmiðla 72,9%, dollars 18,6% og japansks yens 8,5%. Með nýrri gengisvog eykst hlutur Evrópu- myntar í 76%, en hlutur dollars minnkar í 18% og yens í 6%. Við endanlega ákvörðun gengisvog- arinnar var í meginatriðum höfð hliðsjón af þremur þáttum. í fyrsta lagi var lítið á landaskiptingu vöru- skipta, eins og við ákvörðun fyrri voga. í öðru lagi var byggt á nauðsyn þess að undirstrika alvöruna á bak við undirbúning undir ECU-tengingu krónunnar í framtíðinni. Þetta kem- ur annars vegar fram í einföldun gengisvogarinnar og hins vegar í því að vægi ECU er nokkuð meira en landaskipting utanríkisviðskipta ís- lands gefur tílefni til. í þriðja lagi var tekið óbeint tillit til þjónustuvið- skipta og annarra þátta en beinna vöruskipta sem hafa áhrif á viðskipta- jöfnuð. Engin breyting verður á því hvað myntir eru skráðar hér á landi. Þann- ig verða myntír Norðurlandanna og Kanada áfram skráð, þótt þær verði ekki hluti af gengisvoginni sem not- uð er tíl að ákvarða gengi krónunnar. Menningarsjóður útvarpsstöðva: Hrafn Gunnlaugsson skipaður formaður Menntamálaráðherra hefur skipað stjórn Menningarsjóðs Útvarps- stöðva, en hlutverk hennar er að veita framlög til eflingar inn- lendrar dagskrárgerðar í hljóð- varpi og sjónvarpi. Tekjur sjóðsins eru sérstakt gjald, menningar- sjóðsgjald, sem er 10% af auglýs- ingatekjum útvarpsstöðva. Stjórnina næstu tvö árin skipa þau Björg Einarsdóttir rithöfund- ur, en hún er tilnefnd af útvarps- réttarnefnd, Guðni Guðmundsson rektor, en hann er skipaður af út- varpsráði og Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri, en hann er skipaður án tilnefningar og er jafnframt formaður sjóðsstjórnar. -PS Ný sjúkrabifreið Borgfirðinga stendur enn ónotuð vegna ósamkomulags milli ríkis og Rauða kross deildarinnar: Engin sjúkrabifreið eftir mánaðamótin Enn stendur allt fast, vegna kaupa Rauða kross deildar í Borgamesi á nýrri sjúkrabifreið, en ekki hefur náðst samkomulag um rekstur og notkun hennar við hið opinbera. Ef ekki næst samkomulag fyrir 1. febrúar verður Citroen bifreið sú, sem deildin á og heilsugæslustöðin í Borgaraesi hefur rekið, tekin úr umferö, enda fullnægir hún ekki kröf- um um sjúkrabifreiðar. Sjúkrabifreið sú sem Rauða kross deildin í Borgamesi hefur fest kaup á fyrir um 6,5 milljónir króna stendur enn óhreyfð og er því enn notast við 1982 árgerð af Citroen, sem uppfyllir engan veginn þær kröfur sem gerðar eru tíl sjúkrabifreiða. Að sögn Guð- mundar Inga Waage, formanns Rauða kross deildarinnar í Borgar- nesi, hafa engar viðræður farið fram sem leitt gætu til lausnar málsins, en þó stendur tíl að nefnd frá heilsu- gæslustöðinni í Borgamesi fari á fund í ráðuneytinu á næstu dögum tíl að reyna að leysa úr flækjunni. Ef ekki næst samkomulag um rekstur bifreiðarinnar, mun Rauða kross deildin taka úr notkun Citroen bíl- inn, sem er eign þeirra en heilsu- gæslustöðin hefur haft til afriota og verður því Borgames án sjúkrabfls frá 1. febrúar, ef að líkum lætur. Forsaga málsins er sú að samning- ur var gerður um kaup og rekstur nýrrar sjúkrabifreiðar við Heilsu- gæslustöðina í Borgamesi, sem hljóðaði upp á að stöðin fengi bílinn til afnota, en Rauða kross deildin fengi af honum tekjumar. Hingað til hafa tekjur af noktun Citroen bif- reiðarinnar mnnið til Heilsugæslu- stöðvarinnar og hafa farið í greiða bflstjóra laun, en hann er jafnframt húsvörður í stöðinni. Samningur- inn var háður samþykki ráðuneytis, en í nóvember síðastliðnum brá svo við að ráðuneytíð hafnaði honum og við það hefur setið síðan. ,Málið snýst í raun um það að við emm að útvega Heiisugæslustöðinni mjög fullkominn og dýran bíl og deildin hefur ekki efni á að útvega bflinn fyr- ir ekki neitt. Því viljum við fá tekj- umar af bflnum. Til þess að dæmið gangi upp og hægt verði að endur- nýja hann eftir hóflegan tíma og við getum greitt okkar skuldir, þurfum við að fá tekjumar af bflnum og rík- ið þyrfti að leggja út fyrir kostnaði vegna ökumanns, en hann er jafri- framt húsvörður í heilsugæslustöð- inni,“ sagði Guðmundur Ingi Waage í samtali við Tímann. Það er nokkuð ljóst að ef ekki næst samkomulag í málinu fyrir 1. febrú- ar verður engin sjúkrabifreið í um- sjá Heilsugæslustöðvarinnar í Borg- amesi og eina úrræði starfsmanna stöðvarinnar verður að semja við björgunarsveitina þar í bæ um hugsanlega notkun á þeirra bifreið. Þeirra bifreið er þó ekki jafnfull- komin og sú sem bíður í umsjá Rauða kross manna, tilbúin til notk- unar. -PS Áhorfendafjöldi á leik- rítið Búkollu, sem sýnt hefur veríð í Þjóðleikhúslnu, nálgast nú tíunda þúsundið og virðist ekkert lát vera á aðsókninni. Það var Sveinn Einarsson sem skrifaði leikritið og gerði upp úr þjóðsögunni um Búkollu og strákinn sem leitar hennar og annarri sögu um sömu kúna og stúlku sem leitar Búkollu. Með aðalhlutverk í Búkollu fara Sig- urður Sigurjónsson og Sigrún Waage, sem við sjáum á með- fylgjandi mynd. Reykjavík: Fótbrotnaði í árekstri Tveir bílar rákust saman um klukk- an ellefu í gærmorgun á mótum Sæbrautar og Skeiðarvogs, en bfl- arnir komu úr gagnstæðum áttum og ætlaði ökumaður annarrar bif- reiðarinnar að beygja inn Skeiðar- voginn. Afleiðingarnar urðu því, eins og áður sagði, að bflarnir rák- ust saman. Ökumaður annarrar bif- reiðarinnar var fluttur á slysadeild og við rannsókn kom í ljós að hann var fótbrotinn. Bflamir skemmdust báðir mikið og voru fluttir burtu með krana. -PS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.